Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1990
5
Um 300 eru enn á skrá hjá Atvinnumiðlun námsmanna:
Fimmfalt fleiri piltar
á skrá en stúlkur
Stúlkur þiggja frekar illa launuð störf en piltar
Morgunblaðið/Sverrir
Elsa B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnumiðlunar námsmanna,
með bunka af atvinnuumsóknum.
AF um 300 skólanemum, sem
enn eru skráðir atvinnulausir
hjá Atvinnumiðlun námsmanna,
eru 250 piltar, en aðeins 50
stúlkur. Elsa B. Valsdóttir,
framkvæmdastjóri Atvinnum-
iðlunarinnar, segir að þessi
mikli munur skýrist meðal ann-
ars af því að stúlkur þiggi frek-
ar illa launuð störf en piltar.
Að sögn Elsu virðist kvenfólkið
miklu frekar sætta sig við illa
launuð sumarstörf. Karlar taka
frekar þann kostinn að gera ekki
neitt, heldur en að vinna fyrir lágt
kaup.
Elsa segir jafnframt að mikið
sé um að fyrirtæki óski sérstak-
lega eftir því að ráða stúlkur til
starfa. Það fari vanalega saman
að þau fyrirtæki, sem óski sérstak-
lega eftir stúlkum, bjóði lægst
laun. Um er að ræða störf við
símavörzlu, afgreiðslu, hreingern-
ingar, ritvinnslu og fleira. „Margir
virðast frekar vilja stelpur en
stráka af því að þeir telja sig geta
komizt upp með að borga þeim
lægri laun,“ sagði Elsa.
Sérstaklega er óskað eftir stúlk-
um í meirihlutanum af þeim 50-60
atvinnutilboðum, sem ekki hefur
verið ráðstafað hjá Atvinnumiðlun
námsmanna. í öðrum tilboðum er
til dæmis beðið um fólk með lyft-
arapróf, meirapróf eða aðrar kröf-
ur gerðar, sem stúdentar uppfylla
ekki.
Alls hafa skráð sig um 1.100
manns hjá Atvinnumiðluninni. Þar
af hafa um 300 fengið vinnu á
hennar vegum, en 500 á annan
hátt. Elsa segir að talsvert hafi
verið um það til að byija með að
fólk hafnaði tilboðum um störf,
en það hafi breytzt þegar á leið
og menn hafí tekið flestu fegins
hendi. Af þeim 300, sem eftir eru
á skrá hjá fyrirtækinu, eru all-
margir, sem enn eru erlendis í
námi, en eru væntanlegir heim upp
úr mánaðamótunum, þegar mörg-
um skólum erlendis er slitið. Þetta
er oft fólk, sem komið er langt í
námi og vill fá störf við hæfi síns
aldurs og menntunar, að sögn Sig-
uijóns Þ. Árnasonar, _ formanns
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Sparar Lánasjóðnum fé
að útvega skólafólki vinnu
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur bent á það í
ríkisstjórninni að það muni spara Lánasjóði íslenzkra námsmanna
talsverðar fjárhæðir ef námsfólki verður útveguð sumarvinna á
vcgum ríkisins. Vegna aukins tillits til sumartekna námsfólks við
útgreiðslu námslána, yrði þessi sparnaður meiri en áður. Meiri-
hluti ráðherra í ríkisstjórninni hefúr hins vegar ekki ljáð máls á
aukafjárveitingu á borð við, þá, sem veitt var í fyrra til að skapa
störf fyrir skólafólk.
í vor ákvað meirihluti stjórnar
Lánasjóðs íslenzkra námsmanna
að framvegis kæmu 75% sumar-
tekna námsmanna til frádráttar
fjárhæð námslána, en tekjutillitið
var áður 50%. Lánasjóðnum spar-
ast því meira fé næsta vetur ef
námsmenn hafa góðar sumartekj-
ur en áður.
Hæstu tekjur, sem námsmaður
í foreldrahúsum má hafa yfir
sumarið áður en námslánið byrjar
að skerðast, eru um 75.000 krón-
ur. Þrír fjórðu (75%) allra tekna
fram yfir þá upphæð dragast frá
heildarupphæð námslánsins.
Óskert námslán til þessa hóps er
238.600 krónur yfir veturinn. Ef
dæmi er tekið af námsmanni, sem
býr í heimahúsum og hefur
275.000 króna tekjur yfir sumarið.
Þegar 75.000 krónur hafa verið
dregnar af þeirri upphæð, eru
200.000 eftir. Þrír fjórðu af
200.000 eru 150.000 krónur, sem
dragast frá námsláninu. Eftir
standa því 88.413 krónur af lán-
inu. „Sparnaður" Lánasjóðsins er
150.000 krónur.
, Þetta dæmi er tekið hér vegna
þess að útreikningarnir éru ein-
faldir. Ætla má að margir náms-
menn hafi lægri sumartekjur en
dæmið gerir ráð fyrir. Sá, sem býr
til dæmis í heimahúsi og hefur
150.000 krónur yfir sumarið,
missir 56.438 krónur af námslán-
inu. Fari tekjurnar hins vegar yfir
375.000 krónur fær viðkomandi
hér um bil ekkert námslán.
Námsmaður, sem býr í leigu-
húsnæði eða eigin húsnæði, fær
477.201 krónu í heildarlán, ef
hann hefur minni tekjur en um
150.000 kr. yfir sumarið. Þegar
yfir þá upphæð er komið, byijar
lánið að skerðast. Lánasjóðnum
myndu sparast 37.876 krónur ef
námsmaðurinn fengi vinnu, sem
skilaði honum t.d. 175.000 krón-
Borgarráð samþykkti 40 millj-
óna króna ijárveifingu til sumar-
vinnu skólafólks fyrir um hálfum
mánuði, og nú fyrir helgina 20
milljónir til viðbótar. Þessar fj ár-
veitingar bætast við þær 263 millj-
ónir, sem gert var ráð fyrir að
færu til sumarvinnu námsfólks í
fjárhagsáætlun borgarinnar.
Gunnar Helgason segir að nú
muni reynast unnt að útvega öllum
vinnu, sem hingað til hafa skráð
um yfir sumarið. Hafi námsmað-
ur, sem heldur eigið heimili,
375.000 króna tekjur á mánuði,
missir hann 169.000 króna af fullu
láni, en eftir sitja rúmar 308.000
krónur.
Ómögulegt er að segja hversu
mikið Lánasjóðurinn myndi spara,
ef öllum þeim námsmönnum, sem
nú eru atvinnulausir, yrði útveguð
vinna fyrir tilstilli Félagsmála-
ráðuneytisins. Ekki liggur fyrir
hversu margir af þeim, sem ekki
hafa fengið vinnu, eru í lánshæfu
námi, og eins er ekki ljóst hveijir
myndu yfirleitt taka námslán, þótt
þeir fengju ekki vinnu í sumar.
Tölurnar hér að ofan gefa þó ein-
hveija hugmynd um þær upphæð-
ir, sem um er að ræða.
sig hjá Ráðningarstofunni. Hins
vegar sé á það að líta að enn geti
einhveijir bætzt við, sem tapað
hafi vinnu eða ekki fengið.
Að minnsta kosti 1.200 náms-
menn, 16 ára og eldri, verða ráðn-
ir hjá borginni í sumar. í fyrra
voru alls 1116 ráðnir. Að auki fá
1.800 unglingar á aldrinum 14-15
ára starf í Vinnuskóla borgarinn-
ar. Alls fá því um 3.000 skólanem-
ar vinnu hjá borginni í sumar.
Borgin útvegar um
3.000 unglingum vinnu
Reykjavíkurborg hefur með tveimur aukaQárveitingum, alls að
upphæð um 60 milljónir króna, útvegað 220 námsmönnum eldri
en 16 ára atvinnu, umfram það sem áætlað var. Gunnar Helga-
son, forstöðumaður Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, segir að
þessar ijárveitingar muni nægja til að útvega öllum atvinnu, sem
nú eru á biðlista eftir vinnu hjá borginni.
FUIG
(ttXBWW'J
H I
AV/S
Saga kynnir nýtt umboð fyrir
AV/S bílaleiguna
hvar sem er í heiminum.
FYRSTA FLOKKS BÍLAR
FYRSTA FLOKKS ÞJÓNUSTA
Einnig bjóðum við gott úrval íbúða
og sumarhúsa víðs vegar um Evrópu.
LUXEMBORG___________frá kr 30.320,-
Miðvikudagar - föstudagar - laugardagar - 2 vikur flokkur A
DAUN EIFEL og BIERSDORF
Draumastaðir fjölskyldunnar.
KAUPMANNAHÖFN frá kr 31.720,
Föstudagar - 2 vikur flokkur A
DANALAND
íbúðirnar víðs vegar um Danmörku.
íslenskur bæklingur á skrifstofunni.
FRANKFURT___________frá kr 34.400,-
Laugardagar - 2 vikur flokkur A
RHEIN LAHN við Rín
Ódýrt og gott.
LONDON______________FRÁKR 34.300,-
Föstudagar - 2 vikur flokkur A
„BED AND BREAKFAST"
gisting víðs vegar um Bretland.
SALZBURG.___________frákr 42.400,-
Föstudagar - 2 vikur flokkur A
WALCHSEE og ZELL AM SEE
Alltaf jafn vinsælir.
Við bjóðum einnig m[ög gott úrval fyrsta flokks
íbúðargistingar á FRÓNSKU RIVIERUNNI
- staðir í sérflokki. <
Á ÍTALÍU erum við með gistingu við GARDA-
VATNIÐ, og í nágrenni FENEYJA.
Og síðast en ekki síst gott úrval ódýrra íbúða í
JUGOSLAVÍU.
Staógreiðsluveró pr. gengi 1.4. ’90
Mióað er við 4 saman í bíl
FERDASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S.624040
FLUGLEIDIR