Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
7
John Voight í hlutverki sínu í
Flóttalestinni.
Jon Voight
til Islands
BANDARÍSKI leikarinn Jon
Voight er væntanlegur í tveggja
daga heimsókn til íslands 29.
ágúst næstkomandi ásamt fímm
manna föruneyti til að kynna
nýjustu mynd sína, Eternity.
Kvikmyndin verður tekin til sýn-
inga í haust í Bíóborginni og
Bíóhöllinni.
Með Voight í för verður meðal
annarra leikstjóri kvikmynd-
arinnar, Steven Paul. Hingað kemur
hópurinn frá Stokkhólmi en hann
hefur verið á ferðalagi um Norður-
löndin til að kynna kvikmyndina.
Héðan heldur hópurinn til Lundúna
31. ágúst.
Voight hefur leikið í fjölda stór-
mynda og má þar nefna Heimkom-
una (Homecoming) og Flóttalestina
(Runaway train), en þær hafa báð-
ar verið sýndar hérlendis. Voight
er hér í boði Árna Samúelssonar
bíóstjóra og sagði Árni líklegt að
Voight vildi sjá eitthvað af landi
og þjóð.
Handgerð
húsgögn
í Epal
LAUGARDAGINN 25. ágúst opn-
uðu Halldóra Emilsdóttir og Sig-
rún Kristjánsdóttir sýningu á
handgerðum húsgögnum í sýn-
ingarsal Epal við Faxafen.
Halldóra sýnir færanleg skilrúm
sem hún hefur myndskreytt,
en hún sýnir einnig þessa dagana
smámyndir í sýningarsal Sævars
Karls við Bankastræti. Sigrún sýnir
einnig færanleg skilrúm sem hún
hefur hannað og eru innlögð og
skorin í tré. Einnig sýnir hún borð
unnin með svipaðri tækni, úr tré
og jámi.
Halldóra lauk námi frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum úr mál-
ardeild en stundaði síðan fram-
haldsnám við Rietvald Akademie í
Amsterdam. Sigrún stundaði nám
í húsgagnasmíði við Iðnskólann að
loknu stúdentsprófi. Hún var síðan
við nám í hönnun við London Coll-
ege of Furniture og Rietveld Aka-
demie í Amsterdam. Sýningin verð-
ur opin um helgina frá kl. 14-18
og á búðartíma út vikuna. Sýning-
unni lýkur 31. ágúst.
IIÝTT SIMANÚKAER
BLAÐAAPSRE'ÐSLU
Samgöngiiráðherra:
Undirbúningur loftferðasanm-
ings við Sovétríkin eðlilegur
STEIN GRÍMUR J. Sigfússon
samgönguráðherra segir að und-
irbúningur að loftferðasamningi
við Sovétríkin af hálfu sam-
gönguráðuneytisins hafi verið
með eðlilegum hætti. Ráðherr-
ann hefur undanfarið óskað upp-
lýsinga um framgang málsins í
utanríkisráðuneytinu, en drög að
samningi þessum voru send
þangað fyrir um ári. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
hefur gagnrýnt afskipti sam-
gönguráðuneytisins af málinu,
og segir samningagerð við er-
lend ríki vera mál síns ráðuneyt-
is.
að er fullkomlega eðlilegt þegar
um loftferðasamninga er að
ræða að samgönguráðuneytið hafi
málið með höndum í samstarfi við
utanríkisráðuneytið," sagði Stein-
grímur á fréttamannafundi um
málið. „Þetta veit Jón Baldvin, enda
hefur sami háttur verið hafður á
um loftferðasamninga milli íslands
og annarra ríkja.“ Hins vegar sagði
ráðherra að sá seinagangur sem
einkenndi meðferð utanríkisráðu-
neytisins á málinu væri óeðlilegur.
Um þau ummæli utanríkisráð-
herra að drögin að loftferðasamn-
ingi við Sovétríkin sem ráðuneytið
fékk frá samgönguráðuneytinu
væru gróf þýðing á samningsupp-
kasti sem upprunnið væri í sovéska
sendiráðinu hafði Steingrímur eftir-
farandi að segja: „Vissulega feng-
um við send ófullkomin samnings-
drög frá sendiráðinu, en síðan hefur
ráðuneytið látið hlutaðeigandi aðila
gera úttekt á málinu, svo sem flug-
ráð og flugumferðarstjórn." Þá
sagði ráðherra að þau drög sem nú
iiggja í utanríkisráðuneytinu hafi
farið til umsagnar hjá hagsmunaað-
ilum, t.d. Flugleiðum hf.
ÍT' r^Tí>.‘V vA - .
m
pmmm
t S’ V
■>•
... gæðir gamlar, slitnar flísar ... á baðgólf og önnur blaut- ... til viðgerða á gróður-
nýjuiífi... svæði... húsum og þakljórum ...
... til þéttinga á hleðslu-
gleri...
... á bátsdekk og alls staðar
þar sem mikið mæðir á
Eru tröppunrar sprungnar, Kjótar og era þær
sleipar ó vetuma?
Ek er gólfið i svölunum ónýlt og Ijótt?
Pallar M. kynna Coefrons, hógæða vestur-þýskt
góHefni sem leysir þesu hvimleiðu vandamál
™ vHimician, n|9IH$l|dI IrliroHlCr^gdi IMhR*
Coetrans er glært Urethan efni sem t.d. ef litaður grófur
kvartsmulningur er hrærður út í myndar fyrirtaks og afar
fallegt gólfefni. Coetrans hentar alls staðar þar sem þörf er á
slitsterku og fallegu gólfi hvort sem það er innanhúss eða utan.
Vegna þess hve Coetrans gólfefnin eru veðurþolin og sterk,
henta þau sérstaklega vel á tröppur og svalagólf. Coetrans er
einnig kjörið á ganga, verslanir, verksmiðjugólf, sundlauga-
bakka, búningsklefa og sturtugólf, eða alls staðar þar sem þörf
er á slitsterku, fallegu gólfi sem þolir mikla umferð. Coetrans
gólf verður ekki sleipt þó það blotni og er auðvelt að þrífa.
Coetrans hentar einnig til ýmissa annarra nota svo sem til
viðgerða á flísalögðum gólfum og veggjum sem leka eða eru
orðin mött og ljót. Coetrans er einnig mjög gott til viðgerða á
lekum gróðurhúsum, garðstofuþökum, þakljórum og á báts-
dekk.
Coetrans kvartsmulningurinn er fáanlegur í rauðum, gulum,
grænum og svörtum litum sem má blanda saman eftir þörfum
og smekk hvers og eins.
Coetrans gólfefnin eru mjög meðfærileg og auðveld í ásetn-
ingu, þannig að handlagnar húsmæður og jafnvel heimilis-
feður geta auðveldlega unnið með efnin. Að sjálfsögðu útvega
Pallar hf. fagmenn ef þess er óskað.
Hríngið og sölumenn okkar veita túslega al'.ar nánari upplýsingar.
Pallar hf.
DALVEGUR 16, FÍFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SÍMI 641020