Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 18
18 SÖGULEGAR EN SPENNULITLAR atkvæðið er þannig það atkvæði sem öllu máli skiptir þar sem flokk- ur fær þingmenn kjöma í hlutfalli við fjölda annarra atkvæða greidd flokknum. Sá flokkur sem hingað til hefur mest hagnast á þessu kerfi er FDP. Hefur flokkurinn ávallt hlotið mjög lágt hlutfall af fyrstu atkvæðunum í kosningum en síðan 8-9% síðari atkvæða. í síðustu kosn- ingum, árið 1987, var þannig eng- inn hinna 46 þingmanna FDP kos- inn beint heldur voru þeir allir af landslista. Kohl og CDU Hinn sextugi kanslari Þýska- lands, Helmut Josef Michael Kohl, fæddist og ólst upp í borginni Lud- wigshafen í Pfalz-héraði. Var faðir hans embættismaður á skattskrif- stofunni. Æviferill Helmuts Kohls og saga Kristilega demókrata- flokksins tvinnast mjög náið saman. Kohl gekk sextán ára til Iiðs við CDU og ber flokksskírteini númer 246. Hann hefur alla tíð síðan starf- að fyrir flokkinn og jafnvel doktors- ritgerð hans í stjómmálafræði fjall- aði nánast einvörðungu um starf- semi CDU í sambandslýðveldi Kohls — Rheinland-Pfalz. Kohl var ungur kosinn á þing Rheinlands-Pfalz og varð síðar forsætisráðherra þess 39 ára gamall, þá sá yngsti sem gegnt hafði slíku embætti í Vestur-Þýska- landi. Kohl hélt skipulega áfram að vinna sig upp innan flokksins og varð 1976, í annarri tilraun, formaður CDU. Kanslari varð hann eins og áður sagði 1982 þá 52 ára og þar með yngsti kanslari í sögu landsins. Ríkisstjóm Kohls náði gífurleg- um árangri, fyrst og fremst í efna- hagsmálum, en samt sem áður fóm vinsældir hennar og kanslarans sí- fellt hrakandi. Kohl var meira að segja sífellt óvinsælari en ríkis- stjómin sjálf. Kosningar í einstaka sambandslýðveldum staðfestu líka að kristilegir demókratar stæðu höllum fæti þó að það væri gömul regla að flokknum í ríkisstjóm gengi ávallt illa í slíkum kosningum. Allt fram á síðasta haust var því fátt sem benti til að Kohl myndi takast að ná stjóm sinni fylgi fyrir eitt kjörtímabil enn. Var farið að gæta óróleika innan flokksins og jafnvel farnar.að heyrast raddir um að skipta bæri um forystu. „Bylt- ingin“ í Austur-Þýskalandi ger- breytti hins vegar stjómmálalífinu vestanmegin á nokkmm mánuðum jafnt sem austanmegin. Kohl var í fyrrahaust einn fyrsti stjómmála- maðurinn sem áttaði sig á hversu gífurlegar breytingar væri í vænd- um. Eftir smá hik greip hann hið sögulega tækifæri. Þann 28. nóv- ember 1989 kynnti kanslarinn þing- inu tíu atriða áætlun að sameiningu þýsku ríkjanna, án þess að hafa áður kynnt málið samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn eða leiðtogum bandamanna. Jafnaðarmenn vom samt lengi vel áfram sigurvissir. Austurhluti Þýskalands hafði ávallt verið vinstr- isinnaðri en vesturhlutinn og var þar að finna helstu vígi jafnað- armanna á tímum Weimarlýðveldis- ins. SPD var líka fyrri til að fá samstarfsaðila austanmegin er leið að fyrstu frjálsu kosningunum þar með því að stofna nýjan jafnaðar- mannaflokk í Austur-Þýskalandi. Vandi CDU var að í 40 ár hafði verið til flokkur í Austur-Þýska- landi er bar nafnið CDU er ávallt hafði verið handbendi kommúnista- flokksins. Að öllu óbreyttu var því samstarf við hann útilokað. Vand- inn var Ieystur með því að bæ- verski systurflokkurinn CSU að- stoðaði við myndum nýs flokks austanmegin, DSU, sem bauð fram í kosningabandlag með „austur“- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 Fullvíst þykir að Helmut Kohl kanslari verði sigur- Oskar Lafontaine, kanslaraefni jafnaðarmanna. vegari þingkosninganna í Þýskalandi sem fram fara í dag. CDU og þriðja flokki. Kanslarinn tók mjög virkan þátt í kosningabaráttunni og móttökum- ar sem hann fékk voru allt aðrar en hann var vanur að fá í Vestur- Þýskalandi. Þar hafði hann til dæm- is i desember 1989 á samkomu í Berlín ásamt Brandt, Genscher og fleirum verið sá eini sem var hróp- aður niður er hann tók til máls. Austur-Þjóðveijamir tóku hins veg- ar á móti Helmut Kohl sem frelsara er hann kom þar fram á fundum og töldu fundarmenn oft hundmð þúsunda. í kosningunum í mars á þessu ári vann CDU, þrátt fyrir fortíð sína, öllum að óvörum sigur fyrst og fremst vegna þess að aust- ur-þýskir kjósendur settu samasem- merki m illi CDU, Kohls og vestur- þýska marksins. Síðan hafa vinsældir kanslarans í Þýskalandi og virðing erlendis farið stöðugt vaxandi. Honum hefur á mettíma, tekist það sem fáir hefðu trúað að væri mögulegt nefnilega að sameina þýsku þjóðina i eitt ríki. Mikilvægasti liðurinn í því var efna- hagssamruni ríkjanna sl. júlí en ákvörðunina um hann tók Kohl þrátt fyrir viðvaranir stjómmála- manna, jafnt sem hagfræðinga seðlabankans, sem vildu fara var- legar í sakimar og láta sammnann ganga hægt fyrir sig. í dag efast enginn um að þessi ákvörðun var sú eina rétta. Kanslaranum tókst líka að fá leiðtoga bandamanna sem allt frá stríðslokum höfðu haft ákveðinn íhlutunarrétt varðandi málefni Þýskalands, til að fallast á sameininguna en þá sérstaklega Sovétmenn sem vom ekkert hrifnir af hugsuninni um sameinað Þýska- land. Eftir óteljandi fundi kanslar- ans og embættismanna hans með leiðtogum Sovétríkjanna varð hins vegar niðurstaðan sú að Sovétmenn féllust ekki bara á sameininguna heldur einnig aðild sameinaðs Þýskalands að Nato. Kohl sem áður mátti þola háð og spott fyrir meintan klaufaskap er nú sjálfsöryggið uppmálað. a alþjóðavettvangi efast enginn leng- ur um hæfíleika hans og heima fyrir nýtur hann meiri vinsælda en nokkra sinni áður, þó enn sé hann ekki nærri eins vinsæll og utanríkis- ráðherrann Genscher. Hann hefur jafnvel gefíð í skyn að hann sé far- inn að gæla við hugmyndina um að draga sig í hlé þó að hann nefni ekki hvenær. Eftir að hafa verið kosinn fyrsti kanslari sameinaðs Þýskalands geti hann ekki óskað sér neins meir í lífínu. Fall Lafontaine Helsti andstæðingur Kohls í kosningunum, Oskar Lafontaine, hefur á undanfömum ámm verið skærasta stjama jafnaðarmanna og var til skamms tíma talinn ömggur sem næsti kanslari Þýskalands gæfí hann kost á sér á annað borð. Hinn 47 ára gamli Lafontaine fæddist í Saarlandi, á stríðsámnum, fékk bamaskólamenntun sína hjá prestum og lagði stund á eðlisfræði í háskólum í Saarbmcken og Bonn. Háskólaóeirðum sjöunda áratugar- ins tók hann ekki þátt í heldur hóf þess í stað kerfísbundið að vinna sig upp innan Jafnaðarmanna- flokksins í Saarlandi. Þar komst hann hratt til áhrifa og situr nú sjötta kjörtímabil sitt í áhrifastöðu þar, fyrst sem borgarstjóri Saar- bmcken og síðan sem forsætisráð- herra Saarlands, minnsta samband- alýðveldis Þýskalands. Þar er hann kóngur í ríki sínu og í þeim efnum jafnvel oft verið líkt við Franz-Josef Strau í Bæjaralandi á ámm áður. I Saarlandi er hann ekki kallaður annað en „Óskar“ eða „Óskar okk- ar“. En þó að konungsríki Óskars sé lítið og einangrað hefur hann haft áhrif langt út fyrir það. Þróun mála í Þýskalandi undanfarin miss- eri hefur hins vegar þver öfug áhrif á vinsældir Lafontaines en kanslar- ans. Ólíkt kanslaranum hefur Laf- ontaine aldrei verið neitt gefínn fyrir sameiningu Þýskalands og gekk á ámm áður manna lengst í að gefa í skyn að staðfesta bæri sjálfstæði Austur-Þýskalands. Eftir að sameiningin var orðin að óum- fiýjanlegum vemleika einbeitti Laf- ontaine sér að því að reyna að vekja upp ótta í vesturhluta landsins með því að mikla kostnaðinn við samein- inguna. Hann lagðist gegn samn- ingi þýsku ríkjanna um efnahags- sammna og hefði helst viljað láta fella hann en til þess höfðu jafnað- armenn aðstöðu með meirihluta sín- um í Sambandsráðinu. í þessum efnum var hann hins vegar stöðvað- ur af eigin flokksmönnum, ekki síst að austan, sem margir hveijir eru ekki of hrifnir af „Þýskalandspólt- ík“ Lafontaines. Lengi vom taldar líkur á að Lafontaine, sem hafði gefíð vilyrði sitt fyrir framboði á síðasta ári, myndi hætta við allt saman. Snemma árs réðist geðsjúk kona, Adelheid Streid, að honum á fundi og skar hann á háls, en Lafontaine var um stund milli heims og helju. Innanflokkságreiningur um málefni Þýskalands olli því líka oftar en einu sinni að kánslaraefnið var við það að draga sig í hlé til Saarbruck- en. Framboð hans var samt endan- lega staðfest í október sl. og hófst þá að mörgu leyti hin vonlausa barátta gegn ofurafli kanslarans hafín. Lafontaine er einnig nógu um- deildur til að fá ekki heldur óskorað- an stuðnings flokksmanna. Flestir af helstu þungaviktarmönnum jafn- aðarmanna hafa haldið sig í bak- gmnninum í kosningabaráttu hans. Hans-Jochen Vogel, formaður flokksins, og kanslaraefni flokksins 1983, nefnir varla nafn frambjóð- andans á kosningafundum og það sama má segja um Johannes Rau, forsætisráðherra Nordrhein-West- phalen og kanslaraefni jafnaðar- manna 1987. Meira að segja Willy Brandt fyrrum kanslari, sem lengi hefur verið talinn pólitískur fóstur- faðir Lafontaines, kemur varla ná- lægt baráttunni. Það er líka langt bil á milli skoðana Brandts og Laf- ontaines í málefnum er varða sam- eininguna. í stað þess að hjálpa kanslaraefninu hefur Brandt hvað eftir annað hrósað kanslaranum. Kohl hafi vaxið í embættinu og árangur hinna átta stjómarára hans sé lofsverður. Annar fyrmrn kansl- ari, Helmut Schmidt, sagði í sam- tali við hollenskt dagblað að Laf- ontaine ætti eftir að tapa kosning- unum og ætti það líka skilið. Óskar Lafontaine hefur lýst því yfír að hann muni ekki verða odd- viti stjórnarandstöðunnar í Bonn ef hann tapi kosningunum heldur halda áfram ferli sínum í Saar- landi. Þeir em líka til sem telja að tap nú væri ekki endirinn á ferli hans heldur frekar byijunin. Laf- ontaine njóti mun meiri stuðnings meðal yngra fólks en eldra og sé því maður framtíðarinnar fremur en nokkur annar. Ef svo færi að Þýskaland muni eftir nokkur ár lenda í efnahagslegum erfíðleikum vegna sameiningarinnar sé tími Lafontanines líka kominn, Þá sé hann maðurinn sem hafí „alltaf" haft rétt fyrir sér í spádómum sín- um. Líklegra er þó að framtíðar kanslaraefni jafnaðarmanna verði t.d. Walter Momper, borgarstjóri Berlínar, eða Bjöm Engholm, for- sætisráðherra Slésvíkur-Holtseta- lands. Búist við litlum breytingum Á heildina litið er ekki búist við miklum breytingum á þinginu hvað hlutföll flokka varðar. Fijálsa dem- ókrataflokknum er spáð svipuðu fylgi og í síðustu kosningum eða á bilinu 9-10%. Helsta baráttumál flokksins er að skattar verði ekki hækkaðir, halda verði Genscher, vinsælasta stjórnmálamanni lands- ins á þingi og koma í veg fyrir hreinan meirihluta CDU. Græningjar hafa verið lítið áber- andi í kosningabaráttunni enda ein- oka önnur mál en umhverfísmál umræðuna að mestu leyti. Þeir hafa gert kosningabandalag við Bundnis 90 í nýju sambandslýðveldunum en það var bandalag grasrótarhreyf- inganna í Austur-Þýskalandi í kosn- ingunum þar í mars. í síðustu skoð- anakönnunum fyrir kosningar var Græningjum og Bundnis 90 spáð allt frá 6,5% til 11% fylgis. í síð- ustu kosningum fengu Græningjar 8,3% atkvæða. Kosningabarátta þeirra hefur að mörgu leyti verið vel gerð og einnig virðist kommúni- staflokkurinn PDS ekki ætla að ná fótfestu en sá flokkur var talinn geta orðið skæður keppinautur Græningja um atkvæði yst á vinstri kantinum. Síðustu skoðanakannanir sýna fram á 1-2% fylgi PDS en flokkur- inn er í raun arftaki hins gamla austur-þýska kommúnistaflokks, SED. Sá flokkur var aldrei lagður niður heldur skipti einungis um nafn og forystu. Nú var flokkurinn sem byggði Berlínarmúrinn og hélt uppi sovésku stjórnkerfi í fjömtíu ár, allt í einu orðinn að „Flokki hins lýðræðislega sósíalisma" og for- maður hans, lögfræðingurinn Greg- or Gysis, var valinn sérstaklega með það fyrir augum að hann væri óflekkaður af fortíð flokksins og gæti náð vinsældum meðal vinstri- sinnaðra menntamanna í vestur- hluta Þýskalands. Í fyrstu virtist sem PDS myndi fá einhvem stuðn- ing þrátt fyrir kostnað Græningja. Auk gamalla flokksnagla hefur flokkurinn annars vegar reynt að höfða til „gáfnamanna" á vinstri vængnum og hins vegar til þeirra í austurhluta Þýskalands sem hafa orðið illa úti vegna sameiningarinn- ar, til dæmis vegna atvinnumissis. Flokkurinn á gífurlegar eignir, jafnt í reiðufé sem fasteignum og fyrirtækjum og er talinn vera rík- asti stjómmálaflokkur Evrópu. Hafa fjármál Kommúnistaflokksins verið umlukin leyndarhjúp og veit enginn nákvæmlega, þrátt fyrir ít- arlegar rannsóknir, nákvæmlega hve miklar eignirnar eru, þó ljóst sé að um marga milljarða marka er að ræða. Flokknum var því mik- ið í mun að halda í sem mest af þessum eignum og er það talin helsta orsök þess að gamli Komm- únistaflokkurinn var ekki endan- lega leystur upp heldur einungis látinn skipta um nafn. Þannig var tryggt að „nýi“ flokkurinn, PDS, myndi halda eignunum áfram. í forystu PDS vora gerðar áætl- anir til að koma hluta auðsins und- an og í gegnum bankareikninga sovésks fyrirtækis vom gífurlegar upphæðir millifærðar á bankareikn- inga í Hollandi og Noregi. Þýska lögreglan komst á snoðir um þetta og létu yfírvöld í Berlín framkvæma húsleit í höfuðstöðvum PDS. í fyrstu neitaði Gregor Gysi öllum ásökunum um að eitthvað óeðlilegt væri við þessar millifærslur og sagði þær komnar vegna gamalla skuld- bindinga við sovéska Kommúnista- flokkinn. Sovétmenn tóku hins veg- ar ekki þátt í þessum leik, sönnun- argögnin hrönnuðust upp, og Gysi varð að viðurkenna að það hefí verið ætlun flokksins að koma pen- ingunum undan. Hann hefði þó sjálfur ekkert vitað um þessar fyrir- ætlanir. Þeir séu þó ekki margir sem taka þá staðhæfingu hans trúan- lega og er Gysi jafnt sem PDS rú- inn trausti. Gögn sem komið hafa fram í dagsljósið nú í þessari viku benda líka til að hann hafí verið með í ráðum um fjármálaloftfim- leikana. Málinu er langt í frá að vera lokið. í þessari viku komu fram gögn sem sýndu fram á tilvist fleiri leynireikninga og einnig gögn sem bentu til að Gysi hefði verið með í ráðum mánuðum saman. Repúblikanaflokkurinn, flokkur yst á hægri vængnum sem nokkuð hefur látið til sín kveða á undan- förnum ámm, er ekki lengur talinn líklegur til stórræða en hann var um tíma talinn geta orðið CDU og CSU skeinuhættur. Repúblikanar, sem byggja stefnu sína á hatri í garð innfiytjenda, náðu mjög góð- um árangri í kosningunum í ein- staka borgum og sambandslýðveld- um og bar þar hæst kosningar í Vestur-Berlín í janúar í fyrra en þá hlaut flokkurinn 7,5% atkvæða. Formaður Repúblikanaflokksins, Franz Schönhuber, er fyrmm sjon- varpsmaður í Munchen sem sagt var upp störfum í kjölfar útkomu bókar þar sem hann lýsir fortíð sinni og þátttöku í Waffen-SS í síðari heimsstyijöldinni. Byggðust vin- sældir flokksins að miklu leyti á vinsældum hans. Síðasta vetur var hins vegar gerð hallarbylting í flokknum frá hægri (!) og þó að Schönhuber hafí lifað þau átök af hefur flokkurinn horfið af sjónar- sviðinu. Jafnvel í kosningum í Bæj- aralandi, helsta vígi flokksins, fyrir skömmu, náði enginn frambjóðenda hans kjöri. í skoðanakönnunum mælist fylgi Repúblikanaflolkksins ávallt sem núll komma eitthvað. Það sama á við um aðra smáflokka sem bjóða fram. Enginn þeirra er líklegur til að ná manni á þing.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.