Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
ÍSLENSKI HANDBOLTINN
7. UMFERÐ
Föstudagur 19.10.
KA- Víkingur
Kl. 20:30
r
Iþróttahöllin Akureyri
Laugardagur 20.10.
Fram-KR
Kl. 16:30
Laugardalshöll
Laugardagur 20.10.
FH-ÍR
Kl. 16:30
Kaplakriki, Hafn.
Laugardagur 20.10.
Selfoss-Haukar
Kl. 16:30
r
Iþróttahús Selfoss
Laugardagur 20.10.
Grótta- ÍBV
Kl. 16:30
Seltjarnarnes
Laugardagur 20.10.
Valur-Stjarnan
Kl. 16:30
Hlíðarendi
VÁTRYGGIIVGAFÉLAG ÍSLANDS HF
KNATTSPYRNA
Guðjón Þórðar
M son aftur til ÍA
Verðurframkvæmdastjóri Knatt-
spyrnufélagsins og aðalþjálfari þess
GUÐJÓN Þórðarson var ígær-
kvöldi ráðinn framkvæmda-
stjóri Knattspyrnufélags ÍA og
jafnframt aðalþjálfari þess.
Guðjón, sem þjálfaði lið ÍA fyr-
ir nokkrum árum, en hefur
þjálfað lið KA síðustu þrjú ár
og gerði það m.a. að meistur-
um 1989, er því kominn á
heimaslóðir að nýju og tekst á
við vandasamt verkefni — að
koma Akranesliðinu ífremstu
röð að nýju. Samningur Guð-
jóns við IA er til tveggja ára. .
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hér væri að mörgu leyti um tíma-
mótasamning að
Ján ræða því Guðjón
Gunnlaugsson fengi mjög fjöl-
breytt verkefni til
að vinna að. Hann
mun annast þjálfun 2. deildar liðs-
ins auk þess sem hann mun móta
og hafa yfirumsjón með þjálfun
annarra flokka, og um áramótin
tekur hann síðan við stöðu fram-
kvæmdastjóra félagsins — verður í
skrilarfrá
Akranesi
raun sá fyrsti sem svo fjölþættu
starfi gegnir hjá íslensku liði. „Þetta
er tilraun hjá okkur til að bijóta
upp hefðbundið form þessara
starfa,“ sagði Gunnar, „og vissu-
lega vonumst við eftir því að það
eigi eftir að skila góðum árangri.“
Guðjón Þórðarson sagði að vissu-
lega væri þetta áhugavert verkefni
og hann væri ánægður með að vera
kominn heim að nýju. Hann sagði
mikinn efnivið fyrir hendi á Akra-
nesi, og það væri sérstaklega
áhugavert að fá að móta framtíð
þeirra mörgu efnilegu leikmanna í
knattspyrnunni sem þar væru.
Hann sagði að vissulega væri tölu-
verður munur á að vera þjálfari á
Akranesi eða Akureyri. „Mér leið
vel á Akureyri og átti þar góðan
tíma, en að mörgu leyti var það
erfítt. Aðstæður á Akranesi eru
betri og allir leikmenn eru á staðn-
; um allt árið, þannig að fyrir mig
er þetta skaplegri vinnuaðstaða."
Guðjón var spurður hvort hann
teldi sig þurfa að styrkja leik-
mannahópinn fyrir komandi átök,
með aðfluttum leikmönnum. „Það
er ekki tímabært að svara því,“
Guðjón Þórðarson.
sagði hann, en bætti við að liðið
þyldi það vel að fá sterkari leik-
menn. „I dag er ég fyrst og fremst
að hugsa um þá leikmenn sem við
höfum og sé hvort ekki megi fá
meira út úr þeim. Hann sagðist
aðspurður að sér litist vel á slaginn
í 2. deild næsta sumar, „vitanlega
ætlum við okkur að komast að nýju
í hóp þeirra bestu, en það er ekk-
ert sjálfgefíð í þeim efnum. Helm-
ingur liðanna getur sigrað, en það
hefur þó oft viljað brenna við að
þegar lið falla milli deilda þá verður
visst spennufall, bæði hjá leikmönn-
um og ekki síður stjórn, en mér
sýnist mikil alvara vera í þessu hér
á Akranesi og allir eru ákveðnir í
að gera sitt besta.“ Guðjón sagðist
hefja æfingar nú í byijun nóvemb-
er, og verður æft með litlum hléum
í allan vetur.
ÍHtim
r;. FÓLK
■ ÞORVARÐUR Björnsson og
Guðmundur Haraldsson verða
línuverðir hjá Óla B. Olsen, þegar
hann dæmir leik Anderlecht og
Omonía í Evrópukeppni bikar-
hafa. Leikurinn fer fram í Briissel
í næstu viku.
■ LITLAR breytingar urðu á
stjórn Knattspyrnufélags ÍA á
aðalfundi þess í vikunni. Gunnar
Sigurðsson var endurkjörinn form-
aður, en athygli vekur að í vara-
stjórn koma tveir „gamlir refir“,
sem báðir voru formenn Knatt-
spyrnuráðs ÍA á sínum tíma; Har-
aldur Sturlaugsson og Gylfi
Þórðarson.
t
o
HANDBOLTI
HSÍ ætlar
aðráða
framkvæmda-
stjóra
Handknattleikssambands ís-
lands hefur ákveðið að segja
upp tveimur af þremur starfsmönn-
um á skrifstofu sambandsins. „Pjár-
hagsstaða sambandsins er ekki góð
um þessar mundir og höfum við því
ákveðið að fækka um eitt stöðugildi
á skrifstofu okkar. Við munum ráða
framkvæmdastjóra í fullt starf fljót-
Iega,“ sagði Gunnar Gunnarsson,
varaformaður HSI.
„Þetta er ástæðan fyrir því að
við fækkum á skrifstofunni. Þá má
geta þess að við erum með lands-
liðsþjálfara í fullu starfi og mun
hann hafa bækistöð á skrifstofu
okkur í sambandi við vinnslu á
ýmsum verkefnum sem við kemur
landsliðinu ogþjálfun,“ sagði Gunn-
ar, en fyrirhugað er að breytingar
verði á skrifstofu HSÍ um áramót.
DÓMAR-AR
Íblaðinu í gær er greint frá
fádæma atburði, sem átti sér
stað skömmu fyrir blakleik á
sunnudag. Leikmenn 1. deildar
liðs Fram í blaki neituðu að sam-
þykkja settan dómara á leik ÍS
og Fram — sögðu
hann hliðhollan ÍS —
og höfðu leikmenn-
irnir sitt fram. Þetta
er alvarlegt mál,
sem ekki er hægt
að láta afskipta-
laust. Þetta er árás
á dómara, sem
snertir ekki aðeins
blakíjiróttina heldur getur haft
ófyrirsjáanleg áhrif á allar
keppnisíþróttir. Ef menn gera
sér ekki grein fyrir verkaskipt-
ingunni og ábyrgð hlutaðeigandi
aðila í íþróttum er illt í efni. Ef
leikmenn ætla að gerast dómar-
ar án þess að þekkja reglurnar
er ver af stað farið en heima
setið.
Dómarar í keppnisíþróttum
eru gjarnan gagnrýndir meira
en góðu hófí gegnir. Gagnrýnin
er að vissu leyti réttmæt, ef við-
komandi standa sig ekki í starfi.
Dómarar verða að þekkja leikinn
og lögin, gæta hlutleysis og fara
eftir settum reglum. Keppnis-
manni, sem hefur lagt sig allan
fram og reynir ávallt að gera
sitt besta, sárnar ekkert eins
mikið og ranglát dómgæsla, sem
getur á augabragði lagt allt
erfiðið í rúst. Og því miður eru
þess dæmi að dómarar hafa ráð-
ið úrslitum. Þrátt fyrir það er
algjörl virðingarleysi að leik-
menn og þjálfarar berji bumbur
áður en flautað er til leiks og
dæmi menn fyrir verknað, sem
þeir hafa ekki frainið.
Keppni fer ekki fram nema
að vissum skilyrðum uppfylltum.
Leikreglur eru til þess að fara
eftir og dómara ber að sjá til
að þeim sé framfylgt. Ábyrgð
félaganna felst meðal annars í
því að fá áhugasamt fólk til að
taka að sér dómgæsluna. Við-
komandi samband heldur utan
um dómaramálin, sér um nauð-
synlega fræðslu, námskeið og
endurmenntun, fær dómurum
verkefni við hæfi og hefur eftir-
lit með störfunum. Menn byija
að hjólg áþríhjóli, síðan á tvíhjóli
og ef áhugi og geta eru fyrir
hendi tekur vélhjólið við en ekki
öfugt.
Ef viðhalda á keppnisíþrótt-
um með því markmiði að ná
ávallt lengra, verður að huga
að öllum samvirkandi þáttum
samtímis.
Keppni verður ekki haldin án
dómara. Tómt mál er að lengja
keppnistímabilið í knattspyrnu
fyrr en yfírbyggðir vellir úti um
allt land verða að veruleika.
Skammsýni er að fjölga liðum
og leikjum nema aðstaða sé
tryggð, leikmenn séu fyrir
hendi, lærðir þjálfarar og hæfir
dómarar til taks vegna aukinna
verkefna.
Óréttmætar árásir á einn
hlekk keðjunnar eru óþolandi
og til þess eins að fæla menn
frá. Menn verða að læra að beina
spjótum sínum í rétta átt ef
stinga skal á meininu. Hvernig
geta menn leyft sér að dæma
dómara, sem hefur ekki dæmt,
fyrir að dæma leik, sem hefur
ekki farið fram? Og hvernig
stendur á því að menn komast
upp með svona hringavitleysu?
Steinþór
Guðbjartsson
„Hvernig stendur á því
aö menn komast upp meö
svona hringavitleysu?“