Morgunblaðið - 02.09.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990
C 15
THAJS/Hver eru örlög blúsgítarleikara?
Vaughan fallitm
ÞEIR eru fjölmargir blústónlistarmenn sem hafa fallið frá í blóma
lifsins og reyndar virðast það á stundum vera örlög sem sérstaklega
eru ætluð þeim. Charlie Patton, Robert Johnson, Magic Sam Magh-
ett, Edward Guitar Slim Jones, John Lee Sonny Boy Williamson,
Jimi Hendrix og svo mætti lengi telja. Hvítir blústónlistarmenn hafa
einnig fallið í valinn á besta aldri og í síðustu viku lést í þyrluslysi
35 ára gamall Stevie Ray Vaughan.
Líkt og aðrir hvítir blúsgítarleik-
arar fékkst Stevie Ray við sitt-
hvað meðfram og á plötum hans
brá fyrir blús, rokki, soul, jass og
poppi. í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur mátti þó
heyra að þar fór
einn fremsti gítar-
leikari síns tíma
og af síðustu plötu
hans, sem út kom
fyrir stuttu, mátti
heyra að hann var
enn að finna tón-
list sinni nýjan far-
hafa sigrast á
Stevie Ray Vaughan fæddist í
Dallas í Texas í október 1954. Þeg-
ar hann varð sjö ára fékk hann Roy
Rogers-gítar í afmælisgjöf. Hann
hafði þann galia að ekki var hægt
að stilla hann og Stevie breytti
honum því í bassa og lék með bróð-
ur sínum Jimmie, sem lék á alvöru
gítar. Tónlistaruppeldið var Bítlarn-
ir, Muddy Waters, Buddy Guy, B.B.
King, Lightnin’ Hopkins, Wes
Montgomery, Rolling Stones, Yard-
birds og Jimi Hendrix, en í viðtali
fyrir stuttu lýsti Stevie því að hann
hafi í þá daga ekki gert upp á milli
tónlistarstefna; þetta hafi allt verið
góð tónlist. Hann lærði á gítar með
því að stæla það sem á plötunum
var og reyna að ná því á gítarinn
og setti saman sveit, Double
Trouble, sem stældi blúsrokk þeirra
eftir Árna
Matthíasson
veg eftir að
brennivínsfíkn.
í valinn
tíma. Sveitin vann sér fljótt álit í
Austin, þar sem Stevie og Jimmie
bróðir hans höfðu komið sér fyrir,
Jimmie með sveit sinni The Fabul-
ous Thunderbirds. Orð af sveitinni
barst til Rolling Stones, sem lýstu
áhuga sínum á að gera samning
við Stevie og félaga og einhvern-
veginn tókst þeim að komast að á
Monterey-jasshátíðinni þó ekki
hefðu þeir enn náð að gera plötu-
samning. A þeirri hátíð flutti sveit-
in hreint ótrúlega útgáfu á lagi
Stevies Texas Flood og meðal
áheyrenda var David Bowie, sem
varð dolfallinn. Hann fór þess á
leit við Stevie að hann léki á vænt-
anlegrj plötu sinni og John Hamm-
ond, sá hinn sami og uppgötvaði
Bessie Smith og Bob Dylan, tók
Stevie og Double Trouble upp á
sína arma og platan Texas Flood
kom út 1983.
Texas Flood hefur alla tíð síðan
verið talin með helstu blúsplötum
hvítra tónlistarmanna og á henni
sýnir Stevie Ray að hann var eng-
Stevie Ray Vaughan Goðsögn í lifanda lífi, nú allur.
inn venjulegur gitarleikari. Tæknin
var nánast ótrúleg og tilfinningin
lítið síðri. Platan seldist allvel og
eftir það varð ekki aftur snúið og
heimsfrægðin með það sem henni
fylgdi kallaði. Hið Ijúfa líf leiddi
hann út í brennivínsfíkn og reyndar
almenna dópneyslu og 1986 féll
hann saman á tónleikaferðalagi og
tók sér hvíld frá tónlistinni. Fríið
nýtti hann til að takast á við fíknina
og sigrast á henni og endurskoða
tónlist sína. Á nýju plötunni syngur
hann meðal annars um það sigrast
á fíkninni og um leið á sjálfum sér
og tónlistin var ijölbreyttari og ör-
uggari en nokkru sinni. Það var því
ljóst að hann átti mikið eftir. Stevie
sendi frá sér alls fjórar hljóðvers-
skífur og eina tónleikaplötu fram
að þyrluslysinu í Wisconsin, þegar
Stevie og sveitin var á leið af tón-
leikum Erics Claptons, þar sem
hann hafði komið fram sem gestur.
SÍGILD TÓHUST/Hvermg hlmtar
fólk á óperur?
Uppljómun á Tunglinu
ÞAÐ ER einhvern veginn þannig
hér á íslandi að það er lítil hefð
fyrir óperutónlist og margir eiga
í erfiðleikum með að skiija
hvernig í ósköpunum fólk hafi
gaman af að hlusta á óperur.
Venjulega eru óperuunnendur
einhverjir sérvitringar, hálf-
skrítið fólk, jafnvel komið af létt-
asta skeiði. Eg mátti því til með
að heimsækja Pétur Gaut Svav-
arsson þegar ég frétti á skot-
spónum að hann væri „algjört
óperufrík" og þó ekki nema 24
ára gamall. Fyrsta spurningin
var auðvitað hvernig í ósköpun-
um stæði á þessum óperuáhuga.
Aður en ég byijaði að hlusta á
óperur hafði ég óskaplega léleg-
an tónlistarsmekk, eins og svo margt
ungt fólk hefur, en þegar ég fór 'í
Myndlistarskólann, fóru líkaminn og
sálin að kalla á
meiri þroska á öll-
um sviðum. Nú, nú,
ég var að vinna í
Þjóðleikhúsinu sem
aukamaður í ljósa-
deild við uppsetn-
ingu á söngleiknum
eftir Jóhönnu V. Vesalingarnir og
Þórhallsdóttur þar hitti ég mikla
óperuunnendur sem smituðu mig
með áhuga sínum. Svo er það einn
góðan veðurdag, kvöld reyndar, þeg-
ar ég er á skemmtistaðnum Tungl-
inu, og mikil diskó-rokktónlist dunar
úr hátölurunum, að allt í einu er
sett á fóninn, Carmen eftir Bizet.
Ég fékk uppljómun og daginn eftir
fór ég útí búð og keypti Carmen með
Carreras og Agnesi Baltsa og þar
með var ég dottinn inn í óperuheim-
inn. Nú er svo komið að ég á orðið
heilmikið safn. Úr Carmen fór ég í
Verdi, II Trovatore og Don Carlos,
og Mozart kom þar á eftir. Mozart
er alveg ótrúlegur, það er t.d. ekki
til slæm aría í Don Giovanni."
Hvemig hlustar þú á óperu?
„Tónlistin grípur mig auðvitað
fyrst og ég fer svo í gegnum textann
um leið því það er nauðsynlegt að
skilja söguþráðinn og vita hvað er
verið að syngja um. Flest útgáfufyr-
irtæki gefa handritin út á 3-4 tungu-
málum. Tökum t.d. aríu Filipusar
konungs, æ þarna löngu aríuna í 4.
þætti í Don Carlos, Ella giammai
m’amo (Hún hefur aldrei elskað mig).
Þetta er stórkostleg aría þegar mað-
ur skilur textann."
Pétur Gautur Svavarsson —
Annars er ég nú bara amatör.
Nú er Pétur kominn með geisla-
disk með þessari aríu með Simon
Estes og til viðmiðunar hlustum við
líka á Nikola Gyuzelev. Pétur er
greinilega í essinu sínu og heidur
áfram: „Nikola Gyuzelev flakkar um
allar trissur. Hann var síðast í
Chigaco í Rakaranum og nýverið var
hann í Covent Garden að syngja Igor
fursta. Ég heillaðist af honum þar
sem hann leikur doctor Miracle," og
Pétur setur myndbandið í gang og
það er Demantaarían úr Hoffmann.
Ævintýri Hoffmanns er mikið
uppáhaldsverk hjá mér, því hún gef-
ur svo mikla möguleika með sviðs-
uppfærslu. Heyrðu, eigum við ekki
aðeins að hlusta á O’don fatale, með
henni Agnesi Baltsa, hún er alveg
æðisleg, hlustaðu á tóninn, hvað
hann er skýr. Þessar óperur gefa
manni svo ótrúlega mikið, þær fjalla
allar um þessar mannlegu tilfinning-
ar, ást, afbrýði, hatur o.s.frv. Það
er ekki hægt að hlusta á óperur án
þess að þær snerti mann. Ég vildi
að það væri til félag óperuunnenda
hér, þar sem væri hægt að skiptast
á óperum, jafnvel fara í hópferðir til
að horfa á óperur. Það er svo rosa-
lega dýrt að kaupa allar þessar óper-
ur og svo er erfitt að fá sumar þeirra.
Annars er ég nú bara amatör," seg-
ir Pétur og við skulum gera það að
lokaorðum hans. Ég sit þó lengi eft-
ir og við hlustum á Agnesi Baltsa
og-förum í gegnum nokkrar óperur. .
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLUNNI, SÍMI 6 8 92 1 2
kynnir hönnuðinn Saridro Magli