Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBBR 1990
Njósnaforingi á þing
iteuter
Oleg Kalugin, fyrrverandi hershöfðingi og njósnafor-
ingi í sovésku öryggislögreglunni, KGB, hefur verið
kjörinn á þing og nýtur nú friðhelgi sem þingmað-
ur. Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hafði
svipt hann orðum og titlum fyrir að gagnrýna KGB
og fyrrverandi yfirmenn hans höfðu hafið málssókn
gegn honum fyrir að hafa vegna vanhæfni komið
upp um mikilvægan KGB-njósnara.
Gorbatsjov heimsækir Japan:
Hagur Breta á miðj-
um aldri aldrei betri
Sovétmenn til við-
ræðu um Kúríl-eyjar
Tokyo. Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði
í Moskvu í gær eftir fund með Toshiki Kaifu, forsætisráðherra
Japans, að Sovétmenn væru reiðubúnir að ræða kröfur Japana
um tilkall til fjögurra eyja en ágreiningur um þær hefur valdið
miklum stirðleika í samskiptum ríkjanna allt frá heimsstyrjöldinni
síðari.
Þetta er fyrsta afdráttarlausa
yfirlýsing Sovétmanna um að
hægt verði að komast að mála-
miðlun um eyjarnar sem Rauði
herinn tók herskildi í lok seinni
heimsstyijaldarinnar. Ekki hefur
enn verið gengið frá friðarsátt-
mála milli ríkjanna vegna málsins.
A fundi Shevardnadze og Kaif-
us var einnig til umræðu efna-
hagsaðstoð Japana við Sovétmenn
en ekki náðist samkomulag um
hana. Þá var tilkynnt um heimsókn
Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleið-
toga til Japans í apríl á næsta
ári. Sovéskur þjóðarleiðtogi hefur
aldrei heimsótt Japan en þjóðirnar
hafa fjórum sinnum átt í stríði á
þessari öld.
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Fnmannssym, frettantara Morgunblaðsins.
ALDURSHÓPURINN 45 til 54 ára verður auðugasti aldurshópur
bresku þjóðarinnar á síðasta áratug aldarinnar að því er segir í
nýrri spá rannsóknarstofnunar um félagslegar breytingar i Bret-
landi.
Arin eftir seinni heimsstyrjöldina flogna".. Framfarir í læknavísind-
voru mikið barnsfæðingaskeið í
Bretlandi eins og víðar. Nú er það
fólk, sem fæddist þá, að komast á
miðjan aldur. Stofnunin Henley
Centre for Forecasting spáir því,
að þessi hópur muni öðlast meira
efnahagslegt vald en nokkur annar
aldurshópur.
Árið 1995 er spáð, að fleiri neyt-
endur verði eldri en 45 ára en yngri
en þrítugir. Árið 2000 verða 7,6
milljónir Breta á aldursbilinu 45-54
ára, sem er 1,8 milljón fleiri en í
ár. Þessi kynslóð hefur alist upp
við meira frjálslyndi um lífshætti
en fyrri kynslóðir og í neyslusamfé-
lagi, sem á sér sennilega engan
sinn líka. Hún er fágaðri, mennt-
aðri og fyllri sjálfstrausts en fyrri
kynslóðir. Konur í þessum hóp hafa
nýtt sér tækifæri á vinnumarkaði
í ríkari mæli en áður.
Allar þessar staðreyndir hafa í
för með sér breytt viðhorf þessa
aldurshóps. Fólk í kringum fimm-
tugt er í blóma lífsins, en situr
ekki eftir með „ungana alla
T€C
STEREO
LIT5JÓNVARPSTÆKI
um hafa lengt meðalævina og sjálft
lítur fólkið í þessum aldurshóp ekki
svo á að ellin sé á næstu grösum.
Þetta fólk hefur flest greitt eigin
hús og það er aldurshópurinn, seift
erfir mestan auð. Talið er, að árið
2000 muni 10,6 milljarðar sterl-
ingspunda eða um 1.170 milljarðar
ÍSK erfast í Bretlandi. Búist er
við, að þetta fólk starfi lengur en
nú tíðkast vegna fækkunar ungs
fólks á vinnumarkaði, sem styrkir
enn efnahagslega stöðu þess.
Þessi breytta aldurssamsetning
þjóðarinnar hefur í för með sér
breytta félagsmálastefnu ríkisins
og breyttar áherslur á neyslumark-
aði. Það er talið nauðsynlegt að
endurskoða lög um eftirlaunaaldur
til dæmis og eftirlaun. Búast má
við breyttum áherslum í markaðs-
setningu vara. Talið er að hús-
gagnaframleiðendur muni njóta
góðs af velgengni þessa hóps og
sömuleiðis bílaframleiðendur og
ferðaþjónusta.
í skýrslunni er nefnt sem dæmi
um fyrirmynd þessa hóps, að Mick
Jagger, söngvari hljómsveitarinnar
Rolling Stones, sem er 47 ára,
hafi nýlega farið í hljómleikaferða-
lag með hljómsveitinni og enginn
ætti von á, að það yrði lokaferðin.
Það væri ólíklegt annað en þessi
kynslóð nýtti tækifærin, sem henni
byðust.
„Með þessu móti má styrkja
réttarfarið og mönnum, sem staðið
hafa utan við lögin, gefst tæki-
færi til að bæta ráð sitt,“ sagði
Gaviria í sjónvarpsútsendingu. í
áætlun hans er komið til móts við
kröfur eiturlyfjabaróna, sem þeir
settu í janúar þegar þeir buðust
til að binda endi á eiturlyfj astríðið
gegn yfirvöldum og gefa sig fram
ef þeir yrðu ekki framseldir. Þeir
lýstu yfir vopnahléi í júlí í stríðinu
sem þá hafði kostað hundruð
manna lífið í sprengjutilræðum og
skotbardögum. Forveri Gaviria í
embætti, Virgilio Barco, hafði til-
boð eiturlyfjabarónanna að engu.
í áætlun Gaviria eru eiturlyfja-
salar hvattir til að gefa sig fram
og segja til annarra eiturlyfjasala.
Þeir verða að koma fyrir dómara,
viðurkenna glæpi sína, láta af
hendi vopn og ólöglegar eignir og
veita upplýsingar um aðra glæpa-
menn. I staðinn yrðu fangelsis-
dómar yfir þeim styttir um allt að
helming.
í áætluninni er komið mjög til
móts við kröfur eiturlyfjasalanna
sem segja hættuna á framsali sínu
hafa verið aðalástæðuna fyrir því
að þeir fóru í stríð við yfirvöld.
Þeir óttast framsal til Banda-
Kólombía:
Reuter
Cesar Gaviria, forseti Kólombiu,
les tilboð sitt upp í sjónvarpi á
þriðjudag.
ríkjanna þar sem þeirra bíður löng
fangelsisvist.
Áætlunin er yfirvöldum í
Bandaríkjunum ekki að skapi því
þau krefjast framsals Pablos Esco-
bars, forsprakka Medellin-eitur-
lyíjahringsins, auk annarra eitur-
lyfjabaróna.
Stjórnmálaskýrendur hafa efa-
semdir um hvernig yfirvöldum i
Kólumbíu eigi að takast að dæma
umsvifamestu eiturlyijabarónana
og hvernig þau ætla að vernda þá
sem veita upplýsingar. Áram sam-
an hafa eiturlyijabarónar komist
hjá fangelsisvistun með því að
myrða vitni og múta embættis-
mönnum dómskerfisins.
Bogota. Reuter.
CESAR Gaviria, forseti
Kólombíu, hefur heitið eitur-
lyíjasölum, sem gefa sig fram,
styttri fangelsisdómum en ella
og því að þeir verði þá ekki
framseldir. Hann sagði að tekið
yrði vægðarlaust á málum
þeirra sem ekki tækju boði hans
og tilkynnti jafnframt að þrír
menn, sem grunaðir eru um eit-
urlyfjasölu, yrðu framseldir til
Bandaríkjanna. Þetta eru fyrstu
aðgerðir Gaviria í baráttunni
gegn eiturlyfjasölum síðan
hann tók við embætti forseta
fyrir u.þ.b. mánuði. Tilkynnt
var um þær á þriðjudag og er
markmið þeirra að sundra sam-
stöðu eiturlyfjabaróna. Gaviria
hefur einnig heitið því að
styrkja stoðir dómskerfis lands-
ins.
Kóreuríkin:
Lítt miðaði í viðræð-
um forsætisráðherra
Seoul. Reuter.
FUNDI forsætisráðherra Norður- og Suður-Kóreu lauk í Seoul í gær
án þess að nokkuð hefði miðað í samkomulagsátt í helstu deilumálum
ríkjanna.
Talsmaður stjórnvalda í Suður-
Kóreu sagði að viðræður forsætis-
ráðherranna hefðu í sjálfu sér verið
merkur áfangi en svo háttsettir
fulltrúar ríkjanna hafa ekki áður
komið saman til fundar frá því
Kóreuskaganum var skipt upp í tvö
ríki eftir heimsstyijöldina síðari.
Maður að nafni Hong Sung-chul,
er stjórnar ráðuneyti sameiningar-
Tlutcuzcv
Hcílsuvörur
nútímafólks
mála sunnanmanna sagði að afráð-
ið hefði verið að efna til frekari
viðræðna m.a. um hugsanlega aðild
Kóreu-ríkjanna að Sameinuðu þjóð-
unum. Þá yrðu málefni fölskyldna
er Kóreu-stríðið sundraði einnig
tekin til skoðunar í þeirri von að
ynnt reyndist að sameina ættmenni
á ný.
Yon Hyong-muk, forsætisráð-
herra, Norður-Kóreu lauk heimsókn
sinni með því að sækja heim Roh
tae-woo, forseta Suður-Kóreu, í
embættisbústað hans í Seoul, sem
norðanmenn jöfnuðu við jörðu á
dögum Kóreustríðsins. Mun Roh
hafa lýst áhuga sínum á að eiga
viðræður við Kim Il-sung, leiðtoga
kommúnista í Norður-Kóreu, hið
fyrsta.
28 FIATUR FERKANTAÐUR SKJÁR. FÍN UPP-
LAUSN. SKIPANIR BIRTAST Á SKJÁ. ÞRÁÐLAUS
FJARSTÝRING, BEIN TENCING FYRIR MYND-
ÖANDSTÆKI, TENGING FYRIR HEYRNARTÓI./
AUKA HÁTAIARA. SVEFNROFI.
SUMARTILBOÐKR. 69.950 stgr.
RÉTT VERÐ KR. 84.350 stgr.
20" MONO M/FJARST. TILB. 35.950 stgr.
RF.TT VERÐ 42.750 sigr.
14" MONO M/FJARST. TILB. 23.950 stgr.
RETT VERÐ 28.800 slgr.
10" 12 VOLT og 220 VOLT
í SIÍMARBÚSTAÐINN EÐA ELDHÚSIÐ
TILBOÐ 33.950 stgr.
RETT VERÐ J8.000 sigr.
5 ÁRA ÁRBYRGÐ Á MYNDLAMPA
35 Afborgunarskilmálar jjj[] VÖNDUÐ VERSLUN
IHJÓKÍCO FAKAFEN 11 — SIMI 688005 !
Eiturlyúasölum gert
tilboð gegn uppgjöf