Morgunblaðið - 07.09.1990, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
11
óþreytandi í norrænu menningar-
samstarfi. Með henni í nefndinni
eru Lars-Ake Engblom, forstjóri
Norræna hússins og Sigrún Val-
bergsdóttir, fulltrúi menntamála-
ráðuneytisins.
Ljóst er að mikil vinna hefur
verið lögð í að gera íslensku dag-
skráratriðin sem best úr garði og
verður forvitnilegt að fylgjast með
þeim. En það er ýmislegt annað sem
kemur til með að vekja athygli.
Meðal þess sem undirritaður vildi
síst af öllu missa af er dagskrá
Heidi von Born um Margaret At-
wood „rithöfundinn sem er
Kanada". Einnig mætti nefna dag-
skrá um Barcelonaborg, „miðju
heimsins" og samtal um Eystra-
saltlönd og Katalóníu, samveru með
brasilískum rithöfundum sem við
vitum alltof lítið um og kynni af
Leikhúsi ljóðsins í Moskvu.
Eflaust fýsir marga að hlusta á
Willy Brandt ræða á norsku um
stjórnmálaferil sinn og Þýskaland
samtímans. Ekki er heldur ólíklegt
að glæpasagnahöfundurinn breski,
P.D. James, dragi að sér athygli.
Því miður verður gestur á Bóka-
og bókasafnastefnunni að velja og
hafna, getur ekki notið alls sem á
boðstólum verður. Hitt er svo annað
mál hvað dagskráin skilur eftir,
hvaða gildi allt tilstandið hefur.
Vonandi mun hlutur íslands verða
góður, að minnsta kosti er hér rétt-
ur vettvangur til að beina sjónum
manna að menningarviðleitni Is-
lendinga.
Undir orð Önnu Einarsdóttur er
óhætt að taka að betra tækifæri
fáum við íslendingar ekki til að
kynna íslenskar bókmenntir erlend-
is og greiða þeim götu inn á norræn-
an markað. Hún benti m. a. á þann
fjölda bókavarða alls staðar frá á
Norðurlöndum sem auk annarra
áhrifamanna kemur til Gautaborg-
ar.
Bok och Bibliotek sem stendur
að Bóka- og bókasafnastefnunni er
einkafyrirtæki og er forstjóri þess
Svíinn Bertil Falck. Stjórnin er skip-
uð norrænum fulltrúum og situr
Anna Einarsdóttir í henni fyrir ís-
lands hönd. Meðal stjórnarmanna
er Ann Sandelin sem nú stýrir
menningarsetrinu á Hanaholmen í
Finnlandi, en var áður forstjóri
Norræna hússins í Reykjavík.
einkum sveitunum. Til undantekn-
inga má telja langa og ýtarlega
ferðasögu frá Hornströndum.
Konur eru enn í minnihluta meðal
höfunda. Hins vegar vekur at-
hygli hve ungt fólk er áberandi í
þessari Húnavöku. Flest mun það
vera skólagengið. Ekki er þó sýnt
að hinir eldri skrifi verr, enda þótt
þeir hafi einungis forframast í
skóla lífsins sem svo er kallað.
Stíll sprettur ekki af lærdómi held-
ur af skapgerð: sjálfsaga og dóm-
greind.
Þó minningarorð séu oft yfir-
borðskennd er ekki svo um ævi-
ágrip þeirra Húnvetninga sem lét-
ust á fyrra ári og birt eru í þess-
ari Húnavöku. Miklu fremur auka
þau fræðigildi ritsins, kunna enda
að þykja merkileg þegar frá líður.
En meðal látinna var Sigurjón
Oddsson sem lengi bjó á Rútsstöð-
um, góðkunningi Lárusar í
Grímstungu; kjarnakarl sem
ferðamenn hittu tíðum á Hvera-
völlum á árum áður. Þetta voru
erfiðismenn en réðu tíma sínum
sjálfir og voru því frjálsir ferða
sinna. Og fjallamenn miklir. Og
komust hátt á tíðræðisaldurinn!
Um frágang og útlit þessarar
Húnavöku er flest jákvætt að segja
nema hvað Efnisyfirlit hefur óvart
lent inn í miðjum formála. Fag-
maður sá, sem vann það verk,
þarf að fá sér ný gleraugu sem
fyrst!
Myndir margar eru í ritinu, þar
með taldar landslagsmyndir í lit.
Þeirra á meðal er tylft litmynda
frá Hornströndum. Það má kalla
að bera í bakkafullan lækinn, svo
víða sem því landsvæði hafa verið
gerð skil á undanförnum árum í
máli og myndum. Nóg ætti að
vera myndefnið innanhéraðs.
^^FAXAFENI 14, NÚTÍÐ, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR 687480, 687580 O OG 37878
Innrítun daglega
frá kl. 10-20
Svona gerum við
Þaö sem vió kennum í vetur:
Barnadansar
gamlir og nýir er undirstaða fyr-
ir allan samkvæmisdans. Söng-
dansar og leikir og splúnkunýr
barnadans, verðlaunadans frá
Danmörku í sumar, Barna-
Lambada, sem Henny hefur
aðlagað íslenskum börnum.
Gömlu dansarnir
verða í vetur á föstudagskvöld-
um og auk gömlu, góðu dans-
anna, eins og vínarkrus, polka,
skottís, marsúrka, ræls og m.fl.,
dönsum við þar „party-dansa“
og gamla enska og danska
dansa, sem við ein kennum.
þar sem grunnurinn er 10 dans-
arnir í heimskerfinu. Fyrir börn,
unglinga og fullorðna. Þar geta
pörin, hjónin og vinirnir komið
saman og átt skemmtilega
kvöldstund í góðra vina hópi því
mikið er lagt upp úr félagslega
þættinum um leið og við öðl-
umst öryggi á dansgólfinu og
umgengni við annað fólk.
Skemmtilegir tímar. Allt það
nýjasta fyrir keppnisdansara.
Frábærir gestakennarar vænt-
anlegir ívetur.
®EPP
fyrir alla stráka og stelpur, unga
og gamla. Madonna verður með
í lagavalinu. Nýir dansar.
Mikiðfjör.
Suður-
amerískir
dansar
j 1 1 dansa og Mambo, Boggie, Salsa eru uppáhaldsdansar margra og enn fáum við nýjan dans í vetur, Soca, upprunninn frá eyjunum í Karíbahafinu, arftaki Lambada. Sértímar fyrir 10-12 ára og 13-16 ára. Rock’n Roll
rieln!
borgarar
- Kaffikvörnin
þar sem kaffið er á könnunni
og dansað á milli sopanna og
spjalls, verður á föstudögum kl
16 í vetur. Dönsum létta og
skemmtilega dansa og hittum
góðafélaga.
Jazzleikskólinn
ersérgrein okkar.
Þarfæreinstaklingurinn, börn
3ja-6 ára, að njóta sín óþvingaður
á dansgólfinu. Síðan við byrjuðum
á Jazzleikskólanum fyrir 6 árum,
hefur það sýnt sig og sannað,
að þörnin fá góða undirstöðu í
tónlist og fyrir allan dans til
áframhaldandi náms.
Spennandi leikdansar, sem
börnin sýna ívor.
Jazzleikskólinn er sérgrein okkar.
Varist eftirlíkingar.
Jazzdans - Discojazz
-Freestyle
fyrir alla, sem vilja hreyfa
sig eftir nýjustu lögunum
„Vouge“ og „Hip-Hop“
og læra nýja dansa.
er alltaf einn af tískudönsunum.
Allir muna eftir lagi eins og
„Rock around the Clock". Við
erum með fjöldan allan af nýjum
sporum og samsetningum, m.a.
eftirgestakennara okkar, Per
Henckell, og konu hans, Kittyfrá
Danmörku, en þar kynntum við
okkur allt það nýjasta í rokk-
dansinum. Yngsta rokkpar
landsins kemur nýjum nemend-
um á sporið á kynningardegin-
um í Faxafeni 14 kl. 16 á sunnu-
dag.
Félagasamtök og starfsmannahópar verða
að hafa samband við okkur sem fyrst.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Raðgreiðslur
og annað.
Foreldrar: Gefið barninu ykkar bestu fáan-
legu undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í
öllum dansi og tónlistarnám.
ídansinum er lífsgleði og þar er holl og góð hreyfing.
/ danstímunum ert þú / góðum félagsskap.
FAXAFEN114. HÚSIÐ NÚTÍÐ O
<►^0
Faglærðir danskennarar.
Nýtt húsnæði, sem liggur vel við íbúðarhverfum borgarinnar. Tveir kennslusalir. Næg bílastæði. Grensásstöð SVR er stutt frá.