Morgunblaðið - 05.12.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
17
Sálfræði og kukl
eftir Hugo Þórisson
A undanförnum misserum hefur
almenningi verið boðið upp á
margvíslega aðstoð og upplýsing-
ar í sálrænum efnum. Bæði inn-
lendir og erlendir gefa sig út fyrir
að geta hjálpað fólki út úr margs-
konar vanda, oft á tíðum með all-
sérkennilegum aðferðum.
Við hjá Sálfræðingafélagi ís-
lands höfum oft orðið vör við löng-
un þessara aðila til að hjúpa sig
í fagleg klæði og er það talið eftir-
sóknai-vert að tengjast sálfræðinni
á einhvern hátt. Oft má sjá að
erlendir aðilar titla sig sem sál-
fræðinga eða kennara í sálarfræði
nema hvort tveggja sé. Sálfræð-
ingafélag íslands hefur fylgst með
þessari þróun með vaxandi
áhyggjum, því sálfræðingar
þekkja manna best hve freistandi
getur verið að falla fyrir skyndila-
usnum.
Stjórn Sálfræðingafélags ís-
lands hefur ekki séð ástæðu né
grundvöll til að elta ólar við ein-
staka tilboð, sem sett hafa verið
fram, en frásögn í Morguriblaðinu
sunnudaginn 11. nóvember varð
til að fylla mælinn. Svokallaður
andlitslestur er þar á rangan og
ósanngjaman hátt tengdur sál-
fræðinni. Með því að byija grein-
ina á „Sálfræðingar og aðrir vinna
með fólk . ..“ er gefið í skyn að
m.a. lófalestur, fingralestur, að
lesa persónueinkenni fólks úr
stærð og lögun fíngra og nagla
séu aðferðir sem sálfræðingar
beiti.
Af þessu tilefni og öðrum ámóta
vill stjórn Sálfræðingafélags ís-
lands undirstrika að framan-
greindar aðferðir eru ekki aðferðir
sálarfræðinnar í greiningu og
meðferð á sálrænum erfiðleikum
fólks.
Því miður er það svo að sums
staðar erlendis eru litlar kröfur
gerðar til að geta kallað sig sál-
fræðing, en ná íslandi er starfshei-
tið sálfræðingur verndað með lög-
um nr. 40/1976 og má enginn
kalla sig sálfræðing á íslandi
nema hafa fengið til þess leyfi
menntamálaráðuneytis.
I ÁRSRIT Útivistar 1990, hið
16. í röðinni, er komið út. í ritinu
eru að þessu sinni fimm greinar
með efni af Suðurlandi og Vest-
fjörðum. Þorvaldur Búason og
Gísli Kristjánsson, báðir ættaðir
fra' Hvallátrum, rita grein um
gönguleiðir í Rauðasandshreppi.
Gísli Hjartarson heldur áfram
leiðalýsingum sínum um friðlandið
á Hornströndum. Að þessu sinni
fjallar hann um gönguleiðina Hest-
eyri-Aðalvík-Iíornvík og eru Aðal-
vík gerð sérstök skil, einkum her-
setu Bandamanna á Sæbóli og á
Straumnesíjalli. Lýður Björnsson
sagnfræðingur ritar grein með þjóð-
söguívafi um Gedduvatn á Þorska-
fjarðarheiði. Jóhann G. Guðnason
í Vatnahjáleigu í Landeyjum segir
frá ferð á Eyjafjallajökul árið 1935
og Albert Jóhannsson kennari á
Skógum lýsir leiðinni yfir Pimm-
vörðuháls og meðfram Skógá. Loks
segir Haukur Jóhannesson jarð-
fræðingur frá nýja Jarðfræðikort-
inu í stuttu máli og félagsmálin fá
að venju rými í bókarlok. Ársrit
Útivistar 1990 er 140 blaðsíður
prýtt fjölda litmynda. Útgefandi er
ferðafélagið Útivist en litgreiningu,
filmuvinnu, prentun og bókband
annaðist Prentsmiðjan Oddi. Rit-
stjóri er Ingibjörg S. Asgeirsdótt-
ir.
Það er hins vegar óljóst hveijar
faglegar forsendur eru hjá mörg-
um þeirra sem bjóða fram aðstoð
á sálræna sviðinu og þeir sem eru
að leita sér aðstoðar eða fræðslu
eiga sjálfir oft erfitt með að meta
það til fullnustu.
Islenskir sálfræðingar hafa í
mörg ár menntað sig og undirbúið
til að starfa með fólki og getur
almenningur gengið að því sem
vísu að hjá þeim byggist starfið á
faglegri þekkingu og færni. Það
má einnig benda á að þeir sálfræð-
ingar sem eru félagar í Sálfræð-
ingafélagi íslanda gangast auk
þess undir mjög strangar siða-
reglur í starfi sínu. Þessar siða-
„íslenskir sálfræðingar
hafa í mörg ár menntað
sig og undirbúið til að
starfa með fólki og get-
ur almenningur gengið
að því sem vísu að hjá
þeim byggist starfið á
faglegri þekkingu og
færni.“
reglur eru fyrstu samnorrænu
siðareglurnar sem fagfélög hafa
sett sér á Norðurlöndunum og
sendur siðanefnd Sálfræðingafé-
Hugo Þórisson
lags íslands vörð um þær gagn-
vart félagsmönnum SÍ.
I þessum siðareglum segir m.a.
í annarri grein um hæfni:
„(a) Sálfræðingur skal. starfa í
samræmi við vísindalegar aðferðir
og margprófaða reynslu og við-
halda stöðugt faglegri hæfni. Sál-
fræðingur velur viðeigandi starfs-
aðferðir hveiju sinni.
(b) Sálfræðingur skal taka mið
af eigin styrk og takmörkunum
er hann tekur að sér verkefni.“
Þessar siðareglur félagsmanna
Sálfræðingafélags íslands, auk
þeirra krafna sem gerðar eru til
að öðlast starfsheitið sálfræðing-
ur, er trygging almennings fyrir
því að aðstoð hjá sálfræðingi er
byggð á faglegum grunni og unn-
in af ábyrgð.
Höfundur er formaður
Sálfræðingafélags íslands.
Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfirði • Bjarnabúð, Tálknafirði • Edinborg,
Einar Guðfinnsson, Bolungarvík • Straumur, ísafiröi • Noröurland: Kf. Steingrí
Bíldudal • Verslun Gunnars Sigurðssonar, Þingeyri « 5
msfjarðar, Hólmavík • Kf. Húnvetninga, Blönduósiýí: m
</) 03
0 "D
03 o
2*2
0) -
rr *o
'D
• -O
— 3
O) </)
>'<
(ú •
o?
c:
° 3
</) 2
</) o
Q .
'°
o 7=5
o S
C3
X
- X
> =
03 Q)
^ £
0) d
DC w
c 'O
S 00
cö
E .1
D) V)
® £
tn í=
r- <0
c E>
‘® m
(f) .
O ^
K ?
• io
*o
- !?
2 íS
LL. <1)
ÍS
I<
^ C
>s 03
CD
cc “
v - C
oj
D)-Q-
■- íö
ZZ D)
'0 C
C '03
-3 C
03
CQ -
• 3
-* a)
> ®
03 >
•
<d r
DC 5
- 'D
"2 CD
03
O) O)
13 v—
-* O
~ -Q
Q. =
3 0
03
AEG
Uppþvottavél:
Favorit 775 U-w,
Verð áður kr. 66.124.-
Verð nú kf. 57.820.- stgr.
N.
AEG
Ryksuga:
Vampyr 402,
Verð áður kr. 10.444.-
Verð nú kr. 8.950.- stgr.
AEG
Brauðrist:
AT 23 L,
Verð áður kr. 2.986.-
Verð nú kr. 2.590.- stgr.
03
• cr
.
«1 |
p §
Œ ^ S
Við bjóðum frábær heimiiistæki frá AEG
Umboðsmenn um allt
(o Bræðurnir Ormsson hf. Umboðsmenn
x cn BYKO, Kópavogi • BYKO, Hafnarfirði •
Reykjavík og nágrenni:
Byggt og búið, Reykjavík
, á sérstöku jólatilboðsverði.
land.
BRÆÐURNIR
m ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
co’ o*
E? 3'
_ CQ
~ P
»g>
w c
-■ 0«
0,
7;
cn m
~ >
Q) *<
*
m
>
x o
<
13 CD
O'
O g"
cr
0)
3) c
o*
0«
— J3
* £D
7Z Q
7T ^
|r
</) Q
3; c
75 tQ
9*. c
3
£2
— 3
O*
tn
<
7v %
>
C/)
7; ^
X U
O- 5'
3^
CD
<
œ 5
C (Q
O* 0
C -
X X
0 C'
3 tn
CL
>
7T C
5’ £
c
(/) 0"
® 3
O o-
<2 cn
— <
CD
J3 3’
0> Q
tn _
O
U c
o o*
M
Q.
U)
3 O
. ?
^ m
O (Q
tn —
(D_ <n
~ o:
X g
I °
3?
cn d,
<: 9-.
CD
« CQ
3 P
§ <: