Morgunblaðið - 18.08.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990
39
MARAÞON
Hálfmaraþonið
jafnframt
íslands-
meistaramót
Búist er við spennandi keppni í
hálfmaraþonhlaupi á morgun
þegar Reykjavíkurmaraþon fer
fram kl. 12. Hlaupið er jafnframt
íslandsmeistaramótshlaup. Allir
helstu langhlauparar íslands verða
með, eins og Islandsmethafann í
hálfmaraþoni, Sigurð Pétur Sig-
mundsson, Gunnlaug Skúlason, Jón
Stefánsson, Jóhann Ingibergsson
og sigurvegarann frá því í fyrra,
Kristján Skúla Ásgeirsson.
Þá er Martha Ernstdóttir í góðri
æfingu og setur stefnuna á nýtt
íslandsmet kvenna
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Besti útlendingurinn í
Kólumbíu til Akureyrar
Þór, Njarðvík og Keflavík hafa fengið nýja leikmenn frá Band.aríkjunum
PATRICK Releford, sem lék
með Njarðvíkingum sl.
keppnistímabil, kemur ekki til
Þórs á Akureyri eins og fyrir-
hugað var. Þórsarar hafa
tryggt sér annan Bandaríkja-
mann - Cedric Evans, sem
var útnefndur besti útlend-
ingurinn í 1. deildarkeppninni
í Kólumbíu sl. keppniatímabil.
Evans, sem er 25 ára miðheiji,
er 2,06 m hár og 100 kg.
Hann lék með háskólaliðinu í
Alabama áður en hann hélt til
Kólumbíu. Þórsarar binda miklar
vonir við við Evans, sem er sterk-
ur leikmaður. Hann kemur til
landsins 23. ágúst.
Patriek Releford, sem lék með
Njarðvíkingum, komst ekki til
Akureyrar vegna persónulegi-a
aðstæðna.
Nýir leikmenn á Suðumesin
Njarðvíkingar og Keflvíkingar
verða með nýja leikmenn fi'á
Bandaríkjunum í herbúðum
sínum. Blökkumaðurinn Robinr
son, sem er 23 ára og lék með
háskólaliði Ohio, mun þjálfa og
leika með Njarðvík. Hann verður
tiil reynslu sem þjálfari í mánuð.
Keflvíkingai- hafa fengið Tom-
as Lytli til liðs við sig. Lytli er
23 ára og hefur leikið með há-
skóialiði í Montana. Jóo Kr. Gísla-
son raun þjáifa Keflavíkuiiiðið, en
þó nokki-ar breytingar hafa verið
ií herbúðum Keflyíkinga. Þrír af
lykiimönnum liðsins si. keppn-
istímabils eru famir til Banda-
ríkjanna í nám - Guðjón Skúla-
son, Magnús Guðfinnsson og
Nökkvi Jónsson. Fiá Bandaríkjun-
um kemur aftur á móti Matti Stef-
ánssoíi og svo að sjálfsögðu Jón
Kr. Gísiason, sem lék með danska
iiðinu SISU.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
„Eins og
Bftlamir
væruá
férðinni"
- segirGuðni Bergsson, landsliðsmiðvörður.
Geysileg stemmning í herbúðum Tottenham.
Uppselt á fjóra fyrstu heimaleiki liðsins
„ÞETTA er ævintýri líkast. Við
höfum verið á ferðinni í ír-
landi, Noregi og Skotlandi og
hvert sem við höfum komið
hefur fólk fjölmennt f kringum
okkur. Þeir Paul Gascoigne og
Gary Lineker, sem stóðu sig
svo vel í heimsmeistarakeppn-
inni á Ítalíu, hafa slegið í gegn.
Það er eins og gömlu góðu
Bftlarnir væru á ferð þar sem
þeir mæta. Við hinir „vindlarn-
ir“ fáum að fljóta með,“ sagði
Guðni Bergsson, landsliðsmið-
vörður og leikmaður með
Tottenham.
Guðni sagði að það væri mikill
hugur í mönnum hjá Totten-
ham. „Við erum ákveðnir að byija
keppnistímabilið eins vel og við
enduðum síðasta keppnistímabil.
Þá tryggðum við okkur þriðja sætið
á góðum lokaspretti. Menn eru
ákveðnir að láta ekki sömu söguna
endurtaka sig í ár, eins og undan-
farin ár - það er að byija illa. Til
að vera með í meistarabaráttunni
Spaugararnir Guðni Bergsson og „Gazza“ - Paul Gascoigne, bregða á leik.
verðum við að byija vel,“ sagði
Guðni.
Tottenham hefur leikið fjölmarga
æfingaleiki að undanförnu og ekki
fengið á sig nema tvö mörk. Félag-
ið er nú með öflugt lið og er mikii
bjartsýni í herbúðum Tottenham að
bikar vinnist í ár.
Guðni tryggði sér fast sæti í
byrjunarliði Tottenham á loka-
sprettinum sl. vetur og hefur hann
haldið sæti sfnu, en annars er reikn-
Guðni Bergsson í baráttu við Brian
Marwood hjá Arsenal.
að með að byijunarlið Tottenham
verði þannig:
Erik Thorstvedt í markinu. Guðni
Bergsson hægra megin i vöminni
og welski landsliðsmaðurinn Pat
Van den Hauwe á vinstri vængnum.
Miðverðir þeir Gary Mabbutt, fyrir-
liði og Steve Sedgley. Á miðjunni
þeir Nayim, David Howells, Paul
Gascoigne og Paul AUen. í fremstu
víglínu Gary Lineker og Paul Stew-
art eða Paul Walsh.
Uppselt er á fyrstu fióra heima-
leiki Tottenham og það þarf að leita
allt til 1982 til að finna betri sölu
á ársmiðum hjá félaginu.
ÍÞRÖmR
FOLX
■ MIKILL áhuffi er í Frakklandi
fyrir Evrópuleik íslands og
Frakklands í knattspymu, sem fer
fram á Laugardalsvellinum 5.
september. Fjölmargir Frakkar
hafa haft samband við KSÍ og pant-
að miða á leikinn, en hópferðir
verða famar frá Frakklandi til
Islands í sambandi við leikinn.
■ MICHEL Platini, þjálfari
Frakka, var ánægður með Ieik
sinna manna gegn Pólveijum,
þrátt fyrir jafntefli, 0:0, í París.
Hann er bjartsýnn fyrir „létta leik-
inn“ í Reykjavík,- eins_ og hann
segir um leikinn gegn Islending-
upi-
■ BO Johannsson, landsliðsþjálf-
ari Islands, var meðal áhorfenda á
leik Frakklands og Póllands í
París á þriðjudaginn.
■ STJORNUMENN í handknatt-
leik em nú í æfíngabúðum í Aust-
urríki.
■ VALSMENN fara i æfinga og
keppnisferð til Spánar og Frakk-
lands, þar sem þeir leika gegn
Granollers (Geir Sveinsson) og
Asnieres (Júlíus Jónasson) í ferð-
inni.
■ VÍKINGAR eru á förum til
Svíþjóðar, þar sem þeir taka þátt
í alþjóðlegu handknattleiksmóti. 32
lið taka þátt í mótinu.
■ EYJAMENN em famir í æf-
inga- og keppnisferð til Kanarý-
eyja, þar sem þeir taka þátt í móti
með liðum frá Spáni og Júgó-
slavíu. Ferðin stendur yfir í tólf
daga.
■ GUÐMUNDUR Torfason var
ekki valinn í úrvalslið „útlendinga“
sem leikur gegn úrvalsliði Skot-
lands á Hampden Park í dag.
Forráðamenn St. Mirren vora ekki
ánægðir með valið á útlendingaher-
sveitinni og sögðu það hneykli að
Guðmundur hafi ekki verið valinn.
■ ELÍAS Friðriksson, vamar-
maður Eyjaliðsins í knattspymu,
varð að fara af leikvelli eftir aðeins
.níu mín. í leiknum gegn Val -
meiddur á kálfa. Elías var nýbyij-
aður að æfa eftir langvarandi
meiðsli, sem héldu honum utan vall-
ar í um eitt ár.
Brann með stórfeik
Brann tryggði sér rétt tii að
leika í undanúrslitum norsku
bikarkeppninnar þegar félagið
vann stórsigur á meistumm
Lillerström, 4:2.
Brann hefur alltaf
komist í undanúr-
slit undir stjóm
Teits Þórðarsonar
og þá hefur félagið leikið tólf sinn-
Erlingur
Jóhannsson
skrifar
frá Noregi
um í undanúrslitum á síðustu 23
áram.
Ólafur Þórðarson átti mjög
góðan leik með Brann, sem og
aðrir leikmenn, en það er mál
manna í Noregi að það sé langt
síðan Brann hafi leikið eins vel -
leikmennimir léku sem mjög sterk
liðsheild. Pólveijinn Filipzcak lék
á ný með Brann og við það varð
sóknarleikurinn mjög ógnandi.
Brann var búið að skora fjögur
mörk. áður en Lillerström náði að
skora tvö mörk rétt fyrir leikslok.
Brann leikur gegn hinu liðinu
frá Bergen, Fyllingen, í undanúr-
slitum, en Rosenborg og Kongsin-
vingen leika í hinum leiknum.
KNATTSPYRNA / BRASILIA
Falcao bjargvættur?
Brasilíski knattspymumaðurinn Paulo Roberto Falcao ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur. Falcao, sem dró sig í hlé frá atvinnumennsk-
unni 1987, var í gær ráðinn þjálfari brasilíska landsliðsins og er það frumraun
hans sem þjálfari. Falcao er aðeins 36 ára. „Það er ekki nóg að skipta um
þjálfara. Hugarfarið þarf einnig að breytast," sagði Falcao um málið og bætti
við að menn yrðu að gera sér ljóst að Brasilíumenn væru í augnablikinu langt
frá því að vera besta knattspymuþjóð heims. Það skilyrði fylgdi ráðningu Fal-
cao að hann notaði til að byrja með aðeins ieikmenn sem leika með brasilískum
liðum.