Morgunblaðið - 02.09.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.09.1990, Blaðsíða 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990 F. Williams og Joe Giron KLUKKAN 10 á laugardagsmorgni 18. ágúst var umferðin þegar farin að þyngjastáMl, aðalhraðbrautinni norður frá Lundúnum, enda þótt fyrsta hljómsveitin færi ekki á svið fyrr en um hálfþrjúleytið. í öðrum hverjum bíl mátti sjá leður, gadda, hár og húðflúr. Veðrið leit reyndar ekki vel út í byrjun, en alvöru rokkarar láta ekki hluti eins og rigningarskúrir trufla sig þegar umfangsmesta tónleikahátíð ársins er annars vegar. Enda reyndist engin ástæða vera til þess. Sól skein í heiði allan daginn, vind hreyfði varla nema til þess að veita hinni iðandi kös þvalra mannslíkama örskamma svölun og hátíðin fór hið besta fram. tvö var flötin fyrir framan sviðið orðin troðfull af fólki og svo langt sem augað eygði voru þungarokkarar af öllum stærðum og gerðum búnir að koma sér fyrir. Hópur íslendinga hafði gert sér ferð til Englands til þess að sjá goðin troða upp og þegar litið var yfir skarann fremst upp við sviðið mátti einatt sjá íslenska fánann á lofti. Fáninn var þó ekki það, sem frekast hélt merki íslands á lofti — um það sá eðaldrykkurinn Svali frá Sól hf. Sól hafði augljóslega tryggt sér einkasölurétt á ávaxtasafa á tón- leikunum og hvert sem litið var var Svali á lofti. Allir þeir, sem Morgunblaðið átti tal við, voru á einu máli um að Donington 1990 hefði verið ein best heppn- aða Donington-hátíðin til þessa. Auk veðurblíðunnar bættist við að dagskráin hélst samkvæmt áætlun, ólæti voru engin og slys á fólki sáralítil. í fyrra var hátíðinni aflýst, meðal annars vegna þess að árið áður höfðu tveir tónleikagesta troðist undir. Að þessu sinni skyggði ekkert á tónleikana. Múgurinn var í góðu skapi og óvenju vingjarnlegur. Jafnvel þegar blaðamaður og ljós- myndari hans tróðust inn í þvöguna miðja og stigu á mann og annan var slíkum óþægindum tekið með brosi á vör og afsakanir teknar til greina. Jafnvel fyrstu hljómsveit á svið, Thunder, var vel tekið, en fyrsta hljómsveit má jafnan eiga von á hríð dósa og plastflaskna frá óþolinmóðum áheyrendum, sem vilja heimsfræg númer og engar reijar. Það er reyndar ekki ólíklegt að hljómsveitirnar hafí verið valdar nokkuð með tilliti til þess til hvaða hóps þær höfða, því í hópn- um var engin brotajárns- eða dauðarokksveit á borð við Metallicu eða Slayer. Af þessum sökum var hljóm- sveitavalið nokkuð einhæft og poppað. Um það þarf þó enginn að efast, að þessir foringjar skiluðu vænu dags- verki. Á heildina litið heppnuðust tónleikarnir stórvel. Hið eina, sem unnt er að kvarta undan, var hljómkerfið, sem einfaldlega var ekki nógu kröftugt. Það er að vísu fast- ur liður að aðalhljómsveit tónleikanna — að þessu sinni Whitesnake — láti fara sparlega með kerfið þangað til hún stígur á stokk, en jafnvel Whitesnake hefði að ósekju mátt vera kröftugri, enda þótt auðheyrt væri að kerfið var keyrt af meiri krafti en áður þegar þeir hófu leikinn. Miðað við hversu vel þessir tónieikar tókust þrátt fyrir kraftleysi kerfisins, má ætla að framtíð Don- ington-tónleikahátíðarinnar sé tryggð. Thunder Það verður að játast að undirritaður hafði aldrei heyrt I í Thunder áður og sá þar að auki ekki nema hluta dag- skrár þeirra. Það sem hann sá lofaði hins vegar mjög góðu, þrátt fyrir að hljómburðurinn væri afleitur. En miðað við að sveitin er fremur lítið þekkt og að það er ávallt erfitt að vera fyrsta hljómsveit á tónleikum sem þessum, getur Thunder unað vel við sitt. Miðað við fagn- aðarlæti áheyrenda á sveitin góða framtíð fyrir sér, en tónlistin er það sem kalla má klassískt þungarokk — heppileg blanda af ensku og bandarísku hvítramanna- rokki. Quireboys Næstir á sviðið voru fyllikarlarnir í Quireboys. Blaða- manni hafði reyndar auðnast að hitta þá baksviðs áður en þeir fóru á svið og þeir voru jafnedrú og æðstitempl- ar á bingói. Af btjóstastærð fylgikvenna þeirra var hins vegar augljóst hvert aðaláhugamál sveitarinnar var og Jack Daniels beið þess eins að þeir kæmu af sviði. Ég spurði söngvarann Spike hveiju íslenskir aðdáendur mættu eiga von á og hann svaraði:„Fullt af rokki og róli,“ og spurði svo á móti: „Er það satt sem við höfum heyrt um dömurnar á íslandi?" „Vafalaust," svaraði ég án þess að vita hvað hann hefði heyrt, en minnugur þess að sviðsstjóri þeirra kom til íslands með Led Zepp- elin í árdaga, og hann sagði: „Segðu þeim að vera tilbún- ar þegar við komum á svæðið.“ Blaðamaður hafði heyrt af því að sveitin hafi gengist fyrir blautbolakeppni hvar sem þeir komu í Bandaríkjunum og spurði þvLgítarleikar- ann Guy Griffin hvort á slíku væri von á Islandi. „Er ekki allt of kalt fyrir slíkt,“ spurði hann á móti. „Það fer eftir því hversu heitt ykkur er í hamsi,“ svaraði ég. „Ja, við afþökkum aldrei sjálfboðaliða,“ sagði hann um leið og hann snerist á hæli og stormaði inn á sviðið. Um leið og fyrsti tóninn hljómaði ærðist allt meðal áheyrenda. Quireboys slógu aldrei af og keyrðu án nokk- urrar viðstöðu í gegn um dagskrána. Reyndar fannst manni hljómsveitin eiga betur heima á reykmettuðum bar, en okkar menn létu það ekki hafa nokkur áhrif á sig og fengu áheyrendur á band með sér í lögum eins og „Man on the Loose“ og „Whipping Boy“. Þrátt fyrir að Quireboys séu fyr’st og fremst rokkhljómsveit sýndu þeir og sönnuðu í lögu'm eins og „Roses and Rings“ að þeir eiga nóg af tilfinningu án þess að rokkstaðallinn sé nokkuð lækkaður. Áfram var haldið í gegn um lög eins og „I Don’t Love You Anymore" og „There She Goes Again“. Áður en nokkur veit af er allt búið og þeir hlaupa út af sviðinu. Mannfjöldinn ætlar að fara klappa þá upp aftur en áður en af því verður í alvöru eru þeir komnir inn aftur og bassaleikarinn Nigel Mogg trúir áheyrendum fyrir því að þeir verði að taka eitt lag í viðbót til þess að fá borgað. Mannskapurinn er alsáttur við það og kórdrengirnir hella sér útí „Heartbreaker". Quireboys eru engir ævintýralegir hljóðfæraleikarar, en þeir kunna að rokka afturábak og áfram, sem hef- ur reynst mörgum gott veganesti eitt og sér, samanber Guns’n’Roses. Á þessum tónleikum sneru þeir aftur sem týndu synirnir, sem hafa gert það gott vestanhafs, og sýndu lönd- um sínum hvernig á að rokka. Poison Þrátt fyrir að sjálfur hafi ég haft gaman að Poison hafði ég ákveðnar efasemdir um hvort þeir væru rétta bandið til þess að troða upp á Don- ington. Breskir þungarokkarar hafa lengi haft horn í síðu bandarískra kollega sinna, aðallega vegna þess að þeim finnst kaninn selja útvarps- stöðvum sálu sína fullódýrt. Fyrir nokkrum árum lá við að Van Haler, væri hrópuð niður af sviði í Doning- ton. Hvernig skyldi Poison þá reiða af?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.