Morgunblaðið - 02.09.1990, Page 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990
SKÓIA ÚLPURNAR
KOMNAR
Marglitar úlpur d 6-1U ára
kr. 4.485,
Drengjaúlpur
kr. 4.810,-
Glæsibæ, sími 33830,
Hamraborg, sími 45288,
Eiðistorgi 11, sími 611733
Byggðastofnun opn-
ar útibú á Isafirði
^ ísafirði.
ÚTIBÚ byggðastofnunar á
Isafirði hefur nú tekið til starfa.
Sljórn stofnunarinnar bauð til
hátíðar í stjórnsýsluhúsinu á
Isafirði 14. ágúst í tilefni opnun-
arinnar. Byggðastofnun sem nú
er 5 ára var þarna að opna sitt
annað útibú því fyrsta útibúið
utan Reykjavíkur var opnað á
Akureyri 1988.
Matthías Bjarnason formaður
stjórnar Byggðastofnunar
sagði í ræðu að hlutverk stofnun-
arinnar væri að stuðla að þjóð-
hagslegri hagkvæmni byggðar í
landinu. I tilefni opnunarinnar
færði hann Byggðasafni Vest-
íjarða 700 þúsund krónur að gjöf
frá stofnuninni og veitti Jón Páll
Halldórsson formaður Byggða-
safnsins gjöfínni viðtöku.
Forstöðumaður Byggðastofnun-
ar á ísafirði er Aðalsteinn Óskars-
son sjávarútvegsfræðingur, en
hann kemur beint úr námi frá
Tromsö í Noregi. Með honum starf-
ar nú tímabundið Guðmundur Her-
mannsson frá Þingeyri, en hann
hefur nýlokið námi í iðnverkfræði
í Danmörku með sjávarútvegsfræði
sem sérgrein. Ætlað er að Guð-
mundur verði starfsmaður atvinnu-
þróunarfélags sem á að stofna á
Isafirði. Auk þeirra mun einn skrif-
stofumaður starfa við útibúið.
Aðalsteinn sagði i viðtali við
fréttaritara, að fyrst í stað yrði
áhersla lögð á að kynna sér aðstæð-
ur á Vestfjörðum, en hann mun
síðan gefa álit á öllum lánaumsókn-
um sem til Byggðastofnunar ber-
ast. Þó hefur hann nú þegar hafið
störf vegna Fiskiðjunnar Freyju á
Suðureyri og Suðureyrarhrepps, en
nú er beðið eftir að stjómarskipti
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Forstöðumaður Byggðastofnunar á Isafirði, Aðalsteinn Óskarsson,
(tiV.) og Guðmundur Hermannsson atvinnufulltrúi.
verði í Freyju eftir að Hlutafjársjóð-
ur kom inn í fyrirtækið á síðasta
vetri með verulegar upphæðir í
formi hlutaíjár. Framundan er svo
yfirreið þeirra félaga um alla Vest-
firði sem væntanlega mun hefjast
að loknum aðalfundi Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga sem halda á nú
um helgina.
„Okkar störf eru oftar en ekki
björgunarstörf, þannig að veruleg
áhætta hlýtur oft að fylgja aðgerð-
unum. Ég vona bara að menntun
mín komi að notum og auðvitað
horfi ég til nýsköpunar á sviði sjáv-
arútvegs og fiskiðnaðar hér vestra.
En aðalmálið er að selja vestfirska
afhafnasemi á almennum markaði.
Ég trúi að það sé hægt og bendi á
að sjá má á Vestijörðum byggðar-
lög þar sem er mikil sveifla, eins
og á Tálknafirði og Hólmavík. Þá
má ekki gleyma því að ísafjörður
er einn af sterkustu sjávarútvegs-
bæjum landsins. Fyrst þarf að setj-
ast. niður með mönnum og ræða
málin, svo er bara að bretta upp
ermar og taka til starfa,“ sagði
þessi 28 ára Hnífsdælingur sem
kominn er heim úr langskólanámi
fullur af krafti og með bjartsýnina
að leiðarljósi.
- Úlfar
VAR EINHVER AÐ TALil
Hjó okkur færðu dýnur eftir móli í öllum verðflokkum—aðeins örlítið ódýrari-með óklæði eftir þín
20kg/m3
Ódýr
bráðabirgðadýna?
27 kg/m3
Fyrir litla notkuri
35 kg/m3
Eðlileg ending,
tveir stífleikar
Stæróir i cm: VERÐ VERÐ VERÐ
70 x 200 x 9 2.898,- 3.906,- 4.838,-
70 x 200 x 1 2 3.864,- 5.208,- 6.451,-
90 x 200 x 1 2 4.968,- 6.696,- 8.294,-
1 20 x 200 x 1 2 6.624,- 8.928,- 1 1.059,-
1 60 x 200 x 1 2 8.832,- 1 1.904,- 14.746,-
LANDSÞEKKT DÝNUÞJÓNUSTA: Viö gerum meira en aó framleióa fullunnar dýnur. Vió lagfærum og endurbætum gaml-
ar svampdýnur, skiptum um áklæði og veitum ráóleggingar um val og frágang á dýnum sem henta vió mismunandi aðstæö-
ur. Síma- og póstkröfuþjónusta. Uppgefið verð er fyrir óklæddar svampdýnur og getur breyst með stuttum fyrirvara. Við