Morgunblaðið - 05.12.1990, Side 38

Morgunblaðið - 05.12.1990, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 Hjörtur Oddsson læknir - Minning Fæddur 31. ágúst 1962 Dáinn 26. nóvember 1990 í dag er til hinstu hvfldar borinn Hjörtur Oddsson sem lést þann 26. nóvember síðastliðinn eftir hetju- lega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Kynni okkar Hjartar hófust þeg- ar við stunduðum nám við lækna- deild Háskóla íslands. Það tókust fljótt náin kynni með okkur. Hjörtur var afburða námsmaður og virtist hafa lítið fyrir náminu. Hann var og mikill íþróttamaður og samfara námi lék hann körfubolta með úr- valsdeildarliði ÍR. Hann lék jafn- framt nokkra leiki með landsliðinu í körfubolta. Hjörtur var traustur félagi og hógværð og prúðmennska einkenndu hann. Hjörtur veiktist skömmu áður en við hófum nám á 5. ári í læknis- fræði. Veikindin virtust í fyrstu sakleysisleg en ágerðust eftir því sem leið á haustið. Rétt fyrir jólin 1986 greindist hann með illkynja sjúkdóm. Það var öllum sem hann þekktu mikið reiðarslag. Skömmu áður hafði hann hafið sambúð með Siggu kærustu sinni og tekið að sér fósturdótturina Hrafnhildi. Hjörtur tók Hrafnhildi sem sinni eigin dótt- ur og varð hún mjög hænd að hon- um enda hafði hann sérstakt lag á því að nálgast fólk á vingjamlegan hátt. Samband þeirra gaf Hirti mik- ið. Veikindin og erfið meðferð sem fylgdi í kjölfarið reyndi mikið á Hjört og hans nánustu en það var aðdáunarvert hve mikinn kjark og æðruleysi Hjörtur sýndi. Vonir vöknuðu um að sjúkdómurinn hefði látið undan. Hjörtur náði sér ágæt- lega, en veikindin höfðu þó greini- lega markað djúp spor. Frítíma sinn mat hann mun meira en áður. Hann fékk áhuga á stangaveiði og eyddi miklum tíma í það áhugamál sitt. Hafði hann gjarnan Hrafnhildi með sér við veiðar. Hjörtur hafði tafíst um eitt ár í námi vegna veikindanna en settist aftur á skólabekk og útskrifaðist úr læknadeild vorið 1989. Hann hóf störf sem læknir á ísafirði þá um haustið. Þar hafði hann aðeins starfað í fáa mánuði þegar veikindi hans tóku sig upp, einmitt þegar framtíðin virtist blasa við honum á ný. Aftur tók við strangt meðferð- artímabil sem var jafnvel erfiðara en hið fýrra. Hjörtur fékk mikinn stuðning frá sínum nánustu og þrátt fyrir erfíð tímabil var alltaf til stað- ar von um að sigrast á sjúkdómnum. í september sl. fór Hjörtur til Svíþjóðar þar sem gera átti úrslita- tilraun til að fá lækningu. Þegar við kvöddumst í síðasta sinn áður en hann lagði upp í þá ferð fann ég vel hversu náinn vinskapur okk- ar var. Þrátt fyrir langa og stranga baráttu fór svo að lokum að sjúk- dómurinn hafði yfirhöndina. Glæsilegur drengur er látinn langt um aldur fram. Hans mun verða sárt saknað. Betri vin og fé- laga get ég ekki hugsað mér. Ég sendi foreldrum hans og systkinum, Siggu og Hrafnhildi, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Davíð Hjörtur Oddsson, læknir, lést í Uppsölum í Svíþjóð þann 26. nóv- ember síðastliðinn eftir hetjulega baráttu við hvítblæði. Hann var sonur hjónanna Odds Rúnars Hjart- arsonar, dýralæknis, og Soffíu Ágústsdóttur. Við hjónin kynnt- umst Hirti fyrir fjórum árum, þegar hann fór að vera með systurdóttur konunnar, Sigríði Jónsdóttur. Við urðum vitni að ástarsögu, sem var í senn fögur og hrífandi, en tók svo snemma á sig mynd sorgar. Sorgin spyr ekki um stund og stað og hún er gjaldið sem við greiðum fyrir það að elska. Hitt er jafn víst að við viljum öll fremur lifa í heimi þar sem ástin og sorgin er veruleiki, en að lifa í heimi þar sem kærleikur- inn og sorgin eru ekki til staðar. Hverfulleiki lífsins ögrar mennsku okkar, en er jafnframt tákn mennsku okkar. Án hverfulleikans værum við allt aðrar manneskjur, sem vissu ekkert um sorg og skugga mannlífsins. Sorgarsagan hófst þegar tíðindin bárust um það mein sem Hjörtur bar og hefur gengið mjög nærri Sigríði, foreldrum hans og systkin- um, og öðrum aðstandendum. Það er án efa satt, sem sagt hefur ver- ið, að krabbamein leggi undir sig heilu fjölskyldurnar. En ástvinir hans sýndu honum þá umhyggju og þann kærleika, sem einn getur snúið áföllum lífsins í sigur. Hjörtur var efnispiltur og lauk prófum í læknisfræði með miklum ágætum. Hann var afar vel gerður og viðmótsþýður ungur mður og það er á engan hátt ofmælt, að hann hafði til að bera alla þá kosti sem prýða góðan lækni. Lífsviðhorf hans bar þess merki að hann þekkti enga uppgjöf. Það kom hvað eftir annað fram í baráttu hans við sjúk- dóminn. Þessa lífsafstöðu skilur hann nú eftir hjá ástvinum sínum og hún er um leið hvatning ungu fólki sem fínnst anda kalt í fang. Hann var nærgætinn og vildi ekki íþyngja öðrum væri þess nokkur kostur. Haft er á orði að aldrei sé meira á okkur lagt en við getum borið. Það er hægt að draga í efa sann- indi þeirra orða. Við finnum til beiskju þegar ungt fólk deyr í blóma lífsins, en við höfum þá trú að Krist- ur beri þann kross fyrir okkur. Hann bar ekki aðeins krossinn sinn heldur kross okkar allra. Hann get- ur hjálpað okkur að horfast í augu við sáran missi og vinna okkur í gegnum sorgina. Ef við gerum það ekki kemur sorgin á hæla okkur með öllum þeim kvillum og tilfínn- ingalega umróti sem því fylgir. Við hjónin samhryggjumst Sigríði, for- eldrum Hjartar og systkinum. Við fáum ekki skilið tilgang þessarar sorgar, en við viljum deila sársauk- anum með þeim og varðveita minn- inguna um góðan dreng, sem verð- ur frá engum tekinn. Edda Björk Bogadóttir og Ólafur Oddur Jónsson Hann var sonur hjónanna Soffíu Ágústsdóttur og Odds Rúnars Hjartarsonar dýralæknis og var þriðji í röð fjögurra systkina. Ég hefí þekkt þennan bróðurson minn frá fæðingu, hann var hár og grannur, ljóshærður, glaðvær og reglumaður í hvívetna. Hann var mjög góður námsmað- ur og átti auðvelt með lærdóm, hann sýndi það best þégar hann tók lokapróf úr læknadeild Háskóla ís- lands með góðri einkunn en þá nokkru áður hafði farið að bera á þeim sjúkdómi sem bar hann ofur- liði. Hjörtur var góður íþróttamaður. Á unglingsárum þegar hann bjó á Hvanneyri æfði hann og keppti í sundi og þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur og hann fór í mennta- skóla og háskóla tók körfuboltinn við en honum kynntist Hjörtur mjög vel þegar hann dvaldist með foreldr- um sínum í Bandaríkjunum. Keppti hann þar með skólaliði og þegar íjölskyldan flutti heim mátti þjálfar- inn ekki missa hann úr liðinu og bauð honum að búa hjá sér í nokkra mánuði og vera lengur í skólanum og keppa með liðinu. Þegar heim kom kepptu þeir bræður Kristján og Hjörtur með 1. deildarliði ÍR í körfubolta eftir því sem tími gafst til frá námi, en þeir luku prófí í læknisfræði saman árið 1989. Það var sama hvað hann frændi minn tók sér fyrir hendur hann sýndi ávallt þol og kraft en mestan keppnisanda sýndi hann þó í barátt- unni við þann sjúkdóm sem lagði hann að velli eftir fjögurra ára bar- áttu. Hann viðurkenndi ekki orðið upp- gjöf, það fyrirfannst ekki í hans orðaforða hvað sjúkdóminn varðaði, það var ekki fyrr en allra síðast að hann vissi og varð að viðurkenna að baráttan var töpuð. En hann frændi minn stóð ekki einn í barátt- unni, foreldrar hans, unnusta og systkini stóðu eins og klettar við hlið hans, háðu baráttuna með hon- um, hjálpuðu honum og styrktu á allan þann hátt sem mögulegt var. Það er sárt að sjá á bak ungum efnilegum manni sem var að ljúka við að búa sig undir ævistarfið sem fólst í því að lina þjáningar og hjálpa meðbræðrum sínum og ekki var síður sárt-að vita af þeim miklu þjáningum sem hann mátti sjálfur þola á méðan baráttan um lífið stóð yfír. Hjörtur var í sambýli með Sigríði Jónsdóttur, þau áttu ekki bam sam- an, en Sigríður átti dóttur fyrir og var samband hennar og Hjartar mjög náið og gott. Þessar fátæku línur eru frá afa hans og ömmu^ föðursystkinum hans og fjölskyldum þeirra, í minn- ingu um góðan dreng sem féll frá langt um aldur fram. Hafí hann þökk fyrir samfylgdina. Foreldrum hans, unnustu og systkinum, sendum við innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að milda sorg þeirra. Einar H. Hjartarson Nú er Hjörtur dáinn. Fjögurra ára hetjulegri baráttu er lokið. Um skeið hafði verið ljóst að hjá úrslita- orustunni yrði ekki komist. Þrátt fyrir allt það þrek og þann mikla styrk sem hann sýndi var hann ofur- liði borinn. Hjörtur var glæsilegur maður. Hann var hár vexti, ljós yfirlitum og laglegur. Hann var gæddur góð- um gáfum, hafði sterka skapgerð og ákveðnar skoðanir, Honum fór því flest vel úr hendi. Hjörtur var ákaflega næmur á tilfínningar ann- ars fólks og lét sér annt um þá sem minna máttu sín. Þrátt fýrir bága heilsu gat hann alltaf gefíð svo mikið af sér. Eigin vanlíðan skyggði aldrei á umhyggju þá er hann bar fyrir öðrum. Hjörtur kynntist Sigríði unnustu sinni aðeins hálfu ári áður en hann kenndi þess meins er varð honum að aldurtila. Mikið var því lagt á þeirra unga samband, en gagn- kvæm hrifning þeirra hélst óhögg- uð. Baráttan gaf honum dýrmætan tíma sem hann nýtti vel. Hjörtur var bamgóður og naut Hrafnhildur fósturdóttir hans góðs af samvist- um við hann. Hann kenndi henni margt, meðal annars að synda, hjóla og veiða. Ófá voru kvöldin sem Sigríður tók á móti tveim rennblaut- um en ánægðum veiðimönnum eftir góðan dag úti í náttúrunni. Við áttum margar Ijúfar sam- verustundir með Hirti og Siggu. Kvöldin í Selvogsgmnni þegar setið var fram á nótt við samræður og dagarnir uppi-í sumarbústað þar sem tíminn var ekki til. Hjörtur hafði til að bera svo mikla hlýju að tengsl við hann urðu fljótt náin, hann varð sem eldri bróðir. í hinuip erfiðu veikindum Hjartar stóðu foreldrar hans, unnusta og systkin þétt að baki honum, engin fórn var of stór. Viljum við votta þeim öllum okkar dýpstu samúð. Nú er komið að kveðjustund. Hjörtur þráði lífið svo heitt, hann skilur eftir sig margar fallegar minningar. Fyrir þær viljum við þakka. Elín og Magnús Kveðja frá FUL Þann 26. nóvember lést félagi okkar Hjörtur Oddsson eftir fjög- urra ára baráttu við illvígan sjúk- dóm. Hirti kynntumst við í námi við læknadeild Háskóla íslands. Þar lærðum við um sjúkdóma og með- ferð þeirra af bókum og við fyllt- umst bjartsýni og trú á lækna- vísindin. Fjarri flestum okkar var þó nálægð alvarlegra sjúkdóma og dauðans. Um það leyti sem við kynntumst raunveruleika sjúkra- húsa veikist félagi okkar af alvar- legum sjúkdómi. í nálægð og fjar- lægð fylgdumst við með baráttu Hjartar og kynntumst um leið ann- arri hlið sjúkdóma, hlið sem við lærum aldrei af bókum. Þrátt fyrir mikið líkamlegt og andlegt álag lýkur Hjörtur erfíðu námi og út- skrifast vorið 1989 frá læknadeild Háskóla íslands með góðum vitnis- burði. Á þessum tímum vonuðum við að tekist hefði að ráða niðurlög- um sjúkdómsins og framundan væru bjartari tímar og nú hæfíst ævistarfið sem Hjörtur hafði valið sér. En reyndin varð önnur. Meðal félaga sinna í námi og starfi naut Hjörtur vinsemdar og virðingar. Því í honum kynntumst við manni sem var heilsteyptur. Manni sem var skynsamur. Manni sem var hlýr. Fallinn er frá góður drengur. Við söknum hans og minnumst með hlýju. Aðstandendum vottum við samúð okkar. F.h. Félags ungra lækna, Lúther Sigurðsson. Mig langar í fáum orðum að minnast vinar míns Hjartar Odds- sonar. Kynni okkar hófust í lækna- deild fyrir átta árum. Ég fann strax að hér fór einstakur og góður drengur. Hann var hlýr í viðmóti, hress, einlægur og skemmtilegur. Þó svo að kynni okkar takmörkuð- ust að miklu leyti við veru okkar í læknadeild fannst mér ég þekkja hann vel. Nú þegar hann er ekki lengur á meðal okkar, sakna ég þess að hafa ekki átt meiri tíma með honum. Styrkur Hjartar og einstæður perónuleiki kom berlega í ljós þegar hann þrátt fýrir erfið veikindi lauk glæsilegu læknaprófí aðeins ári síðar en hann upphaflega ætlaði. íslenska læknastéttin hefur misst góðan mann. Á námsárunum kynntist Hjörtur unnustu sinni, Sigríði Jónsdóttur. Alltaf var gam- an að koma í heimsókn til þeirra Hjartar og Siggu, góðar veitingar og skemmtilegar umræður. Elsku Sigga, Guð gefí þér styrk á þessum erfiðu tímum. Fjölskyldu og öllum ástvinum Hjartar votta ég mína dýpstu samúð. Guðmundur Daníelsson Hjörtur Oddsson fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1962, sonur hjónanna Soffíu Ágústsdóttur og Odds R. Hjartarsonar dýralæknis. Hann andaðist í Uppsölum í Svíþjóð 26. nóvember sl. 28 ára að aldri. Hjörtur ólst upp með foreldrum sínum í glaðværum systkinahópi á Hvanneyri í Borgarfírði. Ungur fór hann til skólavistar á Reykjum í Hrútafirði ásamt Kristjáni bróður sínum. Fylgdust þeir bræður síðan mjög að á námsbrautinni. Þegar kom að menntaskóla fluttist hann með fjölskyldu sinni til Banda- ríkjanna og bjó þar um tveggja ára skeið. Þar stundaði hann nám og íþróttir, en stúdentsprófíð lauk hann við í Menntaskólanum við Hamrahlíð í árslok 1981. Næsta ár hóf hann nám í læknisfræði við Háskóla íslands og lauk þaðan prófí með góðum vitnisburði vorið 1989. Hjörtur lagði alla tíð rækt við íþróttir, einkum sund og körfu- knattleik, þar sem hann náði einkar góðum árangri. Starfsferill hans varð ekki lang- ur. Aðeins fáa mánuði auðnaðist honum að sinna læknisstörfum að ríámi loknu, á Vífílsstaðaspítala og við heilsugæslustöðina á Isafírði. Nú eru liðin tæp 5 ár síðan við kynntumst Hirti. Hann kom þá til okkar í fylgd Sigríðar dóttur okkar. Tvennt vakti strax athygli, gagn- kvæm hrifning þeirra og glæsileiki þessa unga manns. Hann var hár og grannvaxinn, ljós yfirlitum. Þau Sigríður efndu til sambúðar með Hrafnhildi dóttur hennar. Við nánari kynni birtust okkur mann- kostir hans. Hann bjó að góðum námsgáfum og líkamlegu atgervi og því eðlilegt að hann væri kapp- samur. En þess gsétti lítt, því hann var stilltur í framkomu og hógvær í tali. Stutt var í glettni, einkum er hann sagði frá liðnum árum æsku og skólavistar. Reglusemi var honum eiginleg og einstök var alúð hans við börn og unglinga. Sam- band hans við Hrafnhildi litlu bar vott um það. Með honum fór hún í sund og fimleika og hann var sá, er hljóp á eftir, þegar hún lærði á hjóli. Hjörtur hafði yndi af ferðalögum og útivist. Þær mæðgur nutu góðs af því og með vinum sínum fór hann í veiðiskap. Héruð Borgar- fjarðar voru honum einkar kær. Framtíðin var björt og markið sett hátt, en skjótt skipast veður í lofti. Áður en árið var liðið frá okk- ar fyrstu kynnum hafði greinst hjá honum alvarlegur sjúkdómur. Hjörtur var neyddur í ójafna viður- eign við skæðan ofjarl. Sú barátta stóð í 4 ár. Hann náði að vísu stund- arbata, sem varði nokkur misseri og þá gat hann lokið síðustu áföng- um læknanámsins. En hann gekk ekki heill til skógar. Skapgerð hans kom enn ákveðnar fram í þessum raunum, stillingin, umhyggjan fyrir öðrum og viljinn til að vera með og taka þátt í lífi fjölskyldunnar. Jafnvel ferðir til veiða stundaði hann, þó af minni mætti en manni var þá ljóst og meiri vilja. Þegar kom að lokahríðinni voru kraftar hans á þrotum. Skilningur manna hrekkur skammt, þegar ungur maður er á brott kvaddur í upphafi manndóms- ára. Það er eins og guðdóminum hafí snúist hugur, þótt það sé raun- ar um seinan. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði-að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er áð birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.