Morgunblaðið - 17.10.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
Morgunblaðið/Jón Reyrtir Sigurvihsson
Háhyrningavöður um alltDjúp
ísaArði.
Mikið af háhyrningi hefur sést í ísafjarðardjúpi undanfarnar vikur.
Hafa sjómenn jafnvel séð margar vöður á sama tíma. í vöðunni sem
þessir háhymingar voru í voru sex fullorðin dýr og fjórir kálfar.
Fylgdu þeir bátnum um tíma og syntu kringum hann. Mikill fiskur
hefur verið í Djúpinu undanfarið, bæði sfld, þoskur og ýsa og er
líklegast að háhyrningurinn fylgi sfldargöngunum. Á myndinni er
hluti af háhymingavöðunum sem sáust í ísafjarðardjúpi.
- Úlfar
Alþjóðlegir kappsiglarar áhuga-
samir um keppni til Islands 1992
Undirbúningur fyrir alþjóðlega siglingakeppni á leiðmni frá Graveli-
nes í Frakklandi til íslands, sem áformuð er í ágústmánuði 1992, geng-
ur vel. 15-20 bátar hafa lýst áhuga á þáttöku. Eftir undirbúningsfund
þeirra aðila ,sem að keppninni standa, í Dunkerque 17. október, munu
þeir koma til viðræðna við hafnarstjórn og borgaryfirvöld í Reykjavík
í byrjun nóvember og verður þá væntanlega ákveðið endanlega hvort
af keppninni verður og tilhögun hennar.
Það er fyrirtækið Laxalón, sem
stofnað var í Frakklandi fyrir tveim-
ur ámm, sem átti hugmyndina að
þessari keppni, en stjómarformaður
þess er íslensk kona, Lilja Skafta-
dóttir Benetov. Franski þingmaður-
inn og borgarstjórinn í Gravelines,
M. Albert Denver, hefur sýnt mál-
inu mikinn áhuga. Var fyrirtækinu
„Wake upp“, sem m.a. sérhæfir sig
í undirbúningi sérstakra atburða,
falið að kanna áhuga alþjóðlegra
siglingamanna og aðstæður allar.
En það fyrirtæki er um þessar
mundir einnig að undirbúa ferð
þriggja þyrla með bandarískri, rúss-
neskri og franskri áhöfn kring um
hnöttinn á tveimur mánuðum.
Munu þær leggja leið sína þvert
yfir meginland Evrópu, gegn um
Sovétríkin og Kína, um Alaska,
Kanada, Grænland og frá austur-
strönd Grænlands til norðurstrand-
ar íslands, en þaðan um Reykjavík
og Færeyjar og ljúka ferðinni í
París á þjóðhátíðardag Frakka 14.
júlí 1992.
Bruno Cassajus frá fyrirtækinu
„Wake upp“ kom með Denvers
borgarstjóra og Lilju Benetov til
íslands í ágústbyrjun sl. og áttu
þau stuttan fund með hafnarstjór-
anum í Reykjavík. Síðan hefur
Cassajus farið um og kannað undir-
tektir atvinnu siglingamanna. Mið-
að er við 20 metra langar keppnis-
skútur með minnst 3ja manna áhöfn
og mest 4-5 menn um borð. Hafa
milli 15 og 20 alþjóðlegir siglinga-
kappar lýst sig reiðubúna til þát-
töku, og eru þar í hópi franskir,
amerískir, enskir, ástralskir og
nýsjálenskir keppendur. Fyrstu
verðlaun verða um 2 milljónir
íslenskra króna, en 2. og 3. verð-
laun lægri. Hefur verið samþykkt
fjárhagsáæltun fyrir keppnina upp
á 60 milljónir og útvegað fé til henn-
ar.
Sögðu aðstandendur keppninnar
fréttamanni Mbl. að afloknum fundi
í Dunkerque 1. október sl. að horf-
ur væru góðar. Var ákveðinn annar
vinnufundur þar 17. október og
síðan var ákveðið að efna til tveggja
daga fundar í Reykjavík í byrjun
nóvember og ræða m.a. við
Reykjavíkurborg um móttökur hér.
En kring upi slíka keppni er mikið
umstang. Reiknað með að 15 frétta-
menn a.m.k. muni fylgjast alfarið
með henni og frá keppninni verði
sjónvarpað út um heim. Er mikil
landkynning að slíkum keppnum.
Munu bátarnir leggja upp frá Dun-
kerque og startmarkið vera út af
Gravelinesbæ, en síðan er siglt sem
leið liggur tií Reykjavíkur og til-
baka, sömu leið sem frönsku ís-
landssjómennirnir sigldu um aldir á
fískiskútum sínum.
VEÐUR
VEÐURHOl RFUR í DAG, 17. OKTÓBER
YFiRLIT í GÆR: V austur en yfir ves ið Færeyjar er 985 mb lægð, sem hreytist norð- tanverðu Grænlandshafi er hæðarhryggur, sem
hreyfist austur. V Heldur kólnar í ve SPÁ: Norðangola axandí lægð við Labrador hreyfist norðaustur. ðri. justast á landinu, en annarsstaðar hægviðri. Smá
skúrir við suðurst 'öndina og él á hálendinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFÚR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Sunnart og suðaustan
átt, vfða allhvöss sunnan- og vestanlands, en hægari austan lands.
Á Norður- og Norðvesturlandi verður úrkomulaust, en rigning í
öðrum landshlutum. Hiti 5-9 stig.
y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- -|Q Hitastig:
10 gráður á Cels
stefnu og fjaðrirnar Y Skúrir
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. V Él
/ / /
r r r r Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
* r * 5, 5 Súld
r * r * Slydda r. * r OO Mistur
* * * —Skafrenningur
* * * * Snjókoma # * * |~7 Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
ki. 12:00 í gær að ísl. tíma
hW: veóur
Akureyri 1 skýjað
Reykjavik 3 skýjað
Bergen iH skýjað
Helsínki 9 þoka
Kaupmannahöfn 1S þokumóða
Narssarssuag mm skýjað
Nuuk -0 alskýjað
Ostó 12 þokumóða
Stokkhólmur 13 þokumóða
Þórshöfn 9 rlgning
Algarve 22 skýjaö
Amsterdam ie hálfskyjaö
Barcelona 23 mistur
Beriín 20 mistur
Chicago 10 alskýjað
Feneyjar 20 þokumóða
Frankfurt í 8 þokumóða
Qlasgow 12 skýjað
Hamborg 19 skýjað
Las Palmas 25 skýjað
London 17 hálfskýjað
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 16 skýjað
Madríd vantar
Malaga 22 hálfskýjað
Matlorca 24 léttskýjað
Montreal 6 léttskýjað
NewYork 14 heiðskfrt
Orlando 23 skýjað
París 17 lúttskýjað
Róm 24 skýjað
Vín 18 heiðskírt
Washington 13 léttskýjað
Wlnnipeg +0 atskýjað
Uppsagnir og endurráðningar á hér-
aðssjúkrahúsum:
Ottast að starfsfólk fá-
ist ekki á sjúkrahúsin
- segir forsljóri Sjúkrahúss Suðurlands
STARFSFÓLK héraðssjúkrahúsa fékk uppsagnarbréf um síðustu mán-
aðamót þar sem því var sagt. upp störfum þann l.október síðastliðinn.
Ætlunin er að stjórnir sjúkrahúsanna leiti eftir því að endurráða starfs-
fólkið frá og með áramótum að telja, þegar uppsagnarfresturinn renn-
ur út. Þetta er gert í tengslum við breytta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga. Hafsteinn Þorvaldsson forstjóri Sjúkrahúss Suðurlands
á Selfossi segist óttast að þessu fylgi, að allir fari á ríkissamninga og
ekki verði lengur hægt að greiða svokallaðar staðaruppbætur til fag-
fólks. „Það mundi þýða að þjónustan færi suður,“ segir hann.
Hafsteinn segir alls konar yfir- Reykjavík, launaskrifstofa ríkisins
borganir vera í gangi á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðvum víða úti
um land, enda sé akki annarra kosta
völ, ef fá eigi menntað starfsfólk í
stöðurnar. Með breytingunum nú,
segir hann allt starfsfólk sjúkrahú-
sanna verða ríkisstarfsmenn. Fyrst
um sinn sé gert ráð fyrir að fólkið
fái að halda aðild sinni að þeim
stéttarfélögum sem það er nú í, en
þurfí ekki að ganga í Starfsmanna-
félag ríkisstofnana.
Hann segist hins vegar óttast að
heilbrigðisþjónustunni á lands-
byggðinni verði fjarstýrt frá
reikni og greiði launin og um leið
hverfi möguleikarnir á að laða
starfsfólk að með launauppbótum.
Þá þýði þetta einnig að störfum
fækki á landsbyggðinni' við þessa
þjónustu, þar sem launafærslurnar
færu allar suður.
Hann segir hafa verið rætt með-
al forsvarsmanna sjúkrahúsa, að
lausn á þessu gæti falist í að skipta
landinu niður í svæði, þannig að
hvert svæði fengi fjárveitingu á
fjárlögum, sém síðan yrði skipt inn-
an svæðisins niður á einstakar
stofnanir.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Starfsmenn flugþjónustudeildar vinna við að koma matvælunum um
boíð í bresku þotuna frá DAS Air Transport sem hingað kom til
að flytja matvælin til Persaflóa.
íslendingar aðstoða stríðshrjáða við Persaflóa:
Matvæli og teppi til Amman
Keflavík.
RAUÐI kross íslands sendi fyrir
helgi í breskri leiguflugvél sem
hingað kom til landsins fyrir milli-
göngu Flugleiða hjálpargögn að
andvirði tæplega 26 milljóna króna
sem flogið var með til Amman í
Jórdaníu. Mestur hluti farmsins var
matvara, reykt síld, kex, kindakjöt
og niðursoðið grænmeti - auk þess
voru 7.500 teppi i farminum.
BB