Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 39

Morgunblaðið - 02.12.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖLK i FRlS l l UM SCNmjPAaUR :2. DESEMBER 1990 39 Steve Golin og Sigurjón Sighvatsson, myndin fengin úr Newsweek. KVIKMYNDIR Gætum setið í skuldasúpu er frá'því hvernig þeir Sigurjón og meðeigandi hans í PF, Steve Golin, hittust í kvikmyndaskóla og að fyrirtækið hafi í upphafi verið auglýsinga og tónlistamynd- bandaframleiðandi. Þeir h^ifi gert það svo gott á þeirri línu að þeir geti tekið 40 milljónir dollara úr veltunni á ári til kvikmyndagerð- ar. Svo búi þeir svo vel að fá aðrar 40 milljónir dollara frá Pol- ygram gegn prósentum af hagn- aði. Það sem á vanti afli PF-menn með sölu á sýningarréttindum til Evrópu og víðar . Hammer segir að PF nái endum saman og framundan séu fleiri verkefni í samvinnu við David Lynch og raunar fleiri; því stefnan hafi verið tekin á fimm kvikmynd- ir á ári. Haft er eftir Steve Golin, að þó það virðist ganga vel þá sé starfið taugatrekkjandi, ef sterkir • hluthafar hrökkvi úr skaftinu gætu þeir Siguijón setið í skulda- súpu. „Það þarf að vakta inni- stæðuna sólarhringinn á enda,“ segir Golin. Brot úr Twin Peaks og Wild at Heart. Hið virta bandaríska fréttavikurit Newsweek var nýlega með ítar- lega grein um „litlu“ fyrirtækin sem eru að gera það gott í kvik- myndabransanum í Hollywood. Eru nefnd Miromax, Morgan Cre- ek og viti menn, Propaganda Films, fýrirtæki Siguijóns Sig- hvatssonar sem framleiddi verk leikstjórans Davids Lynch, Twin Peaks og Wild at heart. Greinar- höfundurinn í Newsweek, Joshua Hammer, gerir úttekt á því hvern- ig umrætt tríó heldur sér á floti í hinni ógnvænlegu samkeppni þar sem fjölmörg lítil fyrirtæki hafa brölt af stað og sokkið eins og steinar fyrr eða síðar. Kemst Hammer að þeirri niðurstöðu að nú væri sá tími runninn upp, að litlu fyrirtækin hefðu lært af óför- um annarra og í ofanálag væru stjórnendur þessara fyrirtækja þar að auki óvenju hæfir. Frá Propágandá films er sagt með þeim hætti að fyrirtækið sé „nýi strákurinn í hverfinu“. Greint i kvöld Aðgangseyrir Elílhúsid opið frá kl. 18-24 Yjirmatreiðslumaður David Wallaclt frá New York Dansad tiLkl. 01.00 Tónlistarstjóri: Árni Jónsson FRITT INN í KVÖLD matsölu- og skemmtistaður Knnglunni 4, sími 689686 ísS Morgunblaðið/Ámi Sæberg Jörundur Guðmundsson útgáfustjóri Nýaldarbóka með fyrstu afurðir forlagsins. NYALDARBÆKUR Afsprengi nýaldarhyggju að eru alltaf ný bókaforlög að skjóta upp kollinum öðru hvoru, stundum lifa þau stutt, en stundum er byr og þau lifa af eldskírnina sem oftar en ekki er jólabókaskriðan. Nýtt forlag hefur laumast hægt og bítandi af stað, án teljandi hávaða og láta, það heitir Nýaldarbækur og eins og nafnið gefur til kynna er forlagið skilgetið afkvæmi hinnar vaxandi nýaldarhyggju sem hér rikir. Fyrstu bækur Nýaldarbóka eru nýlega komnar út og Morgunblað- ið ræddi í tilefni af því við útgáfu- stjórann, Jörund Guðmundsson, og spurði hann um tilurð forlags- ins. „Það var nú þannig, að ég hef sjálfur verið í bókaútgáfu, bæði hjá öðru forlagi og svo upp á eig- in spýtur og þá með bókaútgáfuna Birting. Ég gaf m.a. út bókina um Shirley MacLane. Ég kynntist Guðrúnu G. Bergmann með þeim hætti að hún seldi bækur mínar í verslun sinni „Betra líf“ og dag einn vorum við að skiptast á skoð- unum. Hún rakti m.a. fyrir mér reynslu sína af sölu bóka um ný- aldarhyggjuna og hafði fengið þá niðurstöðu að mikil þörf væri á nýaldarlesefni á íslensku þar eð margir virtust treysta sér illa í enskuna. Þau hjónin Guðrún og Guðlaugur Bergmann hafa lengi verið áhugasöm á þessum línum og þau höfðu eitthvað leitað til annarra forlaga, en þekking og áhugi þeirra verið heldur rýr. Það varð því úr að við Guðrún og Guðlaugur stofnuðum þetta forlag og seinna kom til liðs við okkur Guðmundur Einarsson fyrrum formaður Sálarrannsóknarfélags- ins. Forlagið var stofnsett í apríl síðastliðnum,“ segir Jörundur. Hvert er markmiðið? „Mark- miðið er að koma reglulega á framfæri bæði þýddu og síðar frumsömdu efni helguðu þessu málefni. Stefnt er að því að ný bók komi út annan hvern mánuð og erum við farin að vinna að því að setja saman bókaklúbb. Það þýðir lítið að gera eingöngu út á jólabókaflóðið. Úrvalið verður meira og það verða ekki dauðir punktar í útgáfustarfinu. Önnur útgáfa er ekki hafin, en hugsan- legt er, að fréttabréf sem í undir- búningi er, vaxi og verði síðar að tfmariti." Fyrstu bækurnar eru komnar út, hvaða bækur eru þetta og hvað er næst á dagskrá? „Þetta eru „Lifðu í gleði“ eftir Sanya Roman, þýdd af Guðrúnu Berg- mann og „Bók Emmanuels" þýdd af Önnu Maríu Hilmarsdóttur. Þriðju bókina get ég ekki nefnt sem stendur þar eð ekki er endan- lega gengið frá útgáfuréttinum, en þar næst kemur hins vegar „Eftir dauðann, hvað þá?“ eftir George Meek. Væntanlegar eru einnig bækur um Michaei-fræðin svo eitthvað sé nefnt,“ segir Jör- undur. komnar a l CIO |*| C k 111 Miblaðar rábleggingar frá Ijósverum ab handan. Bækur sem leiðbeina, glebja og hjálpa. Þær eru innbundnarog kosta kr. 2.490,- LIFÐU I GLEÐI (Living with joy) Rituö af Sanaya Roman Fást í öllum helstu bókaverslunum BOK EMMANUELS (Emmanuels Books) Rituö af Pat Rodegast NYALDARBÆKUR Bolholti 6, símar 689278 og 689268.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.