Morgunblaðið - 15.06.1990, Qupperneq 25
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Ámi Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Samningar BHMR
að liggur auðvitað ljóst fyrir,
hvaða afleiðingar það mundi
hafa að greiða félagsmönnum í
BHMR út kauphækkanir skv. þeim
kjarasamningi, sem gerður var á
síðasta ári umfram kauphækkanir,
sem samið var um á hinum almenna
vinnumarkaði fyrir nokkrum mán-
uðum. Þeir samningar mundu ein-
faldlega verða marklaust plagg,
uppnám skapast á vinnumarkaði,
nýjar kauphækkanir knúnar fram
og ný verðbólgualda skella yfir.
Eftir að ríkisstjórnin tók þátt í
þeirri samningagerð, sem sam-
komulag tókst um í byijun febrúar,
hefur legið ljóst fyrir, að hún hlyti
að grípa til einhverra ráðstafana
vegna ákvæða í samningi BHMR
um kauphækkanir umfram aðríi
launþegahópa. Um þetta sagði Ein-
ar Oddur Kristjánsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands og
einn helzti höfundur febrúarsamn-
inganna, í viðtali við Morgunblaðið
í gær: „Þetta var samningur, sem
kvað á um, að einn hópur launþega
væri tryggur með að fá alltaf meira
en aðrir. Við bentum á, að þetta
væri aldeilis galið og hreint arfa-
rugl og gæti ekki gengið.“ í fram-
haldi af þessúm ummælum kvaðst
Einar Oddur vera sammála ákvörð-
un ríkisstjómarinnar að fresta
launaflokkahækkunum BHMR.
Formaður og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn
Pálsson og Davíð Oddsson borgar-
stjóri í Reykjavík, hafa gagnrýnt
vinnubrögð ríkisstjómarinnar í mál-
inu. í samtali við Morgunblaðið í
gær, sagði Þorsteinn Pálsson:
„ ... og ég tel hæpið í meira lagi
að ríkisstjómin geti frestað fram-
kvæmd þessara kjarasamninga við
BHMR með þeim hætti, sem hún
tók ákvörðun um. Að mínu mati
hefði hún átt að byija á að óska
eftir viðræðum við BHMR og knýja
á um að gera samning um frestun
eða afnám þessara ákvæða kjara-
samninga. Það er hin eðlilega leið
og hana hefði ríkisstjómin átt að
fara um leið og samningum ASÍ
og VSÍ var Iokið.“
Ummæli formanns Sjálfstæðis-
flokksins em á þann veg að ætla
verður , að hann sé sammála því,
að kauphækkanir til félagsmanna
BHMR eigi ekki að koma til fram-
kvæmda að sinni en hins vegar sé
hann algerlega ósammála því,
hvemig ríkisstjórnin hefur staðið
að þeirri ákvörðun og framkvæmt
hana. Þessi afstaða Þorsteins Páls-
sonar er auðvitað í fullu samræmi
við eindregin stuðning hans við
samningagerðina í febrúar.
Davíð Oddsson, borgarstjóri og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur skýrt frá því, að lögfræðingar
Reykjavíkurborgar telji hæpið, að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar stand-
ist lög. Bæði borgarstjóri og lög-
fræðingar hans geta rökstutt þessar
efasemdir með tilvísun til ákvæða
samninga BHMR og ríkisins og
þurfa menn ekki annað en lesa þau
samningsákvæði í Morgunblaðinu í
gær til þess að sjá hversu loðið
orðalagið er. En kjarni málsins er
auðvitað sá, að borgarstjóri er fyrst
og fremst að gera athugasemdir
við vinnubrögð ríkisstjómarinnar
a.m.k. á þessu stigi málsins, þar
sem borgaryfirvöld hafa ekki tekið
efnislega afstöðu til þess, hvemig
farið verður með iaunagreiðslur til
félagsmanna BHMR hjá Reykjavík-
urborg.
Um það verður ekki deilt, að
við núverandi aðstæður mundi það
hafa skaðleg áhrif á framvindu
efnahagsmála og atvinnumála, að
launaflokkahækkanir BHMR kæmu
til framkvæmda á þessu stigi máls-
ins. Svo mikið hefur áunnizt í bar-
áttu við verðbólguna síðustu miss-
eri, að þeim árangri má ekki stefna
í voða. Atvinnuvegirnir hafa ekkert
bolmagn til að greiða hærra kaup-
gjald og þjóðarbúið þolir ekki nýja
verðbólguöldu. Skattgreiðendur
hafa heldur ekki efni á að greiða
starfsmönnum sínum hærri laun.
Ríkisstjórnin situr uppi með af-
leiðingar kjarasamninga, sem hún
gerði til þess að losna út úr erfiðu
verkfalli. Hún stóð síðan að öðmm
kjarasamningum, sem gengu þvert
á hina fýrri. Hún hefði auðvitað átt
að gera hreint fyrir sínum dyrum
strax í vetur. En hvað sem því líður
má aldrei leika vafi á , að ríkis-
stjóm fari að lögum. Þess vegna á
ríkisstjórnin að ganga hreint til
verks og nýta þann rétt, sem hún
hefur til þess að setja bráðabirgða-
lög, þannig að ekki fari á milli
mála, að rétt sé að verki staðið.
Auðvitað hefði ríkisstjómin átt að
leggja tillögu að slíkri löggjöf fyrir
Alþingi áður en því var slitið í vor.
Allar upplýsingar lágu fyrir um
þetta mál meðan þingið sat, en
væntanlega hafa stjómarflokkarnir
viljað komast hjá pólitískum óþæg-
indum vegna þessa máls fyrir sveit-
arstjórnakosningar. Ef ríkisstjórnin
treystir sér ekki til að nýta rétt sinn
til bráðabirgðalaga, vegna að-
stæðna, ætti hún að taka þátt í því
að fá úr því skorið fyrir dómstólum,
hvemig túlka beri loðið orðalag
samninganna. Það stjórnar enginn
lýðræðisþjóðfélagi með samnings-
brotum og trúnaðarbresti við laun-
þegasamtök.
Margir hópar háskólamenntaðra
manna eru illa haldnir í launum og
í sumum tilvikum eru launakjör
háskólamenntaðs fólks fáránleg.
En aðstæður til þess að leiðrétta
launakjör þessa hóps hafa sjaldan
verið jafn slæmar og einmitt um
þessar mundir. Nú skiptir höfuð-
máli, að kjarasamningamir, sem
gerðir voru í febrúar sl., haldi fram
á haust 1991, eins og um var sa-
mið. Það verður mjög erfitt að ná
því marki og þar verða allir að leggj-
ast á eitt, verkalýður og vinnuveit-
endur, ríkisstjórn og stjómarand-
staða.
Baráttufundur BHMR í Bíóborg:
Samningmim verður fylgt
eftir undanbragðalaust
- sagði Páll Halldórsson formaður BHMR
BANDALAG háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hélt baráttufund
í Bíoborg í gær, vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að
fresta 3-9% launahækkun sem koma átti til félaga í BHMR 1. júlí
næstkomandi. Kom fram í máli ræðumanna að háskólamenn myndu
ekki sætta sig við að launahækkanirnar kæmu ekki til fram-
kvæmda og samningnum yrði fylgt eftir með öllum ráðum.
Þijú ávörp vom flutt á fundin- launþega. í lýðræðisþjóðfélagi væri
um. Ásta Möller formaður Félags ætlast til að stjómvöld stæðu vörð
háskólamenntaðra hjúkranarfræð-
inga talaði fyrst og sagði að há-
skólamenn hefðu undanfarið und-
irbúið síðari hluta kjarasamnings
síns við ríkið, og ýmsar kannanir
hefðu dunið yfir félagsmenn.
Markmiðið þeirra hefði verið skýrt,
eða eins og segði í kjarasamningn-
um sjálfum, að háskólamenntaðir
ríkisstarfsmenn njóti sambæri-
legra kjara og menn sem gegndu
hliðstæðum störfum eða hefðu
sömu eða svipaða menntun.
Ásta sagði að þetta hefði ekki
náðst fram fyrr, vegna kjarkleysis
kjaradóms og vanefnda ríkisins.
Því hefðu háskólamenn bundið
miklar vonir við dagsetninguna 1.
júlí 1990 þegar fyrsti áfangi kjara-
leiðréttingarinnar átti að koma til
framkvæmda.
Nú hefði ríkið ákveðið einhliða
að fresta þessari leiðréttingu,
vegna þess að hún raski öðrum
kjarasamningum. Ásta sagði að
þessi rök könnuðust háskólamenn
hjá ríkinu mætavel við, því þau
hefðu verið notuð af kjaradómi
áður. En þessi ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar nú væri árás á rétt
um réttindi þegnanna. Vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar nú bæra hins
vegar keim af alræði.
Eggert Lárasson formaður Hins
íslenska kennarafélags sagði að
þegar samningur BHMR og ríkis-
ins var undirritaður hefði fulltrúi
ríkisins talað um nýja hugsun og
nýja tíma í því sambandi. Þessi
sami fulltrúi hefði svo kynnt há-
skólamönnum nýja hugsun á fundi
sl. mánudag: að verið væri að
standa við kjarasamninginn með
því að svíkja hann.
Eggert sagði að kennarar hlytu
að spyrja sig hvort þetta nýja sið-
gæði væri það sem ætlast sé til
að þeir hefðu fyrir æsku landsins.
Þeir ættu að hefja kennslu 1. sept-
ember í haust, en hlytu nú að leita
að klausum í ráðningarsamningum
sínum sem segðu að þeir ættu að
svíkja samningana ef það kæmi
þeim óþægilega að standa við þá,
og fresta 1. september um óákveð-
inn tíma.
Eggert sagði að kennarar hefðu
nú gert þrenna samninga sem allir
Háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn fjölmenntu á baráttufúndi í Bíóborg í gær.
iviurguiiuictuiu/nima.r raiur.
Páll Halldórsson
formaður BHMR í-
ræðustól.
Ásta Möller, formað-
ur Félags háskóla-
menntaðra hjúk-
runarfræðinga flyt-
ur ávarp á fundinum
í Bíóborg í gær.
Eggert Lárusson
formaður Hins
íslenzka kennarafé-
lags talar á fúndin-
um í gær.
hefðu verið sviknir. Hann bætti við
að ef samningurinn frá í fyrra
hefði verið tímasprengja, hefði sú
sprengja sprungið með þessum
vanefndum ríkisins. Afleiðingun-
um yrði sá að taka sem tendraði
kveikjuþráðinn.
Páll Halldórsson formaður
BHMR talaði síðastur á fundinum.
Hann sagði að öll vinnubrögð og
röksemdir ríkisstjórnarinnar í
þessu máli væru með eindæmum.
Sem dæmi um það hefði ljármála-
ráðherra sagt í fjölmiðlum að
samningurinn krefðist þess að við
hann yrði ekki staðið. Fyrsta grein
samningsins fjalli hreinlega um
það að hann eigi að svíkja. Páll
sagði hins vegar að 1. gi-einin segði
að að launakerfi háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna skuli endur-
skoðað. Og setningin, sem notuð
væri af ríkinu sem forsenda frest-
unarinnar, segði fyrir um hvernig,
en ekki hvort, standa skuli að
þeirri endurskoðun.
Páll sagði að í samningagerðinni
fyrir ári, hefði það tekið marga
sólarhringa að semja um orðalag
þessarar greinar. Samninganefnd
háskólamanna hefði ekki sæst á
það fyrr en lögfræðingar þeirra
hefðu verið fullvissir um það, eftir
nákvæma athugun, að það væri
ekki hægt að mistúlka.
Páll spurði sig síðan hvort há-
skólamenn hefðu, með gamla
reynslu í hugá og einkum og sér
í lagi eftir almennu kjarasamning-
anna í vetur, ekki mátt búast við
að samningurinn kæmi okkur aldr-
ei til framkvæmda. Hann svaraði
því neitandi. „Við vitum að svo
lengi sem ríkið beitir ekki lagaboði
til að losna undan eigin samning-
um, er það bundið af honum,“
sagði Páll.
Hann sagði að engin undan-
komuleið væri til frá samningnum
og honum yrði fylgt eftir til síðasta
áfanga undanbragðalaust. Há-
skólamenn hefðu þegar sýnt sterk
viðbrögð og einbeittan vilja, sem
myndu rifja upp fyrir ríkinu við
hvað það ætti að eiga.
Páll sagði að lokum að enn
væri vegið að háskólamönnum en
þetta síðasta lag myndu þeir bera
af sér. Texti samningsins væri
skýr, og í samfélaginu væra til lög
og reglur um það hvernig taka
ætti á vanskilamönnum.
Kjarasamningar háskólamanna:
Oljóst hvort borg-
inni beri að greiða
hækkanir 1. júlí
— segir Davíð Oddsson, borgarstjóri
DAVÍÐ Oddsson, borgarsljóri, segir að ekki sé ljóst, hvort
Reykjavíkurborg beri að greiða háskólamenntuðum starfsmönnum
sínum þær launahækkanir, sem koma áttu til framkvæmda 1. júlí
samkvæmt kjarasamningi BHMR og ríkisins. Borgin hefði hins
vegar fylgt á eftir hefði ríkið hækkað launin.
„Okkar samningur er dálítið
frábrugðinn samningi ríkisins og
til dæmis er fyrsti kafli þess samn-
ings ekki hjá okkur,“ segir borgar-
stjóri. „Ríkið forðast nú að greiða
hækkanir samkvæmt refsiákvæð-
um, sem ekki era beinlínis í okkar
samningi. Hefðu hækkanirnar
hins vegar komið til framkvæmda
hefðum við auðvitað greitt okkar
fólki svipaða upphæð. Við ætluð-
um að hafa þeirra hækkanir til
viðmiðunar, en þar sem ríkið hefur
frestað hækkununum er ekki ljóst
hvort borginni beri að gi-eiða sínu
fólki þessar upphæðir. Það mál
erum við nú að kanna og ef mál-
inu verður skotið til félagsdóms
munu menn auðvitað hinkra við
og bíða þar til dómsniðurstaða
liggur fyrir.“
Hann segir, að samstarf hafi
verið milli samninganefnda ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar og þeir
embættismenn borgarinnar, sem
með starfsmannamál fara, hafi
vitað af hugmyndum hjá ríkinu
um að fresta hækkunum 1. júlí,
án þess að af þeirra hálfu hafi
farið fram efnisleg skoðun á lög-
mæti þeirrar aðgerðar. Það hafi
ekki verið fyrr en menn fóru að
skoða málið af alvöru að þeir kom-
ust að þeirri niðurstöðu að hæpið
væri að aðgerðin stæðist sam-
kvæmt lögum.
„Ég tel að ef ríkið hefði viljað
breyta þessum kjarasamningi
hefði þui-ft að grípa til löggjafar,
því ríkið getur ekki, sem annar
samningsaðili, breytt framgangi
hans einhliða sér í hag,“ segir
Davíð Oddsson, borgarstjóri.
Sleipnir samdi
BÍLSTJÓRAR í Sleipni sömdu við
vinnuveitendur á sjötta tímanum
í fyrrinótt og ekki kom til vand-
ræða vegna verkfalls sem boðað
hafði verið frá miðnætti þá uniy
nóttina.
Einar Ámason lögfræðingur hjá
VSÍ segir meginefni samningsins
byggjast á ASr samningunum frá
1. febrúar en nokkur atriði séu skýr-
ari en áður var.
Einkum var deilt um dagpeninga
bílstjóra á hóp- og langferðabílum.
Niðurstaðan varð sú að í ferðum
innlendra og erlendra ferðaskrif-
stofa sem sjálfar útvega fæði, fá
bílstjórar helming dagpeninga eins
og þeir eru ákveðnir af Ferðakostn-
aðarnefnd ríkisins. Þetta gildir þó
ekki ef íslenskur matur er fram-
reiddur í ferðunum, enda munu
bílstjórar lítið hafa yfir slíkum við-
urgjörningi að kvarta. Upphæðin
sem um ræðir er 1540 kr. á dag,
bæði í byggð og utan hennar.
Halldór Ásgrímsson starfandi forsætisráðherra:
Út í hött að segja að rík-
isstjórnin hafi brotíð lög
Lögfræðingar Reykjavíkurborgar með
HALLDÓR Ásgrímsson starfandi forsætisráðherra segir að þrír lög-
fræðingar Reykjavíkurborgar hafi verið hafðir með í ráðum þegar
ríkisstjórnin tók ákvörðun um að fresta launahækkunum félaga í
BMHR. Hann segir jafnframt að það sé út í hött að halda því fram
að ríkisstjórnin sé að brjóta lög, heldur sé um að ræða samning milli
ríkisins og BHMR og ríkisstjórnin
beita ákvæðum samningsins.
Ýmsir hafa gagnrýnt hvernig
ríkisstjómin stóð að ákvörðuninni
um frestun launahækkananna.
Davíð Odddsson borgarstjóri segir
að lögfræðingar Reykjavíkurborgar
hafí efasemdir um ákvörðunin
standist lög. Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins segir að
eðlilegt hefði verið að ríkisstjórnin
leitaði eftir samningum við BHRM
um frestun_ launahækkananna.
Halldór Ásgrímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að fyrsta
spumingin hefði verið hvort nauð-
synlegt var að grípa til einhverra
aðgerða vegna yfirvofandi launa-
hækkana til BHMR, og hvort menn
teldu að þær hækkanir myndu
raska hinu almenna launakerfi í
landinu.
„Ég tel að viðbrögð aðila vinnu-
markaðarins, eftir að þessi ákvörð-
un var tekin, hafi þegar staðfest
þá skoðun sem ríkisstjórnin hafði á
málinu. Þá kemur næsta spurning:
hvemig átti að bregðast við, þegar
séð var fram á að þetta myndi raska
almennu launakerfi í landinu. Þar
hafa verið nefndar til tvær leiðir. í
fyrsta lagi að beita samningnum
hafi með ákvörðun sinni verið að
sjálfum og í öðru lagi að setja
bráðabirgðalög. Þá leið hafa ýmsir
nefnt, m.a. borgarstjórinn í
Reykjavík. En það kom aldrei til
greina af hálfu ríkisstjórnarinnar
að beita bráðabirgðalögum, enda
var beinlínis gert ráð fyrir aðstæð-
um sem þessum, í samningnum.
Þar af leiðandi kom ekkert annað
til greina en beita ákvæðum samn-
ingsins til að bregðast við þeim
aðstæðum sem þama voru komnar
upp.
Það kemur mér svo á óvart að
frá því skuli vera skýrt að lögfræð-
ingar Reykjavíkurborgar hafi til-
tekna skoðun á þessu máli. Ég hef
verið upplýstur um, að þrír af lög-
fræðingum Reykjavíkurborgar hafi
verið hafðir í samráði og lögfræð-
ingar fjármálaráðuneytisins vora í
sambandi við þá áður en ákvörðun-
in var tekin. Hins vegar virðist
borgarstjórinn í Reykjavík vera í
sambandi við einhveija aðra lög-
fræðinga hjá sér um máðið. En
þessi yfiríýsing borgarstjórans
kemur mér á óvart og ég tel hana
mjög óheppilega í ljósi þeirrar sam-
vinnu sem þarna var um málið, og
í ráðum
ég vænti þess að þetta verði leið-
rétt,“ sagði Halldór.
—Hefði ekki komið til greina að
fara mjúku Ieiðina og heíja samn-
ingaumleitanir við BHMR um frest-
un launaflokkahækkananna?
„Samningurinn var fyrir hendi,
og ríkisstjórnin taldi að það ætti
að beita ákvæðum samningsins. Ég
tel að í þessu tilviki hafi ekki verið
um neitt að semja. Annaðhvort var
að gera þetta eða ekki, og hér er
svo mikið í húfi að það var nauðsyn-
legt að hafa skýra afstöðu í mál-
inu. Það er svo alltaf álitamál
hvemig með svona ákvarðanir skuli
farið.“
—Þið teljið þessa ákvörðun þá
byggða á fullkomnum lagagrund-
velli?
„Hún er tekin á grandvelli samn-
ingsins. Hér er ekki um að ræða
lög, heldur samning milli ríkisins
og félaga innan BHMR, og hann
ber að virða. Og það ber einnig að
beita samningnum miðað við þær
aðstæður sem þarna eru upp komn-
ar og menn voru ekki svo bjartsýn-
ir að sjá fyrir þegar hann var gerð-
ur. Ef menn fella sig ekki við þá
túlkun á samningnum geta menn
að sjálfsögðu Ieitað réttar síns með
öðram hætti, eins og í öllum öðrum
málum, en það er út í hött að halda
því fram, að ríkisstjórnin sé að
bijóta einhver lög,“ sagði Halldór
Ásgrímsson.
FRAMKVÆMDIR VIÐ BLÖNDUVIRKJUN NA HAMARKII SUMAR
Gilsratn
Auslara-
Fríðmum
Þrístikla
laatökulón
Smalatjörn
Galtaból
Vinnugöng.
^-Frórennsli
Eldjárnsstaðir
Eiðsstaðir
'yfirfallsstftia
BLONDUVIRKJUN
VATNSVEGUR AÐ STÖÐVARHÚSI
Selbunga
^stífla stjórnstöð og
/ starfsmannahús
Guölaugsstaöir
EyvindarstaÖir
Morgunblaðið/ GÓI
gfgáiítra
0 Uppistöðu-k ■Tin- Þnstikla 1 Smalatjörn 0 1 Austara- Fríðmundarratn 5 2 0 2 Inntökulón 5 500 m-y-S' 30 km
\ö LANGSNIÐ eftir vatnsvegi
’ Yfir 400 starfsmenn á virkjunarsvæðinu \ 200 1 Blanda -100
VINNA við byggingu Blönduvirkjunar nær hámarki í sumar. Þar
verða 400-450 menn að störfúm á vegum fjölda verktaka og Lands-
virkjunar og framkvæmt verður fyrir 2,7 milljarða króna, að sögn
Páls Ólafssonar yfírmanns byggingadeildar Landsvirkjunar. Meðal
annars verða gerðar stíflur, grafnir skurðir og byggð hús fyrir
stjórnstöð og starfsmenn. Áætlað er að gangsetja Blönduvirkjun
fyrir 1. október á næsta ári. í sumar er ráðgert að halda áfram
rannsóknum á fyrirhuguðu virkjunarsvæði Fljótsdalsvirkjunar á
Fljótsdalsheiði og he§a vegalagningu, en aðrar framkvæmdir verða
ekki á vegum Landsvirkjunar á hálendi landsins í sumar.
Byggðar verða jarðvegsstíflur í
Blöndu og Kolku til að mynda
uppistöðulón Blönduvirkjunar á
Auðkúluheiði. Grafnir verða skurð-
ir úr lóninu og vatninu veitt í gegn
um þijú vötn, Þrístiklu, Smalatjörn
og Áustara-Friðmundarvatn, í inn-
takslón við Eiðsstaði. Inntakslónið
er myndað með stíflu sem b.vggð
er í litla á, sem Gilsá heitir. Ur
inntakslóninu er grafinn aðrennsl-
isskurður í inntaksmannvirki og
þaðan er vatninu veitt í stálpípum
lárétt og síður lóðrétt í stöðvarhú-
sið sem er neðanjarðar.
Meginhluti vinnu við stíflugerð
og skurðgröft verður í sumar, að
sögn Páls, þannig að hægt verði
að byija næsta vor að safna vatni
í lónin, en framkvæmdum lýkur
þó ekki fyrr en næsta sumar. Hag-
virki gerir stíflurnar í Blöndu og
Kolku og grefur veituskurðinn nið-
ur í Austara-Friðmundarvatn. Þar
tekur Fossvirki við og grefur veitu-
skurðinn í inntakslónið, gerir
stífluna í Gilsá, grefur aðrennslis-
skurðinn og annast steypuvinnu í
stöðvarhúsinu. Júgóslavneskt
verktakafyrirtæki leggur stálpíp-
urnar að stöðvarhúsinu og setur
upp lokubúnað í Blöndustíflu. Vél-
smiðja Orms og Víglundar setur
upp lokubúnaðinn í Kolkustíflu og
Gilsárstiflu.
Allri neðanjarðarvinnu, það er
sprengingum og gangnagreftri, er
lokið. í sumar verður byijað á að
setja niður vatnshverfla í stöðvar-
húsið og steypa í kring um þá en
meginhluti vél- og rafbúnaðarins
verður settur upp næsta sumar.
Japanskt fyrirtæki framleiðir vél-
búnaðinn og annast Orkuvirki upp-
setningu hans sem undirverktaki. *
í sumar verða byggð tvö stór
hús á virkjunarsvæðinu, stjórnhús
og starfsmannahús. Verktakafyr-
irtækin Stígandi á Blönduósi bygg-
ir stjómhúsið og SH-vorktakar í
Hafnarfirði byggja siartsmanna-
húsið. í stjórnhúsinu eru aflspenn-
ar og tengivirki og er húsið tengt
við sjálft stöðvarhúsið með lóðrétt-
um kapalgöngum. I þessum
göngum setur Héðinn upp hæstu
lyftu landsins, en hún er 260 metra
há. Þá verður í sumar byijað á að
undirbúna lagningu háspennulínu
frá Blönduvirkjun að byggðalín-
unni.
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-_ -
oddsens er verkfræðilegur ráðgjafi
Landsvirkjunar á virkjunarstað en
starfsmenn Landsvirkjunar hafa
umsjón með framkvæmdum og
annast eftirlit.
Að sögn Páls era framkvæmdir
sumarsins við ýmsa verkþætti
komnar vo! af stað en hann átti
þó ekki voíi á því að fullur kraftur
yrði kominn í vinnuna fyrr en um
iniðjan mánuðinn. Þá verða
400-450 manns við störf á virkjun-
arsvæðinu.
Ekki hefur verið ákveðið hvað^
gert verður á Fljótsdalsheiði í sum-
ar vegna undirbúnings Fljótsdals-
virkjunar. Fer það eftir gangi
samninga um nýtt álver. Páll sagði
að stefnt væri að áframhaldandi
rannsóknum vegna undirbúnings
jarðgangnagerðar og byrjun á veg-
arlagningu. Ef ráðist verður í virkj-
unina þarf að leggja 35 km vegy
en Páll sagði ekki afráðið hvað
mikið yrði lagt í sumar.