Morgunblaðið

Dato
  • forrige månedjuni 1990næste måned
    mationtofr
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    2526272829301
    2345678

Morgunblaðið - 15.06.1990, Side 48

Morgunblaðið - 15.06.1990, Side 48
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Tveimur mönnum bjargað vestur af Reykjanesi; i _Hékk í lofltneti vélariimar sem var að hverfa í hafið Árni Jónasson, sigmaður á SIF, leiðir Rod Davies, flug- mann, inn á slysadeild Borg- arspítalans í gærkvöldi. Fyrir aftan þá hjálpar annar björg- unarmaður farþeganum út úr þyrlunni. Hann var svo fluttur í sjúkrabörumm inn í Borg- arspítalann. Davies vildi ekki tala við Morgunblaðið í gær- kvöldi, en mennirnir áttu að vera í sjúkrahúsinu í nótt. ÍV Seðlageymsla Seðlabankans á Seyðisfírði; 'Pappír komið fyr- ir í seðlabúntum ÁHÖFNIN á TF - SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, bjargaði tveim- ur mönnum sem nauðlentu tveggja hreyfla flugvél af gerðinni PA-34 Piper Seneca í sjónum 29 sjómílur vestur af Reykjanesi, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Mennirnir voru að feija flugvélina frá Goose Bay í Labrador en yfir Grænlandi hrepptu þeir 60-70 hnúta mótvind. Að sögn björgunarmanna mátti engu muna. Menn- irnir voru illa klæddir og bara annar þeirra í björgunarvesti. Hinn hékk í loftneti flugvélarinnar, sem var að hverfa í hafið. Klukkan 20.27 tilkynnti flug- maður flugvélarinnar að eldsneyt- isbirgðir um borð dygðu aðeins til flugs í um 1 klukkustund og 20-30 mínútur en þá taldi hann sig vera um 150 sjómílur suðvestur af ls- landi. Þyrla Landhelgisgæsluhn- ar, TF-SIF, hóf sig á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 20.50 áleiðis að feijuflugvélinni og rúmri klukkustund síðar til- kynnti flugmaður vélarinnar að drepist hefði á hægri hreyfli vélar- ,.jnnar vegna eldsneytisskorts. Klukkan 22.09 drapst á vinstri hreyfli vélarinnar og hún nauð- lenti í sjónum 29 sjómílur vestur af Keflavík. Áhöfn þyrlunnar tókst að bjarga mönnunum á þremur mínútum og um klukkan 22.49 lenti þyrlan við slysadeild Borg- arspítalans þar sem hlúð var að mönnunum. Mennirnir um borð, flugmaður og farþegi, eru taldir vera af bresku og bandarísku þjóðerni. Kristján Jónsson siglingafræðing- ur þyrlunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að mennirnir hefðu borið sig vel eftir að þeim var bjargað. En þeir hefðu verið illa klæddir og bara annar þeirra í björgunarvesti og það lé- legu. Árni Jónasson, sem seig nið- ur til mannanna sagði að þeir hefðu verið í stuttum ermaboíum og berfættir og kvaðst hann aldr- ei hafa séð neitt þessu líkt. Mennirnir höfðu upphaflega ætlað að lenda í Reykjavík og halda svo áfram í dag til Prestvík- ur þjálfunarskóli breska fyrirtæk- isins British Aerospace hafði keypt flugvélina. Sjá bls. 4: Mennirnir voru illa klæddir og bara annar í björgunarvesti lykla frá báðum þessum aðilum. Strangt eftirlit og skýrslugerð er með fjármunum sem um seðla- geymsluna fara, enda litið svo á að peningar sem inn í hana fara hafi þar með verið lagðir inn til ávöxtunar í Seðlabankann. Morgunblaðið/Júlíus. Stjórn BHMR undirbýr málshöfðun gegn ríkinu Á fundi samninganefndar aðildarfélaga Bandalags háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna í gær var ákveðið að fela stjórn bandalagsins að undirbúa formlega málshöfðun gegn ríkisstjórninni fyrir réttum dómstólum. Jalhframt var stjórninni falið að vekja athygli Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar á þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta launaflokkahækkunum BHMR. Rannsóknarlögregla ríkisins hóf í gær rannsókn á meintu fjár- málamisferli í seðlageymslu Seðlabanka íslands á Seyðisfirði. Að sögn Boga Nilssonar, rann- sóknarlögreglustjóra ríkisins, er ekki ljóst hvort peningar, sem talið er að vanti í seðlabunka, hafi verið teknir út úr peninga- geymslunni eða hvort þeim hafi aldrei verið komið fyrir þar. Pappírsmiðar höfðu verið settir inn í seðlabunka i stað seðla, að sögn lögfræðings Seðlabankans. Bogi sagðist eiga von á því að málið yrði upplýst í dag. Uppvíst varð um misferlið síðast- liðinn þriðjudag er starfsmenn geymslunnar^ sem er til húsa í Landsbanka íslands á Oddagötu 6 á Seyðisfirði, ætluðu að sækja þangað seðla. í fréttum Ríkisút- varpsins í gær sagði að 2,5 milljón- ir króna vantaði í seðlageymsluna, en fulltrúar rannsóknarlögreglunn- ar og Seðlabankans vildu ekki stað- Testa þá upphæð. Seðlabanki íslands starfrækir 23 seðlageymslur vítt um landið. Að sögn Sveinbjörns Hafliðasonar, lög- fræðings Seðlabankans, er umsjón seðlageymslanna ávallt í höndum bankastofnunar og trúnaðarmanns Seðlabankans, oftast sýslumanns ^feða bæjarfógeta á viðkomandi stöð- um. Til að opna seðlageymslur þarf Ekki hefur verið ákveðið hvert máli BHMR verði skotið og eru lög- fræðingar bandalagsins að skoða málið. Páll Halldórsson formaður BHMR sagði að tvennt kæmi til greina, annars vegar Félagsdómur og hins vegar sérstök þriggja manna nefnd sem samkvæmt kjara- samningi; BJJMR og ríkisins á að skera úr ágreiningsefnum varðandi túlkun samningsins. Samkvæmt lögum um samnings- rétt opinberra starfsmanna má skjóta ágreiningi um túlkun samn- inga til Félagsdóms og skipar hvor samningsaðili þá sinn fulltrúann hvor í dóminn til viðbótar þeim þreiQUC 'i föstu -dómurum ‘ sem rþar sitja. Samkvæmt upplýsingum Garðars Gíslasonar, forseta dóms- ins, tekur málsmeðferð þar yfirleitt skamman tfma. Félagsdómur er endanlegur. Á fundi samninganefndar BHMR var jafnframt ákveðið að leita sam- stöðu hjá öðrum félögum og sam- tökum launamanna um að verja samningsréttinn. Þá var samþykkt að stofna aðgerðanefnd með fulltrú- um aðildarfélaga BHMR til að sam- ræma mögulegar aðgerðir félag- anna til að fylgja eftir samningum. Loks var viðræðunefnd falið að kanna möguleika á viðræðum við ríkið. Aðiidarfélög BHMR hafa mörg sent frá sér mótmæli vegna ákvörð- unar ríkisstjórnarinnar og sum hafa þegar boðað félagsfundi til að ræða mögulegar aðgerðir. Þá sóttu nokk- ur hundruð háskólamanna baráttu- fund í Bíóborg í gær. Sjá í miðopnu frásögn af fundi BHMR í gær og ummæli Davíðs Oddssonar borgarstjóra og Hall- dórs Ásgrímssonar, sem gegnir starfi forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 133. tölublað (15.06.1990)
https://timarit.is/issue/123302

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

133. tölublað (15.06.1990)

Handlinger: