Morgunblaðið - 17.10.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1990
Algjört skipulagsleysi í
íslenskum ferðamálum
Hver höndin upp á móti annarri, segir Geoffrey Gray-Forton
Traðargolfí Laugardal
Þessi heiðurshjón, Þorsteinn Einarsson fyrrverandi íþróttafulltrúi og
eiginkona hans Ásdís Jesdóttir, voru að leika minigolf í grasagarðin-
um í Laugardal þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um
fyrir skömmu. Reykjavíkurborg lagði síðari hluta sl. sumars 9 holu
golfvöll, traðargolfvöll eins og Þorsteinn vill nefna það, og er völlur-
inn öllum opinn. Sagði Þorsteinn að þau hjónin gengju á hveijum
degi fyrir hádegi um garðinn og lékju einn hring. Það væri indælt
að leika traðargolf þarna inni á milli tijánna.
DAGANA 15. og 16. október var
haldin mjög merkileg ráðstefna á
Hótel Loftleiðum. Island var í
brennidepli sem ráðstefnuland —
eða þingað um hvernig best væri
að standa að ráðstefnu- og hvata-
ferðum til íslands. Um 88 manns
sem tengjast, ferðamálum sátu
ráðstefnuna. Islenskir ráðstefnu-
gestir voru sammála um að hún
hefði tekist mjög vel, því býsna
áhugavert væri að heyra ólík sjón-
armið þess manns sem best þekk-
ir til alþjóðlegs ráðstefnuhalds.
Geoffrey Gray-Forton er formað-
ur og framkvæmdastjóri samtaka
sem hafa yfirumsjón með alþjóð-
legu ráðstefnuhaldi. Hann hefur
tekið þátt í 550 slíkum ráðgefandi
ráðstefnum í 77 ólíkum löndum
og stjórnaði umræðum um niður-
stöðu íslensku ráðstefnunnar.
„Ráðstefnan var ekki árangursrík
og mun ekki bera árangur," sagði
Forton. „Hér er hver höndin upp á
móti annarri í ferðamálum. íslenskt
ferðamálafólk er mjög hæft, en get-
ur aðeins unnið einangrað. Sam-
vinna er ekki til á íslandi og ég ef-
ast um að það orð sé til á íslensku.
Ef ég væri formaður Ferðamálaráðs
Forton rökræðir um ólík sjónarmið við danskan blaðafulltrúa á ráð-
stefnunni.
eða samgönguráðherra, þá væri það
fyrsta sem ég gerði að stefna saman
fulitrúum frá viðskipta- og sam-
gönguráðuneyti, samtökum hótela
og veitingahúsa, flugfélögum,
íslenskum ferðaskrifstofum eða frá
öllum þeim sem hafa fjárhagslegan
ávinning af ferðamálum. Ég myndi
gera það innan viku því málið er svo
brýpt.
Ég efast um að þetta fólk hafi
nokkru sinni verið í sama herbergi.
Kasparov spillti
stórkostlegri skák
Skák
Margeir Pétursson
KASPAROV var nálægt því að
fylgja glæsilegum sigri sínum
í annarri skákinni eftir, þegar
hann mætti Karpov í þriðju ein-
vígisskák þeirra í fyrrinótt.
Heimsmeistarinn hóf skákina
með miklum látum, þótt hann
hefði svart, fórnaði skiptamun
strax í byrjuninni og litlu síðar
gaf hann sjálfa drottninguna
fyrir hrók og biskup. Hann
hafði metið allt rétt og Karpov
var í miklum kröggum. Brá
áskorandinn á það ráð að gefa
drottninguna til baka til að
komast út í endatafl, þar sem
hann átti þó einnig í. vök að
verjast. Kasparov hafði þá tvö
peð fyrir skiptamun, en hann
varð of bráður á sér, missti
annað þeirra og þegar skákin
fór í bið hafði Karpov greini-
lega náð að rétta úr kútnum.
Líklegasta niðurstaðan í bið-
skákinni var því almennt talin
jafntefli, þar sem Karpov hafði
fengið frítt spil fyrir hrók sinn.
Sú varð líka útkoman í gærkvöldi
þegar skákin var tefld áfram.
Lauk henni með jafntefli eftir 53
teiki þegar nærri öllu liði hafði
verið eytt af borðinu. Þessi tregða
til að semja gæti bent til þess að
grunnt sé á því góða með kepp-
endum.
Þrátt fyrir mistökin í tímahraki
var taflmennska Kasparovs í
þriðju skákinni mjög aðdáunar-
verð. í síðustu tveimur skákunum
hefur hann glögglega sýnt að við
mat á styrkleika taflmannanna
gildir ekki eingöngu hvort þeir
heita drottning, hrókur, biskup
eða riddari, heldur líka staðsetn-
ing þeirra og samvirkni við aðra
menn. Þeir sem skoðaþriðju skák-
ina gætu haldið að manngangnum
hafi verið breytt og vægi drottn-
ingarinnar minnkað.
Heimsmeistaraeinvígið hefur
reyndar aldrei verið talið heppileg-
ur vettvangur fyrir slíkar glans-
sýningar, til þess eru þær of
hættulegar. Haldi heimsmeistar-
inn áfram uppteknum hætti og
komist hann upp með það, verða
vafalaust þeir fáir orðnir eftir sem
vefengja að hann sé öflugasti
skákmaður sögunnar.
Eftir fyrstu skákina fyrir viku
benti ég á að Kasparov tefldi
agaðar gegn Karpov en öðrum
skákmönnum, en það á þó engan
veginn við um þriðju skákina.
Biðskákinni lauk um kl. 23 í gær-
kvöldi að ísl. tíma, en Kasparov
hefur hvítt í þeirri fjórðu í kvöld.
3. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. Rf3
í fyrstu skákinni lék Karpov
hér 5. f3 sem er saemisch-
afbrigði, en nú beitir hann af-
brigði sem verið hefur nokkuð
vinsælt að undanförnu og er kennt
við júgóslavneska stórmeistarann
Svetozar Gligoric. Það hefst með
7. Be3, en í þeirri stöðu er yfir-
leitt stutthrókað, eins og Karpov
er reyndar vanur að gera.
5. - 0-0 6. Be2 - e5 7. Be3 -
De7 8. dxe5 — dxe5 9. Rd5 —
Dd8!?
Þetta hefur hingað til verið ta-
lið ómögulegt, því eftir næsta leik
hvíts verður svartur að gefa
skiptamun. Kasparov hefur þó
greinilega metið stöðuna þannig
að hann fái fullnægjandi bætur.
10. Bc5 - Rxe4 11. Be7 - Dd7
12. Bxf8 - Kxf8 13. Dc2
Karpov ætlar ekki að leggjast
í vörn, en hyggst vinna tíma með
því að leggja undir sig d-línuna
strax. Það er heldur ekki hægt
að lá honum að hafa ekki reiknað
með ótrúlegu svari Kasparovs.
Eftir hið rólega framhald 13. 0-0
— c6 14. Re3 kemur upp allt
öðruvísi staða.
13. - Rc5 14. Hdl - Rc6H
Svartur er nýbúinn að fórna
skiþtamun fyrir peð og nú er sjálf
drottningin boðin á útsöluverði,
fyrir aðeins hrók og biskup, sem
þykir almennt magur prís fyrir
henriar hátign. Karpov bíður einn
leik með að þiggja fórnina.
15. 0-0 - Re6! 16. Rb6 - axb6
17. Hxd7 - Bxd7 18. Dd2 Be8
19. b3 - e4 20. Rel - f5 21.
Bdl - Re5
Það hefur hlaupið nokkur flótti
í hvíta liðið eftir að Karpov þáði
drottningarfórnina. Þótt svartur
hafi aðeins tvo menn og peð fyrir
drottninguna er hvergi. snöggur
blettur á stöðu hans og hvíta
drottningin nýtur sín því illa, skot-
mörkin vantar. Hvíta staðan er
því a.m.k. mun vandtefldari og
sennilega líka lakari frá hlutlægu
sjónarmiði. A.m.k. er Karpov á
þeirri skoðun, hann gefur nú
drottningu og peð fyrir hrók og
riddara til að létta á stöðunni.
22. Rc2 - Hxa2 23. Dd5 - Ke7
24. Rb4 - c6 25. Dxe6+ - Kxe6
26. Rxa2
Línurnar hafa skýrst og svartur
er kominn út í vænlegt endatafl
þar sem hann hefui' tvö peð fyrir
skiptamun og vel staðsettan kóng.
26. - Rf7 27. Be2 - Rd6 28.
Rb4 - Bc3 29. Rc2 - f4 30.
Hdl - h5 31.f3!
Utsjónarsemi Karpovs í vörn
er við brugðið. Þetta virðist ljótur
leikur, því svartur fær valdað
frípeð á e3. Hvítur gat hins vegar
ekki beðið með aðgerðir og
Karpov ætlar nú með kóng sinn
til e2 og setur síðan upp víggirð-
ingu á hvítu reitunum.
31. - e3 32. g3 - g5 33. Bd3
- h4 34. Kfl c5 35. Ke2
Karpov hefur náð að hrinda
áðurnefndri varnaráætlun sinni í
framkvæmd og er nú tilbúinn til
að leika 36. gxf4 — gxf4 37. Hgl
og ná spili fyrir hrókinn eftir d-
línunni. Þetta knýr Kasparov til
vafasamra aðgerða, sem leiða þó
aðeins til þess að hvítur kemur
hrók sínum fyrirhafnarlaust í spil-
ið. Til greina kom 35. — Bf7 eða
35. - Kf6.
35. - b5? 36. cxb5 - Rxb5 37.
Bc4+ - Ke7?!
Nú missir svartur peð að
óþörfu. Hægt var að leika 37. —
Kf6 38. Hd8 — Rc7, þótt hvítur
hafi náð virkni og ætti ekki að
vera í neinum vandræðum eftir
39. gxf4 - gxf4 40. Hb8.
38. Hd5! - Bf6 39. Hxc5 -
Rc3+ 40. Kfl - Bg6 40. -
Bc6 41. gxf4 - gxf4 42. Hf5 -
b5 43. Be2 — Rd5 44. Rel er
einnig í góðu lagi á hvítt.
41. Rel
í þessari stöðu fór skákin í bið
og svartur, Kasparov, lék biðleik.
Framhaldið var nokkurn veginn
eins'og búist hafði verið við, en
greinilegt var að það var Ka-
sparov sem var að reyna að vinna.
Lokin urðu þannig: 41. — Kd6
42. Ha5 - fxg3 43. hxg3 -
hxg3 44. Rg2 - b5 45. Ha6+ -
Ke7 46. Ha7+ - Ke8 47. Ha8+
- Bd8 48. Rxe3!
Fórnar manni, en þetta er ein-
faldasta leiðin til jafnteflis.
48. — bxc4 49. Rxc4 — g4 50.
Kg2 - Re2 51. Re5 - gxf3+
52. Kxf3 - g2 53. Hxd8+ og
hér var samið jafntefli, enda gæti
staðan ekki verið mikið einfaldari.
Ég myndi jafnvel setja fulltrúana í
einangrað herbergi og loka þá af
þangað til þeir hafa komið sér sam-
an um að setja upp ráðstefnumiðstöð
íslands. Jafnvel ákveðið hvernig lýs-
ingin eigi að vera og liturinn á tepp-
unum! I leiðinni gætu þeir komið sér
saman um hvernig og hvar þið ætlið
að markaðssetja fsland. Ég myndi
ráðleggja ákveðna markaðssetningu
fyrstu tvö árin í Evrópu, næstu tvö
í Bandaríkjunum og síðan um allan
heim.
Ef þið viljið fá ráðstefnur, þá er
mjög brýnt að stofna hér „ráðstefnu-
skrifstofu íslands“ sem verður að
vera fullkomlega sjálfstæð og hlut-
laus og rekin sem einkafyrirtæki.
Þið eruð ekki með virkt ferðamála-
ráð éða virka markaðssetningu er-
lendis. Allir vinna einangrað. Flug-
leiðir eru sendiherrar ykkar erlendis.
Á rtæstu ferðamálaráðstefnu erlend-
is legg ég til að allir íslensku fulltrú-
arnir séu með merki í barminum sem
á stendur „ísland“ og ekkert annað,
hvorki nafn íslenskra hótela eða
ferðaskrifstofa. í svona fámennu
landi eigið þið að vinna sem einn
maður, öðruvísi gengur þetta alls
ekki. Þið eruð hlutlaus þjóð. Búið
við öryggi og hreint land. Állt geysi-
mikilvægir þættir. Þið kunnið bara
ekki að nýta ykkur möguleikana, af
því þið kunnið ekki að vinna saman.
Og þið talið um að gera hlutina en
þið gerið þá ekki — af sömu ástæðu."
O.Sv.B.
SIF:
Magnús
Gunnars-
son hættir
MAGNÚS Gunnarsson hefur
ákveðið að segja af sér sem fram-
kvæmdastjóri Sölusamtaka
íslenskra fiskútflytjenda. Dag-
bjartur Einarsson sljórnarfor-
maður samtakanna sagði að það
hefði ráðið úrslituin uin ákvörð-
un Magnúsar að félagsfundur
felldi í lok síðustu viku tillögu
þess efnis sem borin var upp af
stjórn og hagsinunanefnd að fé-
lagsmenn í SÍF flytji ekki út
ferskan flattan fisk á saltfisk-
markaði.
Dagbjartur sagði að ákvörðun
Magnúsar hefði komið sér á óvart
en hann hefði vonað í lengstu lög
að hann breytti henni. „Úr því þetta
er komið í ijölmiðla þá held ég að
það sé kannski erfiðara að breyta
því,“ sagði Dagbjartur.
Hann sagði að Magnús hefði tek-
ið niðurstöðu fundarins í síðustu
viku mjög nærri sér en hins vegar
hefðu þeir komið sér saman um í
samtali í fyrradag að Magnús gæfi
sjálfur yfirlýsingu um ákvörðun
sína. -Nú væri hann hins vegar
staddur í Frakklandi á vegum SIF,
í ferð sem hafi verið ákveðin fyrir
löngu.