Morgunblaðið - 15.06.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
35 ’
Feðgaminning’:
Sigurður Jónasson
ÞórirA. Sigurðsson
Sigurður
Fæddur 8. júlí 1900
Dáinn 25. maí 1990
Þórir Arnar
Fæddur 22. apríl 1929
Dáinn 24. maí 1990
Það var stutt á milli þeirra feðga.
Sólarhringur og var útför þeirra
gerð frá Stykkishólmskirkju 1. júní
sl. Fyrsta útförin sem fram fer frá
nýju kirkjunni. Hún var afar fjöl-
menn bæði af bæjarbúum og víðar
að.
Sigurður var fyrst og fremst
Hólmari, þótt æskuárin hafi liðið í
sveitinni. Aðalsmerki hans var orð-
heldni og samviskusemi. Yinnan var
honum í blóð borin og ég held að
hann hafi aldrei litið á klukkuna
þegar mikilvæg störf voru fyrir
höndum.
Ég reyndi hann að því að ekki
þurfti að biðja hann nema einu sinni
bónar og hún var framkvæmd. Ég
hitti hann fyrst á bryggjunni í
HÓlminum þegar ég kom að austan.
Þannig hafði borið við að ég hafði
sent farangurinn á undan, en hann
hafði haldið áfram með því skipi.
Þetta talaði ég um við hann og
ekki hætti hann fyrr en hann var
búinn að ná honum, þótt það tæki
nokkurn tíma. Hann er því fyrsti
maðurinn sem ég sem Hólmari var
Fæddur 4. apríl 1979
Dáinn 2. júní 1990
Að morgni 12. júní fékk ég þær
sorgarfréttir að nemandi minn Jón
Torfi Jóhannsson væri látinn og að
jarðarförin ætti að fara fram
síðdegis.
Hvað? Er allt búið? Lífsneistinn
slokknaður eftir 3ja ára harða bar-
áttu við hvítblæði. Oft höfðu kvikn-
að vonir um að honum tækist að
sigra sjúkdóminn en baráttan varð
sífellt harðari og erfiðari.
Orðlaus, hrygg og leið breytti ég
áformum dagsins til þess að geta
verið við jarðarförina og kvatt þenn-
an ljúfa dreng. Ég hafði ekki mikið
að segja af Jóni Torfa sem nem-
anda því heilsa hans leyfði enga
skólagöngu sl. vetur. Þegar heilsa
hans og þrek leyfði komum við upp
vísi að fjarkennslu og spjölluðum
saman í síma eða ég talaði við
móður hans og hún leiðbeindi hon-
um. Aðeins einu sinni sátum við
saman yfir skólabókunum og kom
mér það mjög á óvart hve vel sett-
ur hann var námslega, enda höfðu
foreldrar hans verið mjög ötul við
að aðstoða og kenna honum.
Þó kynnin væru lítil voru þau
Brids
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
Góð þátttaka var í sumarbrids þrátt
fyrir beina útsendingu í fótboltanum
síðastliðinn þriðjudag (12. júní). Spilað
var í þremur riðlum, 16 para, 12 og 8
para.
Efstu skor í A-riði (meðalskor 210) hlutu:
Kjartan Jóhannsson - Helgi Hermannsson 256
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 246
Úlfar Guðmundsson - Jón Guðmundsson 245
Halla Ólafsdóttir — Sæbjörg Jónsdóttir 229
Guðmundur Kr. Sigurðs - V aldimar Eyjólfsson 223
í B-riðlinum voru spiluð 33 spil og meðalskor
165:
í þakkarskuld við. Sigurður var
verkstjóri hjá Kaupfélaginu og
einnig pakkhúsmaður eins og það
var kallað þá. Kona hans, Svava
Oddsdóttir, var þá með greiðasölu
í húsi þeirra og þangað leituðu
margir, enda kunni hún sitt fag og
ég var í fæði hjá þeim hjónum í 6
ár og þar var oft glatt á hjalla.
Undrunarvert hve hún gat komið
mörgum fyrir við borðið því erfitt
var að neita. Og það er ekki úr
vegi að geta þess að þar kynntist
ég konu minni sem kom hingað sem
kennari og þá skal það líka tekið
fram að hún fékk inni hjá Guðrúnu
móður Svövu svo ekki spillti það
fyrir, en nóg um það. Sigurður
hætti í Kaupfélaginu, en þau hjónin
tóku við rekstri Hótelsins um skeið
og sá rekstur fórst þeim vel úr
hendi og voru menn þakklátir fyrir
þeirra frumkvæði. Næst keyptu þau
bókaverslun sem ásamt því var
verslun með aðra vöru og þar var
vettvangur þeirra hjóna meðan ald-
ur leyfði.
Þetta er í stuttu máli saga Svövu
og Sigurðar. Ekki gerði Sigurður
víðreist um dagana. Undi sínum hag
í Hólminum, fylgdist þar með þróun
mála og lagði því lið sem honum
fannst að gagni koma, sem sagt
hann var annaðhvort með eða lét
það eiga sig. Sigurður varð eins og
aðrir þeirra tíma menn að vinna oft
mögnuð fyrir mig. Hann var svo
einstakur að það var einfaldlega
ekki hægt annað en að hrífast af
honum. I aðdáun minni fólst einnig
eigingirni. Mig langaði svo til að
vinna meira með honum og kynn-
ast honum betur. Ekki vegna þess
að ég væri svo frábær kennari og
gæti á skömmum tíma kennt honum
allt sem hann hafði farið á mis við
í skólagöngu. Nei, því var þveröfugt
farið. Eg fann að ég gæti lært svo
mikið af honum. Niðurstaðan er líka
sú að við þessi litlu samskipti tókst
honum að kenna-mér meir en ég
honum. Hann bjó yfir svo mikilli
visku og æðruleysi en ég átti ein-
ungis örlitla þekkingu að gefa hon-
um.
Jón Torfi var þannig að allir
nutu samvistanna við hann og hann
átti hug og hjörtu bekkjarsystkina
sinna. Ég gleymi t.d. seint viðbrögð-
um bekkjarins þegar ég færði þeim
þær gleiðifrettir að hann mundi
koma í skólann og vera með þeim
á litlu jólunum. Klappið og húrra-
hrópin kváðu við. Það sló öllu við
að fá að hafa hann með, Þó ekki
væri nema þennan eina dag.
Alltaf vonuðumst við til að fá að
hafa hann með okkur aftur og börn-
Dröfn Guðmundsdóttir - Hrund Einarsdóttir 197
Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson 188
Sæmundur Björnsson - Hrefna Eyjóifsdóttir 173
Erla Siguijónsdóttir - Óskar Karlsson 172
Ragnar Hermannsson - Guðmundur Pétursson 172
Björn Theódórsson - Jón Hjaltason 171
í C-riðli spiluðu 8 pör 28 spil og meðalskor var
84:
Guðmundur Baidursson - Jóhann Stefánsson 101
RúnarLárusson-MagnúsSverrisson 96
Jón Viðar Jónmundsson - Magnús Erlendsson 92
SveinnÞorvaldsson-EyþórHauksson 91
í stigakeppni Sumarbrids hefur Þröstur Ingi-
marsson náð umtalsverðri forystu. Eftirtaldir spil-
arar hafa náð yfír 50 bronsstigum:
Þrösturlngimarsson 122
LárusHermannsson 69
Gyifí Baidursson 68
SigurðurB. Þorsteinsson 68
GuðlaugurSveinsson 64
ÞórðurBjörnsson 64
Helgi Hermannsson 59
KjartanJóhannsson 59
MuratÓmarSerdar 59
RagnarJónsson 58
langan vinnudag til að komast
áfram. En hann vissi líka að vinnan
göfgar manninn og besti skóli
lífsins er reynslan og takast á við
verkefni og skila þeim. Það var
ekki mikið um í ungdæmi hans að
menn ættu kost á skólavist, því
betur varð annað að nota. Hann las
mikið og átti vandaðar bækur. Sein-
ustu árin voru honum erfið og þá
kom greinilega í ljós hvað mikil
hamingja er að eiga góðan lífsföru-
naut og ég dáði Svövu fyrir hvað
hún stóð sig vel og þá ekki síður á
útfarardegi hans og sonar þeirra.
Þórir Sigurðsson fór sínar braut-
ir. Hann varð atvinnubílst.ióri ocr
það vakti athygli hversu vel hann
hugsaði um bílinn og eins hvernig
hann þjónaði viðskiptavinum. Hann
var ekki allra, en eins og faðir hans
lofaði hann aldrei meira en hann
in fylltust von og gleði þegar okkur
bárust góðar fréttir af honum en
hryggð þegar fréttirnar voru á ann-
an veg. Saman báðum við um styrk
og skilning honum og fjölskyldu
hans til handa og einnig okkur sjálf-
um, því það er erfitt að vera í 3.
eða 4. bekk vitandi af bekkjarbróð-
ur í harðri sjúkdómsbaráttu. Og ég
veit að þau gera það einnig nú þeg-
ar hann er kominn yfir í annan
heim.
Elsku Rósa, Jóhann og börn. Mér
er orða vant en mér er efst í huga
þakklæti fyrir að hafa fengið að
kynnast Jóni Torfa. Ég og fjöi-
skylda mín vottum okkar dýpstu
samúð og treystum Guði til að gefa
ykkur styrk og skilning.
Asta Oskarsdóttir kennari 3.-4.
bekkjar Ljósafosskóla
Ferming í
Kollaflarð-
arneskirkju
Ferming sunnudaginn 17. júní
í Kollaíjarðarneskirkju kl. 10.30.
Prestur sr. Baldur R. Sigurðsson.
Fermd verða:
Erlendur B. Magnússon,
Stað.
Páll H. Hjartarson,
Geirmundarstöðum.
Ragnheiður S. Guðbrandsdóttir,
Bessastöðum.
gat staðið við. Hann var ekki marg-
skiptinn, átti fáa en trausta vini.
Ég kynntist honum best sem félaga
í Lionsklúbbi Stykkishólms. Hann
var góður félagi, prúður og gat
verið skemmtilegur og gekk af heil-
um hug í starfið og man ég hann
best sem fararstjóra á Strandirnar.
Sú ferð verður lengi í minnum höfð.
Hann átti síðast við erfið veikindi
að stríða, honum hafði áður dapr-
ast sjón og síðar margt annað veik-
inda sem hann þurfti að stríða við.
Hann kvæntist ekki og var því
ætíð í foreldrahúsum.
Og þegar veikindi hans bættust
við annað sem Svava hafði við að
stríða, þá er undravert hversu þoi-
gæði hennar var mikið og þá sér-
staklega nú í vetur. Eftir alla þá
vinnu sem hún Svava er búin að
inna af hendi hér í þessu bæjarfé-
lagi og senn að verða níræð, er það
næstum óskiljanlegt hversu vel hún
heldur sér bæði andlega og líkam-
lega.
Þessi orð verða ekki fleiri. Ég^.
vil aðeins ljúka þessu með því að
þakka samfylgdina og um leið óska
þess að við ættum meira af mönnum
með hugarfarið að vera dyggur,
trúr og tryggur, standa við orð og
eiða.
Blessuð sé minning þeirra.
Arni Helgason
t
Astkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi og amma,
SIGURJÓN SÆMUNDSSON
og
NANNA H0JGAARD,
verða jarðsungnir frá Víðistaðakirkju mánudaginn 18. júní kl.
13.30.
Sæmundur Örn Sigurjónsson, Nanna Þorláksdóttir,
Reynir Sigurjónsson,
Úlfar G. Sigurjónsson,
Guðni Sigurjónsson,
Ólafur Stefán Sigurjónsson,
Grettir Sigurjónsson,
Alda Sigurjónsdóttir,
Jökull Sigurjónsson
Henný Herbertsdóttir,
Ragnheiður Ingadóttir,
Margrét Bjarnadóttir,
Hulda G. Guðlaugsdóttir,
Alda M. Hauksdóttir,
og barnabörn.
t
GUÐLAUGUR MAGNUSSON
frá Kolsstöðum,
sem andaðist föstudaginn 8. júní, verður jarðsunginn frá Áskirkju
mánudaginn 18. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Guðlaugsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför
ÓLA MATTHÍASAR EINARSSONAR,
Unufelli 36.
Elín Á. Jónsdóttir,
Dagbjört Sigvaldadóttir,
Einar Matthíason,
systkini og barnabörn.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður,
tengdaföður og afa,
RAGNARS S. SIGURÐSSONAR,
Hrauntungu 45,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Kristjáns Loftssonar og skipverja á Venusi.
Sigriður S. Jónsdóttir,
Sigríður Oddsdóttir,
Berglind Ósk Ragnarsdóttir,
Ólöf Þ. Ragnarsdóttir, Þröstur Valdimarsson,
Sigurður Jón Ragnarsson, Erla Alexandersdóttir
og barnabörn.
Jón T. Jóhannsson
Mjóanesi - Kveðja