Morgunblaðið - 15.06.1990, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
KNATTSPYRNA / HEIMSMEÍSTARAKI PPNÍN A ÍTAUU
Þremenningarnir á myndinni, Frank Rijkaard, Marco Van Basten og Ruud Gullitt, settu upp kórónur eftir sigurinn í Evrópukeppni landsliða fyrir
tveimur árum. Þeir náðu sér ekki á strik í fyrsta leik HM, gegn Egyptum og nú heimtar holienska þjóðin betri frammistöðu gegn Englendingum á morgun.
Kórónumar reynast
Hollendingum erfiðar!
HOLLENDINGAR fengu heldur betur magalendingu eftir 1:1
leikinn gegn Egyptalandi á HM í knattspyrnu á Ítalíu. Holl-
enska þjóðin átti alls ekki von á þessum úrslitum. Spurningin
fyrir leik var ekki hvort heldur hvað sigurinn yrði stór.
Mér í Hollandi snýst allt um
hollenska liðið og þessa
keppni. Appelsfnuguli liturinn er
um allt — jafnvel járnbrautavagn-
arnir eru með
hvatningarorðum.
Búðargluggar,
veitingastaðir og
jafnvel einkaheim-
ili eru skreytt með myndum,
blöðrum, fánum og öðru — app-
elsínuguli liturinn er þar alls ráð-
andi, og þetta er mest áberandi
litur, sem sést hér þessa dagana.
Kjartan L.
Pálsson -
skrifar
fráHollandi
Skammir
Landsliðið fær líka heldur betur
skammirnar eftir þennan leik.
Aðeins einum manni er lirósað
fyrir framlag sitt — markverðin-
um Van Breukelen. Hann er sá
eini, sem er öruggur með sæti í
liðinu í leiknum gegn Englandi á
morgun. Almennt er þó talið að
sex til sjö af þeim sem voru í lið-
inu gegn Egyptalandi haldi sætinu
— hinum verði skipt út fyrir yngri
menn. Jafnvel er haldið að Gullit
sjálfur verði á bekknum, þegar
leikurinn hefst.
Hann hefur líka fengið heldur
betur orð í eyra hjá fólki. Þótti
óheyrilega lélegur í leiknum, og
var svo með stór orð og yfírlýsing-
ar í sjónvarpi og víðar strax eftir
leikinn um hvað félagar hans í
liðinu hefðu verið lélegir.
Leikmennirnir héldu fund ígær
og hefur ekkert spurst út um það
sem þar fór fram. Er það óvenju-
legt, því menn hafa verið mjög
.ósparir á að segja frá og gefa
stórar yfirlýsingar til þessa. En
kannski hafa þeir vaknað aftur
eftir þessi úrslit gegn Egyptum —
úrslit, sem voru að flestra áliti
hér ósanngjöm. Egyptar hefðu
átt að vinna 3:1!
Menn eru samt ósáttir við vítið,
sem Hollendingar fengu á sig.
Segja að brotið hafi verið fyrir
utan teig. En hér segja menn líka
að þetta sé bara gott. Liðið sé
núna með einu stigi meira en það
hafði eftir fyrsta leikinn í Evrópu-
keppninni 1988. Þá tapaði Holl-
and 1:0 fyrir Sovétríkjunum. Liðin
mættust síðan aftur í úrslitaleikn-
um og þar fóru leikar á annan
veg, sem flestum er kunnugt.
Niður með kórónumar!
Dagsskipun liðsins í leiknum
gegn Englandi á morgun verður,
samkvæmt þvf sem blöðin segja,
að spila á köntunum. Það sé þar,
sem úrslitin ráðast, og svo að
sjálfsögðu upp við mörkin. „Aftur
á móti þyrftu ákveðnir menn í lið-
inu að taka niður kórónurnar, sem
þeir settu sjálfir upp eftir síðustu
Evrópukeppni. Það er erfítt að
hlaupa með þær og þær þrengja
sýnilega að ákveðnum líkams-
hluta, sem er inni i höfðinu á
sumum í liðinu, og þessi líkams-
hluti þolir ekki þennan þrýsting,“
sagði eitt blaðið.
En hvað um það. Það verður
fýlgst vel með hér í Hollandi ann-
að kvöld. „Og það er eins gott
að þeir spili betur en síðast,“ sagði
einn æstur aðdáandi liðsins við
mig. „Annars verða vegabréfín
tekin af þeim og þeir fá ekki að
koma hér yfir landamærin.“
Já, það er erfítt að vera knatt-
spyrnumaður á HM á Ítalíu núna.
Stjarna í dag, en óvinur þjóðarinn-
ar númer eitt á morgun!
H ÍTÖLSKU strákarnir eru léttir
í skapi þessa dagana, en mikil
spenna ríkti í herbúðum þeirra fyr-
ir leikinn gegn Austurríki. Eftir
að betri helmingur leikmannanna
hafði yfirgefið hótelið á sunnudag-
inn kom prestur þangað og messaði ,
eins og venja er hjá flestum liðúf!?™
Ítalíu á sunnudögum.
■ PELE, fyrrum leikmaður bras-
ilíska landsliðsins sem talinn er-
besti knattspyrnumaður allra
tíma, vinnur nú fyrir brasilíska
sjónvarpið. Hann sér um lýsingar á
leikjum Brasilíu í HM. Eftir ieikinn
gegn Svíum í Tórínó sagði Pele:
„Ég var sveittur allan tímann og
áreiðanlega ennþá spenntari en
leikmennimir sjálfír, Brasiliumenn
léku vel en voru ekki óviðjafnanleg-
ir eins og þeir hafa stundum verið."
M GIANNI Agnelli Fiat-kóngur
og eigandi Juventus var meðal
áhorfenda í heiðursstúkunni í
Tórínó: „Svíarnir eru mun beti^
en ég átti von á,“ sagði Agnelii, ■
„ég átti svo sannarlega ekki von á
að þeir byggju yfír svona góðri
tækni og gætu leikið svona hratt.“
■ TVÆR brasilískar stúlkur sem
komu til Sardiníu til að sóla sig á
baðströndum urðu fyrir barðinu á
tveimur breskum knattspyrnubull-
um um helgina. Englendingarnir
réðust á þær og lömdu þær fyrii
utan diskótek skammt frá Cagliari.
■ LANDSSAMTÖK enskra
knattspymuaðdáenda deildarliða,
samtök sem starfa undir verndar-
væng enska knattspyrnusambands-
ins,_ skipulögðu hópferð félaganna
til Ítalíu til að fylgjast með HM.
Félagar þessara samtaka em það
sem kalla má „venjulegt fólk“ og á
ekkert skylt við bullumar. Um helg-
ina ákváðu félagar samtakanna að
gefa blóð í blóðbanka Sardiníu sem
kunni vel að meta hina fáguðu'
framkomu Englendinganna.
■ ENSKA landsliðið var það lið
sem kom fyrst til Ítalíu fyrir HM,
þremur vikum áður en keppnin
hófst. Mikil gæsla hefur verið allan
tímann við æfingabúðir og hótel
liðsins, eins og reyndar hjá skoska
liðinu sem dvelur í Genóva. Þjálfar-
ar þessara tveggja liða vilja sem *
minnst tala við fréttamenn og hafa
neitað að gefa upp niðurröðun á
völlinn og liðsskipan fyrir leik.
Æfíngar liðanna fyrir keppnina
fóru fram fyrir luktum dyrum og
var fréttamönnum og ljósmyndur-
um bannað að vera viðstaddir.
■ ÍTÖLSKU landsliðsmennirnir
fengu eiginkonur sínar og kærustur
í heimsókn á sunnudaginn í fyrsta
sinn frá því liðið fór í æfingabúðir
fyrir um það bil mánuði. Konurnar
borðuðu hádegisverð á hótelinu þar
sem liðið dvelur um þessar mundir
og höfðu heimsóknarleyfí til kl. 16.
■ NOKKRIR landsliðsmanna ít-
alíu eru ólofaðir, þar á meðal fram-
heijinn snjalli Gianluca Vialli sem
setti á sig hárkollu og klæddi sig í
kvenmannsföt fyrir hádegisverðinn
og bauðst til að vera „kærasta"
einhvers ólofaðs félaga síns. Enginn
mun hafa þegið hið rausnarlega boð
Viallis.
■ TOTÓ Schillaci, sem skoraði
mark ítala gegn Austurríkis-
mönnum og kona hans, Rita eiga
von á barni nú á næstu dögum.
Totó segir að þetta verði strákur
sem muni heita Matteo. Þau hjón
eiga eina dóttur fyrir.
IMordin vill launahækkun
Olle Nordin, landsliðsþjálfari Svía, vill fá launahækkun. Hann þénar
nú um 4,4 millj. kr. á ári, en hefur farið fram á að fá 10 millj. á ári
eða sömu laun og Sepp Piontek, fyrrum landsliðsþjálfari Dana hafði.
Samningur Nordins, sem landsliðsþjálfara, rennur út eftir HM. Hann er
í sterkri samningsaðstöðu, því erlend stórfélög bera víurnar í hann, bjóða
honum gull og græna skóga. Hins vegar mun sænska knattspyrnusam-
bandið gera allt til þess að halda Nordin fram yfir Evrópukeppnina 1992,
sem fer fram í Svíþjóð, og því bendir flest til þess að það komi til móts
við kröfur hans.
Áskorun til sænsku
konungshjónanna
ið, en það hefur vakið nokkra
gremju innan sænska landsliðs-
hóþsins að konungshjónin, sem
eru einmitt annáluð fyrir mikinn
íþróttaáhuga ætla sér ekki að
koma til Italíu og horfa á leiki
sænska landsliðsins. Nú er beðið
eftir svari Karls Gústavs, en þar
sem hann er önnum kafinn maður
er ekki búist við því að hann sjái
sér fært að fara til Ítalíu.
Laugardagur kl.18:55 ,
2. HM-leikvika 16. iúní 1990 iti X |2|
Leikur 1 Enqland - Holland
Leíkur 2 Svíþióð - Skotland
Leikur 3 írland - Egyptaland
Leikur 4 Belgía - Uruguay
Leikur 5 Argentína - Rúmenía
Leikur 6 Kamerún - Sovétríkin
Leikur 7 V.Þýskaland - Kólumbía
Lelkur 8 Ítalía - Tékkóslóvakía
Lelkur 9 Brasllia - Skotiand
LeikurlO Svíþjóð -CostaRica
Lelkur11 Belgía - Spánn
Leikur12 S.Kórea - Uruquay
Lelkur13 írland - Holland
Tugmilljónapottur - ef þú spilar með !! Breyttur lokunartími! ~
Eeitt af stærstu síðdegisblöð-
unum í Svíþjóð, i DAG, hefur
birt opið bréf til sænsku konungs-
hjónanna. „Ciao, kæri Karl Gústaf
konungur og
Silvía drottning.
þið eruð velkomin
hingað niður eftir
til Ítalíu. Heim-
sókn ykkar yrði ómetanlegur
stuðningur fyrir sænska landslið-
ið.“ Með þessum orðum hefst bréf-
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifar
frá Svíþjóð.