Morgunblaðið - 02.09.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FJOLMIÐLAR
SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990
C 21
Miklar breytingar á 19:19
MIKLAR breytingar eru á döf-
inni á 19:19, frétta- og fræðslu-
þætti Stöðvar 2, og mun árang-
urinn birtast fyrstu vikuna í
september. Þá munu Valgerður
FÓLK
i fjölmiðlum
H Um mánaðamótin hóf Ólaf-
ur E. Jóhannsson störf á frétta-
stofu Stöðvar 2 en hann var
áður fréttamað-
ur á Sjónvarp-
inu. Ólafur segir
Pál Magnússon
hafa falast eftir
sér í starfið og
eftir nokkra um-
hugsun haíl
hann ákveðið að
taka því. Hann
segist munu kveðja gamla
vinnustaðinn með söknuði þó að
vissulega taki við nýtt og spenn-
andi starf. Ólafur verður í inn-
lendum fréttum en ekki hefur
verið ákveðið hvort hann mun
sjá um ákveðna málaflokka.
OLAFUR
Matthíasdóttir og Ómar Ragn-
arsson vinna að undirbúningi
þáttaraða sem sýndar verða í
haust og á fyrstu vetrarmánuð-
um.
Fréttatími 19:19 verður lengdur
og mun standa til kl. 20.10.
í tengsium við 19:19 verða frétta-
skýringaþættir, umræðuþættir og
fréttatengt efni þijú kvöld vikunn-
ar. A mánudögum sér Helga Guð-
rún Johnson um þættina „Sjón-
aukann" þar sem rætt verður við
fólk af öllum stærðum og gerðum.
A þriðjudagskvöldum verða til
skiptis umræðuþættir i tengslum
við fréttatímann eða fréttaskýr-
ingaþættir í umsjón fréttamanna
Stöðvar 2. Á miðvikudögum mun
svo Sigmundur Ernir Rúnarsson
halda um stjórnvölinn á „Lystauk-
anum“, þætti um strauma og
stefnur í íslensku mannlífi.
Af innlendri dagskrárgerð á
næstu mánuðum má nefna þætti
Valgerðar Matthíasdóttur „Nýja
öldin“ sem fjalla um andleg mál-
efni og heilbrigt líferni. Fyrsti
þátturinn verður sýndur seinni
partinn í september og verða þeir
alls sex talsins. Þegar þáttaröð
Valgerðar lýkur, tekur Ómar
Ragnarsson við með þætti sem
bera vinnuheitið „Draumalandið“
og eru um ísland en Ómar hefur
í sumar viðað að sér töluverðu
efni í þættina.
Valgerður Matthíasdóttir
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Oasis flugfélagið þakkar
ánægjuleg viðskipti í sumar
I Nýr unglingaþáttur hefur
göngu sína á Rás 2 í dag; „Glym-
skrattinn - útvarp framhalds-
skólanema.“
Umsjónarmaður
er Jón Atli Jón-
asson, sem ætti
að vera yngri
hlustendum Rás-
ar 2 vel kunnar
en hann hefur
verið einn um-
sjónarmanna
barnaútvarps, útvarps unga
fólksins og Zikk zakk. Jón Atli
segir meginuppistöðu Glym-
skrattans verða tónlist auk þess
sem öllu hæfileikafólk innan
framhaldsskólanna er velkomið
að koma fram í þættinum. Hann
verður á dagskrá alla virka daga
og sunnudaga kl. 20.30.
■ Töluverðar breytingar verða
á mannahaldi við dagski'árgerð
Sjónvarpsins í haust. Tveir dag-
skrárgerðarmenn, Gísli Snær
Erlingsson og Eggert Gunnars-
son, hverfa til náms. Sömuleiðis
fara í nám fimm skriftur, Helga
Brá Árnadóttir, Helga Sigríður
Harðardóttir, Ragna Guðný Lár-
usdóttir, Óskar Nikulásson og
Dröfn Harðardóttir. í stað
þeirra verða ráðin einn upptöku-
stgóri, Hákon Már Oddsson, sem
hefur starfað í afleysingum á
Sjónvarpinu síðastliðið ár, og
íjórar skriftur; Ingveldur Ólafs-
dóttir, Kristín Atladóttir, Ingvar
Ágúst Þórisson og Bjarni Felix
Bjarnason.
■ MERVYN Bragg, sem
sumir munu kannast við úr við-
talsþáttum í Stöð 2, átti nýlega
fyrsta viðtalið, sem haft hefur
verið við rithöfundinn Salman
Rushdie — liöfund Söngva satans
— síðan Rushdie fór í felur í febrú-
ar 1989. Viðtalið fór fram „ein-
hvers staðar á Englandi" að sögn
Braggs og talsverð leynd hvíldi
yfir því. Myndatökumennirnir
höfðu til dæmis enga hugmynd
um hvern þeir áttu að mynda.
Viðtalið verður sýnt í þáttaröð-
inni „The Southend Show,“ sem
sumir munu kannast við, 30. sept-
ember. Fjallað verður um nýja
skáldsögu eftir Rushdie og fyrri
verk hans. Bragg sagði í samtali
við Financial Times að hann vildi
að fjallað yrði um Rushdie sem
rithöfund, en ekki sem þjóðfélags-
vandamál. Bragg spyr þó Rushdie
nokkurra spurninga um það sem
hann hefur orðið að þola og segir
að liann hafí ekki látið hugfallast.
og býður 66 heppnum íslendingum ódýr sæti til Spánar
Oasis ílugfélagið hefur nú flogið rneð 4.439 íslendinga í sólina í sumar
og þakkar fyrir viðskiptin með því að bjóða sérstakan afslátt þann 6., 11. og
18. september til að kynna þjónustu sína. Við hjá Veröld viíjum leggja okkar
af mörkum og bjóðum bestu gististaðina okkar á þessum frábæru kjörum.
Costa del Sol
Mallorka
Sunset Beach Club 6. september 18 sæti
Benidorm
Los Gemelos
Club Levante 6. september 14 sæti
Ogverðið...
Til þess að allir sitji við sama borð þá bjóðum við allsstaðar
sama verðið á meðan sæti eru til, hvort sem er til Benidorm,
Costa del Sol eða Mallorka.
Paraiso de Alcudia 11. september 16 sæti
18. september 18 sæti
4 fullorðnir í íbúð 39.900,-
3 fullorðnir í íbúð 44.500,-
2 fullorðnir í íbúð 49.900,-
Barnaafsláttur
2- 5 ára 18.000,-
6-11 ára 15.000,-
12-15 ára 10.500,-
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK , SÍMl: (91) 62 22 00 & 622 011
EjilH
Verð í 2 vikur