Morgunblaðið - 18.08.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990
3
Metaðsókn á tjaldstæðum víða um land:
„Veðrið er miklu betra
en við bjuggumst við“
Johannes Liess og Doris Berg sem ætla að hjóla hringinn næstu
þrjár vikurnar.
Árni Pétursson tjaldstæðavörður í Laugardal
halda heim í dag. Þau kváðust
afskaplega ánægð með ferðina,
en hrepptu ekki heppilegt veður
á Norð-Austurlandi. „Þrátt fyrir
það var veðrið betra en við höfðum
búist við,“ sögðu þau. „Við teljum
þennan máta afskaplega heppi-
legan til ferðalaga um landið ykk-
ar, því á reiðhjóli kemst maður í
beint og óhindrað samband við
ísland. Rúturnar henta svo vel til
að fleyta manni á milli staða.“
Þau tóku þó fram, að rúturnar
skorti búnað til að flytja reiðhjól
á milli staða. „Þessu þyrfti að
bæta úr, því við erum sannfærð
um að umferð hjólreiðamanna um
ísland á eftir að aukast, í það
minnsta ætlum við að koma aft-
ur.“ Þau kváðu vegina vera betri
en þau höfðu búist við, og á
bundnu slitlagi hafi þau síst átt
von. „Við urðum fyrir miklum
vonbrigðum með leiðina frá
Keflavíkur til Reykjavíkur. Svona
stórir og breiðir vegir með mikilli
umferð var ekki það sem við sótt-
umst eftir í ferð okkar. Það var
engu líkara en allir íslendingar
ættu ferð um Reykjanesbraut
þennan dag!“ Þau sögðu, að um
leið og komið var út á land hafi
vegakerfið farið að líkjast meira
því sem þau hefðu gert ráð fyrir,
og umferð minnkað.
Ferðumst þar til rúgbrauðið
gefur sig
Tvær sænskar stöllur, Anna
Maria Walberg og Anna Maria
Hallberg, voru að ferðbúa húsbíl
sinn við tjaldstæðin í gærmorgun.
Hann var af gerðinni Volkswag-
en, svonefnt rúgbrauð. „Bíllinn
okkar er orðinn gamall, og þegar
við komum til Seyðisfjarðar fyrir
tíu dögum síðan þrufti að ýta
honum upp úr ferjunni!,“ sögðu
þær og minntust þess atburðar
sýnilega með skömm í huga.
„Hann hefur hins vegar borið
okkur um Suðurland síðan, og við
ætlum að vera á ferðinni í fjórar
til fimm vikur í viðbót, í það
minnsta þar til rúgbrauðið gefur
sig.“ Ætlun þeirra er að skilja
bílinn eftir hérlendis, og helst
vildu þær selja hann. „Markmið
okkar er þó aðeins að komast
norður í land, og jafnvel eitthvað
lengra," sögðu þær ennfremur.
Þær sögðu að ísland væri gerólíkt
Svíþjóð, og tóku fram að veðrið
væri betra en þær höfðu átt von
á. „Vinir okkar höfðu sagt okkur
að á íslandi væri alltaf rigning,
en það hefur síður en svo verið
raunin hjá okkur. Hins vegar er
ekki ofsögum sagt af verðlaginu
hér.“
Ætla að hjóla hringinn
Þau Johannes Liess og Doris
Berg eru búsett í þorpi miðja vegu
milli MUunchen og Stuttgart. Þau
komu til landsins um síðustu
helgi, og eru að leggja upp í
þriggja vikna hringferð um landið
á fjallareiðhjólum. „Við komumst
því miður ekki fyrr, og vonum að
veðrið verði okkur hliðhollt þó
komið sé fram undir haustdaga,"
sögðu þau. „Til vonar og vara
höfum við mikið af hlífðarfatnaði
með í för, þannig að það mun
ekki væsa um okkur.“ Þau sögð-
ust ætla byija hringinn sunnan
frá, og halda austur um land.
Þeim leist vel á það sem þau höfðu
séð af landinu hingað til, og fannst
Reykjavík óvenjuleg borg.
Hjónin Karl-Heinz og Christina
Jung, og félagi þeirra
GUunther Rollmann.
Morgunblaðið/Einar Falur
- segja ferðalangar í Laugardal
I SUMAR hefur verið metaðsókn að tjaldsvæðum víða á Iandinu,
enda viðrað vel til ferðalaga víðast hvar. Aðsóknarmet var sett
á tjaldstæðinu í Laugardal í júlímánuði, og útlit er fyrir að
fjöldi ferðamanna á stæðinu í ágúst verði um 15% meiri en
áður hefur verið. Ferðalangar sem Morgunblaðið hafði tal af á
tjaldstæðunum létu afar vel af dvölinni þar, og tóku allir undir
að veðrið sem þeir hrepptu á ferðum sínum hafi verið miklu
betra en þeir hafi búist við við upphaf ferðar.
Árni Pétursson tjaldstæðavörð-
ur sagði að í júlí hafi gistinætur
á svæðinu verið á ellefta þúsund,
sem sé 8-9% aukning frá því í
fyrra. „Það hefur verið stöðug
aukning á notkun stæðisins und-
anfarin ár, ekki síst eftir að nýju
þjónustuhúsin voru tekin í notk-
un,“ sagði Arni. Hann sagði, að
skipting gestanna eftir þjóðerni
væri svipuð og undanfarin ár,
yfirvegandi meirihluti Þjóðveijar,
en einnig væru Frakkar fjölmenn-
ir. „Mér finnst einnig að' íslend-
ingar séu smám saman að upp-
götva þennan möguleika á ódýrri
og þægilegri gistingu, því þeim
hefur ijölgað hér undanfarið."
Árni sagði, að það sem af væri
ágústmánuði væri um 15% fjölgun
gistinátta að ræða miðað við sama
tíma í fyrra.
Á tjaldstæðunum er góð að-
staða fyrir ferðamenn. Þurrkhjall,
útigrill, sturtur og salernisaðstöðu
er þar að finna, svo eitthvað sé
nefnt. Þá lofa erlendu ferðamenn-
irnir nálægð Laugardalslaugar-
innar, sem þeir hæla óspart. Árni
sagði, að þeir ferðamenn sem
dvelja á tjaldstæðunum væru á
allt frá tveggja vikna og upp í
tveggja mánaða ferðalögum um
landið.
Vegirnir betri
en við héldum
Þrír Þjóðveijar á fertugsaldri
sem búa í nágrenni Stuttgart,
hjónin Karl-Heinz og Christina
Jung og GÚunther Rollmann, sátu
að morgunverðarborði við þjón-
ustumiðstöðina -þegar Morgun-
blaðið bar að garði. Þau hafa
undanfarnar þijár vikur ferðast á
fjallareiðhjólum og með rútum um
landið þvert og endilangt, og
Þær nöfnur Anna Maria Walberg og Anna Maria Hallberg ætla að skilja rúgbrauðið eftir á íslandi.