Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
AUGLYSINGAR
Deildarstjóri í
kennslumiðstöð
Námsgagnastofnun auglýsir starf deildar-
stjóra í kennslumiðstöð laust til umsóknar.
Starfið felst í umsjón með rekstri og starf-
semi kennslumiðstöðvar, þ.m.t. skipuiagn-
ingu á dagskrám, ráðstefnum, kynningar-
fundum o.s.frv.
Leitað er að vel menntuðum starfsmanni
með skipulags- og stjórnunarhæfileika.
Skilyrði er að viðkomandi hafi kennaramennt-
un svo og kennslureynslu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhalds-
menntun er tengist kennslu- og skólastarfi og
reynslu af skipulags- og stjórnunarstörfum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, berist Námsgagnastofnun, Lauga-
vegi 166, 105 Reykjavík, eða í pósthólf 5192,
125 Reykjavík, eigi síðar en 1. sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 28088.
ST. JÓSÉFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Lausar stöður
Á móttökudeild vantar hjúkrunarfræðinga
á 1-2 næturvaktir í viku (þriðju hvora helgi).
Starfið er aðallega fólgið í því að taka á
móti og veita fyrstu meðferð þeim sjúkling-
um, sem lagðir eru inn á bráðavakt spítalans.
Nánari upplýsingar gefa Björg J. Snorradótt-
ir hjúkrunarframkvæmdastjóri í símum
604308/604300 og Jarþrúður Jónsdóttir
deildarstjóri í síma 604314.
Á barnadeild vantar hjúkrunarfræðing og
sjúkraliða. Deildin er blönduð lyflækninga- og
handlækningadeild með 26 rúmum. Hjúkrunin
er hóp- og einstaklingsmiðuð. Boðið er uppá
3ja mánaða.starfsaðlögun. Lögð er áhersla á
símenntun með skipulagðri fræðslustarfsemi
á vegum deildarinnar.
Möguleiki á dagheimilisvistun.
Nánari upplýsingar gefa Auður Ragnarsdótt-
ir hjúkrunarframkvæmdastjóri og Steinunn
Garðarsdóttir aðstoðardeildarstjóri í síma
604326.
UAGVIBT BAHWA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
AUSTURBÆR
Alftaborg s. 82488
Garðaborg s. 39680
Hlíðaborg s. 20096
Kvistaborg s. 30311
Stakkaborg s. 39070
Skóladagheimilið
Stakkakot S. 84776
Steinahlíð s. 33280
Sunnuborg S. 36385
Prentari
Óskum eftir að ráða prentara í vaktavinnu.
Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar í sima 671900 frá kl. 14.00-
16.00 mánudag og þriðjudag.
Starfsfólk ívélasal
Óskum einnig eftir að ráða starfsfólk í véla-
sal og aðstoðarmann í prentsal.
POæssúes
KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 671900
Læknisstaða við
heilsugæslustöðina
á Vopnafirði
Staða heilsugæslulæknis við heilsugæslu-
stöðina á Vopnafirði er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. september nk. og
skulu umsóknir berast undirrituðum ásamt
upplýsingum um menntun og starfsferil.
Upplýsingar um stöðuna veita Baldur Frið-
riksson læknir í síma 97-31225 og Emil Sigur-
jónsson formaður stjórnar í síma 97-31478.
Stjórnin.
Bifvélavirki
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja til starfa
nú þegar.
Upplýsingar um starfið gefur verkstjóri á bif-
reiðaverkstæði Olís hf., í Laugarnesi, í síma
91-689800, á vinnutíma.
Verslunarstörf
Kringlunni
HAGKAUP vill ráða starfsfólk í eftirtalin störf
í verslunum fyrirtækisins í Kringlunni.
Sérvöruverslun.
★ Afgreiðsla á kassa (heilsdagsstörf).
★ Afgreiðsla í leikfangadeild (vinnu-
tími 14-19).
★ Afgreiðsla í barnafatadeild (vinnu-
tími 13-18).
★ Afgreiðsla í herradeild (vinnutími
13-19).
★ Afgreiðsla í skódeild (vinnutími
13-19).
★ Störf á kaffistofu starfsfólks (heils-
dags- og hlutastarf eftir hádegi).
Matvöruverslun.
★ Uppfylling í kjötdeild (heilsdagsstörf).
★ Uppfylling í matvörudeild (vinnutími
sveigjanlegur).
★ Afgreiðsla í fisk- og kjötborði (heils-
dagsstörf).
★ Starf á lager (heilsdagsstarf).
★ Umsjón með innkaupavögnum (heils-
dagsstarf).
Nánari upplýsingar um störfin veita verslun-
arstjórar viðkomandi verslana á staðnum
(ekki í síma).
HAGKAUP
Vélstjórar, rafvélavirkjar,
bifvélavirkjar, vélvirkjar
Óskum eftir að ráða sem fyrst góða menn
með þekkingu á vinnuvélaviðgerðum. fyrir
gott vinnuvélaverkstæði. Annar maðurinn
þarf að hafa góða þekkingu á rafkerfum
vinnuvéla og lyftara , hinn þarf að hafa hald-
góða þekkingu á þungavinnuvélaviðgerðum.
Laun og starfskjör samkomulagsatriði.
SMSÞJÓNUSWN »/í
BrynjólfurJónsson • Nóatún 17 105 Rvik • simi 621315
• Alhliöa radningaþjónusta
• Fyrirtælyasala
• Fjármálarádgjöf fyrir fyrirtæki
Gott fólk!
Viljum ráða gott og þjónustulipurt starfsfólk
íverslun okkar í Kaupstað í Mjódd.
Sérvörudeild:
★ Afgreiðsla í dömudeild
(heilsdagsstarf).
★ Afgreiðsla á útsölumarkaði (hálfsdags-
starf eftir hádegi).
Áhugasamir hafi samþand við verslunarsjóra
sérvörudeildar mánudaginn 27. ágúst kl.
10.00-14.00
(ekki í síma).
Matvörudeild:
★ Störf í kaffiteríu:
- umsjón,
- afgreiðsla
- smyrja brauð
(heilsdags- og hálfsdagsstörf)
★ Umsjón með ávaxtaborði (heilsdagsstarf)
★ Umsjón með fiskborði (heilsdagsstarf)
★ Starf á lager (heilsdagsstarf)
Áhugasamir hafið samband við verslunar-
stjóra matvöru á staðnum (ekki í síma).
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
LANDSPITALINN
Gjörgæsludeild
Vegna vaxandi starfsemi óskum við eftir fleiri
áhugasömum hjúkrunarfræðingum til þess
að starfa með okkur við einstaklingshæfða
hjúkrun (80-100% starfshlutfall æskilegt).
Á gjörgæsludeild dveljast milli 1200-1300
sjúklingar árlega (börn og fullorðnir) með
margsvísleg heilsuvandamál. Störf hjúkrunar
fræðinga á deildinni eru oft erfið og krefj-
andi, en bjóða upp á mikla fjölbreytni og
dýrmæta reynslu varðandi hjúkrun og með-
ferð mikið veikra einstaklinga á öllum aldri.
Á deildinni er samstilltur hópur fólks, sem
hefur það að markmiði að veita skjólstæðing-
um sínum og ástvinum þeirra sem besta
umönnun og stuðning.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í gefandi
og þroskandi starfi þá bjóðum við:
A) 12 vikna starfsaðlögun (lesdagar ásamt
40-50 fyrirlestrum) hefst 1. október 1990.
B) Morgunvaktir byrja kl. 8.00 og unnið er
þriðju hverju helgi - 12 tíma vaktir.
C) Góðan starfsanda.
Umsóknum fylgi upplýsingar um nám og fyrri
störf og berist skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Nánari upplýsingar veitir Lovísa Baldurs-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, síma
601000.
Reykjavík 26. ágúst 1990.