Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 Chua Wee Hian frá Singapore: Leiðtogar í kristilegu starfi verða að hafa skýr markmið Síðustu 18 árin hefur Chua Wee Hian ferðast til 73 landa sem framkvæmdastjóri International Fellowship for Evangelical Stud- ents, IFES, en það eru alþjóðleg samtök kristilegra stúdentafé- laga. Aðsetur IFES er í London og þaðan er fylgst með kristilegu starfi meðal námsmanna í 125 löndum um heim allan. Markmið starfseminnar er að boða kristna trú meðal háskólastúdenta og aðstoða alþjóðasamtökin kristilegu stúdentafélögin í hinum ein- stöku löndum með ýmsum hætti. Chua Wee Hian var hér á ferð nýlega og ræddi þá við forystumenn Kristilegrar skólahreyfingar og ræddi Mbl. stuttlega við hann við það tækifæri. Hann er af kínverskum ættum, alinn upp í Singapore og stundaði þar mennta- skólanám en síðar háskólanám í London. Hann ætlaði upphaflega í viðskipti og hugðist verða ríkur: Chua Wee Hian framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka kristilegra stúdentafélaga heimsótti ísland nýlega. -Ég stundaði nám í viðskiptum og stjórnun fyrirtækja og ætlaði að fara út í viðskipti eins og marg- ir frændur mínir. Hugmyndin var að auðgast á viðskiptum á fáum árum og lifa síðan þægilegu lífi. Fljótlega eftir að, ég kom til Lon- don kynntist ég starfi kristilegra stúdentafélága og sótti líka kín- versku kirkjuna þar. Það liðu ekki mörg misseri þar til ég skipti yfir í guðfræði enda var ég sífellt að spyija mig hvaða fjárfesting borg- aði sig best. Varþaðgull, fasteign- ir, jarðir? Ég komst að því að fólk sem þekkti Guð átti þá fjárfest- ingu sem verður ekki frá því tek- in, þann fjársjóð Sem mölur og ryð eyðir ekki og ég sé ekki eftir að hafa valið þessa leið, segir Chua Wee Hian. Kirkja fyrir nýtt fólk Eftir að Wee Hian (sem er skírnarnafn hans, Chua er ættar- nafnið) lauk námi starfaði hann um hríð sem aðstoðarprestur í kín- versku kirkjunni í London en hélt síðan tii Malaysíu og Singapore sem starfsmaður kristilegu stúd- entahreyfinganna þar. Árið 1967 var hann ráðinn aðstoðarfram- kvæmdastjóri IFES og fímm árum síðar framkvæmdastjóri. Hann lætur af því starfí á næsta ári og gengur til liðs við .tiltölulega nýja kirkju í London: -Við hófum fyrir nærri tveimur árum að reyna að safna saman fólki, einkum úr viðskiptalífinu, sem aldrei hefur komið til kirkju. Fyrst buðum við aðallega kínveij- um en síðan fleirum og nú er þetta alþjóðleg kirkja sem safnar oftast kringum 100 manns í guðsþjón- ustu einu sinni í mánuði í London. Þarna bjóðum við upp á vand- aðan tónlistarflutning, predikun er einföld og skýr og síðan látum við fólki eftir að íhuga málið. Við höfum ekki notað þá aðferð sem sumir nota að bjóða fólki að koma fram eða rísa úr sætum til merkis um að það viiji gerast kristið held- ur boðum trúna, bjóðum upp á tilbeiðslu og guðsþjónustu, stund- um með leikrænni tjáningu og síð- an kemur það bara í ljós hvort einhveijir koma aftur. Það hafa margir gert og söfnuðurinn telur nú um 200 manns. Við bjóðum vinum og kunningjum eða starfs- félögum að koma og höfum eink- um í huga þá sem við vitum að hafa ekki sótt kirkju og það hefur komið á daginn að margir eru þakklátir fyrir að hafa fengið þetta tækifæri. Rússneskan kemur að gagni En aftur að starfinu meðal námsmanna og Chua Wee Hian er beðinn að segja nokkur orð um það: -Til að ná markmiði sínu bjóða kristilegu stúdentafélögin oftast upp á sérstaka biblíulestra fyrir námsmenn. Þannig kynnast með boðskap Biblíunnar, ræða um hann í litlum hópum og leiðtogarn- ir reyna að svara þeim spurningum sem vakna. Þannig hefur verið starfað í fjölmörgum löndum og hlutverk alþjóðasamtakanna er að veita aðstoð eftir föngum. Við útvegum starfsmenn sem sjá um skipulagningu starfsins en síðan ráða landsfélögin eigin menn og þegar starfið hefur komist á legg sendum við okkar menn annað. Síðustu árin hef ég ferðast á milli til að halda námskeið og hvetja menn til dáða í þessum efnum enda hafa kristilegu stúdentafé- lögin mjög mikilvægu hlutverki að gegna í kristniboði nútímans. Þetta hefur til dæmis komið í ljós eftir að Austur-Evrópa hefur opnast. Við höfum oft fengið námsmenn frá löndum Austur- Evrópu á námskeið okkar og þannig vitað að til væru hópar kristinna stúdenta þar. Þetta eru fámennir hópar sem starfað hafa í leynum en núna fáum við tæki- færi til að senda þeim starfsmenn til aðstoðar og má segja að síð- ustu mánuðina hafi öll orka okkar beinst að þessum löndum. En það merkilega er að við höfúm fengið aðstoð frá sumum þessara landa. Þannig hafa námsmenn frá Ung- veijalandi aðstoðað okkur við starf í Búlgaríu og námsmenn frá Póll- andi farið til starfa í Sovétríkj- unum því þeir hafa flestir lært rússnesku. Pólveijarnir hafa einmitt sagt að þeir sjái nú eftir því að hafa ekki lært rússneskuna betur. Þeim hefur alltaf verið í nöp við hana en nú sjá þeir að hún kemur að gagni! Verðum að hafa markmið Wee Hian hefur skrifað tvær bækur og Ijallar önnur þeirra um leiðtoga og hefur hann víða haldið námskeið fyrir leiðtoga í kristilegu starfí. Hann nefndi í sambandi við nýju kirkjuna í London að þeir stefndu að því að stækka hana í 500 manns á næstu tveimur árum. Er hægt að setja sér slík markmið í kristilegu starfi? -Það kann að hljóma digur- barkalega en við settum okkur þetta markmið og það þurfa stjórnendur í kristilegu starfi jafn- an að gera rétt eins og menn gera við venjulega fyrirtækjastjórnun. Við verðum að stefna að einhverju og vanda okkur við það verkefni sem Guð hefur falið okkur. Við getum aðeins vænst árangurs í starfinu ef við setjum okkur mark- mið og berum þau fram fyrir Guð í bæn og erum ávallt undir hand- leiðslu hans. , jt , Austur-Eyj afj öll: Safnhúsið í Skógum fokhelt Holti. verkfræðing og framkvæmdarstjóra Héraðsnefndar í Rangárvalla- LAUGARDAGINN 2. desember bauð bygginganefnd Safnhúss í Skógum og safnvörður til sam- sætis í nýja félagsheimilinu í Skógum í tilefni þess að safnhús Rangæinga og Vestur-Skaftfell- inga var fokhelt. Fyrst var safn- húsið skoðað undir leiðsögn arki- tekta og verkfræðings og síðan var byggingarsagan sögð í mörg- um ræðum í félagsheimilinu. Formaður byggingamefndar, Friðjón Guðröðarson, sýslumaður, lýsti aðdraganda byggingarinnar sem væri fyrst og fremst að byggða- safnið í Skógum væri orðið eftirsótt- asta byggðasafn landsins fyrir dugnað og sérstæða alúð Þórðar Tómassonar. Á þessu ári hefðu um 17.000 gestir heimsótt safnið. a um 40 árum hefði Þórður ekki aðeins safnað verðmætum munum víðsveg- ar að, heldur einnig byggt upp byggðasafnið í orðsins fyllstu merk- ingu, 10 hús, sem hann hefði sum endurbyggt og hlaðið upp stein fyr- ir stein. 1986 hefðu sýslunefndir Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga ákveðið að bæta starfsaðstöðu Þórð- ar og einnig að byggja yfir skjala- safn sýslnanna og gefa um leið möguleika á því að hafa aðstöðu fyrir þjóðháttakennslu fyrir Skóga- „ skóla í tengslum við byggðasafnið og safnhúsið. Samstarfssamningur hafí verið gerður milli sýslnanna þar Bygginarnefndin með arkitektum, sýslu, Jóni Þorgilssyni. sem ákveðið hafi verið að Rangæ- ingar greiddu 75% af kostnaði en Vestur-Skaftfellingar 25%. Kostn- aður við bygginguna næmi nú um 22 milljónum, en áætlaður heildar- kostnaður næmi um 58 milljónum. Reiknað hafi verið með að ríkissjóð- ur -greiddi þriðjung af byggingar- kostnaði samkvæmt nýlega sam- þykktum þjóðminjalögum, en engar greiðslur hefðu enn fengist. Skuldir væru því nokkrar og óvíst um fram- hald, en það sem mestu skipti væri sú samstaða sem ríkti hjá heima- mönnum, sú ákvörðun Vestur- Skaftfellinga að vera með í þessari byggingu og síðan einörð afstaða héraðsnefnda að halda áfram við þetta verkefni. Þakkaði hann síðan arkitektunum Stefáni Erni Stefáns- syni og Grétari Markússyni, svo og byggingaverkfræðingi, Gunnari Ólafssyni. Þá þakkaði hann verktök- um, Byggingaþjónustunni á Hvols- velli og Klakki hf. í Vík, ásamt öðr- um undirverktökum, og síðast bygg- ingarnefndarmönnum frá 1986 til dagsins í dag. Jón R. Hjálmarsson, fyrrverandi fræðslustjóri, Þór Magnússon þjóð- minjavörður og sr. Siguijón Einars- son, byggingamefndarmaður safn- hússins fluttu ávörp og hvatningar- ræður, sem snerust mikið um hið einstaka starf Þórðar Tómassonar, safnvarðar í Skógum, sem væri að bera svo mikinn ávöxt til framtíðar, sem höfðaði til menntunar og menn- ingar. Að síðustu flutti Þórður Tómas- son ræðu þar sem hann rakti í stór- um dráttum 40 ára starfsemi byggð- asafnsins í Skógum. Hann sagðist hafa reynt að mjór er mikils vísir. Hann hafi með hjálp svo margra geta komið því í verk, sem hann hafi dreymt um, í varðveizlu muna og heimilda. Dagurinn í dag væri mikill hamingjudagur í lífi hans og sagðist hann vona að svo væri einn- ig meðal Rangæinga og Vestur- Skaftfeliinga sem upphaflega hefðu staðið saman að uppbyggingu Byggðasafnsins og nú þessa safn- húss. Að lokinni ræðu Þórðar stóðu all- ir viðstaddir upp og þökkuðu honum og fögnuðu með langvarandi lófa- klappi. - Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.