Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ELIAS HALLDÓRSSOIM, Grænukinn 11, Hafnarfirði, lést 18. september. Jarðarförin auglýst síðar. Þuríður Gísladóttir, Jónína G. Elíasdóttir Hamré, Bengt Hamré, Gi'sli Þ. Elíasson, Þórey Ólafsdóttir, Ingibjörg H. Elíasdóttir, Árni G. Sigurðsson, Guðni K. Elíasson, Valgerður Sveinbjörnsdóttir, Sigurbjörn Elíasson og barnabörn. t Eiginmaður minn, FRÍMANN ÍSLEIFSSON, Fossöldu 3, Hellu, fyrrum bóndi í Oddhól á Rangárvöllum, andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 18. september. Fyrir hönd aðstandenda. Marta Sigurðardóttir. t Bróðir minn, SIGURÐUR KRISTJÁNSSON, Hrafnistu, Reykjavík, andaðist að kvöldi 17. september. Guðmunda Kristjánsdóttir og aðrir aðstandendur. t Elskuleg dóttir okkar, • HAFDÍS SIGRÍÐUR ALFREÐSDÓTTIR, Gnoðarvogi 30, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. sept. kl. 13.30. Blóm afþökkuð. Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti Styrktar- félag vangefinna njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Jónína Jónsdóttir, Alfreð Antonsen. t Ástkær eiginkona mtn og móðir okkar, ODDNÝ LAXDAL, Eikarlundi 16, Akureyri, sem lést í Borgarspítalanum 13. september, verður jarðsungin frá Svalbarösstrandarkirkju mánudaginn 24. september kl. 14.00. Jarðsett verður á Akureyri. Fyrir okkar hönd og annarra ástvina, Pétur Ásgeirsson, Margrét Líney Laxdal, Jóhanna Helga Pétursdóttir. t Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ALBERTS ÞORGEIRSSONAR vélstjóra, sem lést 16. september, verður gerð frá Fossvogskirkju, föstudaginn 21. september kl. 10.30. Kristín E. Albertsdóttir, Garðar Gfslason, Gerður Welander, Jan O. Welander, Ester Albertsdóttir, Þorbergur Guðmundsson, Sveinn Albertsson, barnabörn og barnabarnabörn. > t Þökkum af alhug þeim fjölmörgu sem létu í Ijósi samúð vegna andláts FRIÐJÓNS SVEINBJÖRNSSOIMAR sparisjóðsstjóra og vottuðu minningu hans virðingu við útförina. Sérstakar alúðarþakkir til stjórnar og starfsmarina Sparisjóðs Mýrarsýslu, Borgarnesi. Björk Halldórsdóttir, Sigríður Friðjónsdóttir, Andrés Gunnlaugsson, Margrét Friðjónsdóttir, Halldóra Björk Friðjónsdóttir og barnabörn. Anna Guðmunds dóttir - Minning Fædd 3. júní 1916 Dáin 14. september 1990 Við vitum að vegir Guðs eru órannsakanlegir og hann einn ræður hvenær kallið kemur, til hvers og eins okkar. Þetta kom í hug mér þegar ég heyrði lát mágkonu minnar, Önnu Guðmundsdóttur. Anna fæddist 3. júní 1916 í Hvarfsdal í Skarðshreppi í Dalasýslu, dóttir hjónanna Sigríðar Helgu Gísla- dóttur og Guðmundar Ara Gíslasonar og var fimmta elst af fjórtán börnum þeirra hjóna. Sex ára gömul fór hún ti! hjónanna Jóns Sigurðssonar og Sigrúnar Pálmadóttur að Reynistað í Skagafírði, en hjá þeim dvaldist hún til fermingaraldurs. 3. júní 1936 var hamingjudagur í lífi Önnu er hún giftist Einari Sigur- jóni Magnússyni bifreiðastjóra hjá Hreyfli, sem lést fyrir rúmu ári. Þau eignuðust fjögur böm og ólu auk þess upp dóttur Sigurjóns, sem hann átti fyrir hjónaband þeirra og var Anna henni eins og sínum eigin börnum. Anna var mikil atorkukona að hverju sem hún gekk og auk heimilis- starfa vann hún úti síðustu þijátíu og tvö árin. Þar af sextán í Laugar- nesskólanum þar sem hún var for- stöðukona bamaathvarfins, en þar naut hún sín hvað best og börnin kunnu að meta hlýju hennar og vin- áttu. Anna var gestrisin kona, sem allt- af var gott að koma til, hvernig sem á stóð og við áttum margar ánægju- stundir saman, enda var leiðin ekki löng í Nóatúnið til hennar. Við viljum þakka allt það sem Anna gerði fyrir okkur og okkar fjölskyldu. Að lokum vil ég kveðja hana með þessum orðum sálmaskáldsins. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Erla Lífsganga okkar á þessari jörð er ekki svo ýkja ólík för dagsins frá nótt til nætur. Við komum inn í birtuna lítil og vanburða og hverfum svo þegar kall- ið kemur inn í nótt. hvíldar og friðar. Anna Guðmundsdóttir, sem í dag er kvödd, fæddist 3. júní 1916 í Hvarfsdal í Dalasýslu, dóttir hjón- anna Guðmundar Ara Gíslasonar bónda og kennara og konu hans Sigríðar Helgu Gísladóttur. Anna fluttist með foreldrum sínum til Skagafjarðar árið 1922 og fór þá fljótlega í fóstur að Reynistað til hjónanna Jóns Sigurðssonar bónda og síðar alþingismanns og Sigrúnar Pálmadóttur. Til Siglufjarðarfór Anna árið 1933 og vann þar til 1934 er hún hélt til Reykjavíkur en þar átti hún heima alla tíð síðan. Anna giftist árið 1936 Einari Sig- uijóni Magnússyni bifreiðastjóra fæddur 14. október 1906 og áttu þau saman eftirtalin fjögur börn: Magn- ús, fæddur 3. janúar 1937, aðstoðar- yfírlögregluþjónn, kvæntur Ólöfu Erlu Hjaltadóttur. Eiga þijú böm. Gylfi, fæddur 13. janúar 1941, bók- ari, kvæntur Ólöfu Cooper. Eiga tvö börn. Guðmundur, fæddur 13. mars 1944, pípulagningameistari, kvænt- ur Svönu Guðrúnu Guðjónsdóttur. Eiga þijú böm. Sigrún, fædd 17. apríl 1947, kennari, gift Kristni Jó- hannssyni skurðlækni. Eiga þijú böm. Auk þess ólu þau Einar upp Erlu dóttur Einars fædda 15. nóvem- ber 1934 en hún er gift Þormóði Einarssyni bónda á Blábjörgum í Suður-Múlasýslu. Eiga eitt bam en auk þess á Erla eitt bam frá fyrra hjónabandi. Það gefur augaleið að oft hefur verið ærið annasamt á stóm heimili en þau hjón lágu ekki á liði sínu og ósjaldan lá leið systkina Önnu að heimili þeirra fyrst er þau komu til Reykjavíkur og þar var ávallt gott að koma og getur tengdafólk Önnu tekið undir það af heilum hug enda var Anna frábær húsmóðir. Þegar aðstæður heimafyrir leyfðu fór Anna að vinna utan heimilis og síðustu 16 árin vann hún við Laugarnesskólann og varð að lokum forstöðukona at- hvarfs skólans. Anna hafði næman skilning á þörf- um bamanna og átti mjúkar hendur til að hagræða hlutum þeim í hag. Einar Siguijón maður Önnu lést 20. júní 1989 svo skammt varð á milli þeirra. Við sem horfum nú á eftir Önnu þökkum samfylgdina og óskum henni alls góðs í nýjum heimkynnum. Margrét F. Guðmundsdóttir og Ingólfur Jónsson Það er erfitt að átta sig á því að Anna er svo skyndilega horfin frá okkur. Hún talaði um það í sumar að hún væri eiginlega ekki búin að ljúka starfsárinu. Hún hafði jú ætlað að koma og vera með okkur í loka- kaffinu og baka pönnukökur og kleinur eins og hún hafði gert í svo mörg ár við skólaslit og aðrar há- tíðarstundir í skólanum en hún var snillingur við baksturinn eins og svo margt annað. Við vissum það á liðnu vori að komið væri að kveðjustund, en hún var að hætta störfum við Laugarnesskóla vegna aldurs. Því miður gátum við ekki þá kvatt hana eins vel og við vildum því að nokkrum dögum fyrir skólaslit datt hún og fótbrotnaði. Það voru því margir sem náðu ekki að kveðja hana þá. Akveðið var að við skyldum fá hana til að koma til okkar í skólann á haustdögum svo við gætum þakkað henni fyrir samstarfíð og allt sem hún hafði gert fyrir bömin í skólan- um. Það kemur fram nú eins og svo oft áður að mennirnir áætla en Guð ræður. Hún Anna fór of langt til að Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI76677 t Hjartans þakkir til allra er sýndu samúð og vinsemd við andlát og útför bróður okkar, ÞÓRARINS PÁLSSONAR, Skeggjastöðum. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna. Aðaldís Pálsdóttir. t Útför mannsins míns, TORFA GUÐMUNDSSONAR frá Drangsnesi, sem lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 12. þessa mánaðar, verður gerð frá (safjarðarkapellu laugardaginn 22. september kl. 11.00. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Ása Marfa Áskelsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúð vegna andláts KRISTJÁNS JÓNSSONAR frá Snorrastöðum. Eli'sabet J. Sveinbjörnsdóttir, Helga S. Sveinbjörnsdóttir, Kristín S. Sveinbjörnsdóttir, Jóhannes B. Sveinbjörnsson, Haukur Sveinbjörnsson, Kristján Benjamínsson, Margrét J.S. Jóhannesdóttir. Baldur Gíslason, Indriði Albertsson, Grétar Haraldsson, Björk Halldórsdóttir, Ingibjörg S. Jónsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmar.ns míns, föður, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR frá Odda, Reyðarfirði. Unnur Gunnlaugsdóttir, Þórunn A. Magnúsdóttir, Yngvi G. Magnússon, Helgi Þ. Magnússon, Harpa Jónsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.