Morgunblaðið - 17.10.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1990
35
Jón Sigurðsson frá
Stóra-Fjarðarhomi
Þegar mér barst fréttin um að
Jón Sigurðsson frá Stóra-Pjarðar-
horni væri látinn kom hún að vísu
ekki á óvart, en þáttaskil gera það
að verkum að maður rifjar upp liðna
tíð og atburði. Jón Sigurðsson and-
aðist þann 23. ágúst 1990 á Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstíg, en
þar hafði hann dvalist um nokkurra
mánaða skeið.
Jón Sigurðsson fæddist 9. ágúst
1899 á Bessastöðum í Hrútafirði.
Fluttist með foreldrum sínum, þeim
Sigurði Þórðarsyni og Kristínu Ingi-
björgu Kristjánsdóttur, að Stóra-
Fjarðarhorni árið 1903 er þau hófu
búskap þar. Jón ólst upp í föðurhús-
unum ásamt sjö systkinum sínum
og uppeldissystur. Ekki mun hafa
verið mikið um skólagöngu að ræða,
vinnan varð að ganga fyrir öllu,
enda var bókvitið ekki í askana lát-
ið, en hvað um það. í Stóra-Fjarðar-
horni lærðu allir að lesa, skrifa,
reikna og ríflega það. Þegar
frístund gafst frá vinnu eða leik var
tekin bók í hönd og lesin enda var
Sigurður faðir Jóns mjög bók-
hneigður maður og hélt bókinni að
bömum sínum. Árið 1933 hóf Jón
búskap í Stóra-Fjarðarhorni á móti
Sigríði systur sinni og Alfreði Hall-
dórssyni manni hennar. Jón var
talinn af sínum samtíðarmönnum
góður bóndi. Ávallt átti hann úr-
vals sauðfé og var glöggur á hvern-
ig mætti rækta það bæði með tilliti
til fijósemi og afurða, enda var
hann fljótur að koma sér upp falleg-
um bústofni eftir að allt fé var skor-
ið niður vegna mæðiveiki. Sömu
sögu var einnig hægt að segja þeg-
ar hann stundaði refarækt sem
auka búgrein, ávallt átti hann fal-
lega og arðsama silfurrefi.
Hvað viðkom rækturnarmálum á
jörð sinni gerði hann stórar umbæt-
ur, þurrkaði flóa, girti og ræktaði
tún. Vélvæðing í sveitum var ekki
þekkt á fyrstu búskaparárunum en
um leið og slíkar vélar vom fluttar
til landsins var Jón fljótur að til-
einka sér nýjustu tækni, dráttarvél
var keypt, sláttuvél, plógur, herfi
ofl. Mun það hafa verið fyrsta drátt-
ai-vélin I sveitinni og reyndar á stóru
svæði, var svo um nokkurra ára
skeið.
En Jón hafði í fleiru að snúast
en búskap. Félagsmálastörf tóku
einnig sinn tíma, sv,o sem stofnun
ungmennafélags, hreppsnefndar-
störf, sýslunefnd, stjórn Kaupfélags
Steingrímsijarðar, stjórn Búnaðar-
sambandsins auk margra annara
nefndar- og félagsstarfa. í mörgum
þessara félaga og nefndum gegndi
hann foi-mennsku. Öli þessi störf
rækti Jón af mikilli trúmennsku og
festu. Þegar minnst er á félagsstörf
Jóns má ekki gleyma störfum hans
innan Framsóknarflokksins. Hann
var ávallt traustur baráttumaður
fyrir málefnum þess flokks og gekk
vel fram í því að Hermann Jónasson
bauð sig fram til alþingiskosninga
í Strandasýslu árið 1934 og stuðl-
aði að því með ráðum og dáð að
Hermann var kosinn þingmaður
Strandasýslu og síðar þingmaður
Vestfjarðakjördæmis eftir kjör-
dæmabreytinguna.
Mjög var gestkvæmt á heimili
Jóns og Maríu Samúelsdóttur í
Stóra-Fjarðarhorni, margt kom til
að margir sóttu þau heim, bærinn
í þjóðbraut, gestrisni mikil, sagt var
að Jón hafði aldrei haft svo mikið
að gera við búskapinn að ekki gæf-
ist tími til að sinna góðum gesti.
Börn Jóns og Maríu eru fimm,
Gísli og Jónas búsettir í Reykjavík.
Sigurrós búsett á Akureyri. Sigurð-
ur býr í Stóra-Fjarðarhorni, og
Sigríður býr á Kollaijarðarnesi.
Fanney, sem Jón átti áður með
Sólveigu Andrésdóttir, er búsett í
Reykjavík. Öll eru börnin gift og
er afkomendahópurinn orðinn all
stór.
Jón og María brugðu búi arið
1975. Fluttu til Reykjavíkur og
bjuggu þar í Hraunbæ 182. Kom
sér nú vel fyrir Jón að vera vel
kunnugur í Reykjavík frá fyrri tíð,
enda fór hann 'allra sinna ferða um
borgina, einnig mörg ár eftir að
hann varð fyrir því óhappi að verða
fyrir bíl og slasast á höfði er leiddi
til þess að heyrnin var verulega
skert sem hindraði hann að taka
þátt í umræðum þar sem margir
voru saman komnir, en ekki heyrð-
ist Jón kvarta undan sínu hlut-
skipti, það hafði hann aldrei gert
og það var svo sem ekki heldur
þörf á því nú.
Þegar ég nú kveð Jón frænda
eru margar góðar minningar sem
sækja á, þeirra verður ekki allra
getið hér, en minningin um stór-
brotin bónda, bókelskan og vel les-
inn, bónda sem hafði tíma til að
sinna félagsmálum auk annarra
embættisverka sem honum voru
falin, mann sem var eðlilegt að
stjórna og hafa forráð.
Um leið og ég þakka Jóni fyrir
allt gott á mínum uppvaxtarárum,
vil ég votta þér María mína dýpstu
samúð, svo og öllum aðstandendum.
Jón var jarðsettur að Kollaijarð-
arnesi 1. september að viðstöddu
ijölmenni.
Páll Hjartarson
Minning:
Einar Vídalín Einars-
son fv. stöðvarstjóri
Fæddur 28. apríl 1907
Dáinn 4. október 1990
Foreldrar Einars voru Einar
Jónsson útgerðarmaður og Sigur-
borg Einarsdóttir.
Kynni mín af Einari Vídalín hóf-
ust í desember 1929. Vídalín, en
það var hann ætíð kallaður af vinum
sínum, bjó þá á Spítalastíg 10 í
Reykjavík ásamt eiginkonu sinni,
Þóru Gísladóttur. Var ég þar tíður
gestur, þar sem heitkona mín,
María, systir Þóru, var þeim hjónum
til aðstoðar við heimilisstörf og
fyrsta barn þeirra væntanlegt.
Á þessum árum starfaði Vídalín
á ýmsum togurum sem loftskeyta-
maður og ekki voru nú margir frí-
dagarnir eftir langa túra á sjó.
Þetta var á kreppuárunum svoköll-
uðu. Lengst af var Vídalín á þessum
árum loftskeytamaður á togaranum
Skallagrími með aflaskipstjóranum
Guðmundi Jónssyni, og sigldi fyrstu
stríðsárin, en eins og kunnugt er
vann áhöfn togarans eitt mesta
björgunarafrek þess tíma, þegar
þeir björguðu 356 mönnum af skipi,
sem skotið var í kaf.
Árið 1942 hætti Vídalín á sjón-
um. Hóf hann þá störf hjá Radíóeft-
irliti Landssímans til ársins 1945,
en þá var hann ráðinn sem stöðvar-
stjóri á Stuttbylgjustöðinni á Vatns-
enda og upp úr árinu 1960, þegar
starfsemi stöðvarinnar lagðist niður
að hluta, réðst hann aftur til Radíó-
eftirlitsins til starfsloka.
Vídalín var kvæntur Þóru Gísla-
dóttur, sem fæddist á Eskifirði 19.
júní 1906, en hún lést í Reykjavík
17. janúar 1967. Minningarnar um
yndislegar samverustundir okkar
hjóna hjá Þóru og Vídalín eru
ógleymanlegar, en þau voru höfð-
ingjar heim að sækja hvar sem þau
bjuggu, á Spítalastíg 10, Bjargi á
Seltjarnarnesi, Vatnsenda og síðast
í Kópavogi. Þá var gleði og söngur
oft á tíðum, enda mikið söngfólk í
ijölskyldunni.
Þeim hjónum varð íjögurra barna
auðið og eru þau: Sigurborg, var
gift Guðna Theódórssyni, sem er
látinn; Guðni Agnar, kvæntur Guð-
rúnu Garðarsdóttur Hall; Eiríkur
Einar, kvæntur Þóreyju Sigurrós
Eiríksdóttur; Eiríkur Einar, er lát-
inn; María, gift Valgarði Sigmars-
syni.
Barnabörn og barnabarnabörn
eru orðin fjölmörg og eru mann-
vænleg eins og þau eiga ættir til.
Góður vinur og vandaður maður er
horfinn úr okkar jarðneska lífi yfir
móðuna miklu, en minningin um
hann mun lifa með þeim, sem hann
þekktu.
Guð blessi minningu hans.
Guðjón Runólfsson
Birting af-
mælis- ogminn-
ingargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargrein-
ar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinum
á ritsljórn blaðsins á 2. hæð
í Aðalstræti 6, Reykjavík
og á skrifstofu blaðsins í
Hafnarstræti 85, Akureyri.
t
Minningarathöfn um
EIRÍK BJÖRNSSON
frá Rangá
bókavörð á Reykjalundi,
verður í Lágafellskirkju fimmtudaginn 18. október kl. 16.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Ásrún Benediktsdóttir.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
ÓLAFURÞÓRÐARSON
tollvörður,
Hjarðarhaga 44,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 18. október kl. 15.00.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, Kristín Magnúsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Ester Jónatansdóttir,
Þórður Ólafsson, Kristín B. Alfreðsdóttir,
Gunnar Bjarni Ólafsson, Helga B. Jónsdóttir,
Magnús Olafsson, Þóra Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Okkar kæra,
ELÍSABET ÁRNADÓTTIR,
Aragötu 15,
sem lést 8. október sl. í Hátúni 10b, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 18. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Líknar-
sjóð Dómkirkjunnar.
Árni Óskarsson, Heiðdis Gunnarsdóttir,
Helga Pálmadóttir, Helgi G. Samúelsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Bróðir minn og frændi okkar,
SIGVALDI KRISTINSSON,
Eyjavöllum 1,
Keflavík,
sem lést á Landspítalanum 9. okt. sl., verður jarðsettur frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 19. október kl. 14.00.
Jóhann Kristinsson,
Sigvaldi Arnar Lárusson,
Kristín Rut Jóhannsdóttir,
JóhannJóhannsson,
Björn Jóhannsson,
Kristín Ruth Jónsdóttir,
Agnes Egilsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur,
GÍSLÍNU ERLU EIRÍKSDÓTTUR,
Reykjanesvegi 8, Njarðvík.
Guðmundur Kristjánsson,
Kristrún Guðmundsdóttir, Jón R. Bjarnason,
Erla Jónsdóttir,
Gyða Eiríksdóttir,
Þorsteinn Eiriksson,
Sigurður Eiríksson,
Guðmundur R. Jónsson,
Meinert Nilssen,
Hanna Hersveinsdóttir,
Ása Ásmundsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR BJARNASONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík.
Guðmundur H. Sigurðsson, Guðrún V. Þórarinsdóttir,
Hallgeir Bjarni Sigurðsson,
Erna G. S. Ohlsson, Gösta Ohlsson,
Dóra Sigurðardóttir, Jóhannes Jónasson,
Jónína B. Sigurðardóttir, Hafliði Hjartarson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ARNFRÍÐAR GESTSDÓTTUR
frá Mel í Þykkvabæ,
síðast á Dalbraut 23.
Haraldur Eliasson,
Lilja Þorbjarnardóttir,
ísak Þorbjarnarson,
Skarphéðinn Haraldsson,
Guðmundur Haraldsson,
Rannveig Haraldsdóttir,
Kolbrún Haraldsdóttir,
Jón Erlendsson,
Helga Guðjónsdóttir,
Eyrún Óskarsdóttir,
Magnús ivar Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofa Félags íslenskra símamanna verður
lokuð fimmtudaginn 18. október vegna jarðarfar-
ar.
Stjórnin.