Morgunblaðið - 18.04.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
17
Veist þú hvað
fjölskylda þín greiddi
í skatta á síðasta ári?
- Bara fvrir lvf!
Á síðasta ári var samanlagður lyfjakostnaður
landsmanna u.þ.b. 3.600.000.000 krónur. Út frá
þeirri tölu getur þú reiknað út að fjölskyldan á
myndinni greiddi tæpar 60.000 krónur.
Getum við lækkað þessa tölu?
Vjð íslendingar höfum fyrir löngu orðið ásáttir um
að greiða sameiginlega fyrir bróðurhlutann af öllum
kostnaði við heilsuvernd og heilsugæslu,
enda státum við af einu besta heilbrigðiskerfi
heims.
En þótt við greiðum með glöðu geði fyrir
þetta fyrirmyndar heilbrigðiskerfi, þá gerum
við kröfu um að fé okkar sé notað á þann
hátt að sem flestir njóti góðs af.
Ein leið til að tryggja það er að kaupa það
lyf sem kostar þjóðina og þig sjálfan minna þegar um
tvö lyf er að velja með sömu virkni.
Til þess að stuðla að því að við fáum sem mest fyrir
peninga okkar hefur Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið látið gera skrá yfir þau lyf
sem hafa sömu verkun og önnur dýrari, jafnvel
margfalt dýrari lyf. Ef læknirinn lætur þig fá lyf af
þessari skrá sparar þú ekki aðeins af því fé
sem þú reiðir af hendi við lyfjakaupin,
heldur einnig af skattpeningum þínum.
Ræddu þessi mál við lækninn. Hann
hjálpar þér við valið og þannig standið þið
saman vörð um hagsmuni þína og okkar
allra.
Lœkkum
lyfjakostnað
HEILSAN ER PÍN DYRMÆTASTA EIGN
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
ARGUS/SÍA