Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 19
C 19
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR
29. JULI
Fjendur
sættast
David Lynch slær í gegii
BBC hefur ákveðið að taka til
sýninga sápuóperu Davids
Lynch, Tvídranga (Twin Peaks),
sem fyrirtæki Siguijóns Sighvats-
sonar, Propaganda Films, framleið-
ir.
Gengið var frá samningum um
að sýna þáttinn í Bretlandi á sjón-
varpshátíð í Monte Carlo nýverið.
Með því þykir BBC taka talsverða
áhættu, þar sem þessir þættir
þykja óvenjulegir og David Lynch
er umdeildur. Upphafsmyndin, sem
er tveggja tíma löng, verður sýnd
í BBC um jólin.
Upphafsmyndin fékk góða dóma
þegar ABC-sjónvarpið í Bandaríkj-
unum sýndi hana 8. apríl sl. og
áhorfendur voru fleiri en að öðru
sjónvarpsefni það sem af var sjón-
varpsárinu. Heldur færri horfðu á
næstu sjö þætti, en langflestir héldu
þó tryggð við þá.
Frumsýningarinnar var beðið
með nokkurri eftirvæntingu, þar
sem fyrirfram hafði verið talið að
annaðhvort yrði sápuópera Lynch
algerlega misheppnuð eða með
merkari sjónvarpsviðburðum í lok
þessarar aldar að sögn tímaritsins
Televisual. „Áhorfendur fengu að
sjá nokkuð, sem var raunverulega
öðru vísi,“ sagði blaðið.
Upphafsmyndin kostaði fjórar
milljónir Bandaríkjadala, en hinir
þættirnir sjö, sem eru klukkutíma
langir, kostuðu eina milljón dala
hver. David Lynch leikstýrði kvik-
myndinni Blue Velvet og hlaut gull-
pálmann í Cannes fyrir mynd Sigur-
jóns Wild at Heart. Handritahöf-
undurinn Mark Frost, sem kunnur
er fyrir Hill Street Blues, vann með
Lynch að gerð Tvídranga.
*
Aform eru uppi um að koma á
auknu eftirliti með bandarísku
kapalsjónvarpi og þau hafa leitt til
þess að „undarlegasta fólk er farið
að vinna saman,“ að sögn The New
York Times. Besta dæmið um það
er samvinna, sem hefur tekist með
Rupert Murdoch, eiganda Fox-sjón-
varpsins, og Robert C. Wright, for-
seta NBC-sjónvarpsins.
Murdoch og Wright hafa einnig
með sér samvinnu í fyrirtækinu Sky
Cable, gervihnatta-sjónvarpsfyrir-
tæki, sem mun bjóða áskrifendum
upp á 108 rásir ef þeir verða sér
út um mótttökudiska; það er að
segja ef fyrirtækið verður að veru-
leika. Kaplasjónvarpsfyrirtækjum í
Bandaríkjunum er meinilia við
þessa samkeppni.
Hingað til hefur Wright býsnast
yfir því Fox-fyrirtæki Murdochs sé
í eigu útlendinga og að bandarísk-
um sjónvarpsfyrirtækjum sé meinað
að hagnast á endursýningum.
Murdoch hefur reynt að klekkja á
Wright með því að sýna vinsælan
gamanþátt The Simpsons á sama
tíma og Cosby Show er sýnt í NBC.
Utgefendur
styrkja
blaðamenn
til náms
ÚTGEFENDUR Morgunblaðsins
og DV hafa gert samkomulag við
Blaðamannafélag Islands (BI) um
að styrkja árlega einn blaðamann
til heilsársnáms við Háskólann
eða tvo til hálfsársnáms. „Eftir 5
ára starf skal veita einum starf-
andi blaðmanni á DV eða Morg-
unblaðinu frí á fúllum launum til
að sækja nám í Háskóla íslands
í allt að tvær annir eða tveimur
í eina önn hvorum,“ segir m.a. í
samkomulaginu.
Fram kemur í Blaðamanninum,
félagstíðindum Blaðamanna
félagsins, að svipaðir samningar eru
fyrirhugaðir við Blaðaprentsblöðin
og Dag, þannig að tveir félagar í
BI geti verið í háskólanámi yfir
veturinn á fullum launum.
Samkvæmt samkomulagi BÍ og
útgefenda við háskólayfirvöld eiga
allir blaðamenn, sem orðnir eru 25
ára og starfað hafa að blaða-
mennsku í 5 ár, rétt á því að
sækja nám við hina nýju fjölmiðla-
deild í Háskólanum, þó svo þeir
hafi hvorki stúdents- né háskóla-
próf, en öllum öðrum sem hyggjast
sækja þetta nám er gert að hafa
lokið áður háskólaprófi.
Blaðamenn geta einnig valið
hvort þeir vilja taka allt námið sem
í boðí er, hluta þess eða einstaka
áfanga, að eigin vali, svo sem ís-
lensku, viðskiptafræði, lögfræði,
félagsfræði eða annað nám sem
stendur til boða samkvæmt nám-
skrá.
Njóttu þess besta
-útilokaðu regnið, rokið og kuldann
íslensk veðrátta er ekkert
lamb að leika við. Þess vegna
nýtum við hverja þá tækni sem
léttir okkur sambúðina við veðrið.
LEXAN ylplastið er nýjung
sem gjörbreytir möguleikum okkar
til þess að njóta þess besta sem
íslensk veðrátta hefur að bjóða
- íslensku birtunnar.
LEXAN ylplastið er hægt að
hvar sem hægt er að hugsa sér að
fái að skína, t.d. í garðstofur, yfir
sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir
húsagarð, anddyri og húshluta.
Möguleikarnir eru óþrjótandi.
LEXAN ylplast
• Flytur ekki eld. Er viðurkennt
af Brunamálastofnun.
• Mjög hátt brotþol. DIN 52290.
• Beygist kalt.
• Meiri hitaeinangrun en gengur
og gerist.
• Hluti innrauðra geisla ná í gegn.
GENERAL ELECTRIC PLASTICS
LEXAN ylplast
- velur það besta úr veðrinu.
SINDRI
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22
jf
5
H(R f. Nll