Morgunblaðið - 29.05.1990, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990
Þessir glæsilegu, verðlaunuðu,
frönsku pottar fást ístáli, svörtu,
hvítu og rauðu.
Einstaklega hagstætt verð.
Greiðslukjör efkeyptir eru 3 eða fleiri.
Einar Farestvett&Co.hf.
BORQARTÚNl 28, SÍWI116996.
L«IA 4 stoppar vlA dymar
j
Gilsfjarðarbrú
eftir Sigurbjörn
Sveinsson
Mönnum verður æ ljósara,
hversu ríkan þátt góðar samgöng-
ur eiga í gangverki þjóðfélagsins
á okkar dögum. Sífellt verða til
stórbrotnari hugmyndir um nýjar
lausnir í samgöngumálum. Saga
liðinna ára sýnir, að með stórvirk-
ari tækjum og meiri auðlegð og
tækniþekkingu, hefur tekizt að
nema ný lönd í samgöngum, lönd,
sem áður voru aðeins til i draum-
sýn. Hringvegur, Borgarfjarðar-
brú, Ó-vegimir, gífurlegt átak við
útlagningu bundins slitlags og nú
síðast áform um stórfellda jarð-
gangagerð eru dæmi um áræði og
framkvæmdahug þjóðarinnar,
þegar litið er til samgangna á
landi. Eitt þessara verkefna, sem
ráðast þarf í á næstunni, er brú-
arsmíð á Gilsfirði.
Aðdragandi
Öllum, sem til þekkja, hefur
löngum verið ljóst, að sá vegur,
sem nú liggur um Gilsíjörð, og
tengir Dalasýslu og Austur-Barða-
strandarsýslu, þ.e. Vesturlands-
og Vestfjarðakjördæmi, er ekki
frambúðarlausn í vegamálum a
þessu svæði. Það er hvoru tveggja,
að vegurinn er kominn til ára sinna
og þarfnast því allur uppbygging-
ar og annað hitt, að vegarstæðið
er allt erfítt og einkar snjóþungt
á vetrum. Þar eru skriðuföll tíð
bæði af auri og snjó. I sunnanverð-
um firðinum liggur vegurinn að
mestu hátt í brattri hlíð, sem tepp-
ist gjaman öll í vestanveðrum. Að
norðan er vegarstæðið á löngum
kafla alveg í sjávarmálinu og síðan
hátt í Gilsijarðarmúla, sem er hið
mesta veðravíti, þegar norðanveð-
Sigurbjörn Sveinsson
„Það á að hlúa að öllum
vilja til sjálfsbjargar og
öllu óþoli eftir breyting-
um, sem til framfara
horfa. Slíks óþols gætir
í Dalabyggð. Því er
rétti tíminn nú til að
heíja framkvæmdir við
brú yfir Gilsíjörð.“
ur geisa. Þannig má ætíð búast
við ófærð í Gilsfirði, hvaðan svo
sem vindurinn blæs.
Því hafa íbúar á þessu svæði
og reyndar á sunnanverðum Vest-
fjörðum litið til þess í seinni tíð,
að vænlegasti kosturinn í vegabót-
um þama, væri að brúa frekar
ijörðinn, en að ráðast í kostnaðars-
ama vegarlögn á um 25 km löng-
um kafla í afleitu vegarstæði.
Sumnarið 1980 var svokölluð
Vesturlína lögð yfír fjörðinn frá
Ólafsdal og yfir í Digramúla. Reist
var mastur í miðjum firðinum og
gerðu akvegur þar út til að auð-
velda framkvæmdir. Lítið var til
hans vandað, en þó varð fljótlega
séð, að hann myndi standast vel
tímans tönn þarna í firðinum. Það
hefur og komið á daginn. Þetta
styrkti menn enn frekar í þeim
ásetningi að þrýsta á brúargerð-
ina.
Víðtæk samstaða
Árið 1981 var safnað undir-
skriftum í byggðum við innanverð-
an og norðanverðan Breiðafjörð
til stuðnings brúarsmíðinni. Um
300 atkvæðisbærir menn lýstu
áhuga sinum á brúargerðinni og
var í raun vandfundinn sá maður,
er ekki taldi sér skylt að styðja
þetta málefni.
Frá 1980 hafa oddvitar sveitar-
félaganna í Dalabyggð árlega sent
frá sér sameiginlega áskorun til
ráðamanna samgöngumála um að
ráðast í þessa brúargerð. Þá hafa
komið fram fjölmargar ályktanir
einstakra hreppsnefnda, samtaka
sveitarfélaga, stjórna kaupfélaga,
Mjólkurbúsins í Búðardal og fleiri
aðila á liðnum áratug, sem allar
hníga í þessa átt.
Þingmenn einhuga
Við vígslu Heilsugæslustöðvar-
innar á Reykhólum 1983 lýsti
Matthías Bjarnason, þáverandi
samgöngumálaráðherra því yfir,
að hann myndi beita sér fyrir því
þegar á næsta ári, að ijárveiting
fengist til fyrstu athugana til und-
irbúnings framkvæmdum. Var
ekki annað að heyra á öðrum þeim
þingmönnum, sem þarna voru
-
VAR EINHVER AÐ TALA
Hjá okkur færðu dýnur eftir máli í öllum verðflokkum—aðeins örlítið ódýrari- með áklæði eftir þínu
20kg/m3
Ódýr
bráðabirgðadýna,
27 kg/m3
Fyrirlitla notkun
35 kg/m3
Eðlileg ending,
tveir stífleikar
Stæróir í cm: VERÐ VERÐ VERÐ
70 x 200 x 9 2.898,- 3.906,- 4.838,-
70 x 200 x 1 2 3.864,- 5.208,- 6.451,-
90 x 200 x 1 2 4.968,- 6.696,- 8.294,-
1 20 x 200 x 1 2 6.624,- 8.928,- 1 1.059,-
1 60 x 200 x 1 2 8.832,- 1 1.904,- 14.746,-
i
LANDSÞEKKT DÝNUÞJÓNUSTA: Viö gerum meira en að framleiða fullunnar dýnur. Við lagfærum og endurbætum gaml-
ar svampdýnur, skiptum um áklæði og veitum ráðleggingar um val og frágang á dýnum sem henta við mismunandi aðstæð-
ur. Síma- og póstkröfuþjónusta. Uppgefið verð er fyrir óklæddar svampdýnur og getur breyst með stuttum fyrirvara. Við