Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 25 Bretland: Rör eða byssuhlaup? St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins. BREZKIR tollgæzlumenn stöðvuðu í sl. viku útflutning á átta stórum stálrörum til Iraks í höfninni í Middlesborough á þeirri forsendu, að þau yrðu notuð í byssuhlaup. Ágreiningur er um, hvort það sé yfireitt mögulegt. Iraskt fyrirtæki pantaði rörin hjá stálfyrirtæki í Sheffield til að nota í olíuleiðslur. Búið var að afhenda hluta af 26 stálrörum, sem írakar höfðu pantað, og 8 átti að skipa út um sl. helgi. Þá gripu tollverðir í taumana. Talsmenn framleiðslufyrirtækis- ins, Forgemaster, voru furðu lostnir yfir þessum aðgerðum. Þeir höfðu Framkvæmdastj órn EB dregur umboð fyrir EFTA-viðræður Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins. FLEST bendir til þess, að enn dragist að framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins (EB) taki ákvörðun um samningsumboð fyrir fulltrúa sína í viðræðum við fulltrúa Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) um evrópskt efnahagssvæði (EES). Ríkir óvissa um hvort formlegar samn- ingaviðræður bandalaganna geti hafist á þeim tíma, sem ætlað var, það er fyrir lok júní. Framkvæmdastjórnin frestaði af- greiðslu samningsumboðsins í síðustu viku. Var sú skýring þá gef- in, að nokkrir framkvæmdastjóranna hefðu ekki getað sótt fundinn vegna anna. í þessari viku situr Frans Andriessen, sem hefur umsjón með samningum EFTA og EB innan framkvæmdastjórnarinnar, ekki fund hennar. Frá stjórninni fer málið fyrir ráðherra EB-landanna, en fyrst verður það kynnt í utanríkisnefnd þings Evrópubandalagsins. Er ekki útilokað að þingmenn krefjist al- mennrar umræðu um málið á fundum þingsins í Strassborg um miðjan maí. Frestunin innan framkvæmda- stjórnarinnar þykir benda til þess, að þar ríki ekki einhugur um málið. Andriessen sagði í Brussel í síðustu viku, að tryggja þyrfti sjálfsákvörð- unarrétt EB gagnvart EFTA og auk þess væru EFTA-löndin með ýmsa fyrirvara gagnvart reglum EB. Þess- ir fyrirvarar snerta landbúnað, sjáv- arútveg, atvinnufrelsi, rétt til fast- eignakaupa, frelsi til að stofna fyrir- tæki, umferð langferðabíla og frjálst flæði fjármagns. Óvíst er hvaða afstöðu fram- kvæmdastjórnin tekur til fríverslunar með fisk í ákvörðun sinni um umboð- ið. Heimildarmenn í Brussel segja, að framkvæmdastjómin telji fríversl- un með sjávarafurðir jafngilda greið- ari aðgangi að mörkuðum EB og þess vegna verði ekki um hana sám- ið nema fiskveiðiheimildir í lögsögu EFTA-ríkja komi í staðinn. Samkvæmt heimildum innan EB þykir lokaniðurstaða nýlegs fundar umhverfismálaráðherra EFTA-land- anna ekki auka líkur á samkomulagi um evrópska efnahagssvæðið. Á fundi sínum staðfestu EFTA- ráðherrarnir þann ásetning að EFTA-reglur skuli gilda í umhverfis- málum, þar sem þær ganga lengra en EB-reglur. Innan EB er bent á, að sameiginlegar reglur EB, t.d. um mengunarvarnir og notkun ýmissa efna hafi kostað mikla og tímafreka vinnu. Þar sé um málamiðlun milli 12 ríkja að ræða og ólíklegt sé, að nokkur hafi áhuga á að hefja deilur um þær að nýju vegna EFTA-ríkj- anna. öll tilskilin leyfi frá viðskiptaráðu- neytinu til að gera rörin fyrir íraka. Eftir aðgerðir tollgæzlunnar sýndu þeir myndband, sem þeir höfðu gert til kynningar á fyrirtækinu, þar sem rakin var framleiðsla stálröranna. Þeir sögðust ekkert hafa að fela um þessi viðskipti. Tollgæzlumennirnir telja enn, að rörin hafi átt að nota í stóra byssu í írak, sem drægi allt að 200 kíló- metrum. í fyrstunni staðfestu sér- fræðingar varnarmálaráðuneytisins, að þetta væri mögulegt. Þeir tóku jafnvel undir, að mögulegt væri að skjóta gervihnetti á loft úr byssu úr svo stórum stálrörum. En síðar runnu á þá tvær grímur. Talsmenn fyrirtækisins benda á, að þessar 8 pípur séu aðeins hluti af stórri leiðslu og írakar geti ekki sett hlutana saman upp á eigin spýt- ur, hvað þá búið til byssu úr leiðsl- unni. Aðrir sérfræðingar hafa vísað á bug þeim möguleika, að hægt sé að skjóta gervihnöttum á braut með stórri byssu. Gervihnettir gætu aldr- ei þolað þrýstinginn af skotinu. Stjórnarandstaðan hefur krafið stjórnvöld um skýringar á þessum atburði og spurt, hvort Bretar ætli að verða að athlægi um víða veröld fyrir mistök tollvarða. Tollverðirnir halda fast við skýringu sína. Stjórn- völd hafa ekki enn gefið út neinar yfirlýsingar um þetta mál. Margaret Thatcher forsætisráðherra sagðist þurfa að kanna staðreyndir málsins, þegar hún var innt eftir þessu, eftir fund með Bush, Bandaríkjaforseta, á Rermúdaeyjum um sl. helgi. Reuter Sú norska sætust Rauðhærð norsk fegurðardís, Mona Grudt, var útnefnd „ungfrú alheim- ur“ í samnefndri fegurðarsamkeppni, sem fram fór í Los Angeles á páskadag. Er hún 19 ára og frá bænum Hell i Norður-Noregi. Sjón- varpsstöðvar sýndu beint frá keppninni til 30 landa og eru 600 milljón- ir manna sagðar hafa fylgst með herlegheitunum á úrslitakvöldinu í beinni sjónvarj)sútsendingu. í keppninni tók 71 stúlka frá jafnmörgum löndum þátt. I öðru sæti varð Carole Gist frá Bandaríkjunum og þriðja Liseth Mahecha frá Kólumbíu. Míkhaíl Gorbatsjov hótar Litháum efiiahagsþvingnnum: Felur í sér viðurkenn- ingu á sjálfstæði landsins - segir Vytautas Landsbergis, forseti Litháens Moskvu, Washing^on, Hamilton á Bermúda-eyjum, Prag, Tókíó. Reuter, The Daily Telegraph. Indland: 150 deyjaaf völdum mat- areitrunar Nýju Delhí. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 150 manns, þar af mörg börn, létust af völdum matareitrunar í bæ i Norður-Ind- landi ellir trúlofunarvcislu á páskadag. Indverska fréttastofan PTI skýrði frá því í gær að tala látinna gæti hækkað þar sem um 300 veislugest- ir hefðu snætt ósýrt brauð, chapatt- is, sem meindýraeitur hefði komist í. Ekki er vitað hvernig eitrið komst í brauðið. VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, ítrekaði í ræðu á þingi í gær að stjórnvöld í landinu væru reiðubúin til að ganga til við- ræðna við ráðamenn í Moskvu. Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtogi sov- éska kommúnistaflokksins, lýsti yfir því á fostudag að Litháar yrðu beittir tfiiahagsþvingunum yrðu lög þau sem sett hafa verið frá því landið lýsti yfir sjálfstæði 11. mars ekki felld úr gildi. Heimildarmað- ur Reuíers-fréttastofunnar kvað Landsbergis hafa vakið á því athygli í ræðu sinni að í hótunum Gorbatsjovs fæiist viðurkenning á sjálfstæð- isyfirlýsingunni. Væri Litháum gert að greiða fyrir varning þann sem fluttur væri til landsins í erlendum gjaldeyri væri staða ríkisins hvað varðar utanríkisviðskipti Sovétstjórnarinnar hin sama og ann- arra erlendra ríkja. Landsbergis sagði í ræðu sinni í gær að efnahagsþvinganir Sovét- stjórnarinnar myndu reynast efna- hag Lithaéns alvarlegt áfall en margvísleg hráefni svo sem olía og gas eru flutt inn í landið frá öðrum lýðveldum Sovétríkjanna. Til er- lendra ríkja eru hráefni þessi aðeins seld gegn greiðslu í erlendum gjald- eyri. Tilslakanir Litháa Heimildarmaður Reuters-frétta- stofunnar í höfuðborg Litháens, Vilnius, sagði Landsbergis hafa fullyrt að atvinnuleysi myndi stór- aukast í landinu og ítrekað að stjómvöld væru k-eiðubúin til við- ræðna við fulltrúa Gorbatsjovs en forsætisráðherra Litháens, Kazami- era Prunskiene, sagði á mánudag að greina kæmi fallast á ákveðnar tilslakanir í deilunni. Þannig gætu þeir Litháar sem þess æsktu gegnt herskyldu í nafni Sovétríkjanna auk þess sem stjórnvöld í Litháen væru reiðubúin til að viðurkenna ríkis- borgararétt Sovétborgara í landinu og yrði þess ekki krafist að viðkom- andi afsöluðu sér honum. Þá væru Litháar einnig tilbúnir til að endur- skoða þann þátt deilunnar er varð- aði eigur kommúnistaflokks Sov- étríkjanna í landinu sem stjórnvöld lýstu ríkiseign lýðveldisins nýja er Litháar birtu sjálfstæðisyfirlýsing- una. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands og George Bush Bandaríkjaforseti sögðu á sameig- inlegum blaðamannafundi á föstu- dag að Gorbatsjov Sovétleiðtoga bæri að leita leiða til að slaka á spennunni sem ríkt hefur frá því Litháar lýstu yfir sjálfstæði. Thatcher sagði ljóst að þíðan í sam- skiptum austurs og vesturs væri úti gripi Sovétstjórnin til þess ráðs að beita LitTiS.a valdi. Bush sagði hins vegar að væru fréttir af hótun- um Gorbatsjovs réttar væri þessi þróun áhyggjuefni og ógnun við lýðræðisþróunina í Austur-Evrópu. Stjórnvöíd í Tékkóslóvakíu hafa gagnrýnt viðbrögð Kremlveija og talsmaður japönsku ríkisstjórnar- innar sagði á mánudag að Japanir myndu grípa til viðeigandi ráðstaf- ana beittu ráðamenn í Moskvu Lit- háa efnahagsþvingunum. Mál þetta hefur einnig vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Robert Dole, leið- togi Repúblíkanaflokksins í öld- ungadeild Bandaríkjaþings, sagði á sunnudag að bein efnahagsaðstoð við Litháa hlyti að koma til greina létu Gorbatsjov og undirsátar hans verða af hótunum sínum. Eystrasaltsríkin eitt efiiahagssvæði Forsætisráðherra Eystrasalts- ríkjanna þriggja, Eistlands, Lett- lands og Litháens, komu saman til fundar á fimmtudag í síðustu viku. Að viðræðunum loknum var birt sameiginieg yfirlýsing þar sem seg- ir að löndin, sem öll nutu sjálfstæð- is á árunum milli heimsstyijaldanna tveggja, stefni að stóraukinni sam- vinnu á ijölmörgum sviðum og m.a. sé gert ráð fyrir því að ríkin verði eitt markaðs- og efnahagssvæði líkt og stefnt er að á vettvangi Evrópu- bandalagsins (EB). í tilkynningunni segir að áætlun þessari verði hrint í framkvæmd á þessu ári en ríkin hafi orðið ásátt um að afnema hindranir á viðskiptasviðinu. Hvert ríki um sig muni taka upp eigin gjaldmiðil en mótuð verður sameig- inleg stefna hvað varðar tolla og vörugjöld. Þá verður sett á stofn framkvæmdanefnd Eystrasaltsríkj- anna þriggja lík þeirri sem starfar á vegum Evrópubandalagsins. Þing Eystrasaltsríkjanna hafa þegar staðfest samkomulag þetta sem gilda mun fram til ársins 2000 hið minnsta. s r 417 kr/kg Parnbakjötið . nláma1Ésver^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.