Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVKUDAGUR 20. JÚNÍ 1990
Hluthafar í Stöð 2
hnykkja á um sam-
einingu við Sýn hf.
Á hluthafafundi Stöðvar 2 I gær var samþykkt ályktun þar sem
lýst var einlægum áhuga á að samruni Stöðvar 2, Sýnar hf. og ís-
lenska útvarpsfélagsins hf. nái fram að ganga. Nokkur óvissa hefur
ríkt um hvort af sameiningu þessara fyrirtækja verði, þar sem ekki
hefiir náðst samkomulag milli forsvarsmanna þeirra um ýmis fram-
kvæmdaatriði.
Að sögn Jóhanns J. Ólafssonar
stjórnarformanns Stöðvar 2 var
einnig samþykkt á hluthafafundin-
um að auka hlutafé íslenska sjón-
varpsfélagsins, sem rekur Stöð 2,
upp í 815 milljónir, vegna samrun-
ans, og samþykkt viljayfirlýsing um
sameiningu við íslenska útvarpsfé-
lagið. Einnig var samþykkt að mót-
mæla lágkúrulegum fréttaflutningi
af sameiningarmálunum og lýsa yfir
fullum stuðningi við Þorvarð Elías-
son sjónvarpsstjóra og starfsfólk
stöðvarinnar.
Jóhann J. Ólafsson sagði að við-
ræður við Sýn hf. um sameininguna
lægju niðri í bili vegna þess að menn
Meirihlut-
innklofhar
í Eyjum
FYRSTI fundur nýrrar bæjar-
sljórnar Vestmannaeyja var
haldinn í gær. Á fundinum
staðfestist að Sigurður Jóns-
son, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, starfar ekki
með öðrum fulltrúum flokksins
í meirihluta bæjarstjórnar.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk sex
fulltrúa kjörna og mynda fimm
fiilltrúar hans meirihluta. For-
seti bæjarstjórnar var kjörinn
Bragi Ólafsson, D-lista, 1.
varaforseti Georg Þór Krist-
jánsson, D-Iista, og 2. varafor-
seti Guðmundur Þ.B. Ólafsson,
A-lista.
I bæjarráð voru kjörnir Sig-
urður Einarsson og Bragi Ólafs-
son, _D-lista, og Guðmundur
Þ.B. Ólafsson. Tillaga kom frá
minnihluta um að G-listinn
fengi áheymarfulltrúa á bæjar-
ráðsfundum, en hún var felld.
Páll Einarsson, sem verið hefur
bæjarritari undanfarin fjögur
ár, var ráðinn bæjarstjóri fyrst
um sinn.
„Ég átti ekki aðild að þeirra
tillögum um forseta og skipan
í bæjarráð og það er rétt að ég
sagði að ég myndi taka afstöðu
í hverju máli fyrir sig,“ sagði
Sigurður Jónsson í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ágreiningur var milli hans og
annarra fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um skipan í embætti.
Sigurður óskaði eftir að gegna
stöðu bæjarstjóra, en því var
hafnað. Sáttafundir höfðu ekki
borið árangur.
„Ástæðumar eru ósköp ein-
faidlega þær, að ég skipa efsta
sæti listans og eftir að flokkur-
inn vinnur þennan stórglæsilega
sigur, þá er margt fólk sem
talar við mig og hvetur mig til
þess að sækjast eftir starfi bæj-
arstjóra og telur að það sé eðli-
legt miðað við úrslitin," sagði
Sigurður Jónsson.
Sigurður Einarsson, 2. maður
á lista sjálfstæðismanna, vildi
ekki tjá sig um efnisatriði þessa
ágreinings, sem hann sagði eiga
nokkum aðdraganda. „Eg
harma þessa niðurstöðu sem
menn standa frammi fyrir í dag
og vona að þetta jafni sig. En
það er búið að reyna að ná sátt-
um í töluverðan tíma, og árang-
urinn er öllum ljós,“ sagði Sig-
urður Einarsson.
hefðu verið uppteknir við annað.
„Það eru miklir hagsmunir í húfi og
þetta gengur ekki fyrirhafnarlaust
fram,“ sagði Jóhann.
Meðal þess sem valdið hefur deil-
um í viðræðunum, er skipulag yfir-
stjómar sameinaðs fyrirtækis, en
Sýnarmenn hafa ekki viljað sam-
þykkja að Þorvarður Elíasson verði
yfírmaður þess. Jóhann sagði 'að
deilan snérist ekki um menn heldur
um skipulag. „Við teljum ófrávíkjan-
legt að einn ábyrgðarmaður sé gagn-
vart stjóm annars vegar og starfs-
fólki hins vegar," sagði Jóhann.
Þegar Jóhann var spurður hvort það
væri þá ekki ófrávíkjanlegt að Þor-
varður yrði þessi ábyrgðarmaður,
sagði hann að ekki hefði komið til-
laga um neinn annan.
Um 18 milljóna króna halli varð
á rekstri Stöðvar 2 fyrstu 4 mánuði
ársins. Gert var ráð fyrir 10 milljóna
króna hagnaði á mánuði fyrir fjár-
magnskostnað, sem hefði þýtt að
reksturinn stæði nokkurn veginn á
núlli. Jóhann sagði að orðið hefði
að afskrifa mikið af eignum og úti-
standandi skuldum og því hefði þessi
taprekstur orðið. Hins vegar hefði
tekist að lækka mjög kostnað frá
síðasta ári, þannig að hann væri
nokkum veginn sá sami í krónum
talið, eða um 90 milljónir á mánuði,
sem þýddi um 15-16 milljóna króna
raunlækkun. Þá hefði náðst að koma
700 milljóna króna vanskilaskuldum
um áramót niður í 200 milljónir og
vonir stæðu til að sá hali yrði klippt-
ur af á næstu mánuðum.
„Þetta hefur verið geysilega mikið
verkefni enda vom þetta stærstu
vanskil utan skiptaréttar, sem hafa
verið á íslandi," sagði Jóhann J.
Ólafsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Furðufiskarnir tveir. Sá minni er annað eintakið sinnar tegundar sem vitað er tU að hafi veiðst í
Norð-Austuratlantshafi en af hinni tegundinni hafa veiðst um 150 fiskar í öllum heimsins höfum.
Grálúðuflotinn fundvís á
fiirðufiska að undanfömu
Fundist hafa fiskar sem aldrei áður hafa veiðst svo norðarlega
MIKIÐ af fágætum fiskum hefiir rekið á fjörur Hafrannsóknastofii-
unar undanfarnar vikur og er helsta skýringin sú, að sögn Geirs
Oddssonar líflræðings hjá stofiiuninni, að togarar hafa undanfar-
ið þurft að leita grálúðunnar utan hefðbundinna slóða. Nýlega
hafa veiðst tveir fiskar sem eru svo íagætir að þeir þekkjast að-
eins undir latneskum nöfiium. í öðru tilfellinu er um að ræða
annan fiskinn sinnar tegundar sem vitað er að veiðst hafi í Norð-
austur-Atlantshafi en af hinni tegundinni hafa veiðst um 150 fisk-
ar í Norður-Atlantshafi, samkvæmt bestu heimildum, að sögn
Geirs Oddssonar líflræðings hjá Hafrannsóknastofiiun. Hvor
tveggja fiskurinn er stærri en hámarksstærð viðkomandi tegund-
ar, samkvæmt fræðibókum.
Sá fágætari fískanna nefnist á
latínu Caulophryne polynema og
kom hrygna þeirrar tegundar í
vörpu Krossvíkur AK á 5-600
faðma dýpi í Víkurál nýlega. Fisk-
urinn mælist 21,5 sentimetra
langur en samkvæmt handbókum
er þekkt stærð hrygnunnar 14,5
sentimetrar en hængsins, sem lif-
ir sníkjulífi á hiygnunni aðeins
7,5 millimetrar. Þessi fískur fínnst
í grennd við hitabeitið bæði í Atl-
ants- og Kyrrahafi en í Norð-
austur-Atlantshafí hefur aðeins
eitt par af tegundinni veiðst og
var það skammt norður af Azor-
eyjum. Fiskur þessi er afar litrík-
ur en ekki kræsilegur útlits. Um
það bil þriðjungur búksins virtist
vera blár glyttukenndur magi,
sem að sögn Geirs Oddssonar á
sér þá skýringu að um er að ræða
djúpsjávarfísk sem lifir þar sem
þéttleiki fæðu er lítill og safnar
sér miklum forða þegar hann
kemst í æti.
Hinn fágæti fiskurinn sem Geir
Oddsson sýndi Morgunblaðs-
mönnum er af ættbálki laxsílda
og heitir á latínu Bathysaurus
ferox. Hann kom í vörpu Jóns
Vídalíns ÁR á 520 faðma dýpi
skammt frá miðlínu vestur af
Faxaflóa. Um 150 fiskar af teg-
undinni hafa veiðst í öllum heimin-
um, þar af allnokkrir vestur af
Bretlandseyjum, við Azoreyjar og
norður af Kanaríeyjum, en sá sem
áður hafði veiðst nyrst veiddist
við Skotlandsstrendur. Handbæk-
ur segja tegundina lifa á meira
en 860 faðma dýpi og gefa mestu
lengd sem 61 sentimetra. Fiskur-
inn sem veiddist við íslands-
strendur mældist hins vegar 64
sentimetra langur.
Verktakasambandið gagnrýnir Akranesbæ:
Telur óeðlilega staðið að
útboði vegna hafnarbóta
Bæjarstjórn skylt að tryggja hagsmuni heimamanna, segir bæjarsljóri Akraness
VERKTAKASAMBAND íslands hefúr lýst yfir mikilli óánægju
með hvernig Akranesbær stóð að útboði vegna gerðar brim- og
flóðvarnargarðs í Akraneshöfti. Sjö tilboð bárust og voru opnuð
í gær en útboðið var aðeins auglýst í Skagablaðinu og barst Verk-
takasambandinu fyrst vitneskja um að verið væri að bjóða út verk-
ið á mánudag, daginn áður en frestur rann út.
Að sögn Pálma Kristinssonar, var rúmar 64 milljónir króna. 7
framkvæmdastjóra Verktakasam-
bandsins, telur sambandið að
Akranesbær hafi brotið gegn verk-
lagsreglum sem samgönguráðu-
neytið hefur sett um útboð á veg-
um stofnana sem heyri undir ráðu-
neytið, þar á meðal Hafnamála-
stofnun. Samkvæmt þeim eigi að
beita forvali vegna verkefna sem
kosta meira en 30 milljónir króna.
Kröfu sambandsins um lengdan
frest var hafnað.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi segir niðurstöður útboðs-
ins sýna að það hafi verið rétt
mat hjá hafnarstjórn bæjarins að
sá auglýsingamáti sem viðhafður
var mundi skila nægilega mörgum
tilboðum, sem væru bæði bæjar-
og ríkissjóði þolanlega hagstæð.
Kostnaðaráætlun VT-teikni-
stofunnar vegna verksins, sem
ljúka á í september á næsta ári,
tilboð bárust, fjögur þeirra frá
fyrirtækjum á Ákranesi. Lægsta
tilboð var 32,9 milljónir en hið
hæsta 87 milljónir, bæði frá fyrir-
tækjum á Akranesi.
Að sögn Pálma Kristinssonar
höfðu ýmis verktakafyrirtæki víða
um land beðið eftir því að þetta
verk væri boðið út, enda sé um
að ræða eitt stærsta jarðvinnu-
verkefni sumarsins. Hins vegar
hafí aðeins einu af þeim fjölmörgu
fyrirtækjum sem Verktakasam-
bandið hafí gert viðvart á mánu-
dag, Suðurverki á Hvolsvelli, tek-
ist að skila inn tilboði innan frests-
ins og hafí það boðið 46,3 milljón-
ir króna. „Meðferð bæjarins á
þessu máli er líkari því að bjóða
eigi út endurnýjun á nokkrum
gluggum en að hér sé um tugmillj-
ónahagsmuni bæjar- og ríkissjóðs
að tefla,“ sagði hann. Pálmi sagði
augljóst að allt hefði verið gert til
að halda öðrum en Akurnesingum
utan við útboðið. Hann fullyrti að
í þessu máli hefði Akranesbær
unnið gegn ráðleggingum og vit-
und Hafnamálastofnunar og sam-
gönguráðherra, sem gert hefði
verið grein fyrir málinu.
Hvorki náðist í hafnamálastjóra
né ráðherra vegna málsins í gær.
Að sögn Gísla Gíslasonar hafa
hvorki Hafnamálastofnun né ráðu-
neyti gert athugasemdir við af-
greiðslu bæjarins á málinu.
Gísli Gíslason sagði að bæjar-
stjóm Akraness teldi sér skylt að
teygja sig svo langt sem unnt er
til að tryggja hagsmuni heima-
manna þegar um sé að ræða um-
fangsmikil verkefni af þessu tagi
en vildi ekki segja að svo hefði
verið gert í þessu máli eða ac nið-
urstaðan yrði á þá lund. Hann
sagðist telja framgöngu Verk.aka-
sambandsins dæmigerða fyrir það
að þegar minna framboð væri á
verktakamarkaði vildu stírfyrir-
tæki ásælast verk af þessu tagi
sem þau litu varla við þegai meira
væri um framkvæmdir en ítrekaði
þó að hann efaðist um að meiri
þátttaka í útboðinu hefði skilað
hagstæðari tilboðum.
Að sögn Gísla Gíslasonar er
Akraneshöfn ein fjögurra hafna á
landinu þar sem bæjarsjóður þarf
að standa undir 45% kostnaðar við
hafnarbætur en almenna reglan
er að hans sögn sú að ríkissjóður
greiði 75%.
Lægsta tilboð í margumrætt
verk átti Vélar og kraftur á Akra-
nesi: 32,9 milljónir; Skóflan á
Akranesi bauð annars vegar 87
milljónir og hins vegar lagði fyrir-
tækið fram frávikstilboð upp á
71,7 milljónir króna. Suðurverk á
Hvolsvelli bauð 46,3 milljónir
króna. Önnur tilboð voru frá
Neista hf.; 60,8 milljónir; Rein sf.
og Jóni og Magnúsi sf. sameigin-
lega: 49,9 milljónir og frá Ás-
bjargi 42,4 milljónir króna. Bæjar-
stjóri vildi ekki segja hvort öll til-
boðin gætu talist raunhæf. Hann
sagði að Hafnamálastofnun yrði
kynnt tilboðin í lok vikunnar og
væntanlega yrði gengið til samn-
inga við eitthvert fyrirtækjanna í
næstu viku.