Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER- 1990
Viðurgjörningur á hótelinu var eins og best verður á kosið.
Ömmu
pizzur, 3teg.
Verð áður46^
aodcu 'rttou'
Héðinn var yngstur á 600
manna skákhátíð í Biel
Leikið eftir 14 mín. umhugsun.
Ef strax hinn villti Rg4 þá 13. h3
- h5!? Ef Re5 þá jafnvel 14. Be2
til að halda pressunni á g7 og taka
biskupaparið af svörtum eftir 15.
Rd4! og nú getur hvítur jafnvel leik-
ið 14. Bxg7 - Hg8, 15. Bb2' með
hótuninni Bh7.
13. Rc4!
Nú sést að eitthvað hefur farið
úrskeiðis hjá svörtum. Ef Be7 þá
Rce5 og hvítur stendur mun betur.
13. - Rg4
Sækir í flækjur.
14. Rxd6+!
Mun öruggara en 14. h3 - Bh2+,
15. Khl - h5, 16. Ra5 þótt það
sé líka ágætt fyrir hvítan.
14. - Dxd6,15. Be2 - Dc7,16. g3
Hótar fyrst og fremst Rd4.
16. - Bxf3, 17. Bxf3 - Rge5, 18.
Bg2!
Línur eru famar að skýrast.
Hvítu biskuparnir eru gríðarlega
sterkir en á móti kemur veikleiki á
c4. Það kemur þó brátt í ljós hvort
er mikilvægara.
18. - 0-0, 19. Dd4 - f6
Þvingað vegna f4.
20. De4
Nú eru peðin á b7 og e6 í sigti.
20. - Hab8, 21. f4 - Rc4, 22.
Dxe6+ - Kh8, 23. Bd4 - Rdb6
Skárra var Hfe8 fylgt með Re3
þar sem svartur er „bara“ peði
undir.
24. Hfel! - Rd2, 25. Bc5 - Hfd8,
26. a4!? - Hbc8, 27. a5 - Rd7,
28. Bxa7 - Dc3!?, 29. Bxb7 -
Dxb4!?, 30. Bxc8 - Rf3+, 31. Kf2!
Góður leikur.
31. - Rxel, 32. Hxel - Rf8, 33.
Dc6 - Hd6
Leggur lúmska gildru 34. Bc5
er svarað með Hd2+!
34. Dc5 - Dd2+, 35. He2 - Dal,
36. Bb7 - h6, 37. Bf3
Og þar sem sýnt var að hvítur
félli ekki á tíma gafst svartur hér
upp.
Texti og myndir:
Fríða Asbjörnsdóttir
Skákskýringar:
Héðinn Steingrímsson
HINNI stórbrotnu og marghátt-
uðu skákhátíð í Biel í Sviss lauk
laugardaginn 4. ágúst sl. Þar var
teflt frá morgni til kvölds í mörg-
um flokkum, sumum firnastórum
með allt að 200 keppendum.
Hæst bar að sjálfsögðu flokk
stórmeistaranna, þar sem Karpov
fyrrverandi heimsmeistari var
skærasta stjarnan. Auk hans tefldu
þar gamlir kappar eins og Hort,
Miles, Polugaevski, Wahls og And-
ersson. Eins og vænta mátti sigraði
Karpov örugglega. Hlaut 9 ‘A vinn-
ing af 14 mögulegum. Næstur kom
Andersson með 8 og síðan Miles
og Wahls með 7'A hvor.
Ég sá Karpov aldrei utan skák-
staðar, þar sem hann sat að tafli.
Þar skar hann sig lítið úr hópi ann-
arra keppenda, öll framkoma slétt
og felld eins og velgreitt hárið. Þó
fannst mér stafa meiri kraftur frá
honum en almennt gerðist um kepp-
endur. Annars er kappinn dulítið
þokukennd persóna í vitund minni.
Önnur skær stjarna á hátíðinni
var heimsmeistari kvenna, hin
rússneska Maja Tstjiburdanidse,
afar alþýðleg stúlka, sem keppti í
blönduðum flokki stórmeistara.
Hún náði þar 2. sæti ásamt karl-
mönnunum Campora frá Argentínu
og Barlov frá Júgóslavíu með 6 ’/z
vinning af 12 mögulegum.
Héðinn Steingrímsson tefldi í
opna flokknum „Sport“. I þeim
flokki voru um eða yfir 20 stór-
meistarar og 40 alþjóðlegir, auk
fjölda af FIDE-meisturum. Tefldar
voru 11 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Eftir 8 umferðir hafði Héðinn
6 vinninga og var þá í hópi 20 efstu
manna. I 9. og 10. umferð tapaði
lann en fékk 'A vinning eftir þá
iíðustu. Lokastaða hans í Sport-
lokknum varð nr. 35 með 6 ’/z vinn-
ng. Næstur á eftir honum, en með
ömu vinningatölu, varð austurrík-
imaðurinn Josef Klinger, sem er
/rrverandi heimsmeistari ungl-
'iga. Efstur í þessum flokki varð
issneski stórmeistarinn Viktor
axrikov með 9 vinninga.
Skipulag og umsjón skákhátíðár-
nar virtist að miklu leyti í höndum
ns manns, herra Suri. Mætti hann
skákstað í bítið á morgnana, með
undinn sinn, „Lassy“ og rákvélina,
fylgd eiginkonu og dóttur, sem
r mikil málakona, og var þar jafn-
n lengi dags eða fram á kvöld.
lann sótti okkur Héðin á brautar-
töðina og ók okkur tii gististaðar
fjallshlíð í fögru umhverfi. Hann
iyndist okkur síðan hinn þægileg-
asti maður í öllum samskiptum.
Aðstæður á mótsstað voru ágæt-
ar í upphafi, en á þriðja degi hófst
nýtt mót í sama sal og á sama tíma
með um 200 þátttakendum. Eftir
það bar allmikið á hitasvækju og
loftleysi, enda var mjög heitt í
veðri, 38°C eða meira alla daga.
Loftræsting virtist léleg eða engin.
Einna verst var þetta uppi á sviði
salarins, en þar tefldi Héðinn frá
5. umferð til loka.
Nokkra eftirtekt virtist þátttaka
Héðins í mótinu valda í Biel sakir
æsku hans, en hann var lang yngst-
ur þátttakenda á allri skákhátíðinni
(um 600 manns), aðeins 15 ára.
Myndir birtust af honum við skák-
borðið á skjánum og nokkur um-
fjöllun um hann með viðtali ásamt
mynd í blaði á frönsku.
Sá keppandi, sem verður mér
minnisstæðastur frá mótinu, er
rússneski stórmeistarinn Smagin
frá Moskvu. Hann virtist ekki sæll ’
með jafntefli gegn stráknum, en
erfði það ekki lengi og fylgdist
grannt með honum upp frá því.
Grunar mig að hann hafi komið við
sögu, þegar Héðni barst boðsbréf
að keppa á lokuðu móti í Moskvu
í haust, þar sem lágmark stiga er
2.400, enda þótt Héðinn hafi aðeins
2.410 alþjóðleg stig. Héðinn varð
undrandi. Þetta góða boð var þó
afþakkað á stundinni, því Héðinn
bytjar í menntaskóla nú þegar
skólastarf hefst. Hver veit nema
annað tækifæri gefist síðar, þegar
betur stendur á. Þess má geta að
Smagin fékk fegurðarverðlaun fyrir
eina af skákum sínum á mótinu.
Biel er hreinleg borg og fagur-
lega í sveit sett. I útjaðri gamla
hlutans, þar sem við Héðinn bjugg-
um, var stutt í skóginn. Þar var
unaðslegt að skokka eftir skóg-
arstígunum og hlusta á hljóðlátar
raddir náttúrunnar, laus við ys og
þys borgarinnar. Þar sem landið er
lægst breiðir Bielarvatn úr sér. Þar
geta borgarbúar varpað sér til
sunds, ef þeir vilja. Sá ljóður fannst
mér þó á, að hundar þeirra fengu
að baða sig þar líka. ■
Borgarbúar tala flestir þýsku eða
frönsku. Fer þetta eftir uppruna og
ætterni og er ekki að sjá, að það
valdi vandræðum. Efnahagur virð-
ist góður og sýnast borgarbúar una
glaðir við sitt. Ekki tíðkast að
mæður vinni úti frá börnum sínum,
enda dagvistarstofnanir á vegum
þess opinbera ekki mjög áhugaverð-
ar fyrir börn sem dveljast þar að
sögn heimamanna.
Við Héðinn fórum frá Biel með
góðar minningar og þakklæti í
huga. Þar sem ég var tímabundin,
vegna þátttöku minnar í námskeiði
í Osló í Noregi, gátum við Héðinn
ekki verið í Biel,_ þegar skákhá-
tíðinni var slitið. Ég fékk því ekki
að vita endanleg úrslit mótsins fýrr
en ég kom heim. Því hefur dregist
lengur en ég ætlaði að ganga frá
fréttapistli þessum.
Hér fer á eftir ein skák Héðins
í mótinu með skýringum hans:
9. umferð:
Héðinn að tafli við stórmeistarann Smagin frá Moskvu. Smagin kom
því til leiðar að Héðni var boðið á inót í Moskvu.
Hvítt: Héðinn Steingrímsson
Svart: Liitke V-Þýskaland
Frönsk vörn
1. d4 - e6, 2. e4 - d5, 3. Rd2 -
c5, 4. exd5 - Dxd5, 5. Rgf3 -
Rf6?!
Ónákvæmni. Eftir hið eðlilega
cxd4 þarf svarta drottningin bara
að nota þijá ieiki til að komast til
c7. Einnig er hvítur ekki lengur
neyddur til að leika hið seinvirka
Rd2 - b3 - d4 til að vinna peðið
til baka.
6. Bc4 - Dd6, 7. dxc5 - Dxc5,
8. 0-0 - Bd7
Svartur lék þennan og þijá næstu
leiki mjög hratt.
9. a3 - Dc7, 10. b4 - Bd6, 11.
Bb2 - Bc6
Þá hefur svartur framkvæmt
áætlun sína og vonar nú að honum
takist að langhróka, fylgt eftir með
Rg4 og h5.
12. Bd3!
Sterkur leikur, hótar c2 - c4 -
c5 þar sem drottningin myndi spjara
sig vel á b3 og biskupinn gefa
kóngsstöðu svarts gætur þar sem
ekki væri ráðlegt lengur að lang-
hróka.
12. - Rbd7
Græn vínber
(ítölsk, grappoloni)
129
Verð áður^S^
pr. kg.