Morgunblaðið - 17.10.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
37
%
Ii
fclk f
fréttum
Sorg árið 1990, Karólína ásamt náinni vinkonu
sinni, fyrirsætunni Ines de la Fressange.
Sorg árið 1982, Albert, Reinier og Karólína
fylgja Grace til grafar.
DAUÐSFALL
Hvernig reiðir
furstafjölskyldunni nú af?
Miklar vangaveltur eru nú uppi
um hvernig furstafjölskyld
unni í Mónakó muni reiða af eftir
sviplegt fráfall Stefanos Cas-
hiragi, eiginmanns Karólínu
prinsessu, en þetta er í annað
skiptið á átta árum sem voveiflegt
dauðsfall í fjölskyldunni þenur
fjölskylduböndin til hins ýtrasta.
Missir Karólínu er mikill, það er
mál manna að verða ekkja svona
ung með þrjú börn sé mun þyngra
áfall fyrir hana en að missa móð-
ur sína í bílslsysinu forðum árið
1982.
Vangavelturnar eru vegna þess
að fjölskyldan hefur ekki verið
talin ýkja sterk á svellinu, sérstak-
lega eftir hið sviplega fráfall
Grace Kelly furstaynju. Reinier
fursti hefur ekki borið sitt barr
síðan að mati sérfræðinga og
mikið hefur mætt á Karólínu að
halda utan um Ijölskylduna þar
sem systkini hennar, krúnuerfing-
inn Albert, sem hefur lýst yfir að
hann viti vart í hvorn fótinn hann
eigi að stíga, svo takmarkaður sé
áhugi sinn á furstanafnbótinni,
og Stefanía, sem á erfitt með ein-
kalíf sitt og flækist úr einu mis-
lukkuðu sambandi í það næsta,
föður hennar til ákafrar skap-
raunar.
Nú eru ekki horfur á því að
Reinier, Albert eða Stefanía geti
reitt sig á sterkan persónuleika
Karólínu til þess að leiða þau
áfram lífsins veg, Karólína hefur
um nóg annað að hugsa næstu
misseri.
Að venju er mörgum spurning-
um varpað fram við svona tæki-
færi. Til dæmis spurningin hvers
vegna Cashiragi hætti ekki hrað-
bátakeppni, en 14 dauðsföll hafa
Fjölskyldan samankonnn yfir pottunum.
ástæða
sssiasssKa
■
1966, Grace og Reinier ásamt
Stefanía er þarna einnig ef vel
orðið í slíkum keppnum síðustu
fjögur árin og iyrir þremur árum
börnunum Karólínu og Albert,
er gætt.
varð hann vitni að því er vinur
hans lét lífið, og það er talin ein
þess að hann ók báti
sínum ef til vill of hratt, að hann
var að vinna upp glataðar mínútur
er fóru í að bjarga félaga úr
brennandi flaki daginn áður. Þá
hafði keppnisreglum nýlega verið
breytt með þeim hætti, að Cas-
hiragi kvartaði undan því að hann
væri þar með nauðbeygður að
nota bát sem væri ekki fyllilega
öruggur — sem kom síðan eftir-
minnilega á daginn. Vitað er að
Karólínu var lítt um bátsmennsku
Cashiragi gefið, en ekki er til
þess vitað að hún hafi farið fram
á það við hann að hann hætti
keppni. Hann sagði sjálfur að svo
hefði ekki verið, hins vegar ætlaði
hann að hætta að eigin frum-
kvæði að keppninni lokinni og
vonaðist hann til að geta hætt á
toppnum eins og kallað er, eða
með því að verja heimsmeistara-
titil sinn.
AFMÆLI
Iðnskólinn fær tölvubúnað að gjöf
Itilefni af tíu ára afmæli fyrir-
tækisins hefur Apple-umboðið
á ís landi ákveðið að gefa bókiðna-
deild Iðnskólans í Reykjavík tölvu-
búnað að verðmæti u.þ.b. tvær
milljónir króna.
Þann 10. sept. sl. afhenti
Grímur Laxdal gjöfina sem er tvær
öflugar Macintosh-tölvur með
stórum umbrotsskjám, Apple-
myndskanni, Laserwriter PostS-
cript-leisiprentari ásamt forritum
til prenthönnunar og umbrots.
„Þessi gjöf er deildinni sérstak-
lega kærkomin vegna þeirrar
miklu útbreiðslu sem Macintosh-
og Apple-tölvubúnaður hefur með-
al þeirra sem starfa við útgáfu
blaða og bóka. Samskonar búnað-
ur og sá sem bókiðnardeildin hefur
nú fengið er notaður í fjölmörgum
prentfyrirtækjum," segir í frétt frá
Iðnskólanum.
Morgnnblaðið/Keli
GESTIR
Brautaskólinn í heimsókn á ritstjórn Morgunblaðsins
Nokkrir nemendur í Brautaskólanum í Blesugróf 27 heimsóttu Morgunblaðið síðastliðinn fímmtudag til
þess að fræðast um það, hvernig Morgunblaðið verður til. Þau sýndu blaðinu og framleiðslu þess mikinn
áhuga og höfðu mikla ánægju af heimsókninni. Morgunblaðið þakkar þeim fyrir komuna.
Frá afhendingu tölvubúnaðarins. Talið frá vinstri Grímur Laxdal
forstjóri, Haraldur Blöndal deildarstjóri, Haukur Már Haraldsson
kennari og Ingvar Ásmundsson skólameistari.
COSPER