Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 19 œztzzr...,>w ----------æl---- ~ T • j • n . . Morgunblaðið/Bjami Guobjorg Lind við eitt verka sinna. Guðbjörg Lind sýnir í Nýhöfn Þessa dagana stendur yfir sýning á myndverkum barna í Gerðubergi. Gagn og gaman í Gerðubergi GUÐBJÖRG Lind opnar mál- verkasýningu í Listasalnum Ný- höfn, Hafnarstræti 18, laugar- daginn 8. september klukkan 14-16. Á sýningunni eru málverk unnin á sl. tveimur árum. Hörður Torfason trúbador, held- ur sinn árlega haustkonsert í Norræna húsinu, föstudags- kvöld. Sögur við torgið HINN árlegi haustkonsert Harð- ar Torfasonar trúbadors, verður að þessu sinni haldinn í Norræna húsinu, í kvöld föstudagskvöldið 7. september klukkan 21. Á efnisskrá tónleikanna eru lög og textar eingöngu eftir Hörð, ólíkt því sem hann er vanur, að leggja áherslu á eigin lagasmíðar við ljóð annarra skálda. Þessir textar Harðar og lög sem flutt verða á konsertnum eiga það sameiginlegt að hafa ekki komið út á hljómplötum og tengir Hörður þá saman sem heild og kallar kons- ertinn „Sögur við torgið“ með und- irskriftinni: „Undir þessum stjörnu- skara standa menn bara ... og stara.“ Stjórnarráðið: Lokaðeft- ir hádeg’ið Vegna útfarar Geirs Hall- grímssonar, fyrrverandi for- sætisráðherra, verður Stjórnar- ráð íslands lokað eftir hádegi í dag, föstudaginn 7. septem- ber. Guðbjörg Lind er fædd á ísafirði árið 1961. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist úr málaradeild 1985. Þetta er fjórða einkasýning Guð- bjargar en hún hefur einnig tekið þátt í samsýningum. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá klukkan 10-18 og frá klukkan 14-18 um helgar. Lokað á mánudögum. Henni lýkur 26. september. Isafjörður: Tolli sýnir í Slunkaríki ÞORÁKUR Kristinsson, Tolli, opnar sýningu á verkum sínum í Slunkaríki Isafírði, þann 8. sept- ember klukkan 15. Tolli mun sýna þar steinþrykk, myndir unnar í serigrafiu og ný olíumálverk. Steinþrykksmyndirnar vann Tolli á hinu þekkta UM stein- þrykksverkstæði í Kaupmannahöfn fyrr á þessu ári og er þetta í fyrsta sinn sem Tolli heldur sýningu á verkum þessum. Sýningin verður opin til 23. september. Þess má geta að Tolla hefur ver- ið boðið að sýna verk sín í Æveiro í Portúgal seinna í þessum mánuði og þá mun hann opna sýningu í Korean Art Gallery í Seoul í Suður Koreu í október nk. Þorlákur Kristinsson, Tolli. ÞESSA dagana stendur yfir sýn- ing á myndverkum barna í menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Verkin voru unnin í listsmiðjunni Gagn og gaman í sumar og eru viðfangsefnin þrjú; hafið, blóm og ekki er allt sem sýnist. , Laugardaginn 8. september verð- ur leiðsögn um sýninguna, starfs- maður listsmiðjunnar kynnir að- ferðir hennar og markmið. Sýningin verður opin klukkan 10-21 mánudag-fimmtudags en klukkan 13-16 á föstudögum og laugardögum, en henni lýkur þann 8. september. Aðgangurerókeypis. SUMIR ERU EINFALDLEGA BETRIEN AÐRIR Enn einu sinni hefur verið leitt í Ijós, að Mitsubishi Colt/Lancer hafa meira rekstraröryggi en aðrir bílar í sama stærðarflokki. í árlegri könnun, sem hinn virti félagsskapur ADAC (Félag bifreiöaeig- enda í V-Þýskalandi) lætur gera á bilanatíðni bifreiðaaf öllum tegund- um og gerðum, kom fram að í flokki smærri fólksbíla reyndust Mitsu- bishi Colt/Lancer hafa lægsta bilanatíðni. Athuganir náðu yfir fyrstu þrjú notkunarár þeirra bifreiða, sem valdar voru í könnunina, en tals- verð aukning er nú á bilanatíðni bifreiða almennt á þýsku vegunum og sinntu hjálparsveitir ADAC 1,3 milljónum beiðna um aðstoð sl. ár. Á sama tíma lækkaði enn bilanatíðni bllanna frá Mitsubishi, og er þetta í sjöunda sinn, sem áðurnefnd samtök setja Mitsubishi bifreiðir í efsta sæti á lista sinn yfir rekstraröryggi bifreiða. MITSUBISHI COLT/LRNCER A MITSUBISHI MOTORS Mitsubishi Colt HF i Laugavegi 170 -174 Simi 695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.