Morgunblaðið - 20.06.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JUNI 1990
Gestabókin í Sesselju-
búð fór 1 ferðalag
Aðkoman að skýlinu afar slæm eftir veturinn
GESTABÓK úr skýlinu Sesseljubúð á Öxnadalsheiði fannst fyrir
skömmu á ruslahaugum Sauðárkróksbæjar, en hún hvarf úr skýlinu
í desember síðastliðnum.
Konur úr slysavarnadeild kvenna
á Akureyri fóru að Sesseljubúð
>fiýlega og var aðkoman afar slæm.
Áfengisflöskur voru á víð og dreif
utan dyra og innan, flest sem í
skýlinu átti að vera, stórir staflar
af eldiviði og matvæli auk annars.
Einungis dýnurnar voru eftir af
þeim hlutum sem í skýlinu eiga að
vera, en þær voru illa farnar og
skítugar.
„Það hefur greinilega verið hald-
ið partý þarna í skýlinu, en þessi
skýli upp til heiða eru auðvitað
engan veginn ætluð undir slíkar
samkomur," sögðu þær Svala Hall-
dórsdóttir og Guðbjörg Árnadóttur
úr slysavarnadeildinni. Þær bættu
við að langflestir gengu vel um.
Innan um væru þó svartir sauðir
sem skemmdu fyrir.
Gestabók sem verið hefur í skýl-
inu í um tvö ár hvarf að líkindum
í desember síðastliðnum, en bókar-
innar var saknað í síðasta mánuði.
Ekkert spurðist til bókarinnar fyrr
en maður nokkur á Sauðárkróki
hafði samband við deildina og hafði
þá fundið gestabók Sesseljubúðar á
ruslahaugunum á Sauðárkróki.
Ekki sér þó á bókinni þannig að
hún hefur ekki orðið fyrir neinu
hnjaski fráþeim tíma sem hún hvarf
og þar til nú að hún er kominn í
hendur slysavarnadeildarkvenna.
Farið verður með gestabókina í
Sesseljubúð innan tíðar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„Morgnnhanar“ vilja bætta aðstöðu
Hópur fólks, sem kallar sig „Morgunhana" og fer í sundlaugina við Gler-
árskóla árla morguns hefur afhent Valgarði Baldvinssyni, starfandi bæjar-
stjóra á Akureyri, undirskriftalista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld
að ljúka við byggingu sundlaugarinnar, m.a. með því að koma upp heit-
um pottum við laugina og sólbaðsaðstöðu. Hópurinn átelur að mannvirki
eru tekin í notkun án þess að þeim sé að fullu lokið og einnig er bent á
að umhverfi laugarinnar og skólans alls sé ekki til fyrirmyndar. Að sögn
Kristjáns Kristjánssonar, sem er einn Morgunhana, hefur hópurinn boðið
fram vinnu sína ef það mætti verða til að framkvæmdum yrði lokið.
Máli þessu verður vísað til bæjarráðs til umfjöllunar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svala Halldórsdóttir, Guðbjörg Árnadóttir og Gréta Stefánsdóttir
með dagbókina úr Sesseljubúð.
Pollamót
Þórs og
Sjallans
Frestur til að staðfesta þátttöku-
í„Pollamóti“ Þórs og Sjallans rennur
út nú um helgina. Þegar hafa 22 lið
tilkynnt um þátttöku, en nauðsynlegt
er að staðfesta þátttökuna, svo kom-
ist verði hjá vandræðum vegna niður-
röðunar leika. Rétt til þátttöku í
„Pollamótinu" hafa aðeins þeir sem
eldri eru en þtjátíu ára og spila ekki
með liðum í fyrstu deild. Mótið hefst
föstudaginn 6. júlí og því lýkur um
kvöldið þann 7. júlí með veislu í Sjal-
lanum.
Bankar gefa 2,5 millj-
ónir til stúdentagarða
VIÐ brautskráningu námsmanna frá Háskólanum á Akureyri fyrir
helgi voru Félagsstofiiun stúdenta afhentar peningagjafír frá Lands-
banka íslands og Búnaðarbanka íslands, vegna byggingar stúdenta-
garða við Skarðshlíð, samtals rúmlega 2,5 milljónir króna. Tveir þriðju
hlutar þess fjármagns sem Félagsstofhun þarf að leggja fram vegna
byggingarinnar hafa verið greiddir. Drög hafa verið lögð að byggingu
næsta áfanga stúdentagarða, en bygging þeirra hefst líklega á næsta
ári. Sett hefúr verið á stofn leigumiðlun fyrir stúdenta sem tekur til
starfa um næstu mánaðamót.
Við brautskráninguna afhenti Val-
ur Arnþórsson, bankastjóri Lands-
bankans, Félagsstofnun annars veg-
ar 1.230.000 krónur frá Landsbanka
íslands og hins vegar 475.000 krón-
ur frá útibúi Landsbankans á Akur-
eyri. Þá afhenti Halldór Blöndal, al-
þingismaður, 850.000 krónur fyrir
hönd Búnaðarbanka íslands.
Stúdentagarðarnir, Útsteinn, voru
teknir í notkun í október á síðasta
ári og nam heildarbyggingarkostnað-
ur um 90 milljónum króna, en húsið
er 1550 fermetrar að stærð. Hús-
næði'sstofnun ríkisins lánaði 85% af
kostnaði við bygginguna, en um 15
milljónir komu í hlut Félagstofnunar,
sem m.a. sá um kaup á ýmiskonar
lausabúnaði. Með peningagjöfum
bankanna tveggja hefur tekist að
safna tæplega 10 milljónum króna
vegna byggingarinnar, en aðalfund-
ur FS verður væntanlega haldinn
fljótlega og þar tekin ákvörðun um
á hvern hátt eigi að útvega þær 5
milljónir sem á vantar.
Reykjavíkurborg veitti Félags-
stofnun stúdenta á Akureyri 1,4
milljónir króna í febrúar síðastliðn-
um, en áður hafði Akureyrarbær lagt
fram tæpiega 5 milljónir, Ólafsfjarð-
arbær tæplega 200 þúsund, Sauðár-
króksbær 250 þúsund, Byggðastofn-
un 500 þúsund og Bókabúð Jónasar
og Bókval 10 þúsund krónur hvor
verslun. Að viðbættu því fé sem
Landsbanki og Búnaðarbanki af-
hentu við brautskráninguna hafa
safnast tæplega 10 milljónir króna.
Sigurður P. Sigmundsson formað-
ur stjómar FS sagði að þegar hefðu
verið lögð drög að því að hefja bygg-
ingu næsta áfanga stúdentagarða
og yrði það væntanlega á næsta ári.
Byggingunni yrði skipt niður í
nokkra áfanga, líklega þijá, og
byggðar litlar einingar í einu.
Félagsstofnun stúdenta hefur sett
upp leigumiðlun fyrir stúdenta og
tekur hún til starfa 1. júlí næstkom-
andi. Búið er að ráða starfsmann í
hálfa stöðu við leigumiðlunina. Sig-
urður sagði að viðbrögð íbúðareig-
enda í bænum hefðu verið mjög góð
og gera mætti ráð fyrir að takast
ætti að útvega flestum stúdentum,
sem þess óska, húsnæði fyrir næsta
skólaár
Erindi um
flölskyldu-
meðferð
Sonja Sveinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur flytur erindi á fundi samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð, annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 21. júní.
Fyrirlesturinn verður fluttur í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju og hefst
kl. 20.30. Erindi Sonju fjallar um
fjölskyldumeðferð í tengslum við
sorg og eru allir velkomnir að hlýða
á hann.
FÉLAGSSTARF
&
Akranes
Hin árlega skógræktarferð verður miðvikudaginn 20. júní. Gróöursett-
ar verða plöntur í skógræktina. Hittumst i Sjálfstæðishúsinu kl. 20.00.
Stjórn fulltrúaráðs
sjálfstæöisfélaganna á Akranesi.
■Óí)"
60 ára afmæli SUS
SAMBAND UNGRA
SIÁLFSTÆÐ15MANNA
60 ára afmæli SUS verður haldiö hátíðlegt á Þingvöllum laugardag-
inn 23. júní nk. Munið að kaupa miða á afmælishátíðina eigi síðar
en fimmtudaginn 21. júni. Pantanir á rútuferðum verða einnig að
hafa borist þann dag.
Nánari upplýsingar á skrifstofu SUS, Valhöll, Háaleitisbraut 1, sími
91-82900. Sjálfstæðismenn, fjölmennum og fögnum þessum merka
áfanga.
Samband ungra sjálfstæðismanna.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Wélagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
mTj SAMBAND ISLENZKRA
•■5^ KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma verður í kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, í
kvöld kl. 20.30. Ræðumaður:
Skúli Svavarsson. Allir velkomn-
ir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur 20. júní:
Kl. 20.00 Kvöldferð í
Heiðmörk. Leiðbeinandi
Sveinn Ólafsson.
Fimmtudag21.júní
Kl. 20.00 Sólstöðuferð á Esju.
Á lengsta degi ársins er ógley-
manlegt að vera um miðnætti á
Esju. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Komiö
meö og fólk á eigin farartækjum
er velkomið að slást í för. Verð
kr. 800,-.
Laugardaginn 23. júní kl. 20.00.
Jónsmessunæturganga.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Jónsmessuhelgi í
Þórsmörk 22.-24. júní
Ný Þórsmerkurferð með góðri
dagskrá fyrir unga sem aldna á
sérstöku kynningarverði. Tilval-
in fjölskylduferð. Gist í Skag-
fjörðsskála í Langadal og tjöld-
um. Meöal dagskrárliða eru rat-
leikur, leikir, pylsugrill, kvöld-
vaka (Ijóð og lög Þórsmerkur-
skálda rifjuö upp), Jónsmessu-
næturganga o.m.fl. Ennfremur
vferða í boði lengri eða styttri
gönguferðir m.a. inná afréttinn
Almenninga- (Kápa, Lakar). Af-
bragðs grillaðstaða. Þórsmörkin
er farin að skarta sínum fegursta
sumarskrúða.
Aðrar góðar helgarferðir
um Jónsmessuna
22.-24. júní
A. Eiríksjökull. Tjaldað í Hvítár-
drögum. Göngu á Eiríksjökul
gleymir enginn. Litiö í Surtshelli
o.fl. Fararstjóri: Jón Viöar Sig-
urðsson.
B. Hellakönnunarferð - Borgar-
fjörður (uppsveitir). Þetta er
einstakt tækifæri til að kynnast
neðanjarðarheimi íslenskrar
náttúru. Farið í marga af stærstu
hraunhellum landsins m.a.
Surtshelli og Stefánshelli í fylgd
jarðfræðinganna Björns Hróars-
sonar og Sigurðar Sveins Jóns-
sonar. Tjaldað í Húsafelli. Sund-
laug.
Upplýsingar og farm. á skrifst.,
Öldugötu 3. Verið með f Ferða-
félagsferðum í góðum og lífleg-
um félagsskap.
Ferðafélag íslands.
HftrtnU fe-t^
H ÚTIVIST
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Kvöldganga
20.6. kl. 20.00: Vallá - Arnar-
hamar. Skemmtileg leið og gott
útsýni yfir Kjalarnes. Brottför frá
BSI-bensínsölu. Stansað við Ár-
bæjarsafn. Verð kr. 800,-
Flatey
22.-24. júní. Útsýnissigling til
nærliggjandi eyja. Svefnpoka-
pláss og tjöld í Flatey. Farar-
stjóri Þorleifur Guðmundsson.
Brottför kl. 18.30 frá BSf.
Reynisfjall - Myrdalur
22.-24. júnl. Sólstöðuferð. Far-
ið í Hjörleifshöfða og út í Hrap.
Fylgst með sólarlagi frá Reynis-
fjalli á laugardagskvöld. Svefn-
pokagisting. Fararstjóri Sigurð-
ur Sigurðarson.
Hjólreiðaferð f Grafning
23.-24. júní. Hjólaður Nesja-
vallavegur í Grafning. Til baka
um Mosfeilsheiði. Göngutjöld.
Verð kr. 1.000,- Pantanir og
miðar í helgarferðir á skrif-
stofu.
Nepal - Himalaya
Undirbúningsfundur fyrir Nepal-
ferð Útivistar verður haldinn
næstkomandi fimmtudag 21.
júní kl. 20.00 á skrifstofu félags-
ins, Grófinni 1.
Jónsmessunæturganga
23. júni. Með Akraborg upp á
Akranes. Gengið út með strönd-
inni og á Akrafjall þaðan sem
fylgst verður með . sólarlagi.
Rútuferð til baka eftir miðnætti.
Framhaldsganga í nágrenni
Reykjavíkur. Brottf. kl. 18.30 frá
Grófarbryggju. Verð kr. 1.500,-
i Útivistarferð eru allirvelkomnir!
Sjáumst.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
„Lifandi steinar í lifandi húsi“.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.