Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 1

Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 1
104 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 Irakar féllust á tilboð Bush ÍRAKAR féllust í gær á tilboð George Bush Bandaríkjaforseta um bejnar við- ræður Bandaríkjamanna og íraka til þess að freista þess að leysa deiluna fyr- ir botni Persaflóa fyrir 15. janúar en Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur heimilað valdbeitingu eftir þann tíma til þess að hrekja íraska innrásarliðið frá Kúvæt. Fréttastofan INA sagði að bylt- ingarráðið, æðsta stjórnvald landsins, hefði á fundi um hádegisbil í gær ákveð- ið að taka boði Bush um að Tariq Aziz utanríkisráðherra komi á hans fund í Washington um miðjan mánuðinn og James Baker utanríkisráðherra fari síðan til Bagdad til viðræðna við Saddam Hussein forseta. Jarðgöng und- ir Ermarsund FRANSKIR og breskir jarðgangamenn tókust í hendur 30 metra undir sjávar- botni Ermarsunds á hádegi í gær en þá luku þeir gerð fyrstu járnbrautargang- anna af þrennum undir sundið. Gert er ráð fyrir að járnbrautaferðir undir Erm- arsund milli Bretlands og Frakklands hefjist árið 1993. Vill tímabund- in hjónabönd ALI AKBAR Rafsanjani, forseti Irans, hefur lýst stuðningi við tímabundin hjónabönd til þess að fólk geti fengi útrás fyrir kynhvöt sína án þess að þurfa að bindast til æviloka. „Ungt fólk þarf að bíða þangað til það er 25-30 ára og búið að koma undir sig fótunum eftir því að geta svalað kynþörf sinni. 011 vitum við að krakkar hafa slíkar þarfir allt frá fimmtán ára aldri,“ sagði Rafsanjani við bænagjörð á föstu- dag. Hann sagði að íslömsk lög heimil- uðu óformleg hjónabönd til eins eða tveggja mánaða en írönsk lög bönnuðu slíkt. „Ef við brjótum ekki niður slíka menningarmúra getum við ekki auðveld- lega haft hemil á siðferðisbrestum manna. Það er erfitt að dæma mann sem hefur gengið af göflunum vegna ófull- nægðra hvata.“ Rafsanjani reyndi fyrir sex árum að viðra þessar sömu skoðanir en þá mættu þær harðri andstöðu yfir- stéttarfjölskyldna sem töluðu um „opin- bert, vændi“. 275. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 PRENTSMIÐJAMORGUNBLAÐSINS „...OG FLENGIR ÞÁ MEÐ VENDI“ Morgunblaðið/RAX Þýsku þingkosningarnar fara fram í dag: 60 milljónir Þjóðverja kjósa sameiginlegt þing Bonn. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. FYRSTU lýðræðislegu kosningarnar í sameinuðu Þýsklandi í 58 ár fara fram í dag. 59,9 milljónir manna hafa atkvæðisrétt í þeim og og geta valið á milli 3.696 frambjóðenda í 24 flokkum í 656 sæti á sambandsþinginu í Bonn. Er helmingur þingmanna, 328, kjörinn með meirihluta atkvæða í jafnmörgum kjördæmum en hinn helmingurinn er kosinn hlutfallskosningu á landslistum. Ríkisstjórn Helmuts Kohls, samsteypustjórn kristilegra (CDU/CSU) og fijálslyndra (FDP) undir forystu Hans-Dietrichs Genschers utanríkisráðherra er spáð sigri í kosningunum. Hinn 5. mars 1933 var kosið til þings í Þýskalandi og eftir það hrifsuðu nas- istar völdin og héldu þeim í 12 ár. Eftir að síðari heimsstyijöldinni lauk með falli nas- ista tóku Sovétmenn og kommúnistar völdin í austurhluta Þýskalands og slepptu þeim ekki fyrr en almenningur neyddi þá til þess í lok síðasta árs. Síðan hefur markvisst verið unnið að sameiningu Þýskalands und- ir forystu Kohls kanslara. Er talið að hann uppskeri árangur þess í kosningunum í dag. Helstu andstæðingar kristilegra eru jafnað- armenn (SPD) og tefla þeir Oskar Lafonta- ine, forsætisráðherra í Saarlandi, fram sem kanslaraefni. Honum hefur gengið illa að fá hljómgrunn, meðal annars vegna efa- semda sinna um sameininguna og hefur verið kallaður „rangur frambjóðandi á röng- um tíma“. Kannanir sýna, að CDU/CSU ætti að fá 44-45% atkvæða, SPD 35%, FDP 9,5%, græningjar 7% og PDS, fyrrum kommún- istaflokkur A-Þýskalands, 2-3% en þó nóg til að komast yfir 5% mörkin í austurhluta landsins, sem dugar til að fá mann á sam- bandsþingið. Þangað komast fulltrúar þeirra flokka sem fá meira en 5% annaðhvort í austur- eða vesturhluta landsins. Kannanir sýna að 17-20% höfðu ekki gert upp við hug sinn skömmu fyrir kjör- dag. Kristilegir demókratar óttast að vel- gengni þeirra í könnunum skapi andvara- leysi meðal kjósenda. Þá benda þeir á að fjöldi óákveðinna sé mikill, í kosningum og stjórnmálum kunni allt að gerast. Stjórn- málaflokkarnir keppa einkum hart innbyrð- ist um stuðning við landslista sína, en fjöldi kjörinna þingmanna á þeim ræður mestu um styrkleika við stjórnarmyndun, því að nýr kanslari er kjörínn á sambandsþinginu í Bonn. Því er spáð, að fái SPD ekki meira en 35% verði valdabarátta meðal jafnaðar- manna, þar sem Lafontaine berjist um for- mennsku í flokknum við Hans Jochen Vogel. Sjá „Á útsölu Rauða hersins við Brand- enborgarhliðið" á bls. 16-18. UTIÆVINTYRI? GASALEGA ERTU SJARMERANDI saga Jóns Óttars Ragnars- sonaraf Stöð 2 HVERFANDA ...... HVELI C

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.