Morgunblaðið - 02.09.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDÁGUR 2. SRINRMBER 1990
'C ' 5
Morgunblaðið/KGA
„Mér fínnst meiri stuðningur af því að vinna saman heldur en ekki,“
segir Jónas Ragnarsson tannlæknir, en eiginkona hans Hrafnhildur
Eysteinsdóttir er klíníkdaman hans.
Annars keyra þau á sitt hvorum
bílnum. Oftar en ekki liggur leið
hans út á golfvöll eftir vinnu, en
golf er brennandi áhugamál beggja.
„Eg var að koma úr keppni. Við
B tannlæknar vorum að vinna lög-
fræðingana, sem voru svo bjartsýn-
ir að skora á okkur eftir að hafa
unnið læknana."
Jónas og Hrafnhildur segjast
hafa fengið golfbakteríuna fyrir
rúmum tíu árum. Hann byijaði og
smám saman fór hún að fylgja með
á völlinn. Þau eru í golfklúbbnum
Keili í Hafnarfirði og fá mikið út
úr félagsskapnum, sem fylgir golf-
inu. „Við tannlæknar höldum mikið
hópinn í golfinu. Við förum á milli
vallanna til að spila og út á land
að minnsta kosti einu sinni að
sumri. I sumar varð Sauðárkrókur
fyrir valinu. Þá reynum við að fara
árlega út fyrir landsteinana og þá
með tanngolfinu svokallaða. Þá
höfum við tannlæknar haft það fyr-
ir venju að stytta hjá okkur vinnu-
daginn á þriðjudögum á sumrin.
Þannig vinnum við fyrir hádegi og
spilum golf eftir hádegi. Þetta er
gott fyrirkomulagog styttir vinnu-
vikuna heilmikið. Úr vinahópi í
Keili hefur orðið til fjórmenning-
aklíka sem kemur saman tvisvar á
mánudögum og fimmtudögum. Þá
spilum við saman íjórir karlarnir
og eiginkonurnar fjórar hinsvegar,'1
segir Jónas.
Talið berst að heimilishaldinu og
heimilisfaðirinn viðurkennir strax
að það sé ekki hans sterka hlið.
Hann segist hvorki vera liðtækur
við matseld né hreingemingar og
hann reyni að komast hjáþví að
setja kartöflur í pott. Hinsvegar sé
hann ágætur í útigrillinu á sumrin.
Óhætt er að segja að þau haldi
sér í formi á veturna þó golfið sé
þá ekki fyrir hendi. Húsbóndinn
segist iðka knattspyrnu tvisvar í
viku og húsmóðirin æfír badminton
af kappi með vinkonunum.
koma okkur upp höfundum, sem
gætu skapað sér nafn í bókmennta-
heiminum, en það tekur oft ár og
áratugi. Með því að kaupa eitthvert
eldra útgáfufélag, fengum við mikinn
lista af bókum og þekktum höfund-
um. Þar stóð Halldór Laxness upp
úr auk höfunda á borð við Stein Stein-
ar, Davíð Stefánsson og fleiri,“ segir
Ólafur og bætir við „en við höfum
engu að síður lagt metnað okkar í
að gefa út og kynna verk nýrra höf-
unda á hveiju ári - bæði þeirra sem
skrifa fyrir fullorðna og börn. í því
sambandi stofnuðum við meðal ann-
ars til barnabókaverðlauna ásamt
fleirum, en þau hafa nú verið veitt
fimm ár í röð.“
Lestur hvers konar er mikið áhuga-
mál hjá þeim báðum. Þau hafa líka
reynt að spila golf með misjöfnum
árangri, hjóla dálítið auk þess sem
Ólafur bregður sér stundum á skíði
og þau fara saman í laxveiði. Garð-
vinnan tekur líka sinn toll af tíma
þeirra hjóna á sumrin og nokkur
undanfarin ár hefur Ólafur safnað
að sér ýmsu efni, sem hann hefur
jafnvel hug á að festa á bók síðar
meir. „Ég hef sérstaklega haft áhuga
á íslenskri þjóðtrú, en fyrir nokkrum
árum vann ég eina 20 útvarpsþætti
um þetta sama efni. Hver veit nema
úr þessu verði bók, sem ég hugsan-
lega fæ útgefna einhvers staðar, en
ég hefði gaman af því að geta eytt
meiri tíma í ritstörf sjálfur. Það held
ég að sé draumur flestra, sem stund-
að hafa blaðamennsku. Eins hef ég
verið að fíkta við heimildamyndagerð
með gömlum samstarfsfélögum frá
sjónvarpsárunum. Svo blundar alltaf
gamli fréttamaðurinn í manni. Ég
má ekki vita af fréttatíma neins stað-
ar. Þá er búið að kveikja," og eigin-
konan lætur það fylgja að oft sé er-
fitt að slíta hann frá sjónvarpstækinu
á hótelherbergjum erlendis sem ann-
aðhvort bjóða upp á CNN eða BBC.
Þau leggja ríka áherslu á að kom-
ast burtu annað slagið. Hinsvegar
hafa þau ekki í þessi tíu ártekið sér
langt frí í einu, í hæsta lagi 10 tii
15 daga. Þau taka heldurþann kost-
inn að fara oftar og þá helst í tengsl-
um við erlendar bókasýningar eða
fundi. Þau segjast vera nýlega komin
úr tíu daga ferð frá Frakklandi þar
sem þau voru í þijá daga í París og
viku í Cannes.
Vinnudagur þeirra hjóna hefst um
klukkan níu. Þau aka í vinnuna á
sitt hvorum bílnum enda eru verkefn-
in, sem sinna þarf á daginn, ólík og
á mismunandi stöðum. Auk þess hef-
ur Elín það fyrir venju að fara heim
um sex-leytið til að huga að kvöld-
matnum, en Ólafur ekki fyrr en
klukkutíma síðar. „Þó hann sé mynd-
arlegur í sér, býr hann ekki til mat-
inn.“
Þau kjósa bæði að eyða frítíma
sínum í annað en hreingerningar og
því hafi þau tekið það ráð að fá utan-
aðkomandi konu í mestu tiltektina.
Annars gengi þetta ekki upp því
bæði ynnu þau langan vinnudag. Elín
segist bera ábyrgð á matseld og
þvottum. Ólafur sé hinsvegar mjög
duglegur við að taka til í skápum og
hillum, setur hlutina í röð og reglu
o g grípur oft í ryksuguna. Hvað vinn-
una varðar kom verkaskiptingin af
sjálfu sér. „Minn áhugi beindist alltaf
að útgáfumálunum, framleiðslunni
og hugmyndavinnunni. Ég hefði því
aldrei getað sinnt peningavafstrinu
með öllu öðru og satt best að segja
held ég að Elín sé mun betur til þess
fallin en ég. Samstarfíð hefur gengið
mjög farsællega og ég minnist þess
ekki að til árekstra hafi komið. Þessi
áhætta, sem við tókum fyrir tíu árum,
reyndist farsælt spor sem engin eftir-
sjá er að. Þetta er skapandi og spenn-
andi starfsemi, sem byggist á góðum
hugmyndum. Samkeppnin á mark-
aðnum er vissulega hörð, en sam-
skipti útgefenda almennt vinsamleg,"
segir Ólafur.
ELDGJA - LAKAGIGAR
SKAFTAFELL /J ^ hóteUeró
Ferðaskrifstofa íslands og Hótel Edda, í samvinnu við heimamenn á Kirkjubæjar-
klaustri, efna til 4 daga skoðunar- og skemmtiferðar um Suðurland dagana 6.-9. september nk.
Á meðal áhugaverðra staða sem skoðaðir verða má nefna:
Landmnimlaugar - Eldgjá ■ Skaftáreldahraun ■ Lakagígar ■ Núpsstadaskógur
Skaftafell - Kapellan Núpsstad - Byggdasafniö Skúgum.
Verð kr.:
19.600,-
Allar nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu íslands,
Skógarhlíð 18, sími 91-25855.
Missið ekki af þessari stórskemmtilegu haustferð.
Innifalið: Akstur
Gisting i 3 nætur í 2ja manna herbergi m/baði
á Kirkjubæjarklaustri
3 morgunverðir
3 nestispakkar
3 kvöldverðir
r orsKemmmegu nausuero. vU
FERÐASKRIFSTOFA ISLANDS lt|l
Skógarhlíð 6 101 Reykjavík Sími 25855