Morgunblaðið - 05.12.1990, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Viðskipta- eða skemmtifundi
verður frestað í dag. Þú ert á
réttri leið með skapandi verkefni
sem þú hefur með höndum. Þér
berst mjög sérstakt heimboð
núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér kunna að áskotnast pening-
ar í .dag. Þetta er góður tími til
að skoða eign og fyrir fjölskyld-
una almennt. Kauptu inn núna.
Tvíburar
(21. mai - 20. júní)
Það er mikill kraftur í þér í dag.
Fjármálasamningur kann að
klúðrast vegna skriffinnsku, en
að öðru leyti verður dagurinn
ánægjulegur. Sumir einhleyp-
ingar trúlofa sig núna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert með mörg járn í eldinum
núna og virðist ætla að hafa
umtalsvert upp úr krafsinu. Frá-
bært viðskiptatækifæri berst inn
á borð til þín í dag. Sumir öðl-
ast viðurkenningu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það kann að verða erfitt fyrir
þig að einbeita þér við vinnuna
núna, en þú drífur í að skipu-
leggja samkomu fyrir vinahóp-
inn. Þetta verður ágætur dagur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þér er í mun að geta byrjaö á
einhveiju undirbúningsverkefni
sem tengist frama þínum hjá
fyrirtækinu. Þú hefur heppnina
með þér í sambandi við verk sem
þú vinnur að heima fyrir í dag.
Þú breytir tímasetningu á
stefnumóti.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Sinntu félagslífmu í dag og
taktu heimboði eða ferðatilboði
sem þér berst núna. Taktu tillit
til tilfinninga fjölskyldumeðlims.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^^0
Þér opnast dyr í viðskiptalífinu
og þú átt annríkt við að und-
irbúa framtíðaráætlun. Það lítur
greinilega út fyrir að flárhagur
þinn sé að vænkast.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) Sfí')
Þú fagnar tækifæri til að ferð-
ast. Námsmenn fá góðar fréttir
-af menntunarmöguleikum.
Sinntu fjölskyldumálum þínum
af alúð núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjármálaþróunin er þér'í hag í
dag. Þú afkastar miklu í vinn-
unni núna. I kvöld verður þú í
vafa um hvort þú ræðst í ákveð-
in kaup eða ekki.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Hjón ráðgera að fara eitthvað
sérstakt saman núna. Það lifnar
yfir þátttöku þinni í félagsstarfi
og þú hittir fólk sem þú átt
auðvelt með að lynda við.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert með mörg járn í eldinum
og það getur komið þér í koll í
viðskiptum í dag. Þú þarft að
ákveða tímasetningu mikil-
vægra funda og búa þig undir
að grípa gæsina þegar hún
gefst.
AFMÆLISBARNIÐ er metnað-
argjarnt og fúst að taka áhættu.
Það er mikið fyrir breytingar og
gengur vel að vinna méð fólki.
Það hefur góða tjáningarhæfi-
leika og kann að gera sér mat
úr hugmyndum sínum. Það er
einnig búið tónlistarhæfileikum
og kann því að laðast að svið-
inu. Það er hrifið af þátttöku i
opinberu lífí og er oftast með
mörg jám í eldinum.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
kyggjast ekki á traustum grunni
Visindalegra staóreynda.
/
DÝRAGLENS
LJÓSKA
SMÁFÓLK
Kennari, er þér sama þó ég sitji liér
fyrir aftan?
Ég held ég geti kannski svarað
spurningu þinni betur frá endalín-
unni.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sam Stayman höfundur
víðfrægustu sagnvenju brids-
íþróttarinnar, er enn þaulsetinn
við spilaborðið þótt hann sé kom-
inn á níræðisaldur. Fyrrum
spilafélagi hans, B. Jay Becker,
lést fyrir þremur árum, en sonur
Beckers, Michae,l er nú einn af
bestu spilurum Bandaríkjanna.
Hér er nýlegt spil, þar sem Stay-
man og Becker yngri kljást við
spilaborðið með eiginkonur sínar
sem samheija:
Norður gefur; AV á hættu
Vestur
♦ KG854
VKG83
♦ 5
+ Á94
Vestur Noröur Austur Suður
— Pass Pass 1 hjarta
1 spaði Dobl 2 spaðar 3 tíglar
Pass 4 tíglar Pass 5 tíglar
Útspil: tígulfimma.
Becker var í austur, en kona
hans Judy í vestur. Hún hitti á
gott útspil, því ef vörnin
tvítrompar ekki út nær sagnhafí
að fría hjartað. En vömin er
rétt að heijast.
Stayman tók útspilið í blind-
um og spilaði litlu laufi. Becker
fann nú einu vörnina. Hann
stakk upp kóngnum, tók spaðaás
og trompaði út!i
Allt var þetta nauðsynlegt. í
fyrsta lagi varð að standa vörð
um laufás vesturs. í öðru lagi
þurfti að taka spaðaslaginn, því
annars myndi Stayman henda
spaðaþristinum í laufadrottn-
ingu. Og í þriðja lagi þurfti að
trompa út til að veija hjartaslag
vesturs.
Norður
♦ 10762
V4
♦ ÁDG9
+ D1083
Austur
♦ ÁD9
V 965
♦ 84
+ K7652
Suður
♦ 3
VÁD1072
♦ K107632
*G
Umsjón Margeir
Pétursson
Á haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur kom þessi staða upp
í skák þeirra Árna Ármanns
Árnasonar_(2.135), og Lárusar
Jóhannessonar (2.175), sem
hafði svart og átti leik. Svartur
hafði þegar fórnað manni fyrir
öfiugt frumkvæði og lét nú meira
lið af hendi til að koma hvíta
kóngnum á hrakhóla:
21. - Hxd2!, 22. Kxd2 - Rxc4+,
23. Dxc4 - Dxb2+, 24. Ke3 -
He8+, 25. Kf2 - Bd4+, 26.
Kg3? (Þetta er alltof hættulegt,
skákin hefði verið jafntefli eftir
26. Dxd4 - Hxe2+, 27. Kfl -
Dxd4, 28. Kxe2. Nú nær svartur
vinnandi sókn) 26. - Hxe2, 27.
Dd3 - Be5+, 28. f4 - Hg2+,
29. Kh3 - Bxf4, 30. g5 - Hxg5,
31. Hagl - Hh5+, 32. Kg4 -
Df2, 33. h4 - h5, og hvítur gafst
upp.