Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 vítkeppnin ÍSLENSKf HANDBOLTINN 14. UMFERÐ Miðvikudagur 5. des. kl. 18:30 Valur - Selfoss Hlíðarendi Miðvikudagur 5. des. kl. 20:00 Víkingur - Grótta Laugardalshöll Miðvikudagur 5. des. kl. 20:00 ÍBV - Haukar Vestmannaeyjar Miðvikudagur 5. des. kl. 20:15 Stjarnan - FH Ásgarður, Garðabæ Fimmtudagur 6. des. kl. 20:00 KR - ÍR Laugardalshöll 15. UMFERÐ Föstudagur7. des. kl. 20:30 KA - ÍBV íþróttahöllin, Akureyri Laugardagur 8. des. kl. 16:30 Fram - Valur Laugardalshöll Laugardagur 8. des. kl. 16:30 FH - Víkingur Kaplakriki, Hafnarfirði Laugardagur 8. des. kl. 16:30 Selfoss - Stjarnan íþróttahús Selfoss Laugardagur 8. des. kl. 16:30 ÍR - Haukar Seljaskóli Laugardagur 8. des. kl. 16:30 Grótta - KR Seltjarnarnes 16. UMFERÐ Þriðjudagur 11. des. kl. 20:00 Víkingur - Selfoss Laugardalshöll vlr VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ BoJohansson, landsliðsþjálfari: Tilraunastarfsemi í forkeppni gengur ekki ÍSLENSKA landsliðið í knatt- spyrnu virðist ekki eiga mikla möguleika á að hækka í styrk- leikaflokki eftir forkeppni Evr- ópumótsins, sem hófst á árinu og lýkur næsta haust. Riðillinn er enda mjög sterkur og vart raunhæft að gera ráð fyrir mörgum stigum gegn Frökk- um, Spánverjum eða Tékkum. Stjórn KSÍ hefur sagt og for- maðurinn áréttaði á ársþinginu um helgina að stefnan væri að komast í lokakeppni HM 1994 og því þyrfti að byggja upp sterkt lið með f ramtíðina í huga. Bo Johansson, landsliðs- þjálfari, segir hins vegar að möguleikarnir felist fyrst og fremst í því að færast upp um styrkleikaflokk og því gangi ekki að vera með tilraunastarf- semi íforkeppninni — „ég stilli ávallt upp sterkasta liði.“ Landsliðið lék átta landsleiki á nýliðnu tímabili, þar af fjóra í forkeppni EM, og notaði Bo á fyrsta starfsári sínu alls 38 leikmenn. ■■■■I „Bæði var ég að Eftir reyna menn og eins Steinþór kemur ailtaf upp sú Guöbjartsson staða að ekki er völ á sömu mönnum leik eftir leik vegna ýmissa atriða. Reyndar náði ég aldrei að stilla upp sama byrjunarliði tvo leiki' í röð. Menn meiðast, fá sig ekki lausa frá liðum sínum og svo framvegis. Þetta verðum við að búa við, en ég er reynslunni ríkari og þarf vonandi ekki að nota jafnmarga leikmenn á næsta ári. Þar með er ekki sagt að menn eijgi stöðurnar heldur þvert á móti. Eg hef fylgst vel með íslenskum leikmönnum á árinu og veit hvað þeir geta, en ég er stöð- ugt með opin augun og leita að nýjum mönnum. Aðalatriðið er að tefla ávallt fram sterkasta liði, sem völ er á.“ Óöryggi Bo segir að liðið hafi ekki náð að leika vel í heilum leik í Evrópu- keppninni í sumar og það sé vanda- mál. „Þegar takmarkið er að sigra er maður aidrei fylliiega ánægður ef dæmið gengur ekki Upp — og jafnvel óánægður með sigur. Ég gerði mistök í fyrsta leiknum — gegn Albaníu. Þá sagði ég strákun- um að sækja frá byrjun, en það gleymdist að árétta að til að geta sótt verða menn að hafa boltann. Við lagfærðum þetta í hálfleik og betur gekk eftir hlé. Við áttum góða kafla í seinni hálfleik gegn Frökkum og lékum vel síðasta hálf- tímann gegn Tékkum og Spánveij- um. Vandamálið er að við stöndum okkur ekki í stöðunni 0:0, en þegar liðið hefur fengið á sig mark er eins og það vakni til lífsins. Þarna komum við inná sálfræðiþáttinn — við þurfum að ná vissu jafnvægi og halda því í 90 mínútur. Leik- mennirnir vírðast óöruggir og hræddir í byijun leiks, en þeir vilja ekki vera það og þurfa ekki að vera það. Þetta er atriði, sem við þurfum að taka á.“ Hvernig? „Islendingar, jafnt leikmenn sem aðrir, verða að trúa að þeir geti ekki aðeins haidið stiginu, sem þeir byija með í hveijum leik, heldur sigrað. Leikmennirnir hafa sýnt að þeir hafa þessa trú — þeir hafa verið óánægðir með að tapa með einu marki gegn sterkum þjóðum eins og FrökkumfTékkum og Spán- veijum. Það er spor í áttina, en þessi trú verður að vera til staðar frá byijun leiks til loka. Það er ekki nóg að sýna góða kafla af og til — við verðum að leggja áherslu á að leika betur í fyrri hálfleik. Það er aldrei hægt að segja til um hvem- ig leikur þróast, en til að eiga mögu- leika, verða leikmenn að byija með því hugarfari að þeir geti spilað, sótt og skorað. Við verðum að vera raunsæir, en ef við höfum ekki trú á sigur sigrum við ekki, færumst ekki upp um styrkleikaflokk og eigum ekki raunhæfa möguleika á að komast í lokakeppni. En fleiri stig — meiri möguleikar." Ekki bara HM Sumir telja að nota eigi for- keppni Evrópumótsins til að byggja upp nýtt lið með HM í huga. Bo er ekki á sama máli. „Við getum ekki eingöngu hugsað um HM held- ur verðum við einnig að taka alvar- lega á þeim verkefnum, sem liggja fyrir hveiju sinni. Þess vegna skipt- ir hver leikur í Evrópukeppninni miklu máii. Hvert stig er dýrmætt og ég bendi á að þegar raðað var í styrkleikaflokka fyrir keppnina munaði aðeins einu stigi á Islandi og Grikklandi. ísland var því mjög nálægt að komast í þriðja styrk- leikaflokk og að því verður að stefna, að klifra upp stigann. Þriðja sæti í riðli getur gefið sæti í úrslit- um HM, en það er ekki raunhæft að þriðja sætið náist, þegar þijú sterkari lið eru í riðlinum. Þess vegna verða árangur og uppbygging að fara saman. Það er auðvelt' að segja að nú skulum við byija með nýtt lið, en nýtt lið er ekki líklegt til að tryggja okkur þau stig, sem við þurfum, til að færast upp um flokk. Það eru margir efni- legir strákar í tuttugu og eins árs liðinu og ungu strákarnir eins og Anton Markússon og Steinar Guð- geirsson í Fram hafa staðið sig vel ■ með liði sínu, en það er mikið stökk að leika með landsliðinu og í raun allt annar handleggur. Það er eng- um greiði gerður með því að tefla fram mörgum ungum og óreyndum mönnum fram í landsleik í Evrópu- eða heimsmeistarakeppni, heldur verða þeir að öðlast reynsluna hægt og sígandi og helst á jákvæðan hátt. Því er nauðsyniegt að fá sem flest verkefni við hæfi til að menn fái tækifæri til að efla sjálfstraustið. Það er ekki uppbyggjandi að tapa stórt leik eftir leik og því er mikil- vægt að menn fái leiki gegn veik- ari liðum, sem þeir geta skorað gegn og sigrað. Jafnvel það eitt að skora getur virkað mjög hvetjandi. Færeyingar eru almennt ekki hátt skrifaðir í knattspyrnu, en þegar þeir skoruðu gegn okkur í sumar fögnuðu þeir eins og heimsmeist- aratitill væri í höfn. Það að skora var sem vítamínssprauta og allir vita hvað þeir gerðu gegn Aust- urríki. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga, þegar hugsað er til framtíðar- innar. Við byggjum best upp fram- tíðarlið með því að gefa mönnum tækifæri í æfingaleikjum til að byija með, þannig að þeir verði sem best undirbúnir, þegar kallið kem- ur. Þess vegna er verið að reyna að fá æfingaleiki á meginlandinu í mars, að skapa verkefni til að menn öðlist reynslu." Varnarmenn vantar Næsti leikur í Evrópukeppninni verður gegn Albaníu úti 25. maí. Bo segir að þrátt fyrir slæmt gengi U-21 árs liðsins hafi hann trú á mörgum mönnum liðsins. „Það er eins sennilegt að einhveijir þeirra verði með gegn Albaníu. Ég veit hvað þeir geta, þeir eru reynslunni ríkari og hafa alla burði til að verða betri næsta ár. Landsliðið er opið öllum og það er hægt að gera mikið með 19 ára pilt. Það er draumur allra að sjá ungan leikmann slá í gegn, en á þessari stundu er auðvitað ómögu- legt að segja til um hvemig liðið verður. Við erum með marga miðju- menn, en vantar tilfinnanlega meiri breidd hvað varnarmenn varðar og á það ekki síst við um yngri menn- ina. Sumir segja að Atli og Sævar séu orðnir of gamlir, en meðan menn eru góðir og heilir hefur ald- ur ekkert að segja. Eins og staðan er nú getur landsliðið varla verið án þessara tveggja manna, því við eigum ekki sambærilpga varnar- menn.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.