Morgunblaðið - 20.06.1990, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1990
t
Móðursystir mín,
VILHELMÍNA MARKAN,
Hringbraut 65,
Reykjavík,
andaðist í Hafnarbúðum þriðjudaginn 19. júní.
Sigvaldi Friðgeirsson.
t
Eiginkona mín, móðir og dóttir okkar,
HELGA ÞURÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR
lyfjafræðingur,
andaðist á Reykjalundi 18. júní.
Reynir Eyjólfsson,
Kristin Bjarnveig Reynisdóttir,
Bjarnveig Helgadóttir,
Vilhjálmur Björnsson.
t
Eiginmaður minn,
PÉTURPÉTURSSON,
Lyngheiði 1,
Hveragerði,
áður til heimilis á Þingholtsbraut 15,
Kópavogi,
lést í sjúkrahúsi Suðurlands að kvöldi 18. þessa mánaðar.
Sigriður Hannesdóttir.
t
Bróðir okkar,
KAREL VALTÝSSON,
Ljósheimum 11,
Reykjavík,
frá Seli,
Austur-Landeyjum,
andaðist í Borgarspítalanum 18. júní.
Þórhildur Valtýsdóttir,
Þuríður Valtýsdóttir,
Helga Valtýsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
SVEINBJÖRN KRISTJÁNSSON,
Hringbraut 60,
áður til heimilis á Víðimel 21,
verður jarðsunginn frá Dómkrikjunni fimmtudaginn 21. júní
kl. 15.00.
Soffía Jóhannesdóttir,
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir,
Hálfdán Sveinbjörn Kristinsson,
Jóhannes Agnar Kristinsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
SVERRIS GUÐMUNDSSONAR
frá Hólmavík,
Hlíðarvegi 44,
Siglufirði.
Hallfríður Njálsdóttir,
Njáll Sverrisson, Ólöf Guðmundsdóttir,
Jóhandine Sverrisdóttir,
Vígdís Sverrisdóttir,
Fríða Sverrisdóttir,
Hallgrímur Sverrisson,
og barnabörn.
Valdemar Guðmundsson,
Jónas Valtýsson,
Ingimar Jónasson,
Fanney Gunnarsdóttir
Innilegar þakkir færum við öllum, er
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föð-
ur, tengdaföður, afa og langafa,
EGILS H. HJÁLMARSSONAR
bifvélavirkjameistara,
Hvassaleiti 58.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkra-
húss Hvítabandins fyrir frábæra hjúkrun
og
umönnun Egils.
Helga Jasonardóttir,
Karl Egilsson, Helga Magnea Magnúsdóttir,
Margrét Egilsdóttir, Jóhann Jóhannsson,
Sonja Egílsdóttir, Lárus Jónsson,
Guðmundur Egilsson, Hulda Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðný O. Magnús-
dóttír - Minning
Fædd 26. nóvember 1908
Dáin 4. júní 1990
í dag verður til moldar borin
tengdamóðir mín Guðný Ólöf Magn-
úsdóttir, sem andaðist á hjúkrunar-
deild Hrafnistu, Hafnafirði, 4. júní
sl.
Mig langar að reyna að setja
nokkur orð á blað um kynni okkar
og samleið í 43 ár. Ég var aðeins
17 ára þegar ég kom á heimili
þeirra hjóna, aldrei mun ég gleyma
hvað mér létti að finna viðmót henn-
ar við ungan feiminn strák, hún tók
mig strax í barnahópinn og sýndi
mér sömu hlýju og umhyggju eins
og börnum sínum. Þannig mun ég
minnast þessara 43 ára, sem við
áttum samleið í þessu lífi.
Ég dáðist fljótt að sjómannskon-
unni, með sín fimm börn, sem hún
annaðist með sinni hjartahlýju og
umhyggju, en stjórnaði jafnframt
heimilinu eins og húsbóndi, því
þannig er líf sjómannskonunnar,
þar sem hún verður að vera bæði
húsmóðir og húsbóndi í fjarveru
bóndans á sjónum.
Lóa bar mikla umhyggju fyrir
sjómönnum og gekk í S.V.D.
Hraunprýði um leið og félagið var
stofnað. Þá hugsjón hefur hún látið
sér annt um allt til hinstu stundar.
Lóa var virkur félagi í Hraunprýði
og lét sig aldrei vanta ef eitthvað
þui-fti að gera. Fyrir nokkrum árum
var Lóa gerð að heiðursfélaga í
S.V.D. Hraunprýði, fyrir störf sín.
Það eru líka ófá pörin af vettling-
um og sokkum, sem hún pijónaði
og gaf björgunarsveitarmönnum
S.V.D. Fiskakletts. Það lýsir best
trygglyndi Lóu og umhyggju fyrir
þeim félagsskap, sem hún unni svo
vel, að á síðasta fund Hraunprýðis
gat hún ekki mætt vegna sjúkleika,
en sendi kveðjur og þótti leitt að
geta ekki verið með.
Við hjónin fengum að byggja
hæð ofan á hús tengdaforeldrana
að Holtsgötu 21 og þar bjuggum
við í 11 ár, börnin okkar tvö fengu
þess vegna svo mikið af hennar
elsku og hjartahlýju, sem þau
kunnu svo vel að meta. Því var það
mikil gleði fyrir dóttur okkar að fá
að halda 60 ára brúðkaupsafmæli
þeirra Billa 19. nóv. sl. á heimili
sínu með börnum og barnabörnum.
Það er svo margt sem kemur upp
í hugann, þegar litið er yfir farinn
veg. Ég minnist allra ferðalaganna,
sem við fórum um landið, jafnt í
byggð sem í óbyggðum, ferðir um
Sviss og Ítalíu, allra veiðitúranna
sem hún kom með í. En Lóa kenndi
mér líka að meta sveitina sína, sem
hún unni svo rrfikið og hún tók ást-
fóstri við þá fögru sveit, þar sem
hún fæddist, að Kjaransstöðum en
ólst upp að Tjarnarkoti í Biskups-
tungum.
Lóa giftist eftirlifandi manni
sínum, Brynjólfi Brynjólfssyni, árið
1929 og áttu þau alltaf heima í
Hafnarfirði. Þau áttu fimm börn
saman, Ijögur lifa móur sína, en
Magnús drukknaði árið 1976.
Hjónaband Lóu og Billa hefur
alla tíð einkennst af gagnkvæmri
virðingu og umhyggju fyrir hvort
öðru. Þegar ljóst var að hveiju
stefndi kom enn betur í ljós hversu
sterkum kærleiksböndum þau voru
bundin. Það var eins og Billi fengi
+ Bróðir okkar og fósturbróðir, GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON frá Erpsstöðum, Eskihlíð 22, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 21. júní kl. 13.30. Systkini hins látna.
t Fósturmóðir mín, tengdafósturmóðir og fósturamma, JÚLÍANNA JÓNSDÓTTIR, Karlagötu 10, er andaðist 16. júní verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 21. júní kl. 10.30. Rut Þorsteinsdóttir, Olgeir Kristjónsson, Ester Júlía Olgeirsdóttir, Karl Olgeir Olgeirsson, Davið Þorsteinn Olgeirsson.
+ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem, sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDAR S. SIGFÚSSONAR, Njálsgötu 3, Reykjavík. Oddrún Halldórsdóttir, Guðbjörg B. Guðmundsdóttir, Gunnar Gisli Guðlaugsson, Ingibjörg Miltimore, Norman Miltimore, Sigríður Brynjólfsdóttir, Gunnar Brynjólfsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför, SIGURÐAR JÓNASSONAR OG ÞÓRIS ARNARS SIGURÐSSONAR, Stykkishólmi. Svava Oddsdóttir, Anna Sigurðardóttir, Ingveldur Sigurðardóttir og aðrir vandamenn.
einhvern innri kraft til að létta Lóu
síðustu stundirnar, þar til hún
kvaddi á hljóðlegan hátt. Hans er
söknuðurinn mestur, en ég veit að
fallegar minningar um góða konu
sefa tregann. Ég bið Guð að styrkja
þig Billi minn.
Að ferðalokum við ég þakka per-
sónulega umhyggjuna til mín, konu
minnar og bama.
Fyrir hönd aðstandenda, flyt ég
þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
deilda Hrafnistu, deild 3 og 2 sem
léttu henni erfið veikindi eins og
kostur var.
Við þökkum fyrir það sem hún
var okkur Hönnu og börnum.
Fari hún í friði.
Einar Sigurjónsson
■ AÐALFUNDUR Félags um
uppeldi og menntun heyrnar-
lausra og heyrnarskertra, hald-
inn 17. maí, lýsir yfir mikilli
óánægju með þá óvissu sem nú ríkir
í menntunarmálum heyrnarlausra.
Nú er svo komið að vegna túlka-
skorts eru framhaldsskólar í raun
lokaðir heyrnarlausum nemendum
sem lokið hafa grunnskólanámi við
Heyrnleysingjaskólann, segir í
frétt frá félaginu. í ályktun segir
m.a.: „Ennþá ríkir óvissa um
framtíð Heyrnleysingjaskólans og
fundurinn heitir á Alþingi að falla
frá hugmynd um að nema lög
Heyrnleysingjaskólans úr gildi
eins og gert er ráð fyrir í frum-
varpi til grunnskólalaga sem bíður
afgreiðslu þingsins. Tekið er undir
kröfu um opinbera viðurkenningu á
táknmáli sem móðurmáli heyrnar-
lausra. Nám við Heyrnleysingja-
skólann tekur mið af almennri
námskrá grunnskóla. Táknmál hef-
ur þar skipað stóran sess án þess
að hafa verið viðurkennt af yfirvöld-
um s'em móðurmál heyrnarlausra.
Takmark skólans er að gera nem-
endur tvítyngda, þ.e. að þeir nái
valdi á tveimur málum, táknmálinu
og íslenskunni. Til þess að svo
megi verða þurfa bæði málin að
vera jafnrétthá. Fundurinn hvetur
menntamálaráðherra, Svavar
Gestsson, og þá aðila sem starfa
að sérkennslumálum, til þess að
hraða úrbótum og taka tillit til sér-
stöðu heyrnarlausra. Félagið fagnar
því að nú skuli hafa verið ákveðið
að setja á stofn vísi að Samskipta-
miðstöð heyrnarlausra í húsnæði
Heyrnleysingjaskólans. Hins veg-
ar ríkir ennþá óvissa um formlega
stofnun Samskiptamiðstöðvar, en
slík miðstöð er að -dómi fundarins
brýnasta hagsmunamál heyrnar-
lausra í dag.“
CMC k#rti tyrir nifturhengd loft, er úr
gatvanleeruftum málml og eldþolíft.
CMC kerfl er auftvelt i uppsetningu
og mjög aterkt.
CMC karfl ar fest meft stillanlagum
upphengjum sem þola allt aft
50 kg þunga.
CMC kerfl faast i mftrgum gerftum baaftl
sýnilegt og fallft og verðift er
fttrúlega lágt.
CMC kerfi er serstaklegá hannad Hrlngift eftir
fyrir loftplotur frá Armstrong frekari upplýsingum
|%ft^ Emk.umboa * Mandi.
Eö Þ. ÞORGRÍMSSON & CQ
_______Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640