Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
31
Lykilorðin eru
næmni, áhugi og
hugmyndaflug
*
- segir Peter Hubner, sem kynnt hefur Is-
lendingum hvernig markaðsseija megi listir
„Unnendur lista hafa löngum átt
erfitt með að hugsa sér markaðs-
setningu þeirra en nú er að verða
breyting á og hún felst í sam-
vinnu listamanna og þeirra sem
vilja koma listunum á framfæri
og því að þess sé vandlega gætt
hvernig listir eru markaðssett-
ar.“ Svo farast lögfræðingnum,
sellóleikaranum og kórstjóranum
Peter Húbner orð en hann var
gestur á námstefnu sem Banda-
lag íslenskra listamanna hélt í
Norræna húsinu fyrir skömmu
og var yfirskriftina „Markaðsmál
lista“.
Peter Hiibner fæddist í Frankfurt
í Vestur-Þýskalandi árið 1954.
Hann lauk lagaprófi 1983 og lagði
sérstaka stund á fjölmiðlarétt.
1983-86 var hann framkvæmda-
stjóri tónlistarhátíðar í Stuttgart en
frá 1986 hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar
í Slésvík-Holsetalandi. Sú hátíð fékk
markaðssóknarverðlaun Þýskalands
1987. Árið 1989 tók Húbner við
nýju starfi hjá tónlistarhátíðinni;
sérstökum fjáröflunarverkefnum
sem eru að ryðja sér til rúms, „kost-
un“ Á sama tíma varð hann aðal-
kennari við Tónlistarháskólann í
Hamborg í stjórnun lista ogmenn-
ingarmála og markaðssókn lista.
„Hugmyndin með komu minni var
að segja dálítið frá tónlistarhátíðinni
í Slésvík-Holstein og því hvernig
markaðsfræðin .tengist listum í æ
ríkari mæli,“ segir Húbner. „Fólk
hefur átt erfitt með að sameina
þessi atriði en á fyrrnefndri tónlist-
arhátíð markaðssettum við tónlist-
ina til að ná sem flestum á hát-
íðina; frá sjónvarpstækjum og úr
spilasölum.Við reynum að selja list-
ina með því að bjóða hana sem
fyrsta flokks möguleika á að eyða
frítíma sínum. Lykilorðin eru
næmni, hugmyndaflug og áhugi.
Þegar við kynntum hátíðina í
Slésvík-Holstein reyndum við til
dæmis að tengja tónlistina öðru sem
svæðið hefur upp á að bjóða; lands-
lagi, arkitektúr o.s.frv. Að sameina
tónlistina öðrum þáttum, t.d. innan
lista ekki breyta efnisskránni eða
tónlistinni sjálfri. Rétt eins og ef
ég gef vini mínum plötu með verki
eftir Beethoven. Ég vel umbúðir,
slaufu, ef hún á að vera og kortið.
Ég reyni að gera útlit pakkans
spennandi og læt hugmyndaflugið
ráða en innihaldið er eftir sem áður
hið sama.“ Nýungar í markaðs-
framsetningu hafa lengi verið
þekktar á öðrum sviðum en í tónlist
og það er engin ástæða til að undan-
skilja hana. Það verður að setja hlut-
ina fram á þann hátt að listamannin-
um líði vel. Að unnið sé í samvinnu
við listamanninn, ekki fyrir hann.
Það er ímyndunaraflið sem skiptir
máli, fagmenn þarf ekki alltaf til.
Listamenn er stundum svo blin-
daðir af tilfinningum,-þeir flytja list
• sína af þvílíkri innlifun að þeir
gleyma því að það kostar sitt að
koma henni á framfæri og því þarf
að kynna hana vel. En ég hef ekki
orðið var við annað en að þeir taki
því með þökkum að vera minntir á
það.“ Kostun er sá þáttur sem
Húbner leggur einna ríkasta áherslu
á. Hún hefur lengi tíðkast í íþróttum
en hann segir að ekki megi setja
kostun fram á svipaðan máta í tón-
list. „Sviðinu má ekki spilla, við vilj-
um ekki sjá flytjendurna í merktum
bolum eða risastóra borða með nöfn-
um fyrirlækja í bak- eða forgrunni.
Þegar tónieikarnir heíjast má ekk-
ert verða til þess að trufla áhorfend-
ur eða flytjendur. En ef ákveðnir
litir eru í merki fyrirtækis, er hægt
að skreyta salinn í þeim litum. Áður
en tónleikarnir hefjast má minna á
að fyrirtækið styrki þá, t.d. með því
TOSHIBA
örbylgjuofnarnir skara ótvírætt fram úr
17 gerðir - Verö vió allra hæfi
Toshiba er stærsti framleiðandi heims á örbylgjuofnum
því eru Toshiba - ofnarnír ávallt búnir því besta og nýjasta.
I nýlegri skoðanakönnun Neytendasamtakanna kemur
fram, að Toshiba - ofnar eru langmest seldu ofnarnir
og að eigendur þeirra nota þá mikið við alla matseld.
Þú geturvalið úr 17gerðum i brúnum eða hvítum.lit.
Þú ert velkominn til okkar og við munum leiðbeina þér
um val á réttum ofni fyrir þína notkun.
Fritt námskeið i matreiðslu í ofnum hjá Dröfn Far-
estveit fylgir með. Aðeins 10 eigendur á hverju
námskeiði og öll gögn á ísiensku.
Yfir 50 valdar uppskriftir ásamt leiðbeiningum á
íslensku fylgja með.
Aðild að Toshiba - uppskriftaklúbbnum stendur
þér til boða.
Veldu réttan örbylgjuofn strax
£ Greidslukjör
Peter Hiibner fræddi félaga í
Bandalagi íslenskra listamanna
uni markaðssetningu lista í
síðustu viku.
að varpa nafni þess á tjöldin. Um
leið og þau eru dregin frá og tónleik-
arnir heijast, hverfa skilaboðin og
ekkert verður til þess að draga at-
hyglina frá tónlistinni.
En það er ekki eingöngu um kost-
un að ræða, einnig það að fá fólk
á tónleika. Þá er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir því hvetjir það
eru og hvernig hægt er að ná til
þeirra. Um fram allt að vera skap-
andi, reyna alltaf að finna áhrifarík-
ustu leiðina, hvort sem peningar eru
fyrir hendi eður ei.“
Hvað varðar Listahátíðina í
Reykjavík, tel ég hana byggja á
góðum grunni. Þar er boðið upp á
■ ólíkar listgreinar og mér sýnist ekki
hætta á að hún missi flugið. En það
er ævinlega hægt að gera betur og
mér fyndist t.d ekki vitlaust að
reyna að færa hátíðina meira út
fyrir Reykjavík. Það væri ekki á
hveijum degi sem listunnendum
gæfist kostur á að sjá og hlýða á
heimsþekkta listamenn á stöððum
þar sem landslagið er engu líkt. Ég
hef látið mér detta í hug flugstöð
Leifs Eiríkssonar, sem er einhver
hlýlegasta og skemmtilegasta flug-
stöð sem ég hef komið í. Þar gæti
skapast skemmtíleg tónieikastemn-
ing.“
CORAL GÓLFBÚNAÐUR • CORAL GÓLFBÚNAÐUR ■ CORAL GÓLFBÚNAÐUR
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar: (91) 622900 og 622901 - Næg bflastæði
HREINSISVÆÐI
-hindrar að óhreinindi
berist inn
Coral hreinsisvæði er sérstakur gólfbúnaður
sem fangar óhreinindi og bleytu.
Hver fermetri af Coral getur sogað upp 61 af vatni
eða 5 kg af götuskít.
Coral gólfbúnaður burstar óhreinindin af og þegar
gengnir hafa verið 6 metrar af Coral verða að jafnaði
90% óhreininda eftir á hreinsisvæðinu'
Coral gólfbúnaður lækkar ræstingarkostnað, eykur
hreinlæti og bætir útlit.
iKIARAN
Gólfbúnaður
* SÍÐUMÚLA 14 »SlMI (91 >83022«
tr
=>
Q
<
co
u_
_]
O
ö
<
cc
o
o
tr
ZD
Q
<
z
o
CQ
ll
_l
'O
o
_l
<
tr
O
O
CORAL GÓLFBÚNAÐUR # CORAL GÓLFBÚNAÐUR A CORAL GOLFBUNAÐUR
-