Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 11

Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. AGUST 1990 Vegageró ríkisins: TUGIR MILUÓNA í GIRÐINGAR SAMKVÆMT vegaáætlun er gert ráð fyrir 26 milljónum króna til girðinga og upp- græðslu á þessu ári. Auk þess er gert ráð fyrir girðingar- kostnaði við einstaka fram- kvæmdir og því áætlar Vega- gerð ríkisins að tugir miHjóna til viðbótar fari í girðingar, þótt nákvæmar tölur um heild- arkostnað liggi ekki fyrir. Ta- lið er að í sumum tilvikum geti verið hagkvæmara að kaupa búskap frekar en girða. Þannig er t.d. á Reykjanesi, þar sem talið er að kosti um 25—30 milljónir að girða hólf fyrir um 1800 kindur. Girðingar Vegagerðarinnar eru einungis ætlaðar til að halda bújörðum lokuðum. í girð- ingarlögum segir að þegar vegur er lagður í gegnum tún eða girt beitiland skuli Vegagerðin leggja girðingar beggja vegna við, svo ekki ekki opnist hólf. „Á þessum grundvelli hefur Vegagerðin girt, en ekki í þeim tilgangi að friða veginn fyrir búfé,“ segir Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Vegagerð ríkisins. En kröfur hafa færst í vöxt að Vegagerðin hindri ágang búfj- ár á vegsvæðin. „Það má segja að við séum farnir að gera það í einhveijum mæli, þótt okkur anna. Þar segir m.a. að málið heyri undir landbúnaðarráðuneytið og er skýrt kveðið á um tilgang lagasetn- ingarinnar: „Markmið þessara laga er að tryggja vellíðan búfjár, góða meðferð og að það hafi ætíð nægi- legt fóður. Haga skal aðbúnaði búfjár í samræmi við þarfir þess og eðli. Markmið laganna er einnig að tryggja að við framleiðslu bú- fjárafurða skuli eingöngu nota hraust og heilbrigt búfé.“ í greininni um markmið laganna er ekki fjallað um hagsmuni öku- manna, íbúa í þéttbýli eða hags- muni landeigenda gagnvart átroðn- ingi búfjár í eigu annarra. Hins vegar er vikið að þeim málum í öðrum köflum frumvarpsins. Önnur nefnd á vegum landbúnað- arráðuneytisins skilað áliti í desem- ber á síðasta ári, svokölluð vegkant- anefnd, undir formennsku Níelsar Árna Lund, deildarstjóra í landbún- aðarráðuneytinu. Viðfangsefni nefndarinnar var að kanna til hvaða ráðstafana unnt væri að grípa í því skyni að minnka umferð vörslulauss búfjár á þjóðvegum og í nánd við þá, einkum í og út frá þéttbýlis- svæðum og gera tillögur til úrbóta. í árbók Landgræðslu ríkisins, Græðum landið, sem kemur út í haust, rekur Níels Árni Lund helstu atriði sem nefndin leggur til að framkvæmd verði og færir rök fyr- ir þeim, en nefndin kynnti helstu niðurstöður sínar sl. vetur. Mun fleiri óhöpp en skýrslur segja til um Vegkantanefnd telur nauðsyn- legt að koma á vörsluskyldu stór- gripa allt árið, það er hrossa og nautgripa. Hrossum hefur stórfjölg- að á undanförnum árum. Víða eru þau í vörslu allt árið og hefur því nokkuð dregið úr hrossabeit í af- réttum. Hins vegar er töluvert um að þau gangi laus í heimahögum og eiga þá oft greiðan aðgang að þjóðvegum. Og einnig hagar sum- staðar þannig til, að þjóðvegurinn liggur um afrétti þar sem hross eru höfð. Samkvæmt upplýsingum sem nefndin viðaði að sér frá lögreglu- stjóraembættum urðu 130 umferð- skorti lagaheimildirnar," segir Gunnar. Reyndar eru málin svol- ítið öfugsnúin, því sýnt hefur verið fram á að saltefni sem Vegagerðin notar til að rykbinda vegi, orsakar að búfé leitar á þá. Ennfremur þykir ljóst að búfé sæki í nýgræðing í vegköntum, einkum 2-3 fyrstu árin eftir sán- ingu. Vegagerðin telur í mörgum tilfellum skynsamlegra að girða af hólf, fremur en að girða með- fram vegunum. „Það hefur t.d. verið til skoðunar að Vegagerðin taki þátt í að girða ákveðið hólf á Reykjanesskaganum í stað þess að girða meðfram Reykjanes- brautinni, alveg frá Hafnarfirði suður í Voga. Við teljum okkur hafa heimild til að vinna þannig að málum," segir Gunnar. En hvernig miðar þessu máli áfram?„Ég gæti trúað að það hafi dagað einhvers staðar uppi, því það er sjónarmið sumra, að það sé svo fátt um búfé á Reykja- nesi, um 1800 kindur, að það borgi sig mun frekar að kaupa þann búskap upp, frekar en að girða þetta hólf. Ég hef heyrt að það muni kosta um 25-30 milljónir króna. Mönnum hefur líklega blöskrað kostnaðurinn miðað við hagsmunina,“ segir Gunnar Gunnarsson. arslys á þriggja ára timabili, á árun- um 1986-1988, þar sem ekið var á hross og lögregla kölluð á vettvang. Talið er fullvíst að töluvert fleiri óhöpp hafi orðið, en lögregla ekki kölluð á vettvang og því engar skýrslur gerðar. Á sama þriggja ára tímabili drápust 320 kindur í um- ferðinni. Engar nákvæmar tölur eru til um hvað þetta hafi kostað, en nefndin telur tjónið nema tugum milljóna króna, þegar horft er til skemmda á ökutækjum og bónus- missis bifreiðaeigenda, að ógleymd- um slysum á fólki. Þá er við að bæta eignatjóni bændanna, sem oft er verulegt. Nefndin leggur til breytingar á umferðarlögum sem rýmka h'eimild- ir til bótaskiptingar þegar búfé á hlut að umferðaróhappi. Nú er málum þannig háttað, að þegar bótakröfur berast til tryggingafé- laganna vegna búfjár sem ferst í umferðinni eru bætur fyrir sauðfé í langflestum tilvikum greiddar at- hugasemdalaust eftir mati sem Framleiðsluráð landbúnaðarins ger- ir tillögu um. Fyrir stórgripi eru bætur ákveðnar hveiju sinni. í raun eru það tryggingafélögin sem úr- skurða í hverju slíku máli og í fæst- um tilvikum er höfðað mál til að hnekkja úrskurði. Því er það bif- reiðaeigandinn sem ber yfirleitt tjó- nið. Engu að síður eru heimildir í Brýnast að banna lausagöngu á Reykjanesskagan- um og jafnvel í landnámi Ingálfs öllu, segir Sveinn Runólfsson land- græóslustjóri LOKAD MÁNUDAG í Toppskónum Veltisundi Útsalan hefst þriðjudaginn 28. nk. kl. 9.00 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN 0 Yogastöðin Heilsubót auglýsir Starfsemin hefst 3. september eftir sumarfrí. Æfingarnar sem við bjóðum yður eru byggðar ó HATHA-YOGA. Þær eru ekki svo mjög fróbrugðnar venjulegri leikfimi. AAarkmiðið er að verjast og draga úr hrörnun, að efla heilbrigði ó sól og líkama. Æfingarnar henta konum og körlum ó öllum aldri. Morguntímar, dagtímar og kvöldtímar. Sértimi fyrir ófriskar konur Allar nónari upplýsingar í síma 27710. Innritun hafin. Visa- oq Eurokortaþjónusta. „ ........... . Ljós og gufa. YOQaStOðlll HOllSUbOt Hótún 6Á, sími 27710. VESTFROST A FRABÆRU VERÐI VERÐFRA: Frystikistur í mörgum stœrðum • Yfir 25 ára reynsla á íslandi. • Niðurfall í botni fyrir afþíðingu • óryggisrofar v/hitabreytinga og bama • Spamaðarstilling - djúpfrystirofl • Ljósíloki • Danfoss kerfi Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð r Úrval kœli- og frystiskápa Orkusparandi - Tvœr pressur í sambyggðum skápum Hœgri eða vinstri opnun Djúpfrystirofi - öryggisrofi Danfoss kerfi SMS'&Sl • FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 • N! Á X í •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.