Morgunblaðið - 02.09.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SAIVISAFRÍIÐ ll'fk'UDAGim 2. SEPTEMBER 1990
C 35
Rokkdansinn stíginn í Silftirtunglinu við Snorrabraut.
I rokkinu þótti tilheyrandi að fara í „splitt“ þegar hljóðfallið bauð upp á slík tilþrif og eins og sjá má
lætur Sæmi sig ekki muna um það frekar en annað sem tilheyrði þessum dansi.
SÍMTALID...
ER VIÐ PJETUR HAFSTEIN JuÁRUSSONSKÁLD
Forríkir
Ijóðormar
19137
„Humm...“
— Góðan dag. Kristján Þor-
valdsson heiti ég, blaðamaður á
Morgunblaðinu. Er það Pjetur
Hafstein Lárusson?
„Já, sælir. Leyfist mér að ná í
öskubakka?"
— Gjörðu svo vel.
— Pjetur, ég sé að þú ert bendl-
aður við svokallaðan Ljóðorm.
Hverslags ormur er þetta?
„Ljóðormur er tímarit, sem
birtir ljóð og efni um ljóð. Það
hóf göngu sína í Stykkishólmi
árið 1985. Fyrsta tölublaðið var
prentað hjá þeim ágætu klaustur-
systrum þar.“
— Segir það eitthvað um and-
ann í þessu riti?
„Ég hef aldrei fengið viður-
kenningu á því, hvorki frá kaþó-
likkum, vottum Jehóva, né frá
Hjálpræðishernum. Og hefur þó
mikið verið eftir henni sóst.“
— Hvernig er staðið að útgáf-
unni?
„Upphaflega var ætlunin að
þeir höfundar sem ættu efni í
hverju tölublaði
kostuðu fyrirtæk-
ið. Þannig byijuð-
um við Sigrún
Ragnarsdóttir með
þetta tímarit, en
síðan varð til rit-
nefnd. Að henni
standa auk mín
þau Eysteinn Þor-
valdsson, Heimir
Pálsson, Þórður
Helgason, Vigdís
Grímsdóttir og
Sigrún Ragnars-
dóttir. Steinunn
Sigurðardóttir var
einnig í ritnefnd,
en það er eitthvað á huldu hvort
hún er þar ennþá.“
— Hvernig höfundar fá birt
efni í ritinu?
„Við höfum verið með þekkt
skáld, Stefán Hörð Grímsson, Jón1
Óskar, Baldur Óskarsson, Þor-
stein frá Hamri, Jón úr Vör og
Vilborgu Dagbjartsdóttur, svo
dæmi séu nefnd. Einnig höfum
við verið með yngri skáld sem
hafa verið að skjóta upp kollinum,
og nokkrir hafa birt sín ljóð í
fyrsta sinn í Ljóðormi. Við höfum
líka verið með þýðingar og næsta
blað, það tíunda sem kemur út,
verður eingöngu helgað þeim.“
— Verða menn ríkir af svona
útgáfu?
„Jú, menn verða forríkir í and-
anum. Það er mjög auðvelt að
halda þeim auðæfum við, þar sem
ríkisstjórninni og svokölluðum
aðilum launamarkaðarins er vita-
vonlaust að fá okkur í þjóðarsátt
um andlegt hungur. Við tölum
nefnilega ekki við hvern sem er,
— erum vönd að virðingu okkar.“
—Þið eruð þá engin hungur-
skáld?
„Síður en svo.
Hvað hinn pen-
ingalega þátt varð-
ar, þá tók Iðunn
að sér fyrir tveim-
ur árum að fjár-
magna útgáfuna."
— Þannig að
ljóðormar lifa vel
af veturinn?
„Já, mjög svo.“
- Jæja, ég
þakka þér fyrir
spjallið Pjetur og
vonandi gengur
allt að óskum.
„Ég þakka þér
fyrir, vertu bless-
aður.“
ÁRIÐ 1979 brydduðu veitinga-
staðurinn Hollywood og SAM-
útgáfan upp á þeirri nýjung í
fegurðarbransanum að efna til
keppninnar Ungfrú Hollywood.
Sú fyrsta sem hlaut þann titil
var Auður Elísabet Guðmunds-
dóttir en verðlaunin voru ferð
vestur um haf til Hollywood og
fór svo áð stúlkan ilengdist þar
í nokkur ár. En hvar ætli Auð-
ur Elísabet ali manninn í dag?
Auður Elísabet er útivinnandi
húsmóðir, hún vinnur hálfan dag-
inn í tískuversluninni Kókó í
Kringlunni en sinnir þar fyrir utan
tveimur ungum dætrum sínum
sem hún og maður hennar Sveinn
Sveinsson eiga. Þau reka síðan
saman fyrirtækið Plús-film og
hefur hún unnið að stöku verkefn-
um fyrir það enda menntuð í föðr-
un fyrir kvikmyndir.
Aðspurð um það helsta sem á
daga hennar hefur drifið frá því
hún var kjörin Ungfrú Hollywood
segir Auður að fyrstu fjögur árin
hafi hún stundað nám í Banda-
ríkjunum en síðan unnið þar um
skeið. „Ég lærði þar föðrun fyrir
kvikmyndir og fór svo að vinna
hjá þeim Sigurjóni Sighvatssyni
og Steve Golin sem nú reka
Propaganda-film,“ segir Auður.
„Ég vann við fyrstu kvikmyndina
sem þeir gerðu og hér Hard Rock
Zombies en aðallega var um að
ræða vinnu við rokkmyndbönd."
Auður fluttist aftur til íslands,
ásamt manni sinum og dóttur,
árið 1986 og þá stofnuðu þau
saman fyrirtækið Plús-film. „Við
eignuðumst aðra dóttur ári seinna
HVAR
ERU ÞAV
NÚ?
Hvar eruþau núf Aubur
Elísabet Gudmundsdóttir
ungfrú Hollywood 1979
Útivinnandi
húsmóðir
og þá hætti ég mikið til að vinna
í fyrirtækinu þótt maður hafi grip-
ið í þá vinnu af og til. Við höfum
unnið mikið fyrir ferðaskrifstofur
og því hafa ferðalög verið tíð hjá
okkur undanfarin ár.“
Helsta áhugamál Auðar í gegn-
um árin hefur verið hestamennska
en bæði foreldrar hennar og
Sveins eru mikið hestafólk. Um
síðustu helgi fór hún þannig í
þriggja daga reiðtúr, frá Lands-
sveit í bæinn. „Ég hef ekki átt
mörg áhugamál önnur en hesta-
mennsku enda finnst mér hún
mjög gefandi áhugamál," segir
Auður.
Þess má geta hér að keppnin
Ungfrú Hollwood var endurvakin
í vetur eftir nokkurra ára hlé og
var Auður Elísabet þá í dómnefnd-
inni. Hvað framtiðina varðar seg-
ir Auður að þau hjónin muni ör-
ugglega hafa vetursetu hér á landi
í ár en hinsvegar sé alltaf volgt
í þeim að flytja utan aftur. „Við
höfum oft rætt um það að flytja
utan en það eru ekki meir en
umræður enn,“ segir Auður.
„Enda erum við nú með tvö ung
börn og það setur strik í reikning-
inn.“
Frá krýningar-
kvöldinu fyrir 11
árum. Það var Þór-
unn Stefánsdóttir
sem krýndi Auði
Ungfrú Hollywood
1979.
Auður Elísabet IKókó.
-I