Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 36

Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 EITT sinn þegar ég var á ferð í New York ásamt nokkrum kunninajum mínum fórum við á barinn á glæsihótelinu Waldorf Astoria, svona rétt til að sýna okkur, sjá aðra og láta stórlaxana í Ameríku vita að við strákarnir vær- um komnir í bæinn. Mér fannst svipuð tilfinning að koma í fyrsta sinn á nýja veitingastaðinn hans Tomma, Ommu Lú, nema að stórlaxar á amerískan mælikvarða voru þar ekki til staðar, — en það var bara betra. Innréttingar á þessum nýja stað eru hins vegar stórglæsilegar, í eins konar ensk-amerísk- um aldamótastíl, og gefa Waldorf Astoria ekkert eftir. Séð inn í bóka- stofuna. Á miðj- um vegg er málverk sem talið er vera um 300 ára gamalt. „Betri stofa“ Ömmu Lú. Á veggnum er .málverk af Lovísu Guðrúnu Jakobínu Ágústsdóttur Fjeldsted Annað Erró- málverkanna sem hanga á vegg í Ómmu Lú. eftir Svein Guðjónsson/ Myndir: Arni Sæberg innréttingunum á Ömmu Lú er mik- ill útskorinn viður og þung hús- gögn. Þar hanga einnig fágæt mál- verk á veggjum, meðal annars eftir Erró og nokkur, sem máluð voru fyrr á öldum. Þar er líka sérstök bókastofa þar sem menn geta með- al annars gluggað í ritverk Shake-, speares, myndskreytta útgáfu frá 1830, eða tímaritið Punch, árganga 1931 til 1939, sem er eins konar Séð yfir hluta af aðalsalnum, þar sem sjá má í grænu „mafíubásana". „Spegill“ Breta. Þar er einnig að finna íslendingasögumar frá 1880 og ritverk Einars Ben., svo nokkuð sé nefnt. Og á vegg bókastofunnar hangir annað af tveimur málverk- um, sem talin eru vera um 300 ára gömul. Þar er einnig á vegg eina myndin af baróninum á Hvítárvöll- um, sem vitað er um á íslandi. Að sögn Tómasar Tómassonar, eiganda Ömmu Lú, á Ingibjörg Pálmadóttir innanhúsarkitekt mest- an heiður af útliti veitingahússins, en hugmyndin að innréttingunum er að mestu fengin frá veitingahús- unum „Au Bar“ og „Nells“ í New York, svo og „Anna Bell“ í London. „Þetta er byggt eins og heimili hástéttarfólks í New York um alda- mótin, þegar það reyndi að líkja eftir breskum aðalssetrum," sagði Tómas. Og það er vissulega margt, sem kemur á óvart og vekur athygli þegar komið er inn á Ömmu Lú. Þama er til dæmis hluti af arin- stofu úr bresku hástéttarheimili á síðustu öld. Arinstofuna fékk Tóm- as hjá Andy Thornton í Englandi, sem sérhæfír sig í að kaupa gamla rmuni og hús, svo sem gamlar kirkj- ur, gamla bari, jámbrautir og fleira, sem hann síðan selur aftur. ■ Auk arinstofunnar bresku má einnig sjá á Ömmu Lú upprunalegan eikarbar úr breskri járnbrautarstöð frá því um aldamót. Af öðmm upprunaleg- um munum sem nefna má eru ljósa- krónur úr Essex House hótelinu við Central Park South í New York, og tónpúltið svokallaða, sem er nýyrði yfir „diskótekbúr", en það er prédikunarstóll úr gamalli breskri Meþódistakirkju frá því fyrr á öldinni. Hér er aðeins fátt eitt talið, en áhugamenn um gömul húsgögn, gamlar bækur og fágæt málverk geta eytt heilu kvöldi á Ömmu Lú, bara við að skoða. Eitt að því sem setur sterkan svip á aðalsalinn em „mafíubásarn- ir“ svokölluðu, leðurklæddir grænir sófar í hálfhring, sem maður sér svo oft í kvikmyndum um A1 Cap- one. Er ekki að efa að þeir verða vinsælir meðal matargesta þótt önnur borð hafí vissulega einnig sinn „sjarma“. Ónefnd er einnig „betri stofa“ Ömmu Lú, bakherbergi þar sem stórt málverk af Lovísu Guðrúnu Jakobínu Ágústsdóttur Fjeldsted hangir á vegg. Þar erum við ef til vill komin að kjarna málsins því Lovísa er engin önnur en Amma Lú, amma eigandans, ög er þar komin skýring á nafni staðarins. Ekki er ástæða til að fara fleiri orðum um þetta sérstæða veitinga- hús, enda gildir hér sem oftar að „sjón er sögu ríkari".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.