Morgunblaðið - 15.06.1990, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
„/M&rer iLUz. i//b -farzx dn þess
JctzupcL. ncitt.."
1
Því í ósköpunum má hún
ekki fá hjá þér nokkur
spil, hún Stella litla, svo
hún hætti að gráta.
Með
morgunkaffmu
Hvaða samsæri eruð þið
mæðgurnar að brugga
núna?
HÖGNI HREKKVÍSI
Veiðimenn eru tillits-
lausir hver við annan
Hvelja
saklaust
fólk til
orrustu
Til Velvakanda.
Hryðjuverkamenn innan vé-
banda Arafats koma nú af fundum
um friðaruppreisn Palestínu-
manna. Núna ætla hvatningar-
menn að hvetja og æsa upp sak-
laust fólkið til orrustu, smeygja inn
baráttuanda sínum í sem fíest stig
samfélagsins og koma fyrir lykil-
mönnum sínum í sama tilgangi.
Með þessu fótum troða þeir frið-
arvilja hinna innfæddu en sitja
yfír þeim með falsspádómum og
taka það frá þeim að þeir geti
svarað fyrir sig sjálfir. Píslarvott-
um og fórnarlömbum hins heilaga
stríðs islams heldur áfram að
fjölga meðan svo fram horfir.
Heitir það ekki að fremja
hryðjuverk á sínu eigin fólki?
Minnir það helst á boxáhangenda-
lið sem etur boxaranum aftur út
í bardagann að lokinni hressingu
í hléinu.
Blákalt bjóða hryðjuverkamenn
fram hjálp sé til vilji fyrir háska-
legri átökum. Við svo búið má
ekki sitja.
EG
Góð nýbreytni
Til Velvakanda.
Stöð 2 hefur tekið upp þá ný-
breytni að sýna framhaldsþætti,
sem eru í tveimur eða þremur hlut-
um, nokkur kvöld í röð. Eins og
var áður, og er reyndar enn hjá
ríkissjónvarpinu, mátti maður bíða
í heila viku eftir að fá að sjá fram-
haldið, jafnvel svo söguþráðurinn
gleymdist. Hvet ég Stöð 2 til að
halda þessari nýbreytni og fá fleiri
stuttar myndaraðir í_ dagskrána.
Áhorfandi.
Til Velvakanda.
Ég vil byrja á því að þakka
þeim hjá Fiskeldi Grindavíkur fýr-
ir framtakssemi þeirra að Brunn-
um í Grindavík. Mættu aðrir taka
þá til fyrirmyndar í þeim efnum,
það er að segja að búa til lón með
laxi í. En því miður er einn stór-
galli á þessu sem hægt er að laga
ef viljinn er fyrir hendi. Gallinn
er tillitsleysi veiðimanna hver við
annan og langar mig í framhaldi
af því að nefna tvö dæmi sem
hafa hent mig og aðra félaga
mína. Ef sett er í fisk eða fiska
hrúgast allir veiðimennirnir saman
og kasta þvers og kruss hver í veg
fyrir annan og gera lítið annað
en að flækja. Eg fékk spún í
fluglínuna og bað þann sem kast-
aði spúninum í línuna að passa sig
og svarið sem ég fékk var: „Ég
er nýbyrjaður að veiða,“ og svo
hélt sama sagan áfram. Annað
dæmi er á þessa leið: Ég ákvað
að taka mér smáhlé en ég var úti
á litlum tanga og skildi allt mitt
veiðidót eftir á meðan ég skrapp
frá í 2-3 mínútur að tala við veiði-
félaga minn, en þegar ég kom
aftur var kominn annar veiðimað-
ur þar og tróð sér yfir veiðidótið
mitt í orðsins fyllstu merkingu. í
sakleysi mínu hélt ég að hann
myndi sýna mér þá tillitssemi að
færa sig aftur þegar ég kom.
Ónei, ég þurfti að gera mér það
að góðu að tína dótið mitt upp
nánast af fótum hans. Innst inni
langaði mig þó til að reka hann í
burtu en lét það ógert. Geta ekki
starfsmenn Brunnsins staðið að
eftirliti og bent mönnum á lón,
því nóg er plássið, eða fækkað
stöngum í lóninu? Með veiði-
mannakveðju og von um tillitssemi
við „næsta mann“.
Rögnvaldur
Víkverji skrifar
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu hefur fangað hugi
manna nú um stundir. Keppnin
hefur farið vel af stað og flestir
leikirnir hafa verið skemmtilegir á
að horfa. Margt óvænt hefur gerst
í keppninni hingað til og eins og
staðan er núna er mögulegt að sum
þeirra liða, sem talin hafa verið í
hópi hinna beztu, verði að snúa
heim strax að lokinni undankeppni.
Ríkissjónvarpið mun sýna á
fjórða tug leikja og eru þessar sýn-
ingar kærkomnar öllum íþrótta-
áhugamönnum. Hins vegar ber nú
við að íþróttafréttamenn RUV hafi
sætt nokkurri gagmýni fyrir Iýsing-
ar á leikjunum. Víkveiji getur tekið
undir þessa gagnrýni. Lýsingarnar
eru ekki nógu líflegar og íþrótta-
fréttamennirnir virðast ekki búa sig
nógu vel undir þær. Þá væri til
bóta að hafa sérfræðinga til aðstoð-
ar.
xxx
ótt gaman sé að fylgjast með
Heimsmeistaramótinu í sjón-
varpi er margfalt skemmtilegra að
fylgjast með keppninni í því landi
þar sem hún fer fram. Fyrir átta
árum var Víkverji á Spáni þegar
keppnin fór þar fram. Það voru
ógleymanlegir dagar. Víkveiji sá
þijá leiki keppninnar, þar á meðal
úrslitaleik Itala og Þjóðveija í
Madrid. Stemmningin í kringum
leikina var ólýsanleg.
xxx
Fyrir keppnina á Ítalíu tóku sig
til einhveijir spaugarar og
sömdu reglur fyrir húsmæður á
meðan keppninni stendur. Þessum
reglum hefur verið dreift víða og
þær hafa birst í fjölmiðlum. Kunn-
ingi Víkveija fór með eintak heim
til sín og hengdi upp á töflu í eldhús-
inu. Litlu síðar bað eiginkonan
manninn að koma út í bílskúr. Þar
hafði hún komið fyrir litlu sjón-
varpstæki, stól og borði, sem á var
vatnsglas!
xxx
Um þessar mundir standa yfir
samningaviðræður milli
minnihlutaflokkanna í borgarstjórn
um skiptingu í nefndir og ráð borg-
arinnar. Ekki hefur enn komið fram
opinberlega hver skiptingin verður
en búist er við að Nýr vettvangur
fái í sinn hlut nokkru fleiri nefndar-
sæti en hinir flokkarnir þrír, þó
ekki í réttu hlutfalli við fjölda borg-
arfulltrúa. Vettvangur hefur tvo
fulltrúa en hinir flokkarnir aðeins
einn og í samræmi við það ætti
hann að fá helmingi fleiri nefndar-
sæti en hver þeirra..Verður fróðlegt
að sjá hvort allir þeir ólíku hópar,
sem að framboði Nýs vettvangs
stóðu, verða sáttir við þessa niður-
stöðu.
xxx
Staðan í borgarstjórn er þannig
eftir kosningarnar í maí, að
sjálfstæðismenn eiga þijá menn
vísa í öllum fimm manna nefndum
og ráðum, en minnihlutinn einn.
Hlutkesti mun síðan ráða því hvort
fjórði maður Sjálfstæðisflokksins
eða annar maður minnihlutans nær
kosningu. Sú spurning hlýtur að
vakna, hvort þetta geti ekki raskað
öllu samkomulagi minnihlutaflokk-
anna um nefndakjörið og hvort jafn-
vel geti komið upp sú staða, að ein-
hver minnihlutaflokkanna fái engan
mann kjörinn í nefndir borgarinnar.