Morgunblaðið - 17.10.1990, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
nmnmn
Þessir hringdu .. .
Skiljið eftir miða
S.A.JVt. hringdi:
„Eg hef tekið eftir því að þegar
fólk hringir í mann lætur það
bara hringja fjórum sinnum en
leggur svo á. Það takur mann oft
dálítin tíma að komast í símann
og svo heldur það að maður sé
ekki heima þegar maður svarar
ekki strax. Eins er það bagalegt
þegar fólk kemur í heimsókn og
maður hefur brugðið sér eitthvað
frá, t.d. út í búð. Þeir sem koma
ættu að setja lítin miða í póstkass-
ann með nafni og hvenær þeir
komu. Þá gæti maður hringt til
þeirra.“
„Penthouse"
Málræktarunnandi hringdi:
„Ég hef oft undrað mig á því
að það er eitt orð sem hefur alveg
gleymst að þýða, orðið
„penthouse“. Ég hef látið mér
detta í hug að þýða mætti þetta
orð sem þakíbúð, sem kannski
þykir ekki nógu fínt. En hvað sem
því líður þyrfti að finna einhvert
viðunandi íslenskt orð yfir þetta.“
Hjól
Hjól fannst í Elliðaárdal fyrir
skömmu. Upplýsingar í síma
83685.
Kettlingur
10 mánaða síamskettlingur, fress,
fór að heiman frá Engihjalla 9 á
laugardagskvöld. Vinsamlegast
hringið í síma 611230 eða síma
44718 ef hann hefur einhvers
staðar komið fram.
Köttur
Ljósbröndóttur högni fannst í
garði við Miklubraut fyrir
skömmu. Eigendur hans eru vin-
samlegast beðnir að hefa sam-
band við Dýraspítalann í Víðidal
eða við Ásdísi í síma 24456.
VIÐ BORGUM BRÚSANN
■i&jUt* 'hct
Upp með hendurnar, eins
og skot!
Með
morgnnkafíinu
Til Velvakanda.
Eftir að hafa horft á sjónvarps-
fréttir frá Rússlandi um lausn
Rússa á vín- og vímuvandamálum
fór ég að íhuga aðferð þeirra, rétt-
lætingu hennar og gildi. í fyrstu
fannst mér hranalega, næstum
ómanneskjulega að verki staðið. Ég
fékk samúð með ógæfumönnunum,
sem smalað var saman næstum eins
og sláturfé á haustdegi. Aðbúnaður
allur virtist í lágmarki, vinnuað-
staða og fæði sjálfsagt á svipuðum
nótum. Aðal aðferðin var að láta
óreglumennina vinna - þræla fyrir
land og þjóð án iauna, þar til and-
legt og líkamlegt heilsufar hafði
veitt þeim þrek og skilning á að
allar lífsbrautir eru betri án fylgdar
Bakkusar og fíkniefnabaróna háns.
Eitthvað mun þó sumum hafa fip-
Til Velvakanda!
Hinn 10. október birtist í Velvak-
anda bréf frá Árna Helgasyni í
Stykkishólmi, sem telur sig í hæstu
hæðum en virðist gleyma því að
samtímis er hann staddur á ösku-
haugi jarðlífsjns í miskunnarlausum
efnisheimi. Árni heldur því fram,
að allar hörmungar í jarðlífinu síð-
astliðin 2.000 ár séu að mestu leyti
drykkjumönnum að kenna. Þar er
um misskilning að ræða. Það er
allt reglufólk sem hefur komið af
stað styrjöldum og ýmisskonar
vandræðum síðastliðin 2.000 ár.
ast í þeim fræðum, því mikið fram-
boð er á alls konar vímuefnum og
drykkja er mikil og almenn í Rúss-
landi.
Síðan fór ég að bera saman að-
ferðir íslendinga og Russa í þessum
efnum. Varðandi mannúðleg sjón-
armið stöndum við langt framar,
sennilega fremstir allra þjóða. Hér
er drykkjumönnum veittur góður
aðbúnaður meðan þeir búa sig und-
ir næstu drykkjuhrotu og þannig
koll af kolli þar til þeir sjá að sér
eða farast. Ég og þú borgum brús-
ann á einn eða annan hátt. Oft eru
þessir ógæfumenn að upplagi
greindir og gjörvulegir, kannski
draumóramenn, lítt vinnugefnir og
kærulausir um eigin hag og ann-
arra. Þeir spila á kerfið. Eru á at-
vinnuleysisstyrk, eru á framfæri
Drykkjumenn hafa aldrei komið af
stað styijöldum.
Um drykkjufólk sem misnotar
áfengi er aðeins unnt að segja að
það býr tij sitt eigið böl og vand-
ræði. Orð Árna Helgasonar um það
viðurkenni ég undirritaður sem ör-
ugga staðreynd en tal hans um
betri heim er örugglega út í bláinn.
Við förum að lokum öll yfir móðuna
miklu, sú staðreynd er ekki umflúin
frekar en að hinn óhreini og mis-
kunnarlausi efnisheimur líður undir
lok samtímis óhreinu jarðlífi.
Þorgeir Kr. Magnússon
foreldra, „slá“ vini og vandamenn,
jafnvel betla fyrir bjór og brauði.
Svo maður tali nú ekki um þá sem
eru svo langt leiddir að lemja og
rífa veski af gömlum farlama veg-
farendum. Að þessu athuguðu og
þegar hugsað er til þeirra gífurlegu
fjárupphæða sem slíkir óreiðumenn
kosta þjóðfélagið, beint og óbeint,
tel ég að skoða beri nánar vinnu-
skyldureglu Russa, þó að mannúð-
arhefð þeirra mætti vissulega end-
urskoða.
Vill ekki íjármálaráðherra eða
heilbrigðisráðherra upplýsa þjóðina
í blöðum og sjónvarpi um hvað öll
sú heilbrigðisþjónusta sem snýr að
fíkniefna- og áfengisvandamálum
kostar. Og hvað um löggæslukostn-
aðinn? Hvað um eignatjónið?
Hvernig er hægt að meta það tjón
sem heimilin verða fyrir? Tjónin í
umferðinni ásamt tjóni á lífi og lim-
um samborgaranna? Á þjóðin ekki
rétt á þessum upplýsingum?
J.T.
------» ♦ «------
Hestur guðanna
Til Velvakanda.
Ég vil þakka Sjónvarpinu fyrir
stórgóða sænska hestamynd, Hest-
ur guðanna, sem sýnd var 9. októ-
ber. Það var gaman að sjá svona
fallega og vel tekna mynd með ís-
lenska hestinum. Ég vona að mynd-
in verði endursýnd, því hún á erindi
til margra og gæti ég vel hugsað
mér að sjá hana aftur.
Hestakarl.
Sýndarmennska
*
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar
Alaugardaginn fyrir viku gripu
eigendur um 800 veitinga-
staða í Stokkhólmi og víðar í Sví-
þjóð til þess óvenjulega ráðs að
bjóða vörur sínar á verði sem þeir
töldu sambærilegt við það, er tíðk-
ast í aðildarríkjum Evrópubanda-
lagsins. Leiddi þetta til þess að
verðlag á sænskum matsölustöðum
lækkaði um allt að helming. Með
þessu vildu veitingamenn mótmæla
hækkun á virðisaukaskatti í 25%
sem kom til sögunnar í janúar síð-
astliðnum og varð skatturinn þá
hinn hæsti í veröldinni. í Svíþjóð
eins og hér, þar sem skatturinn
slagar í þetta (24,5%), telja menn
það ti! dæmis standa ferðaþjónustu
fyrir þrifum, hve hátt verð er í veit-
ingahúsum.
Þennan dag var unnt að fá súpu,
kjúkling og eftirrétt fyrir 550 ÍSK
á veitingastað nokkrum í Stokk-
hólmi. Kunningi Víkveija sem var
í Stokkhólmi þennan dag sagði að
sérstakt andrúmsloft hefði ríkt í
borginni. Miklar biðraðir hefðu
myndast við veitingastaði og fólk
fagnað framtaki veitingamann-
anna. Er talið að þessi aðgerð hafi
orðið vatn á myllu þeirra sem mæla
með aðild Svíþjóðar að Evrópuband-
alaginu.
XXX
Töluverðar breytingar hafa verið
gerðar á dagskrár rásar 1 hjá
Ríkisútvarpinu. Víkveiji hlustar
ekki nægilega mikið á útvarp sjálf-
ur til að dæma um, hvernig til hef-
ur tekist. Þó sýnist honum að í
þessari dagskrá eins og annars
staðar fjölgi þeim þáttum, sem
byggjast fremur á því að fá fólk
til viðtals á stundinni en vandlegum
undirbúningi og íhugun.
Viðtalsþætti má að sjálfsögðu
vinna þannig að þeir gefi heildar-
mynd af einhverjum atburðum eða
tímabili. Minnist Víkveiji þar til
dæmis þátta sem Páll Heiðar Jóns-
son hefur unnið með efinsöflun víða
um lönd. Skyndiviðtala- og síma-
þættir henta ekki til slíkra hluta og
í þeim er yfirleitt aðeins hreyft við
yfirborðinu.
0
Isunnudagsblaði Morgunblaðsins
var skýrt frá nöfnum nokk urra
þeirra manna, sem hafa verið
fengnir til þess að annast þætti í
hinni nýju dagskrá rásar 1 hjá Rík-
isútvarpinu. Víkveiji sá þar, að þrír
fyrrverandi ritstjórar Þjóðviljans
hafa fengið lausastörf hjá þessari
ríkisrás: Silja Aðalsteinsdóttir verð-
ur leiklistargagnrýnandi, Þráinn
Bertelsson kvikmyndagagnrýnandi
og Einar Karl Haraldsson á að ann-
ast umræðuþátt í vikulokin á móti
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
fyrrum borgarfulltrúa Kvennalist-
ans, sem hefur skipað sér til vinstri
við Þjóðviljann.
Unnt er að ráða af þessari upp-
talningu að Þjóðviljanum hafi geng-
ið illa að halda lengi á ritstjórum
undanfarin ár, enda hafa umsvif
blaðsins dregist saman jafnt og
þétt og það berst í bökkum. Sú
spurning vaknar hvort ráðamenn
dagskrár rásar 1 telji það henni til
framdráttar að fá þann blæ á hana
sem þetta mannval gefur.