Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að vinna að úrlausn
ákveðinna vandamála í dag, og
það tekst þér með ágætum. Þú
átt gott með að einbeita þér og
hugsa skýrt og það færir þér
umtalsverðan ávinning.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffó
Tjáðu hug þinn allan í dag og
dragðu ekkert undan. Forðastu
þá freistingu að draga þig inn i
skelina og þiggðu heimboð sem
þér berst núna. Ræddu við böm-
in þín.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Vinir þínir tefja fyrir þér núna.
Þú heldur nokkur samkvæmi
heima hjá þér á næstu mánuðum.
Dragðu ekki að taka ákvörðun
um málefni sem snertir heimili
þitt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HSB
Þú ferð bráðum í ferðalag sem
reynist hið skemmtilegasta. Það
er ekki víst að þér berist strax
svörin sem þú bíður eftir. Þú ert
bæði skapandi og mikill drif-
kraftur í þér núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kemst ekki í ferðalag eins og
stendur vegna anna í vinnunni.
Dómgreind þín í fjármálum er
með afbrigðum skörp um þessar
mundir.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú bætir útlit þitt á næstu vikum
og hlýtur mikla athygli og hrós
fyrir vikið. Hugsun þín er afar
skýr í dag.
(23. sept. - 22. október)
Þig langar til að verja meiri tíma
með ástvini þínum en þú átt
kost á núna. Þú vegnar vei í dag
og þar vegur þyngst á metunum
andlegt atgervi þitt .
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Eihleypingar kynnast rómantík-
inni á næstunni. Láttu vini þína
ganga fyrir í dag. Hafðu athygl-
ina vakandi í vinnunni.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) ^3
Einkaviðræður liðka fyrir við-
skiptum. Þú hiýtur viðurkenn-
ingu í starfi á næstu mánuðum.
Eyddu hugsanlegum misskiln-
ingi með hreinskiptnum viðræð-
um .
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú tekur ákvörðun vegna mennt-
unartækifæris sem þér stendur
til boða núna. Sumir kynnast
rómantíkinni úr fjarlægð. Þú
verður fyrir töfum vegna ein-
hvers sem þú þarft að koma í
verk heima fyrir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Farðu yfir fjármálin með endur-
skoðandanum þínum. Hjón eru
sammála um hvernig þau ætla
að veija sameiginlegum fjármun-
um sínum. Eihver sem þú átt
skipti við er óáreiðanlegur.
Fiskar
(19. febrúar — 20. mars)
Gerðu upp málin við samverka-
menn þína. Þú verð óvenjumikl-
um tíma með ástvini þínum á
komandi vikum. Það reynist þér
auðvelt að ná samkomulagi.
AFMÆLISBARNIÐ á auðvelt
með að sjá samhengi hlutanna,
en er stundum fullgagnrýnið á
annað fólk. Það er haldið vissri
fuilkomnunaráráttu og verður að
vara sig á að krefjast of mikils
af öðrum. Það á auðveldara með
að vinna eitt á báti en með öðr-
um. Það hefur glöggan skilning
á þjóðfélagslegum aðstæðum
fólks og yrði því ágætur sálfræð-
ingur eða sagnfræðingur.
Stjörnuspána á aö lesa sem
dægradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
SMAFOLK
Gerir þú eitthvað sérstakt til þess að róa skjólstæðinga
þína, þegar þeir koma að tala við þig?
Ég gef þeim blöðru.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
EM yngri spilara í Þýskalandi
Það er enginn á hættu. Aust-
ur opnar í fyrstu hendi á 3 hjört-
um, tvö pöss og þú átt að segja
með þessi spil í norður:
Norður
♦ ÁKG109
¥-
♦ DG954
*G32
Hvað kemur til greina?
Þrír spaðar er auðvitað fyrsta
hugsunin, en dobl kemur líka til
álita. Makker á vafalaust tölu-
vert í hjarta og gæti passað
doblið með góðum árangri. Og
kannski á hann tígul?
En hvað með 4 hjörtu?
Norður
♦ ÁKG109
¥-
♦ DG954
+ G32
Vestur
♦ 32
♦ 9
♦ 8632
♦ ÁK10965
Austur
♦ 87
¥ ÁG86542
♦ 10
♦ 874
Suður
♦ D654
¥ KD1073
♦ ÁK7
♦ D
Opinn salur. AV: Matthías
Þorvaldsson og Hrannar Erl-
ingsson.
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 hjörtu Pass
Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Lokaður salur. NS: Sveinn
Eiríksson og Steingrímur Gaut-
ur Pétursson.
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 hjörtu Pass
Pass 4 hjörtu Pass 5 hjörtu
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Fjögur hjörtu Steingríms í
lokaða salnum sýndu tvílita
hönd, en menn geta deilt um það
hvort styrkurinn er nægur. í
þetta sinn átti hann þó réttu
spilin og tók alla slagina með
hjartaás út.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Worid Open-skákmótinu í
Fíladelfíu í sumar kom þessi staða
upp í viðureign stórmeistaranna
Joel Benjamin, Bandaríkjunum,
og Vitaly Tseshkovsky, Sov-
étríkjunum, sem hafði svart og
átti ieik.
42. — Bxd4+! og Benjamin gafst
upp, því það er sama með hvorum
manninum hann tekur biskupinn,
svartur svarar með því að máta í
borðinu.