Morgunblaðið - 02.09.1990, Qupperneq 10
MORGIÍNBLAÐÍÐ SlÍNNUDAGOR '2. SEPTEMBER 1990
10 c
HE1MSVELDI
Þjódemisólga og
trúarvakning
í sovézku Miö-Asíu
VELDI Rússa í Mið-Asíu hnignar jafnt og þétt, þótt hrörnun
heimsveidis þeirra sé ekki eins áberandi þar og við Eystrasalt og
í Kákasus. Vaxandi ólgu gætir meðal Úzbeka, Kazaka, Kirgíza,
Tadsjíka, Túrkmena og fleiri þjóða Sovézku Mið-Asíu og Þær
standa í svipuðum sporum og Indverjar eða Indónesar og fleiri
þjóðir áður en þær ákváðu að kasta af sér nýlenduokinu. Ný
barátta gegn nýlendustefnu er hafín.
Þjóðaátök: hermenn í Azerbajdzhan.
Fyrr á öldum var Mið-Asía
kjarni víðlendra ríkja land-
vinningamanna á borð við
Tamerlane, en þau urðu ekki
langlíf. Rússar hernámu
ekki yfirráðasvæði íslam-
skra valdhafa í Mið-Asíu
fyrr en á árunum eftir 1860 og
breytingar á þjóðfélaginu hófust
ekki fyrr en eftir byltinguna 1917.
Tími rússneskra yfirráða kann að
verða skemmri en ætlað hefur verið.
Sumir Mið-Asíubúar vilja halda í
sovézka heimsveldið. „Við verðum
að efla þjóðarvitund okkar, en hafa
hagsmuni ríkjasambandsins í huga,
því að annars verðum við ekki leng-
ur heimsveldi," sagði Sulaiman
Kúlov, flokksleiðtogi í Frúnze í
Kirgízíu í samtali við Far Eastern
Economic Review, sem hér er stuðzt
við. Aðrir viður-
kenna að Mið-
Asíulýðveldin
minni á nýlend-
ur, en telja að
yfirvöldum í
Moskvu hafi ekki
unnizt tími til að „leiðrétta fyrri
mistök“, endurlífga gamla menn-
ingu og koma á nýrri stjómskipan.
„Ef þjóðemishugmyndir eru hunds-
aðar munu þær eflast,“ sagði
sovézkur sérfræðingur.
Hinn 20. júní lýstu Úzbekar yfir
sjálfstæði, en tóku fram að stjómar-
skrá þeirra mundi skipa lægri sess
en stjórnarskrá Sovétríkjanna.
Ríkisborgararéttur verður aðskilinn,
en engin sérstök vegabréf verða
gefin út í Úzbekistan, þótt allir íbú-
ar þess verði skráðir borgarar. Fyr-
irtæki verða áfram í eigu sovézkra
ráðuneyta. en lýðveldið mun krefja
þau um skatta. Úzbekar eiga að
geta fengið undanþágu frá herþjón-
ustu samkvæmt samkomulagi við
sovézka landvarnaráðuneytið og
samið verður við Sovétríkin um sölu
á „hemaðarlega mikilvægum" varn-
ingi, svo sem baðmull.
Trúarvakning
Áköfum þjóðernissinnum mun
tæpast fínnast nógu langt gengið
með slíkri yfirlýsingu. Kröfum um
algert sjálfstæði eykst fylgi í Mið-
Asíu og' um leið á sér stað mikil
trúarvakning meðal múhameðstrú-
armanna. Vakningin er öflug meðal
Úzbeka, Túrkmena og Tadsjíka, en
hefur ekki haft eins mikil áhrif
meðal Kazaka og Kirgíza, sem voru
áður hirðingjar.
Trú, tunga og menning sameina
íbúa Úzbekistans, Túrkmenistans,
Kazakstans og Kirgizíu og þar að
auki íbúa Azerbajdzhans, Tatara,
sem búa á víð og dreif, og sjö millj-
ónir Újgúra í Vestur-Kína. „Azerar
og Kazakar eru sama þjóðin," sagði
rithöfundur í Tasjkent eftir óeirðir
í Azerbajdzhan í janúar. „Við erum
Tyrkir, þeir eru Tyrkir. Ég skil 60%
af tungu þeirra. Við aðhyllumst
sömu trú, þótt þeir séu sjítar og við
súnnítar." Ibúar fimmtá lýðveldisins
í Mið- Asíu, Tadsjíkistans, eru líka
múhameðstrúar, en af írönsku bergi
brotnir.
Hervaldi hefur verið beitt, m.a. í
höfuðborg Tadsjíkistans, Dúsjanbe,
en það hefur aðeins eflt þjóðernis-
kenndina. Ráðamenn í Moskvu hafa
látið reka á reiðanum. Vestrænar
ríkisstjómir eru viðbúnar pólitískri
upplausn innan eins til tveggja ára.
Margir Rússar tala um að „bylting-
arástand" sé í mótun.
Stjómin í Moskvu hefur ekki bol-
magn til að örva efnahagslífið, t.d.
með því að hækka verð á gasi og
baðmull frá
Mið-Asiu. „Fjár-
lagahallinn
eykst, fram-
leiðslan dregst
saman, vinnu-
deilum fjölgar,
fyrirtæki ramba á barmi gjaldþrots
og gjaldmiðillinn er svo verðlítill að
fólk brennir rúblur í veitingahúsum
í Moskvu," segir erlendur stjórnar-
erindreki. „Allt bendir til þess að
þjóðin standi frammi fyrir alvarleg-
um samdrætti, jafnvel hmni.“
Samdráttur hefði ef til vill ekki
ýkja mikil áhrif í Mið-Asíulýðveld-
unum, sem flytja út matvæli til
annarra landshluta og stunda vöru-
skipti við Kína og Iran, en lítillar
hjálpar er að vænta frá Moskvu.
Mengun er einn helzti arfur sovét-
kerfísins. Áveituframkvæmdir og
notkun efna til að eyða skordýrum
og illgresi hafa eitrað stór svæði
og valdið heilsutjóni meðal fólks.
Aralvatn er uppþornað og vindar
feykja þaðan eitruðu salti. Margir
íbúar nálægra svæða hafa veikzt
af krabbameini og fleiri sjúkdómum.
Skurður, sem liggur yfir Kara
Kúm-auðnina frá Oxux-fljóti (Amú
Daija), er að fyllast af salti.
Höfuðborgirnar Alma Ata,
Frúnze, Asjkabad og Tasjkent eru
hörmuleg dæmi um sovézka bygg-
ingarlist. Heimamenn_ eru orðnir
færri en Rússar eða Úkraínumenn
og aðrir aðkomumenn eins og
Kóreumenn og Volgu-Þjóðverjar,
sem Stalín flutti nauðuga til Mið-
Asíu.
Utan borganna eru menntun,
heilsufar og rússneskukunnátta á
lægra stigi en látið hefur verið í
veðri vaka. Sjúkdómar og barna-
dauði eru algengari en í Evrópulýð-
veldum Sovétríkjanna. Á ári hveiju
hella hundruð ungra, giftra kvenna
yfír sig benzíni og kveikia_ í sér.
Nú er sagt að aðeins 24% Úzbeka
tali rússnesku, miðað við 48% 1979.
Stjórnmálaólga
Síðan Míkhaíl Gorbatsjov kom til
valda hafa margar hreyfíngar mú-
hameðstrúarmanna og þjóðernis-
sinna sprottið upp í Mið-Asíu. Ýms-
ar þeirra hafa orðið til vegna mót-
mæla, t.d. í Kazakstan. Þar efndi
rithöfundurinn Olzjaz Súleimenov
til útifundar í höfuðborginni Alma
Ata, þegar geislavirkt ský mynd-
aðist yfír tveimur byggðum svæðum
í febrúar 1989 eftir leka á kjarn-
orkutilraunasvæðinu við Semípal-
atínsk. Tilraunum var hætt um
haustið og síðan hefur starfað ötull
þrýstihópur andstæðinga kjarnorku.
í Frúnze voru samtökin Asjar
(Samstaða) sett á fót vegna hús-
næðiseklu. Ungir Kirgízar hófu kof-
asmíði í úthverfunum og í marz í
fyrra var þeim úthlutað lóðum.
í Úzbekistan mynduðu • Mo-
hammad Salif og fleiri rithöfundar
þjóðernissamtökin Bírlík (Einingu)
1988. Þau hófu baráttu fyrir um-
hverfisvernd, en sneru sér að eflingu
úzbekískrar tungu. Haustið 1988
efndu samtökin til útifundar og
margir nemendur komu til liðs við
þau.
Nú munu stuðningsmenn Bírlíks
vera ein milljón. Hreyfingin krefst
sjálfstjórnar og efnahagslegs sjálf-
stæðis og vill að síðan verði efnt til
þjóðaratkvæðis um fullt sjálfstæði.
Onnur helztu baráttumálin eru
bandalag fólks í Sovétríkjunum, sem
talar mál af tyrkneska málaflokkn-
um, ríkjasamband múhameðstrúar-
manna í Mið-Asíu, aukin útbreiðsla
islams og almennari notkun
arabísks leturs.
Óformleg hreyfing í Kirgizíu hélt
fjölmennan útifund í Frúnze í febrú-
ar. í ráði er að stofna nýja hreyf-
ingu og kalla hana Namus (Virð-
ing). Nemendur í Frúnze hafa
bundizt samtökum og kalla sig
„kommissara perestrojku". I
Túrkmenistan hafa nemendur sig
einnig í frammi og auk þess starfa
deildir úr samtökum í Moskvu og
svokölluðum kjósendaklúbbum.
Fáir flokkar hafa verið formlega
stofnaðir í Mið-Asíu. Aðalástæðurn-
ar eru einangrun og almenn vantrú
á því að glasnost og perestrojka séu
annað en orðin tóm. „Þingmenn
okkar greiða atkvæði með lýðræði
í Moskvu, en eru harðstjórar heima
í héraði,“ segir ungur Kirgízi.
Spilling og kúgun
Fyrir daga Gorbatsjovs var reynt
að hamla gegn þjóðernisstefnu með
því að skipa heimamenn í æðstu
embætti og láta þá í friði, ef kyrrð
hélzt og hráefni héldu áfram að
streyma. Mið-Asía varð gróðrarstía
spillingar. Sjaraf Rasjidov, aðalritari
í Úzbekistan 1959-1983, lét stóran
hluta íbúanna rækta baðmull í nauð-
ungarvinnu og milljörðum rúbina
var skotið undan þegar baðmullin
var seld. Dínmúkhamed Kúnaév
hélt uppi svipuðu kerfi í Kazakstan,
en ekki eins víðtæku.
Uppgjör við þessa spillingu varð
vatn á myllu stuðningsmanna Gor-
batsjovs. Rannsókn leiddi í ljós að
frá flokksritaranum í Bokhara lá
mútukeðja til æðstu manna flokks-
ins í Úzbekistan og þaðan til Jegors
Ligatsjevs. Gorbatsjov reyndi þó
ekki að koma höggi á þennan helzta
andstæðing sinn og kvað málið ein-
skorðast við Úzbekistan.
í staðinn var þjarmað að yfir-
mönnum rannsóknarinnar, Telman
Gdljan og Níkolaj ívanov, sem voru
reknir úr fiokknum og sviptir störf-
um. Umbætur í flokkunum í Mið-
Asíu töfðust.
Sæmilegur friður ríkir í svipinn.
Flokkurinn heldur mótmælum í
skefjum með kúgunarráðstöfunum
og reynir að innbyrða óánægjuhópa.
Hugsjónafræðingur flokksins í
Frúnze, Ísmaílóva Sagna, segir að
íjölflokkakeiTi muni einhvern tima
komast á, en telur mótmælahópana
óþroskaða. Margir þeirra séu ekki
ósammála flokknum um markmið
■i ERLEND wm
HRINGSJÁ
efiir Gudm. Halldórsson