Morgunblaðið - 18.04.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
23
Skeifukeppnin á Hólum:
V eðurguðirnir
í aðalhlutverki
_________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
HÓLAMENN fóru ekki var-
hluta af veðrinu frekar en
Hvanneyringar þegar halda
átti árlega keppni um Morgun-
blaðsskeifuna á miðvikudag i
síðustu viku. Reyndar var veð-
rið öllu verra á Hólum en það
hafði verið á Hvanneyri, svo
slæmt að fresta þurfti keppn-
inni fram eftir degi. En öll él
birtir upp um síðir og var
keppnin haldin í ágætis veðri
undir kvöld.
Sigur í keppninni hafði Hulda
Brynjólfsdóttir frá Hreiðurborg í
Flóa en hún keppti á Spæni frá
Þjórsártúni og hlaut í einkunn
8,73. En Hulda lét ekki þar við
sitja því hún hlaut einnig ásetu-
verðlaun Félags tamninga-
manna. í öðru sæti keppninnar
varð Haraldur Briem frá
Reykjavík sem keppti á Álfi frá
Eiríksstöðum. Haraldur hlaut
8,35 í einkunn. í þriðja sæti varð
Jóhann Magnússon frá Sauðár-
króki en hann keppti á Spólu frá
Varmalæk og hlaut í einkunn
8,28.
Rétt undir myrkur var haldin
gæðingakeppni á fijálsu nótun-
um og sigraði þar Ljúfur frá
Lambanesreykjum, eigandi Al-
freð Hallgrímsson en knapi var
Guðbjörg Sigurðardóttir, í öðru
sæti varð Spænir frá Þjórsárt-
úni, knapi Hulda Brynjólfsdóttir
og í þriðja sæti Spóla frá Varma-
læk, eigandi Björn Sveinsson,
knapi Jóhann Magnússon.
Nokkra furðu vakti að skeifu-
keppnin skyldi ekki færð inn í
hina glæsilegu reiðskemmu sem
reist hefur verið á Hólum en þar
er völlur 20m x 40m að stærð
og góð aðstaða utan hans fyrir
áhorfendur. Einhveijir nemenda
settu sig á móti því að keppnin
yrði færð inn og þar við sat. En
full ástæða er til að óska Hóla-
mönnum til hamingju með þessa
ágætu byggingu sem án efa á
eftir að nýtast þeim vel í framt-
íðinni.
Skeifukeppnin á Hólum er með
nokkuð öðru sniði en keppnin á
Hvanneyri að því leyti til að á
Hólum mega krakkamir koma
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hulda Brynjólfsdóttir frá Hreiðurborg gerði sér lítið fyrir og sigraði í skeifiikeppninni á Spæni frá
Þjórsártúni og hlaut hún einnig ásetuverðlaun Félags tamningamanna.
með lítið tamin hross en á Hvann-
eyri er skilyrði að ekki hafi verið-
farið á bak þeim áður. Út af fyr-
ir sig er hugmyndin á Hólum
ekki svo afleit en komið hefur á
daginn að erfitt er að draga
mörkin hversu mikið hrossin
megi vera tamin. í keppninni nú
voru tvö hross án efa meira tam-
in en ráð er fyrir gert. Annað
hrossið sem hér um ræðir er 9
vetra gamalt, var sagt 7, og hef-
ur skeiðað 250 metra á 25 sek-
úndum og verið nokkur ár í tamn-
ingu og þjálfun. Hitt hrossið er
víst með ættbókarnúmer í far-
teskinu. Vafalaust geta allir ver-
ið sammála um að þegar hross
eiga slík afrek að baki séu þau
upp úr því vaxin að vera í tamn-
ingakeppni. Þá má þess geta að
á Hvanneyri fellur keppandi úr
keppni ef hrossið hans forfallast.
Svo einfalt sem það nú er.
Að lokinni keppni fór verðlaun-
afhending fram í reiðskemmunni
góðu.
Skíðamessur
Fjöldi manns sótti í skíðasvæði víðs vegar um land um páskana og var
veður víðast hvar gott flesta dagana. Hátíðarblær var á skíðsvæði Víkings
í Sleggjubeinsskarði á skírdag og í Bláfjöllum á páskadag er séra Pálmi
Matthíasson messaði þar. A myndinni flytur séra Pálmi bænarorð í
Sleggjubeinsskarði og blessar mannvirki þar og skíðaleiðir.
„Ingiríður
Oskarsdóttir“
á Tálknafirði
Tálknafírði.
Sá ánægjulegi en alltof sjald-
gæfi atburður átti sér stað hér
á Tálknafirði laugardaginn 7.
apríl, að nýstofnuð leiklistar-
deild Ungmennafélags Tálkna-
ijarðar firumsýndi leikritið
„Ingiríður Óskarsdóttir" eftir
Trausta Jónsson, veðurfræðing.
Fyrir nokkrum vikum kom hing-
að Þorsteinn Eggertsson, leik-
stjóri, og hóf æfingar með hinum
upprennandi leikurum og það verð-
ur að segjast eftir að hafa séð
sýninguna að vel hefur til tekist,
bæði af hendi leikstjóra og leikara.
Undanfarna áratugi hefur ekki
verið aðstaða til að setja hér upp
leikrit, þó menn létu sig hafa það
hér áður fyrr að notast við gamla
samkomuhúsið, þar sem aðstaðan
er vægast sagt mjög léleg til leik-
sýninga og með vaxandi kröfum
lögðust leiksýningar þar alveg af.
Þegar hið nýja íþrótta- og félags-
heimili var tekið í notkun fyrir um
tveimur árum, að vísu ekki full-
byggt enn, fór að skapast góð
aðstaða, meðal annars til leiksýn-
inga, en nýlokið er stækkun leik-
sviðs. Gera menn sér vonir um að
þessi bætta aðstaða hvetji heima-
menn og aðra til þess að tilbiðja
Thalíu hér.
Um 100 manns sóttu frumsýn-
inguna, þ.e. liðlega fjórði hver íbúi.
Þætti þetta líklega þokkaleg að-
sókn víðast hvar. Fyrirhugað er
að færa upp leikritið í nágranna-
byggðunum nú á næstunni.
- JOÐBÉ
I
Wjjijpw1...