Morgunblaðið - 29.05.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.05.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1990 45 Já það er svo ótalmargt, að minn- ast á, sem ég mun geyma í hjarta ■mér, uns við mætumst á n ý, sem er mín bjargfasta trú. Guðný Sesselja Óskarsdóttir hét hún fullu nafni, dóttir heiðurshjón- anna Guðnýjar Guðjónsdóttur og Óskars Árnasonar hárskera. Fjögur vóru þau systkin, Haukur, Friðþjóf- ur og Hulda, sem nú syrgir sína ástfólgnu systur. Haukur og Frið- þjofur eru báðir látnir. Það var hennar gæfa, að hafa átt að eigin- mmanni Baldur Pálmason fulltrúa hjá Ríkisútvarpinu. Sissa mín var einstök mannkosta manneskja. Samviskusöm, svo fá- títt má telja, gerði öllum gott og mátti ekki vamm sitt vita í allri hegðun við meðbræður sína. Nú skortir mig lýsingarorð til þess að lýsa einstakri hjartahlýju hennar. Ég þakka góðum Guði fyrir að hafa gefið mér ástríkan og tryggan vin, sem aldrei brást mér hvorki í gleði eða sorg. Kæri Baldur, þinn sterki per- sónuleiki sýndi sínar bestu hliðar í þessari miklu raun, góður Guð gefi þér styrk í sorg þinni, einnig Hulda mín, og fjölskylda, Guð verði með ykkur. Nú kveð ég kæra vinkonu, að sinni, og hafi hún þökk fyrir ævi- langa samfylgd. Pálína Þorleifsdóttir /wgco í HVAÐA VEÐRISEMER Meö Meco þarftu ekki að hafa áhyggjur af veðrinu, það er alltaf hægt að grilla. i \ Hönnun MECO: Loftflæðið gerir Meco að frábæru útigrilli: • Það sparar kolin. • Brennur sjaldnar við. • Hægt er að hækka og lækka grindina frá glóðinni. • Tekur styttri tíma að grilla og maturinn verður safaríkari og betri. • Auðveld þrif. Heimilistæki hf SÆTÚNl 8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SlMI 6915 20 /íóeAxiMSvíí^OHÉe^A ó sanwúufum, Við vorum nokkrar vinkonur, sem mynduðum saumaklúbb þegar við vorum ungar, eða fyrir hartnær 45 árum. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fljótlega kom Sissa í klúbbinn til okkar. Hún hét fullu nafni Guðný Sesselja Óskarsdóttir, en var ævinlega kölluð Sissa. Það er mikið lán að eignast góða vini. Sissa var gædd þvílíkum mannkostum að við vinkonurnar sögðum oft okkar í milli að hún væri engill í mannsmynd. — Hun er núna ein af englunum hjá Guði. Líf hennar einkenndist af ást og umhyggju fyrir öllu sem lifir. Við kveðjum ástkæra vinkonu og þökkum fyrir samfylgdina, sem gerði okkur að ríkari manneskjum. Kæri Baldur og Hulda, við send- um ykkur og öðrum ástvinum Sissu, okkar einlægustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Vinkonur LAUGAVEGI13 SÍMI625870 INNGANGURIHÚSGAGNADEILD SMIÐJUSTlGSMEGIN m taíiíí> Góðan daginn! HJUKRUNARFRÆÐINGAR Okkur vantar fleiri vítamínsprautur Vegna aukinnar starfsemi og uppbygg- ingar á hinum ýmsu deildum Borgarspítal- ans vantar okkur fleiri hjúkrun- arfræðinga til starfa við krefjandi og áhugaverð hjúkrunarstörf. Borgarspítalinn er einn stærsti spítali landsins og er þar sinnt tugum þúsunda sjúklinga árlega. Á spítalanum starfa nú um 1500 manns, en betur má ef duga skal og þess vegna leitum við til þín um liðsstyrk. Hjúkrunarfræðingar spítalans hafa frumkvæði að fjölmörgum faglegum verk- efnum og hafa þannig áhrif á þróun hjúkr- unar. Við spítalann starfa klínískir sérfræð- ingar í hjúkrun sem m.a. eru til ráðgjafar við hjúkrun sjúklinga með flókin hjúkrunarvandamál. Einnig er þar fræöslu- deild sem býður upp á fjölbreytta mögu- leika til símenntunar. Þá býðst nýráðnum hjúkrunar- fræðingum einstaklingsbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu hjúkrunar á Borgarspítalanum v'eitir Erna Einarsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri starfsmannaþjón- ustu, nánari upplýsingar í síma 696356. Við vonumst til þess að þú virkir sem vítamínsprauta á okkur og hafir samband sem fyrst. BORGARSPÍTALINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.