Morgunblaðið - 17.10.1990, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) (P*
Vandamál frá deginum i gær eru
ennþá að angra þig, en þú færð
mikilsverðan stuðning frá nánum
ættingja eða vini. Leggðu áherslu
á samstöðu og einingu. 1 dag
skaltu taka ákvarðanir upp á þitt
eindæmi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú verður fyrir vonbrigðum með
ákveðið mál sem þú áttir von á
að leystist í dag. Þú hefur frjálsar
hendur og þér ætti því ekki að
vera nein vorkunn að byija á öðr-
um verkefnum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Gerðu eitthvað til að hafa meira
gaman af því að lifa. Erfíðleikar
í samskiptum við eina manneskju
þurfa ekki að koma í veg fyrir
að þú skemmtir þér. Taktu þátt
í íþróttum og annarri líkams-
mennt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlíj
Vera kann að þér þyki biðin löng
nú um stundir. Gættu þess því
að hafa ávallt nóg að gera.
Heppnin eltir þig á röndum þegar
v þú ferð út að versla. Reiddu þig
1 fyrst og fremst á eigið frumkvæði
í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú veist ef til vill ekki ennþá
hvernig þú átt að snúa þér í vand-
ræðum þínum. Þú færð góðar
fréttir símleiðis eða bréfleiðis.
Taktu þátt í félagslífinu í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú ert enn að kljást við vandamál-
in frá í gær. Frumkvæði þitt kem-
ur þér að gagni í vinnunni og
skapar þér aukna tekjumöguleika.
(23. sept. - 22. október)
Þú þarft að komast í hæfilega
Oarlægð frá vandamáli sem þú
glímir við heima fyrir í dag. Hafðu
samband við vini þina sem búa í
fjarlægð og farðu í heimsókn til
þeirra.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það sem gerist á bak við tjöldin
er þér í hag. Þú verður að lesa á
milli línanna núna þar sem ein-
hveijir þeirra sem þú átt skipti
við hliðra sér við að svara.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Gættu þín á fjárglæframönnum í
dag. Láttu fjárhagsáhyggjumar
ekki koma í veg fyrir að þú þigg-
ir vinsamlegt heimboð.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) X*
Þó að þú hljótir ekki þá viðurkenn-
ingu, sem þú telur þig eiga skilið,
í dag, kemur það ekki á neinn
hátt í veg fyrir að þú getir haldið
áfram á sömu braut. Víktu per-
sónulegum hégómaskap til hliðar.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
- Þetta er ekki heppilegur tími til
að gefa öðmm ráð. í dag áttu að
gleðjast og sinna hugðarefnum
þínum. Þú breytir ferðaáætlun
þinni að verulegu leyti.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Njóttu lifsins fremur heima hjá
þér en að heiman. Þér gengur allt
í haginn í starfi þínu og í fjármál-
um, en þú verður fyrir vonbrigð-
um með einn vina þinna.
AFMÆLISBARNIÐ á stundum
auðveldara með að fara með fjár-
mál annara en sín eigin. í pen-
ingamálum á það bæði til að vera
hinn mesti nirfill og sannur höfð-
ingi. Því þykir varið í að glíma
við erfíð mál og er sterkast þegar
mest á reynir. Það er heimspeki-
lega sinnað. Leiðtogahæfileikar
þess eru óvenjulegir og þvf geðj-
ast ekki að þeirri tilhugsun að
vera undirtylla.
Stj'órnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
BN&IN
, SPUZNlHG/
HANN Ef? Ap
Þyktast!
H4NW Eft
\A9 GABSA!
FERDINAND
SMÁFÓLK
TMIS 15 MV REPORT
ON AUTUMN UJMEN THE
LEAVE5 BESINTOFALL
FROM TME TREES...
Þetta er ritgerð mín um
haustið, þegar laufin fara
að falla af trjánum ...
IF TMEV FELL FROM
R0CK5, WE'P ALL BE
IN TROUBLE!
Ef þau féllu af klettum,
værum við í vanda stödd!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er vandséð hvernig hægt
er að fá 9 slagi í gröndum á
spil NS, en Þjóðverjanum Ro-
howsky tókst það þó í úrslitaleik
HM gegn sveit Mike Moss. Að
vísu með nokkurri hjálp frá
sveitarforingja mótherjanna.
Suður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ G32
V10752
♦ 64
♦ 10832
Norður
♦ 954
VKG8
♦ Á107
♦ DG76
II
Suður
♦ ÁK10
VÁ963
♦ K982
♦ 64
Austur
♦ D876
V D2
♦ DG53
♦ ÁK9
Vestur Noröur Austur Suöur
Moss Nippgen Coon Rohowsky
— — — 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspil: spaðatvistur.
Rohowsky drap drottningu
austurs með ás, spilaði tígli á
ás og tígultíunni úr borði. Aust-
ur lagði ekki á og tían átti slag-
inn. Þá kom hjartagosi! Og hann
hélt líka. Átta slagir í húsi og
tímabært að kanna laufið. Ro-
howsky fór heim á tígulkóng og
spilaði laufi á drottningu blinds.
Austur drap og spilaði spaða,
ás og GOSÁ! Moss ætlaði ekki
að stífla litinn og suður tók
ánægður úrslitaslaginn á spaða-
tíu._
Á hinu borðinu spiluðu
Bandaríkjamennirnir í NS 2
hjörtu og unnu þijú. Þjóðverjar
græddu því 9 IMPa.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Tel Aviv í
Israel í vor kom þessi staða upp
í skák hinnar þekktu sænsku
skákkonu Piu Cramling (2.490),
sem hafði hvítt og átti leik, og
ísraelska stórmeistarans Yehuda
Griinfeld (2.530).
Svartur lék síðast 20. - e6-e5
og hótaði hvíta riddaranum á d4,
en Pia lét sér fátt um þá hótun
finnast:
21. Kg2! - Be7 (21. - exd4? er
auðvitað svarað með 22. Hhl),
22. g6! - fxg6, 23. Be6+ og
svartur gafst upp, því hann er
mát í næsta leik eftir 23. - Kh8,
24. Dxh7+ og 23. - Kf8, 24.
Dxh7 er auðvitað vonlaus.
Úrslit mótsins urðu þessi: 1.
Psakhis, ísrael, 8 v. 2.-4. Tal,
Sovétr., Pia Cramlin og Lev, ísra-
el, 7 ‘A. 5. Grunfeld 6 v.
Pia Cramlin hefur náð góðum
árangri að undanförnu, en staðið
í skugga Polgarsystra. Hún verður
í sænska karlalandsliðinu á
ólympíumótinu í Novi Sad, en það
verður þannig skipað: Andersson,
Hellers, Karlsson, Wedberg, Pia
Cramlin og Wessmann. Á meðal
þeirra sem ekki komast í lið eru
stórmeistarinn Schussler, og hinir
hættulegu sóknarskákmenn Ernst
og Hector.